Tíminn - 14.03.1982, Blaðsíða 6

Tíminn - 14.03.1982, Blaðsíða 6
6 ■ Febrúardagur á miöri Man- hattan. Vor I lofti og af og til fundu sölargeislarnir leiðina milli skýjakljúfanna. Mannhafinu sem flaut um breiðgötur og stræti, virtist þó standa á sama um vor- komuna mina, og engan sá ég hafa tima til að baða sig i sólinni. Hraði og vinnusemi eru nefnilega dyggðir i mauraþúfum. Engum tima er eytt til ónýtis i borginni þar sem leigubilstjórarnir eru lögfræöingar og hagfræðingar á siöasta ári, reiðubúnir aö verða rikir á morgun. Þarna stóö ég svo i islensku sumarveðri i leit að islenskum lækni, Dr. Birni Þorbjarnarsyni, yfirlækni við New York Hospital (Nýju Jórvikur spitala) og prófessor i skurölækningum við Cornell háskóla. Björn haföi ég rætt við 1 sima deginum áður og höföum viö orðið ásáttir um aö ég ætti við hann viötal á tilteknum tima. Fyrir atbeina veröandi fjármálaspekúlants á einum af hinum viðfrægu gulu leigubilum, komst ég klakklaust að spitalan- um og seint um siðir tókst mér að hafa upp á réttri skrifstofu i réttri byggingu og það sem mest var um vert, réttum manni og á rétt- um tima. Stundvisi er nefnilega lika dyggð, hvort sem þaö er á ts- landi eða i Ameriku. Dr. Björn Þorbjarnarson er Arnfiröingur, fæddur á Bildudal áriö 1921 og þvi ekki óliklegt að hann eigi ættir sinar að rekja til einhvers af hinum viöfrægu arn- firsku galdramönnum. A Bildudal var Björn fram til 13 ára aldurs, en þá fór hann i skóla á Akureyri. Hann lauk siöan stúdentsprófi frá Menntaskólan- um á Akureyri árið 1940, en það sama ár fluttist hann til Reykja- vikur og hóf nám við læknadeild Háskóla tslands. Læknaprófi lauk hann 1947, enári seinna fór hann til framhaldsnáms i skurð- lækningum i' Bandarikjunum. ,,Það voru mikil viðbrigði að koma hingaö út i f jölmenniö og ég ■ Aöalinngangurinn á sjúkrahúsið, en hér náðu mótmælaaögeröirnar hámarki. Sunnudagur — Égvinná meöan mér endist aldur og heilsa til_ „Það er löng leið frá afdölum Arnarfjarðar til hjarta heimsins á Manhattan" segir Björn Þorbjamarson, Islendingurinn sem varð yfirlæknir og prófessor við eitt elsta og virtasta sjúkrahús Bandaríkjanna hef oft hugsaö til þess, hvaö það er löng leið frá afdölum Amar- fjarðar tilhjarta heimsins á Man- hattan,” segir Dr. Björn. ,,En þetta var annasamur og skemmtilegur timi, þannig aö ég haföialdrei tima til að hafa heim- þrá. Skurölæknisnáminu lauk ég svo 1955, en tvö næstu ár á eftir vann ég hjá bandariska sjóhern- um. Sú vinna fór aðöllu leytifram i Bandarikjunum og þvi losnaöi ég við að þurfa að vinna i fjarlæg- um flotastöövum, sem var kannskieins gott, enda ástandið i heimsmálunum ekkert alltof gott á þessum árum.” Eftir aö Björn hætti hjá sjó- hernum, réðist hann til New York Hospital, þar sem hann hefur starfaö siðan sem skurðlæknir og yfirlæknir. Jafnframt skurð- læknisstörfunum hefur Björn veriö prófessor i skurðlækningum við Cornell-háskóla en læknadeild háskólans er rekin i tengslum við New York Hospital. En hvernig sjúkrahús er svo þetta? ,,New York Hospital er eitt full- komnasta sjúkrahús Bandarikj- anna og jafnframt eitt hið elsta, stofnaö árið 1770,” segir Björn. A sjúkrahúsinu eru um 1200 sjúkra- rúm og aö sögn Björns eru sjúklingarnir yfirleitt milli- stéttarfólk, eða þaðan af efnaðara, enda þykir hverfið i kringum sjúkrahúsiö frekar fint. Þaö er þvi ekki mikið um að komiö sé meö fátæklingana á New York Hospital. ,,Þaö er þó engum úthýst hér,” seir Björn og bætir þvi viö aö öll- um sé hjálpaö i neyðartilvikum. Annars er heilbrigöiskerfiö i Bandarikjunum nokkuö frá- brugöiö þvi sem Norðurlandabú- ar eiga aö venjast og t.a.m. þekkjast þar ekki sjúkrasamlög að islenskum hætti. Þess i stað veröur fólk að kaupa sér sjúkratryggingu i þar til gerð- um tryggingarfélögum og þaö eru svo tryggingarfélögin sem borga lækniskostnað og sjúkrahúsgjöld ef viökomandi veikist og þarf á læknishjálp að halda. Oft eru þetta umtalsveröar upphæöir, þvi að læknaþjónustan er dýr og reyndar er læknum gefiö sjálf- dæmi hvaö þóknun varöar. Engir taxtar þekkjast og verölagseftir- lit af hálfu heilbrigöisyfirvalda eöa verðlagsyfirvalda er ekkert. „Þaö getur hvaöa sjúklingur sem er komiö hingaö til min, en hann verður lika aö geta borgað fyrir sig,” segir Björn. „Topplæknar hér, eru hæst- launaða stétt Bandarikjanna, en lakari læknar eru hins vegar ekki svo tekjuháir og slaga kannski rétt upp i meðallaun.” Nokkur breyting hefur orðið á vinnutilhögun Björns hin siðari ár og vinnur hann nú mikið meira sjálfstætt. Hann hefur sina eigin aðstööu þar sem hann getur tekiö á móti sjúklingum, en aögerö- irnar framkvæmir hann svo á sjálfu sjúkrahúsinu. En hvernig er svo heföbundinn vinnudagur? „Þar sem ég bý I New Jersey, sem er næsta fylki viö New York, fer ég yfirleitt á fætur svona um sex-leytið til að vera kominn á sjúkrahúsiö i tæka tiö. Ég legg af stað að heiman um hálf sjö og ef umferöin er ekki mikil, þá er ég byrjaður að vinna klukkan hálf átta. Dagurinn fer svo i að sinna minum sjálfstæða rekstri, kennslu og þeim störfum sem ég inni af hendi á sjúkrahúsinu, en vinnudeginum lýkur venjulega um fimm-leytið.” Björn Þorbjörnsson er giftur kanadiskri konu, Margaret Stewart Brown eöa Margaret Thorbjarnarsoneins og hún heitir i dag og eiga þau fjögur börn. Þrjú þeirra eru uppkomin en það yngsta er enn I föðurhúsum. 011 hafa börnin komið til Islands en ekkert þeirra talar þó islensku. Björn reynir þóað komast eins oft til gamla landsins og framast er kostur og venjulega er það einu, til tvisvar sinnum á ári. „Ég var siðast á tslandi i fyrra sumar og þá notaði ég tækifærið m.a. til að heimsækja æskuslóö- irnar viö Arnarfjörö. Þaö var gaman aö koma aftur til Bildu- dals og hitta ættingjana og gömlu félagana. Heimþrá hef ég annars ekki, enda væri ég ekki i Banda- rikjunum ef ég kynni ekki vel viö mig,” segir Björn. — Hvað um heilbrigðismál á Islandi. Fylgist þú meö þróun þeirra mála? „Ég held að heilbrigðismál á Islandi séu i mjög góöu lagi og ég veit að islenskir læknar eru vel menntaðir og færir i sinu fagi, þó þeir uppskeri kannski ekki laun i samræmi við það. Það er annars alltaf nokkuö um aö islenskir læknar liti hérna inn hjá mér þegar þeir eru i New York. Þá er einnig nokkuö um aö Islendingar leiti sér lækninga hér og ég gæti trúað aö þeir væru tveir til þrir, sem þannig hafna á minni deild á ári hverju. Aö öðru leyti hef ég orðið litil samskipti viö Islendinga, en þó held ég aö Islendingafélag sé enn starfrækt hér i borginni.” Dr. Björn Þorbjarnarson, er liklega frægastur fyrir þaö aö hann stjórnaði aögerðinni á Iranskeisaranum fyrrverandi árið 1979, en þá dvaldist keisar- inn i útlegð i Bandarikjunum, áður en hann hélt til Panama. 1 einni andrá komst Björn þannig I heimsfréttimar enda fréttin um

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.