Tíminn - 14.03.1982, Blaðsíða 12

Tíminn - 14.03.1982, Blaðsíða 12
12 mmm Sunnudagur 14. mars 1982 Sagt frá stroki „Bunny” (Bernard) Newton frá Reykjavík, með tvo Bauð skipverjum að anka við þá romms ■ t tilefni af spjalli okkar vift Bernard Newton, togara- skipstjóra frá Grimsby, þótti okk- ur vift hæfi aft rifja upp fyrir les- endum þá atburði sein gerftust árift 19G7, er hann sigldi úr höfn mcö tvo islenska lögregluþjóna um borft en þeir áttu aft halda vörft um borft i skipinu, meftan Newton beift dóms fyrir land- helgisbrot. ■ „Brandur” kemur til hafnar i Reykjavik, eftir hina sögulegu flóttatilraun. Þaft var þriftjudaginn 25. april aft flugvél Landhelgisgæslunnar sá togarann „Brand” GY-Ul aft ólöglegum veiftum þrjár og hálfa milu innan fiskveiftimarkanna á Eldeyjarbanka. Þetta var kl. 16 um daginn og fylgdust flugvélar með togaranum þar til kl. 22 um kvöldift er varftskipiö Þór kom á vettvang. Var haldift meö skipift til Reykjavikur og hófust réttar- höld i máli skipstjóra kl. 16 dag- inn eftir. Látið í haf Ekki fer mörgum sögum af réttarhöldunum, enda reiknast þaft ekki stórviöburftur aft togari sé tekinn aft ólöglegum veiöum. Þau drógust hins vegar meir á langinn en búist var vift þvi upp- haflega átti þeim aft ljúka fimmtudaginn 27. april. Var sýnt á föstudeginum 28. april aft þeim lyki ekki fyrr en þriöjudaginn 2. mai, vegna fridags verkalýösins á mánudeginum og mun Newton skipstjóra hafa hitnaft i hamsi vift þau tiftindi. Hann haffti tekift aft sér aft fara meft skipift nokkra túra til þess aft rétta hag út- gerftarinnar, enda frægur afla- maöur. Hafnsögumenn horfðu á eftir skipinu Kl. 1.15 aöfaranótt laugardags- ins 28. april horfftu hafnsögumenn á eftir „Brandi” leggja úr höfn- inni i Reykjavik og kipptu þeir sér ekki upp vift þaft þvi áftur haffti verift gert ráft fyrir brottför skips- ins á þennan dag. Þvi vissu þeir ekki aft málflutningi var ekki lok- ift og aft enginn dómur haffti verift upp kveftinn i máli skipstjórans enn. - ■ Frá réttarhöldunum þann 2. mai. Newton setti tryggingu fyrir sektum og varfthaldsdómi og hélt heim til Grimsby þann 5. mai. Boðið upp á te Vikur nú sögunni til lögreglu- þjónanna. A föstudagskvöldift, kl. 20, tóku þeir félagar Þorkell Páls- son og Hilmar Þorbjörnsson vift vakt um borft i „Brandi”. Stóftu þeir uppi í brúnni þar til kl. 1.00 um nóttina án þess aö neitt bæri til tiftinda en þá kom skipstjórinn upp i brú ásamt bátsmanninum og bauft hann þeim lögreglu- mönnunum til tedrykkju i klefa sinum undir brúnni. Skipstjóri var gamall skipsfélagi föftur Þor- kels og kom hann mjög vingjarn- lega fram vift hann og grunuftu þeir hann sist um græsku. Þáftu þeir boft hans og fóru niftur aft fá sér tesopa. Nokkru siftar fór Þor- kell upp I brú til þess aft hitta tvo lögreglumenn sem komu um borft en þeir voru á eftirlitsferft um höfnina. Fóru þeir skjótlega i land og Þorkell aftur i tesam- kvæmift hjá skipstjóra. Brá New- ton skipstjóri sér þá út úr klefan- um. tskur í virum Enn grunafti lögreglumennina ekkert misjafnt en skjótlega heyrftu þeir iskur i virum ofan- þilja. Ruku þeir á dyrnar en hurftin var læst. Brutu þeir hana upp meft þvi aft sparka á hana gat og hlupu upp i brú. Þá voru um 15 skipverjar fyrir i brúnni og ekki hægt um vik fyrir lögreglumennina aft taka af þeim völdin. Skipstjórinn sagfti þeim aft eldur væri laus i skipinu og bæri brýna nauftsyn til aft siglá þvi úr höfn undir eins. Bentu lögreglu- mennirnir á aö ef eldur væri laus, væri betra aft skipift lægi vift bryggju, en Newton svarafti þvi engu minnti á aft hann væri skipstjóri á sinu skipi og menn sinir hlýddu sinum skipunum og annarra ekki. Mundi ofbeldi verfta svaraft meft ofbeldi. Sögftu lögreglumennirnir honum aft stöftva skipift þegar i staft og Þor- kell náfti til vélsimans og hringdi á „stopp”. Var þvi svaraö i vélar- rúmi en skipstjóri leiftrétti þessi fyrirmæli strax og hringdi á fulla ferft. Þorkeli var ýtt frá vél- simanum og fimm manns réftust aö Hilmari sem ætlafti aft koma honum til hjálpar. Slökkt og brotin Ijós Strax og komiö var út úr hafnarmynninu slökkti skipstjóri öll ljós og braut þau sem ekki varft á annan hátt náft til. Um svipaö leyti hófu skipverjar aft mála yfir nafn og númer skipsins. Lögreglumennirnir heimtuftu að fá samband vift land, en þeim var neitaft um þaft og tilkynnt að þeir væru fangar. Læsti skipstjóri brúnni og voru lögreglumennirnir þar inni. Var vift ofurefli aft etja og ákváöu lögreglumennirnir er hér var komift sögu aft reyna ekki frekari tilraunir til þess aft hafa Newton ofan af áformum sinum. Tekinn á „röngum forsendum" Skipstjóri var alla nóttina i brúnni. Sagfti hann lögreglu- mönnunum aft ástæfta þess aö hann heffti gripiö til þessara ráfta væri sú aft hann heffti verift tekinn á röngum forsendum og auk þess væru skipverjar kauplausir, meftan þeir væru i haldi. Spuröu lögreglumenn hvort hann treysti ekki réttvisi á Islandi og aft hann yröi dæmdur sýkn fyrst ólöglega heföi verift aft töku skipsins staftift. Engu kvaftst hann treysta um þaft. Margbáöu lögreglumennirnir hann aft stöftva skipift en þvi neit- aöi hann afdráttarlaust. Undir morguninn mun hann nokkuft hafa verift farinn aft efast um hve viturlegt þetta tiltæki væri en sagöist þó staftráöinn i aft sigla áfram á fullri ferft og láta heldur sökkva skipinu en láta taka þaft aft nýju. Togaramenn buftu lög- regluþjónunum aö fara niftur og fá sér aft borfta en því höfnuöu þeir. Færftu menn þeim brauö og te upp i brú. ■ Blaftamaftur Timans, Kári Jónasson ræddi viö Newton, strax og skipift lagftist aft bryggju. A milli þeirra stendur fyrsti stýrimaftur skipsins.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.