Tíminn - 14.03.1982, Blaðsíða 16

Tíminn - 14.03.1982, Blaðsíða 16
Sunnudagur 14. mars 1982 Sunnudagur 14. mars 1982 Skyldi bærinn umluktur Hringbraut... ■ Hér I eina tlö þótti fullgott að vitna í Tómas Guðmundsson þeg- ar Reykjavík bar á gdma, ntl er gjarnan sungið eftir Spilverki þjóðanna: „Reykjavik, hvaö ætl- ar þú að verða, Reykjavik, hvað ætlar þil aö verða, þegar þd ert oröinstó-ó-ó-ór!”. 1 þessum hend- ingum er fólgin hugsanavilla ein slæm, Reykjavik hefur nefnin- lega slitiö barnsskónum fyrir all- löngu og má vel teljast orðin full- orðin þótt eflaust stækki hún eitt- hvaö Ur þessu — raunar hefur vöxtur Reykavikur á þessari öld verið ævintýralega hraður. Það er ekki svo ýkja langt siöan að menn töldu Hringbrautina mundu marka hin endanlegu borgar- mörk Reykjavikur, útfyrir hana væri þarflaustaö leita. Nú er tal- að um aö byggja i' landi Korpúlfs- staöa, óralangt uppi i sveit að hyggju aldamótamanna. Og átta- tiu ár eru ekki langur timi i sögu borgar,en hafa dugaö Reykjavik til að þenjast út á alla kanta á ótrúlegum hraöa. Liklega þykir flestum heldur erfitt til þess að hugsa að Reykjavik gæti verið arinaö en höfuðstaöur landsins og tugþúsunda borg en sannleikur- inn er þó sá, eins og menn vita náttúrlega, aö hinar fyrstu aldir íslandsbyggðar var Reykjavik, þrátt fyrir landnám Ingólfs, býsna li'tilfjörlegur sveitabær og tíl að mynda er fátt eitt vitað um ibúa eða sögu staðarins fyrr en kemur fram á tima Skúla Magnússonar. Hins vegar var á Seltjarnarnesi rausnarbýli mikið og ööruvisi mér áður brá. Hér á eftir verða rifjaðir upp nokkrir kaflar úr sögu Reykjavikur, ánk- um eftir að byggð fór aö færast i aukana, og sagt frá örnefnum og götuheitum iborginni. Eða hvers vegna heitir Hverfisgata Hverfis- gata, ogKalkofnsvegur Kalkofns- vegur? Fram á tima Skúla Magnús- sonar, já. Skúli Magnússon getur talist faöir Reykjavikur, ef svo má segja, en upphaf bæjarins má rekja til þess er hann setti hér niður Innréttingar sínar. Og hvers vegna i Reykjavik? Það komu aörir staðir til greina og var reynt aö vanda valið eftir megni, þar eö menn geröu sér grein fyrir þvi aö kringum Inn- réttingarnar myndi meö tiö og tíma vaxa upp byggð sem ætti til- kall til að vera höfuðstaður lands- ins. Það var talaö um Eskifjörð — sjá menn fyrir sér höfuöstað landsins þar? — það var talaö um Eyrarbakka, og það var talaö um Hafnarfjörö. Hafnarfjörður þótti um tima koma mjög sterklega til greina en sjálfur réði Skúli Magnússon þvi að Innréttingarn- ar voru að lyktum settar niöur i Reykjavik. Og er ekki annað að sjá en valiö hafi tekist vel. í bók Páls Lindal, Hin fornu tún, segir: ,,Vitur maður hefur sagt” — en sá vitri maður mun hafa verið Sigurður Nordal — ,,að ætti aö velja landinu nú stað undir höfuð- borg og beita viö það val öllum þeim ráðum, tækni og þekkingu, sem nútiminn hefur vaid á, þá hlyti niðurstaðan að verða sú, að höfuöborginni yröi einmitt valinn staður þar sem Reykjavik er.” Páll Lindal rekur siöan ástæður þessa: „Óviða eru hafnarskilyröi betri en i Reykjavik, og héðan er ekki langt á hin beztu fiskimiö. Ekki er vitaö til þess, að hafis hafi nokkru sinni hamlað siglingu til Reykjavikur, enda er veöurfar óviða mildara en hér. Skammt frá Reykjavik eru hin blómlegu landbúnaöarhéruö, Suöurlands- undirlendiö og Borgarfjöröur. Náttúruhamfarir hafa ekki, svo að vitaö sé, valdið teljandi tjóni i Reykjavik, þótt reynslan sýni, aö sliku getur veriö valt að treysta. Hérer gnægð neyzluvatns, sem á sér varla lika aö gæðum. Innan borgarmarkanna og i næsta ná- grenni er lítt takmarkað magn af heitu vatni. Þeim, sem hafa fleira i huga en veraldleg gæði, má benda á óvenjulega náttúrufeg- urð, f jallahringinn friöa og sundin blá.” Hér má einnig bæta þvi við, að það mun áslnum tima hafa vegiö þungt aö héðan var stutttil Þing- valla,þarsem Alþingi Islendinga var ennþá haldið, enda þótt það hafi að visu ekki verjð merkilegt á þeim tima. En sem sagt. Innréttingum var komið fyrir I Reykjavik og fór að vænkasthagur staðarins. Verslun var I örfirisey og hafði sitt að segja, i Viðey sátu embættis- menn konungsvaldsins. Við vikj- um okkurnú margar aldir fram i tímann, það er komiö undir alda mótin 1900. Kaupstaö- urinn var þegar oröinn sá fjölmennastí á landinu, áriö 1901 voru hér 6682 ibúar.en i öðru sætivar Akureyri með 1370 ibúa. Siðan eru liðin áttatiu ár og má heita að ibúum hafi fjölgað um áttatiu þúsund svo fjölgun hefur orðið gifurleg. En þegar fyrir hundraö árum var Reykjavik orðinn sá staður á landinu „sem þenkir og a'lykt- ar”, eins og sagt var, en hætt viö að mörgum þyki sá bær sem þá var risinn á eiðinu milli T^arnar ogsjávareiga Iltið skylt við borg- ina sem nú er risin. A meðfylgj- andi korti sjáum við byggðina í Reykjavík fyrir réttum áttatiu árum, árið 1902. Þaö er þétt byggö þar sem nú heitir „gamli” miöbærinn, það er byggö i vestur- átt meðfram sjónum og þaö er byggö upp með Laugavegi sem lá að Laugunum. Melarnir eru ennþá melar, Skólavörðuholtið holt. Tjörnin er i einu lagi og tölu- vert stærri en nú er þvi er dálitið hlálegt þegar menn tala nú orðiö um aö varðveita verði Tjömina i „upprunalegri” mynd. Vilja þeir láta rifa niður Iönó, brjóta Tjarn- argötuna og höggva kringluna af Aiþingishúsinu? Þvi Tjörnin náði nálega upp að Alþingishúsi, og engin kringla á þvi fyrst i staö. Um þetta leyti var götuskipan á margan hátt öðruvisi en nú er. Austurstrætið sem nú er aöalgata miöbæjarins, var þá til dæmis varla nema bakstrætí frá Hafnar- stræti sem var aðalverslunargata bæjarins. Laugavegur var þá fjölmennasta gata Reykjavikur, ólikt þvi' sem nú er þegar heita má að aöeins séu verslanir viö Laugaveginn. Einnig má sjá á kortinu Vallarstrætiðóskert. Hins vegar þekkjast þarna margar af þeim götum sem enn idag eru við lýði og þykja góðar til sins brúks. Það var annars misjafnt hvernig götur urðu til á þessum árum þegar skipulagsmál bæjarins voru öll I frumstæðasta lagi. Þó mun hafa verið til stéHÁ byggingar- — Um byggðaþróun og götuheiti í Reykjavík nefnd Reykjavikur sem annaðist skipulagsmál i bænum, að þvi leyti sem yfirleitt var fylgt fyrir- fram ákveðnu skipulagi. Ýmsar götur urðu til án þess að vera nokkru sinni teiknaðar. Þannig er til dæmisum götur i Vesturbæn- um sem hafði um langt skeiö einkum verið byggður tómthús- mönnum og öörum af þvi sauða- húsi. Og sumar götur urðu til nán- ast af tilviljun. Menn hafa bent á að Bankastrætiö er i' rauninni ákaf- lega ópraktisk gata vegna þess hversu brött hún er — sem auövit- aö skipti öllu meira máli fyrrum ennú — ogþviheföi verið rökrétt- ara að til aö munda Lindargata yrði aöalgatan upp úr bænum. En þá kom til kasta amtmanns og siðar landshöfðingja, en þessir embættismenn höfliu aðsetur I gamla tukthúsinu þar sem nú er stjómarráð og þeir vörðu Arnar- hólinn með kjafti og klóm og leyfðu þar hvorki byggingar né götulagnir. Að siðustu urðu þeir auövitað að láta undan þróuninni en þá höfðu Bankastræti og Laugavegur fest sig svo i sessi að ekki varð aftur snúið. En hvernig fengu götur M. .ái. Reykjavikur nöfn sin? Við völdum nokkur götunöfn, meira eða minna af handahófi, og leit- uðum upplýsinga um uppruna þeirra. Segir sig sjálft að er kom fram á þessa öld var farið aö taka þessi mál föstum tökum, samfara aukinni skipulagningu, og það eru þvi fyrst og fremst hinar eldri götur sem eiga sér nöfn sem ein- hver saga er á bak viö. Nú er sem kunnugt er starfandi sérstök nefnd sem gerir tillögur um nöfn á n ýjar g ötur og hve rfi, en þv i v ar lengi vel ekki að heilsa. Götur voru nefndar eftir gömlum bændabýlum sem staöið höfðu þar áður fyrr, eftir sérkennum i landslagi eða jafnvel mannvirkj- um. Allur gangur á þvi. Hins veg- ar hefur ekki verið farið út i það að skira götur eftir mönnum, nema þá löngu dauðum, það eru Snorrabraut, Njálsgata, Grettis- gata, Gunnarsbraut og þær götur allar. Væri nú ekki athugandi að marka nýjá stefnu og nefna götur eftir valinkunnum stórmennum islenskum, jafnvel skira upp göt- ur, annaö eins þekkist i útlönd- um. Eöa væri það ekki ólikt til- komumeira að gatan meðfram Tjörninni héti Ólafs Thorsvegur heldur en Frikirkjuvegur? Ein- hvers staðar mætti lika setja nið- ur Jóns Sigurössonarstig, er ekki nafnið Laugavegurúrsérgengið? Og Bjarni Ben. Hermann Jónas- son hvers eiga þeir að gjalda? Og hvers vegna ekki að uppnefna Vonarstrætið og kalla Brynjólfs Jóhannessonartröð? Og svo framvegis og svo framvegis. Möguleikarnir eru ótæmandi. 1 Frakklandi tiðkast þetta mjög mikið og meö skemmtilegum hætti. Götunöfn þar i landi spegla tíl dæmis ágæta vel stjórnmála- ástandiö á hverjum tima, i bæjum þar sem kommúnistar hafa farið með völd eru stræti og torg ski'rð eftir Kalla Marx og nóta hans Engels, annars staðar heita búlu- varðar eftir Franklin Delano Roosewelt. Þessu er hér með komið á framfæri. Enþaö voru götunöfnin. Tökum til við þau. HVERFISGATA var fyrr nefnd. Þannig er mál með vexti aö bak við Arnarhólinn tók aö myndast byggð og þótti mörgum hún vera heldur af verri endan- um. Þar bjuggu sem sé helstþeir sem ekki höfðu mikil auraráð, þetta var fátækrahverfi Reykja- vikur þess tima, og var i sam- ræmi við það nefnt Skuggahverfi. I bókum sinum um Gvend Jóns hefur Hendrik Ottósson lýst óvild Vesturbæjarpjakka i garö strák- anna iSkuggahverfinu og voru oft háðir miklir bardagar þeirra i milli. En altént, gatan sem lá meðfram og i gegnum þetta hverfi var nefnd Skuggahverfis- gata, sem siöar styttist I Hverfis- gata. I Skuggahverfinu, en það er nú illu heillu aö gleymast, eru nokkrir stigar sem bera nöfn er ekki liggur snimmendis i' augum uppi hvernig hafa myndast. FRAKKASTtGUR er einn þeirra, en skýringin er auö- fundin. Franskir sjómenn voru tiðir gestir i Reykjavik bæði fyrir og eftir aldamótenda f iskuöu þeir mikið við landið. Hér var reistur sérstakur spitalifyrir þá, Franski spitalinn svokallaði. Þar sem hann stóð er nú Frakkastigur. VATNSSTtGUR er á svipuöum slóöum, hann dregur einfaldlega nafn af vatnsbóli. Knud Zimsen segir frá þvi' i endurminningum sinum, Úr bæ i borg, aö Vatns- stigur hafi af gárungum lengi verið kallaður Þrasi eða Gerræðisstigur, vegna þess að mörgum hafi þótt Tryggvi Gunnarsson, landsbankastjóri, full afskiptasamur um lagningu hansog reyndar fleiri gatna. Eru bæði nöfnin ólikt tilkomumeiri en Vatnsstigur, eða hver vildi ekki búa á Þrasa númer f imm eða sjö? Sama vatnsból og Vatnsstigurinn er kenndur við gaf LINDAR- GÖTU sömuleiðis nafn, þar stendur nú eins og menn vita önnur og öðruvi'si lind... VITASTÍGUR. Þar var viti! BARÓNSSTtGUR, þar er nokkur saga á bak við það nafn. Þannig var að áriö 1898 kom hingað til lands franskur barón, C. Gauldréc Boilleau að nafni. Faðir hans haföi um skeið verið sendiherra Frakklands til Lima I Perú, móðir hans var dóttir amerisks öldungadeildarþing- manns. Ekki er vitað nákvæm- lega hvað dró barón þennan til tslands.enúr þvlhannvar hingaö kominn einsetti hann sér að verða rikur. Hann keypti jörðina^ Hvitárvelli i Borgarfirði ( / hugðist hafa þar stórbú en gekk ekki sem skyldi. Þó þóttu ýmsar hugmyndir barónsins nýstárlegar og nytsamlegar svo að íslend- ingartóku þærupp siðar meir. En baróninn hafði fleiri járn i eldinum. Hann fékk þá flugu i höfuðið að setja á kúabú i' Reykja- vik hið fyrsta og reisti hér i bænum mikið fjós fyrir 40 kýr. Þótti byggingin hin merkasta en eins og með önnur barónsins ætlunarverk fór alltút um þúfur, hann hrökklaöist úr landi og skaut sigskömmusiðar.skuldum vafinn. Fjós hans stendur enn, það var gert að áhaldahúsi borgarinnar og stendur við Barónsstig, sem fékk nafn sitt af Barónsfjósinu. KALKOFNSVEGUR. Fleiri en baróninn vildu verða rikir. Nokkrir Islendingar settu upp kalkofn undir Arnarhóli en fyrir- tækiö fór fljótlega á hausinn. Þá stóð eftir vegurinn við ofninn og fékk nafn af honum. En flytjum okkur nú vestur i bæ. FRAMNESVEGUR — þaö er simphelthen vegurinn fram á Nes. 1 þá daga var farið eftir fjörunni noröan megin er Reyk- vikingar vildu komast út á Nes, eða öfugt þar sem annars var yfir vondar mýrar að fara. BRÆDRABORGARSTIGUR dregur nafn sitt af steinhúsi einu sem bræður tveir byggðu og fer ekki frekari sögum af þeim. Húsið þótti þeim mun merkilegra enda ku það hafa verið eitt af fyrstu steinsteypuhúsum bæjar- ins. Við þessa borg t*-æðranna er gatan kennd, NÝLENDUGATA. Þar var sömuleiöis hús eitt mikið og hét Nýlenda. Astæður fyrir þvi eru okkur hins vegar ekki kunnugar. GARÐASTRÆTI mun vera ski'rt eftir göröum sem bændur og/eða landeigendur á Landa- kotstúni reistu fyrir ofan Grjóta- þorpiö — sem er kennt við bæinn Grjóta — til þess aö verja túnið ágangi ibúa þar en þeir þóttu á sinni tið ekki finustu menn i bænum... VELTUSUND er skirt eftir verslunarféiaginu Veltu, eða Veltufélaginu sem var umsvifa- mikið i eina tið en siöar selt á uppboöi. Mektarmaður utan af Seltjarnarnesi sem sat aö drykkju á Hótel Islandi sendi þá þjón út að bjóöa i hús félagsins — og fékk þaö! VONARSTRÆTI. Það var sumariö 1906semlokiö varvið að leggja Vonarstrætiö milli Suður- götu og Lækjarins. Sú gata hafði verið ákveðin tæpum tuttugu árum fyrr, en stæöi hennar var þá alit I Tjörninni. Af þvi kemur nafnið: i tæp tuttugu ár höföu bæjarbúar einungis von um að þarna kæmi gata! ÞINGIIOLTer eins og allir vita nafn á hverfinu fyrir austan Miö- bæinn og Tjörnina, kringum Þingholtsstræti. Og þarna var vissulega þing. Þaö var um það bil áriö 1750 sem þingstaður sá sem verið haföi i Kópavogi var fluttur inn til Reykjavikur og settur niöur á að giska þar sem nú er Þingholtsstræti númer sex. Þó þingþetta legðist af áðuren varði stóö eftir kotið Þingholt og hélst nafnið þannig. HRINGBRAUT. Það var nokkru upp úr aldamótum sem Reykvikingum þótti ekki annað hæfa en kringum bæinn lægi braut, eins og sumir þeirra þekktu úr erlendum stórborgum, svo sem Kaupmannahöfn eöa Vin, þar sem brautirnar eru aö visu leifar gamalla virkisgarða. Reykvikingar létu sér i léttu rúmi liggja þó bærinn hefði aldrei veriö viggirtur, þeir ákváðu að Reykjavik skyldi umlukt hring- braut og var það gert. Eins og nefnt var I upphafi munu ýmsir hafa veriöþeirrar skoðunar að út fyrir þann hring þyrfti borgin aldrei að teygja sig, en þó var þegar farin að myndast byggð i Laugarnesinu og viðar. Alla vega var lögð hringbraut og skirð Hringbraut, þótti hún mikil gata og fin og húsnúmer á tfmabili kominupp i rúmlega 200. Nokkru fyrir 1950 var Hringbrautinni svo skipt upp, hluti hennar tengdur Miklubraut og legu götunnar breytt nokkuö. Vestasti hluti Hringbrautar gömlu heitir nú Ananaust en hinn austasti Snorrabraut. Og draumurinn um hringinn fyrir bi. Eins og fyrr var drepið á réðu margvislegar ástæður þvi hvar urðu til götur.Knud Zimsen nefnir i bók sinni dæmi af Lokastig. Matthias nokkur Matthiasson i Holti hafði ræktaö allstórt tún um bæ sinn, og er byggðin tók að nálgast þaö vildi hann eðlilega fá sem allra mest fyrir snúð sinn. Einsetti hann sér aö fá þama samþykkta götu þvi þannig gæti hann selt fleiri lóðir en ella.Knud Zimsen og fleiri voru mjög and- vigir þessuen fengu ekki að gert, þar eð Matthias hafði mikil itök i byggingarnefnd og bæjarstjórn. Og þvi reis Lokastigur. Skúlagatan var á hinn bóginn reist sérstaklega fyrir járnbraut. Hafnaraðstaöa I Reykjavik var orðin mjög léleg og fór versnandi eftir þvi sem skip stækkuðu: á árunum 1911—17 var þvi ráöist i mjög umfangsmiklar hafnar- framkvæmdir, grjót tekiö úr Oskjuhliö og ekki annar vænlegri kosturiaugsýnen aö flytja þaö til hafnar meö járnbrautum. Var ein járnbraut lögö vestur fyrir bæinn og byggöi Grandann út i örfiris- ey, hin fór austur og noröur fyrir bæinn aö þeim staö sem nú er Ingólfsgaröur. Var lagöur vegur meðfram ströndinni til að bera járnbrautina, sá vegur er auö- vitað skiröur eftir Skúla Magnús- syni. A þessu svæöi höföu áöur verið ýmis atvinnufyrirtæki sem ekki þótti fint að hafa inni bæ, sláturhús, timburverkstæöi og svo framvegis. Og það var nú þaö. Páli Liijfial skal þökkuð ómetanleg , aöstoöviö samsetningu þessa greinarkoms. — ij tók saman. r.- "lí* Uy » f v ’ * i '•••■ 's\. * , \Y* r' > N • ’ * X y y > VI' * > . ». y t t i «V:, •V'i: \ y « y ' , x * y '; , » ► VX y >x - >x> r;"- y j \/ y j fn x yx ‘ > * ,■> y \ . j\\ y y x r % X y / •_ xi' ■ « x/\; \x \ \/ x\\ • . y; v; XxU V..’ r.-ýy > ; ■!' -... z. _ — X-_ vX X X . t JSrú /

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.