Tíminn - 14.03.1982, Blaðsíða 18

Tíminn - 14.03.1982, Blaðsíða 18
Sunnudagur 14. mars 1982 18 Grönduðu Englendingar byggð norrænna manna á Grænlandi? Munnmæii segja frá bardögum Grænlendinga og vopnaðra skipshafna ■ // Dag nokkurn komu þrir smábátar að landi. Þeir sem um borð voru stukku upp í f jöruna og heim að bæjarhúsunum. Þar rændu þeir öllu sem hönd á festi og drápu fjölda hinna norrænu manna. Um siðir tókst mönnum þó að reka árásarmennina á braut og sigldu þeir burtu á tveimur smábátanna, en hinn þriðji varð eftir á valdi norrænna manna. Árið eftir birtust enn fleiri skip. Áhafnir þeirra þustu um byggðina og drápu marga menn/ en rændu eignum og fénaði. Var siglt á brott við svo búið. Brugðu þá margir hinna norrænu manna á það ráð að fylla þau smáu og fáu skip sem þeir áttu yf ir aö ráða og sigla til staða sunnar i landinu. Eski- móarnir í grenndinni lofuðu að sjá til með þeim sem eftur urðu. Þegar ránsmennirnir birtust enn aftur að ári liðnu/ f lýðu Eskimóarnir eins og fætur toguðu og höfðu með sér konur og börn hinna norrænu manna. Aðra skildu þeir eftir og fólu þá örlögum sínum á vald." Hinstu fréttir Ariö 1406 hrakti hóp íslend- inga, sem voru aö koma frá Noregi, til Grænlands. Þar uröu þeir aö dvelja i fjóra vetur, áöur en þeir sigldu aftur til Noregs og þá til tslands. Þeir komu meö siöustu áreiöanlegu fréttirnar frá Eystribyggö til um- heimsins. Af þeim má það glöggt verða að lög og réttur var enn i heiðri haföur i Grænlandi, þvi meöan þeir dvöldu þar, árið 1407, var Kolgrimur nokkur fundinn sekur um aö hafa unnið ástir ekkju einnar meö svarta galdri og veriö brenndur á báli fyrir vikið. Þá hefur varðveist einstakt plagg úr þessari för, giftingarvottorö, gefið út i Göröum þann 19. april 1409. Það er eina skjalið út gefið i Grænlandi, sem til er. 1 vottorö- inu segir aö tveir prestar, þeir Eindriöi Andrésson og Páll Hall- varðsson, sem gegndi skyldum biskups aö nokkru, hafi gefiö saman þau Þorstein Ólafsson og Sigriði Bjarnadóttur, föstudaginn eftir dag heilags Magnúsar i Hvalseyjarkirkju. Var lýst með brúöhjónunum þrjá sunnudaga i röö og var margt manna, bæöi Grænlendingar og Islendingar, viöstaddir athöfnina. Is- lendingarnir, Þorsteinn Helm- ingsson, Þorgrimur Sölvason og Snorri Torfason, sigldu til Noregs áriö 1410 og þar sem farið var til Noregs má ætla að þeir hafi ekki komist burt á eigin skipi, heldur hafi það farist viö komu þeirra og norskt skipt flutt þá utan. Bendir þaö, ef rétt er, til þess aö enn hafi verið siglt til landsins. ■ Þetta er frásögn töframanns nokkurs úr hópi Eskimóa, sem Niels Egede, sonur Hans Egede, hitti á Grænlandi. Sagan var munnmælasögn, sem geymst haföi meö Eskimóum kynslóð fram af kynslóð og rennir stoöum undir þá tilgátu aö þaö kunni aö hafa verið aðrar þjóðir auk Eski- móa og þá liklega Englendingar, sem áttu þátt i þvi að byggð nor- rænna manna i Grænlandi lagðist af. I nýlegri bók, „The Conquest of the North Atlantic,” eftir G.J. Marcus er margt rætt um nor- ræna byggö i Grænlandi og sagt frá ýmsum nýlegum rannsóknum sem varpa mega ljósi á þá gátu hvaö varð um þetta fólk. Þegar kemur fram yfir 1400 gerist saga Grænlands æ myrkari og torráðnari. Sumt má þó geta i af þeim heimildum sem fyrir hendi eru um efniö, en meira er þó byggjandi á gögnum sem danskir fornleifafræðingar hafa safnaö. Af þeim verður þaö ráöiö aö sú staöhæfing aö allt samband Grænlands viö umheiminn hafi veriö rofiö, þegar kemur fram undir 1400 á ekki viö rök aö styðj ast. I aö minnsta kosti hundrað ár á efir hafa a.m.k. einhverjar siglingar verið til hins afskekkta lands. Vitnisburöur fornleifa- rannsókna sýnir aö nokkru fyrir 1500 hafa Grænlendingar enn ver- ið i nánu sambandi viö Evrópu. Heimildir frá þvi i byrjun fimm- tándu aldar viröast sýna aö þá benti ekkert I þá átt að byggðin á Grænlandi væri aö nálgast enda- lok sin. Siglingabann I einu þessara gagna er fjallaö um kærumál á hendur hópi Is- lendinga sem þá fyrir skömmu áttu aö hafa siglt til Grænlands, þótt enginn mætti þá án heimildar sigla til skattlanda konungs. Attu Islendingarnir að hafa verslaö viö heimamenn. Þeir vöröu sig hins vegar meö þvi aö þá heföi rekiö upp aö landinu vegna illviöris og neituöu um leiö aö þeir heföu nokkurn kaupskap átt viö heima- menn. Þaö kemur og fram i þessu skjali, sem er frá þvi skömmu fyrir 1400, aö i þann tíma var þing Grænlendinga enn viö lýöi og ár- maöur konungs vakti enn yfir skyldum sinum. ■ Norrænir menn gera árás á búöir eskimóa i fyrsta sinn. ■ Hetjan Kasapé hleypur uppi svokallaöan Ungortok, foringja norrænu mannanna. Þögnin langa Nú veröur löng þögn um Græn- land og atburði þar. Þó er að sjá sem nokkurt samband hafi verið viö umheiminn. Til þess benda tvö bréf frá páfagarði til erki- biskupsins i Niðarósi. Fyrra bréf- ið sem er frá 1448 og er frá Niku- lási V. ræðir um ógurlegar árásir sem Eskimóar geri á kristna menn og séu bæöi karlar og konur hneppt i þrældóm. Margt sýnist á óöruggum fregnum byggt i þessu bréfi, en hið siðara er öllu trú- verðugra. Þaö er frá Alexander páfa VI. og er ritaö 1492. Þar seg- ir að i áttatiu ár hafi hvorki biskup né prestur verið i Græn- landi og hafi það orðiö til þess að margir hafi fallið frá trú sinni. Sé nú ekki annað helgra muna fyrir hendi i landinu en messuklæöi, sem siöasti presturinn i landinu á að hafa boriö. Er þvi haldið fram i bréfinu aö vegna hafiss hafi siglingar til landsins lagst niður öll þessi ár, enda ætti enginn að reyna Grænlandssiglingu nema i ágúst, þegar is væri minnstur. Svo er lika aö sjá sem harðn- andi verörátta og æ öröugari skil- yrði til siglinga hafi átt sinn þátt i að takmarka Grænlandsferðir. Firðir munu hafa verið meira og minna fullir af isum mestan part sumars. Stundum rak is ekki frá landi allt áriö og þetta hlýtur að hafa gert kjör ibúanna nær óþol- andi og hafa stefnt sambandi viö Evrópu i mikla hættu. Kirkjan hafði misst allt samband viö biskupsdæmiö á hjara veraldar og þótt biskupar væru vigðir til Garöa allt fram á daga Endur- reisnarinnar, kom enginn þeirra til biskupdæmis sins. Tolldu enn i tískunni Sitthvaö er þaö i bréfi Alexand- ers VI, sem bendir til þess að ekki hafi alveg veriö hætt aö sigla til Grænlands á þessum árum. Þaö er kynlegt aö sérstaklega er minnst á messuklæöin og má ætla aö hér sé visaö til frásagnar sjónarvotta. Fornleifarannsóknir styöja þetta. Meöal hluta sem fundist hafa i kirkjugaröinum i Herjólfsnesi eru klæðisbútar, sem benda til aö Grænlendingar hafi haft kynni af Evrópumönnum, löngu eftir að tengsl þeirra viö Noreg slitnuöu. Hægt er aö ákvaröa aldur margra þessarra búta meö nokkurri vissu. Sanna þeir aö fram undir 1500 voru Grænlendingar vel meö á nótunum hvaö tfsku suöur i Evrópu varðaði. Hlýindaskeið En hvernig haföi þessi þjóö þá þrifist þær aldir sem á undan voru liönar. Greinilegt er að þá höföu aðstæður verið mjög miklu öðru visi. 1 Eystri og Vestri byggö hafa fundist ummerki eftir um þaö bil 300 mannabústaöi. Fjöl- mennast var i hinum frjósama dal þar sem Garðar eru, en hann liggur i milli tveggja stórra fjarða og nýtur þar skjóls fyrir veörum af háum fjöllum og einnig frá grösugum hæðum Vatna- hverfis. Þar eru ummerki eftir um 40 býli. A miðlungsbýli i Eystribyggö mun hafa veriö hægt aö halda milli tiu og tuttugu naut- gripi. Fjáreign var veruleg og Grænlendingar ófu mikib efni til

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.