Tíminn - 26.02.1982, Side 5
Föstudagur 26. febrúar 1982
fréttir
Útsýn og Samvinnuferðir í hár saman vegna tilboðs
þeirra síðarnefndu um ókeypis innanlandsflug:
. J\UG LÝSINGABRELLA”
— segir Ingólfur Guðbrandsson, forstjóri Útsýnar
■ , ,Með tilvisun til lagasetningar
um samkeppnishömlur, þá fæ ég
ekki betur séð en að þessi aug-
lýsingastarfsemi ferðaskrifstof-
unnar Samvinnuferðir-Landsýn
sé dlögleg”, sagði Ingólfur Guð-
brandsson forstjóri ferðaskrif-
stofunnar titsýnar i viðtali viö
Timann i gær, þegar hann var
spurður Ut i bréf það *sem hann
hefur ritað alþingismönnum og
farið fram á að Alþingi léti fara
fram rannsókn á ferðaskrifstofu-
þjönustu i landinu og visaði
Ingólfur sérstaklega i bréfi sinu
til frétta f fjölmiðlum og aug-
lýsingar Samvinnuferða-Land-
sýnar um ökeypis flutninga fólks
af landsbyggðinni til Reykjavikur
i tengslum við utanlandsferðir.
Ingólfur var að þvi spurður,
hvort ekki hefði verið eðlilegra af
hans hálfu að kæra Samvinnu-
ferðir-Landsýn beint til sam-
keppnisnefndar, i stað þess að
rita alþingismönnum bréf:
„Astæðan fyrir því að ég sendi
þetta bréf til alþingismanna, er
sií að það liggur nU fyrir þinginu
frumvarp um viðskiptahætti og
samkeppnishömlur.En samtsem
áður getur vel verið að það komi
til umfjöllunar annars staðar.
Mér fannst einfaldlega vera
ástæða til þess að vekja athygli á
þessu máli þvi' ég tel að þarna sé
bara um auglýsingablekkingu að
ræða”, svaraði Ingólfur.
Ingólfur sagði jafnframt að
þetta mál myndi fara til sam-
keppnisnefndar til athugunar,
„en ég er nú enginn illdeilu-
maður”, sagði Ingólfur, ,,en hins
vegar getur vel verið að ég sjái
mig knUinn til þess að kæra
þetta”.
Ingólfur var að því spurður
hvort hann hefði orðið var við að
dregið hefði úr viðskiptum hjá
þeim i Útsýn, eftir að Samvinnu-
ferðir-Landsýn fóru að auglýsa
þessi friu fargjöld innanlands:
,,Það er siður en svo.
Það hefur aldrei bókast meira
hjá okkur en i þessar siðustu vik-
ur — það koma um 200 nýjar
bókanir á dag í sólarlandaferðir.
Það er þvi engin örvænting á bak
við þetta bréf mitt. Viðbrögð frá
Samvinnuferðum við þessu bréfi
minu.hafa engin verið enda fæ ég
ekki séð hvaða vörnum þeir
fengju viðkomið þvi þarna er
bara bent á staðreyndir. útsýn
mun eftir sem áður reyna að veita
fólki alls staðar að á landinu
bestu fáanleg kjör i utanlands-
ferðum og nú erum við einmitt að
leggja siðustu hönd á samning um
sérhópferðarfargjöld fyrir far-
þega utan að landi, sem tengjast
utanlandsflugi Útsýnar”, sagði
Ingólfur Guðbrandsson.
—AB
Ingólfur Guðbrandsson
MARKMIÐ OKKAR AÐ
77
BJOÐfl HAGKVÆM
— en Útsýnar að ná hámarkshagnaði”,
segir Eysteinn Helgason,
forstjóri Samvinnuferða-Landsýn
■ „Viðbrögð Ferðaskrifstofunn-
ar útsýnar koma okkur i sjálfu
sér ekki svo mjög á óvart — við
höfum áður orðið varir við að
jafnvægi forstjóra Útsýnar færi
úr skorðum, þegar að keppinaut-
ar f itja upp á r.ý iungum, sem eru
fólkinu i landinu til góðs,” sagði
Eysteinn Helgason, forstjóri
Samvinnuferða-Landsýnar i við-
tali við Timann i gær , þegar
blaðamaður innti hann álits á
ásökunum Ingólfs Guðbrandsson-
ar, forstjóra Útsýnar, i' garð Sam-
vinnuferða-Landsýnar.
„Það verður að hafa það i huga
þegar þessi mál eru rædd,” sagði
Eysteinn, „að Ferðaskrifstofan
Útsýn er i einkaeign og er til-
gangurinn með rekstri hennar,
þvi væntanlega sá,að ná fram há-
markshagnaði, eins og skatt-
skýrslur undanfarinna ára bera
glöggt vitni um. Samvinnuíerðir-
Landsýn byggist hins vegar á að-
ild fjölmargra félagasamtaka,
sem hafa það markmið fyrst og
fremst að reka ferðaskrifstofu á
heilbrigðum grunni, sem er fær
um að veita félagsmönnum ferðir
á samkeppnisfæru verði. Þarna
skilur á milli okkar og Útsýnar.
Ef forstjóri Útsýnar álitur að
það að bjóða hagstæð kjör, sé
þjóðhagslega óhagkvæmt og
reyndar ólöglegt, eins og hann ýj-
ar að, þá væri rétla leiðin að bera
sliktundirdómstólana, en ekki að
trufla Alþingi með sliku kvabbi.
Ég vil itreka að þessi nýjung
okkar, hún hefur mælst mjög vel
fyrir, og fólk alls staðar að hefur
tekið henni vel og við höfum feng-
iðmiklar bókanir, jafnt frá lands-
byggðinni, og ekki siður hér af
Suð-Vesturlandinu, enda bjóðum
við upp á hagkvæmasta verðið, ef
gerður er hlutlaus samanbui öur á
verðlistum ferðaskrifstolanna.
Þar að auki er veittur sérstakur
aðildarafsláttur, sem hvorki er
greiddur úr orlofssjóðum verka-
lýðsfélaganna, né af rikisf'ram-
lagi, eins og Útsýnaríorstjórinn
ýjar að, heldur er þessi aísláttur
einfaldlega kominn til vegna mis-
munandi markmiða ferðaskrif-
stofanna, eins og að framan
greinir, en þar sagði ég aö mark-
mið Ferðaskrifstofunnar Útsýnar
er að ná hámarkshagnaði, en
markmið Samvinnuferða-Land-
sýnar er að geta boðið upp á sem
Eysteinn Helgason
hagkvæmustu kjörin fyrir við-
skiptavini sina.”
— AB
Um 7,5 milljörðum króna ?Tstolid” frá sparifjáreigendum á síðasta áratug:
Verðmæti 150 skuttogara!
■ „I árslok 1980 höfðu sparif jár-
eigendur tapað 7.5 milljörðum
nýkróna (á verðlagif árslok 1980)
á áratugnum 1971-1980 vegna þess
tolls sem verðbólgan tók af inni-
stæðum þeirra i innlánsstofnun-
um áþessum árum”, segir inýrri
skýrslu Verslunarráðs Islands.
Þessi rýrnun fjármagnsins jafn-
gildir verðmæti 150 nýrra skut-
togara eða um 20.000 miðlungs
ibúða á sama tima.
Þá segir að þar til útlánakjör-
um fjárfestingarlánasjóða var
breyttbrunnu öll framlög þeirra
upp i verðbólgunni og eigið fé
þeirra rýrnaði um 20% að meðal-
tali á ári. Það sama átti við um
hina 90 lifeyrissjóði landsmanna
semtöpuðuógrynnifjár og eru nú
sumir i reynd orðnir gjaldþrota.
Jafnframt segir að fjárfesting
landsmanna sem nam um
þriðjungi af tekjum þjóðarinnar,
hafi einungis skilað hálfum arði
samanborið við aðrar þjóðir.
Kostnaðinn af þessari stefnu
hafi almenningur þurftað greiða i
ýmsum myndum, einkum hærra
vöruverði, lægri launum og
töpuðu verðgildi sparifjár.
NU á allra siðustu árum hafa þó
mikilvægar breytingar orðið i
vaxtamálum og viðtæk verð-
Landskeppni Is-
lands og Svíþjóðar
hefst á laugardag
■ Landskeppni Islands og
Sviþjóðar, sem er liður i Evr-
ópumeistarakeppni landsliða i
skák, hefst nú á laugardag i
Vighólaskóla við Digranesveg
I Kópavogi og hefst klukkan
13.
1 viðtali við dr. Ingimar
Jónsson i gær kom fram að Is-
lendingar eru nú i riðli með
Englendingum og Svium og nú
á laugardag og sunnudag
munum við útkljá málin við
Sviana, en Englendinga i júni
nk.
Teflt verður á átta borðum i
Vighólaskóla og eru keppend-
ur Islands þessir: Friðrik
Ólafsson, Guðmundur Sigur-
geirsson, Jón L. Árnason,
Helgi Ólafsson, Margeir Pét-
ursson, Haukur Angantýsson,
Jón Hjartarson. og Ingvar Ás-
mundsson. Varamenn eru þeir
Magnús Sólmundarson og
Björn Þorsteinsson.
Sviar koma hingað til lands
nú i kvöld. Þeir munu tefla við
Englendinga um miðjan
mars. — AM
trygging verið tekin upp. Þær
breytingar hafa nú þegar sýnt
verulegan árangur i að örva
sparnað og draga úr útlánum að
dómi Verslunarráðsins.
HEI
■ Á þessu linuriti má sjá hvernig 10.000 kr. sem
lagðar voru inn á aimenna sparisjóðsbók I ársbyrj-
un 1970 hafa stöðugt rýrnað að verðgildi. Þótt upp-
haflegu 10.000 krónurnar hafi um siðustu áramót
með vöxtum og vaxtavöxtum verið orðnar um
57.000kr. er raungildi þeirra aðeins orðið um 16% af
upphaflegu upphæðinni eða um 1.620 krónur.
■ Ávöxtunarkjörin ráða sparnaði segir Verslunar-
ráðið og birtir þessa mynd af inneign landsmanna i
bankakerfinu (innlán seðla og mynt i umferð) i
hlutfalli við þjóðartekjur. Þar sést að á áratugnum
1960-70 hefur inneignin numið frá um 38 til 48% af
þjóðarframleiðslu en siðan stöðugt hrapað á siðasta
áratug allt niður I um 22% af þjóðartekjum siðustu
ár áratugarins 1970-80. í kjölfar verötryggingarinn-
ar er sparnaður verulega farinn að aukast á ný.