Tíminn - 18.02.1982, Qupperneq 1
Grein um Blöndumálid eftir Björn á Löngumýri - bls. 8-9
TRAUST OG
FJÖLBREYTT
FRÉTTABLAÐ!
Fimmtudagur 18. febrúar 1982
38. tölublað — 66. árg.
Stjórnarfrumvarpið um efnahagsráðstafanir
rennur ekki viðstöðulaust í gegn:
BREYTINGARTILLAGA
FRA STJÓRNARUÐA!
■ , ,Ég tel að þessi eins
prósentustigs lækkun á launa-
skatti eigi að ná til alls iðnaðar
og mun þvi flytja breytingartil-
lögu þess efnis”, svaraði Guð-
mundur G. Þórarinsson, al-
þingismaður, spurningu Timans
þar að lútandi. En heldur mun
sjaldgæft að stjórnarþingmenn
beri frara breytingartillögur við
stjórnarfrumvörp.
Þegar efnahagsráöstafanir
rikisstjórnarinnar voru kynntar
ijanúarmánuðis.l. varþar m.a.
gert ráð fyrir að launaskattur
lækkaði úr 3,5% i 2,5% i fiskiðn-
aði og iðnaði. 1 stjórnarfrum-
varpi sem lagt hefur verið fram
á Alþingi um breytta tekjuöflun
rikissjóðs vegna ráðstafana i
efnahagsmálum er aöeins gert
ráð fyrir lækkun launaskatts i
2,5% hjá útflutnings- og sam-
keppnisiðnaði auk fiskiðnaðar.
Guömundur vill sem fyrr segir
að þessi skattalækkun nái til
allra iðngreina.
Þess má geta að gengið var
frá frumvarpinu i sinni núver-
andi mynd i fjármálaráöuneyt-
inu.
—HEI
'sonurinn:
----------T
n
kúreki
- bls. 2
Boilu-
bakstur
- bls. 12
■ Elliöaárnar sóttu á ný i sig veðriö i stórrigningunni og rokinu I fyrrinóttog i gærmorgun. Eins og sjá má viröist ekki langt I þaö aö
hægt hefði verið aö fara á gondólum upp i Steypustöö þegar hæst hóaðí. (Timamynd Róbert).
Steindórsmálið:
LOGBANNSBEIÐNI SAM-
göngurAdherra hafnad
■ Lögbannsbeiðni samgöngu-
ráðherra á starfsemi bila-
stöðvarinnar Steindórs var hafn-
að hjá borgarfógetaembættinu i
gærmorgun,og var það Markús
Sigurbjörnsson, fulltrúi borgar-
fógeta, sem kvað upp úrskurð-
inn.
I forsendum úrskurðarins er
vitnað i 26. grein laganna um
kyrrsetningu og lögbann, sem
skýrir frá skilyrðum þess að
lögbann veröi íagt við athöfn.
Þar segir, að svo lögbann veröi
lagt á, verði athöfnin aö raska
rétti. Þvl gekk könnun borgar-
fógetaembættisins útá að kanna
hvort einhver réttur væri fyrir
hendi hjá samgönguráðherra,
sem verið væri að raska, með
þvi aö starfsemi Steindórs héldi
áfram.
t forsendunum heldur sam-
gönguráöherra m.a. þvi' fram,
að það eitt að starfsemi Stein-
dórs brjóti gegn lögunum, raski
hans hagsmunum. En i úr-
skuröinum er það skýrt að
raskanir á refsiákvæðum eigi að
mæta viðurlögum eftir opinber-
um leiðum, þ.e. i gegnum sak-
sóknara eða lögreglu.
Þá var það kannað hvort þessi
lög veiti samgönguráðherra
einhvem rétt, eða einhverja
heimild sem starfsemi Stein-
dórs bryti gegn, en eins og fram
kemur i úrskurðinum, þá greina
lögin frá þvi hvernig verklag
skuli vera við leyfisveitingar og
hvernig eigi aö framkvæma
jiessa hluti og þau greina frá
réttarstöðu þess sem fær leyfið,
en þau mæla hvergi fyrir um
rétt eða heimild handa sam-
gönguráðherra i þessum skiln-
ingi.
Forsenda úrskurðarins er þvi
sú aö samgönguráðherra þykir
ekki eiga slfkan rétt, að sýnt sé
að starfsemi Steindórs brjóti
gegn honum, en hins vegar er
ekki tekin afstaða, eða yfir
höfuð fjallaö um þaö i úr-
skurðinum, hvort starfsemi
Steindórs sé lögleg.
— AB
Sjá nánar bls. 5
bílar
- bls. 10-
Vísna-
þáttur
— bls. 9