Tíminn - 14.03.1982, Blaðsíða 8

Tíminn - 14.03.1982, Blaðsíða 8
8 Sunnudagur 14. mars 1982 W1MW Utgefandi: Framsóknarflokkurinn Framkvæmdastjóri: Jóhann H. Jónsson. Auglýsingastjóri: Steingrimur Gislason. Skrifslofustjóri: Jóhanna B. Jóhannsdóttir. Afgreiflslustjóri: Sigurður Brynjólfs- son. Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson, Elias Snæland Jónsson. Ritstjórnarfulttrúi: Oddur V. Olafsson. Fréttastjóri: Páll Magnússon. Umsjónarmaður Helgar-Tim- ans: lllugi Jökulsson. Blaflamenn: Agnes Bragadóttir, Atli Magnússon, Bjarghild- ur Stefánsdóttir, Egill Helgason, Friörik Indriðason, Heiður Helgadóttir, Jónas Guðmundsson, Kristinn Hallgrimsson, Kristin Leifsdóttir, Ragnar Orn Pétursson (iþróttir), Sigurjón Valdimarsson, Skafti Jónsson. utlitsteiknun: Gunnar Trausti Guðbjörnsson. Ljósmyndir: Guðjón Einarsson, Guðjón Róbert Agústsson, Elin Ellertsdóttir. Myndasafn: Eygló Stefánsdóttir. Prófarkir: Flosi Kristjánsson, Kristin Þorbjarnardóttir, Maria Anna Þorsteinsdóttír. Ritstjórn, skrifstofur og auglýsingar: Siðumúla 15, Reykjavik. Simi: 86300. Aug- lýsingasimi: 18300. Kvöldsimar: 86387, 86392. — Verð i lausasölu 7.00, en 9.00 um helgar. Askriftargjald á mánuði: kr. 110.00. — Prentun: Blaðaprent hf. Framtíðarstef na ■ í vönduðu afmælishefti Samvinnunnar, tima- riti-samvinnuhreyfingarinnar, er athyglisverð grein eftir Val Arnþórsson, stjórnarformann Sambandsins, þar sem hann gerir grein fyrir nokkrum höfuðdráttum þess ramma, sem fyrir- liggjandi frumvarp að stefnuskrá samvinnu- hreyfingarinnar býr samvinnustarfinu i næstu framtið. Þessir höfuðþættir fela i sér m.a.-. ■ Starfsemi samvinnuhreyfingarinnar er byggð á samvinnuhugsjóninni, sem er það lifsvið- horf að menn leysi saman þau verkefni, sem sameiginlegt átak þarf til að leysa, og styðji með þvi eigin velferð og hag annarra um leið. Þetta er hugsjón félagshyggju, mannúðar og réttlætis. Samvinnuhugsjónin byggir á þvi, að samstarf frjálsra einstaklinga i samvinnufélögum sé öðru fremur vænlegt til að tryggja almenningi réttláta viðskiptahætti og bætt lifskjör. ■ í samræmi við framangreint grundvallar- sjónarmið hefur samvinnuhreyfingin með höndum starfsemi á sviði verslunar, þjónustu og framleiðslu. Samvinnuhreyfingin telur sér ekkert samfélagsverkefni óviðkomandi ef leysa má það með lýðræðislegum hætti i anda grundvallar- reglna samvinnumanna og hún velur sér verkefni miðað við þarfir þjóðfélagsins á hverjum tima i breytilegum heimi. Hún vill vera öflugur þátttak- andi i framfarasókn islensku þjóðarinnar og vinna með öðrum þjóðhollum öflum við að byggja upp traust efnahagslif og heilbrigt mannlif i land- inu. ■ Rekstur samvinnuhreyfingarinnar skal byggjast á traustum fjárhagslegum forsendum, þar sem örugg f járhagsafkoma er undirstaða allr ar starfsemi hennar, bæði viðskiptalegrar og 'félagslegrar. i þvi sambandi er lögð áhersla á nauðsyn þess að efla fjármálastofnanir hreyf- ingarinnar, svo sem banka, innlánsdeildir og tryggingaíélög. ■ Samvinnufélögin eru öllum opin og þeim er stjórnað eftir lýðræðislegum leiðum. Hver ein- staklingur i samvinnufélögunum skal hafa eitt atkvæði, en samvinnusamböndum og öðrum óbeinum samvinnufélögum skal stjórna með lýð- ræðislegu fyrirkomulagi. p Samvinnuhreyfingin skal annast öfluga fræðslustarfsemi fyrir félagsmenn sina, kjörna trúnaðarmenn, starfsmenn og allan almenning, minnug þess, að hin hugsjónalega og félagslega hlið má aldrei falla i skuggann af umfangs- miklum rekstri daglegra viðskipta og fram- kvæmda. ■ Samvinnuhreyfingin leggur áherslu á góð tengsl og gott samstarf við starfsfólk hreyfingar- innar og við samtök launafólks i landinu. ■ Samvinnuhreyfingin leggur áherslu á að hafa áfram i öndvegi það tviþætta verkefni, sem verið hefur séreinkenni hins islenska samvinnustarfs, að þjóna verslun og viðskiptum bæði framleið- enda og neytenda. b Samvinnuhreyfingin vill beita fyrirsjáan- legum tækniframförum, sem sumir kalla ör- tölvubyltingu, til þess að efla almenna farsæld og velmegun, þannig að slikar tækniframfarir leiði ekki til aukinnar misskiptingar lifsgæða eða til atvinnuleysis. — E.S.J. skuggsjá Élias Canetti. Paui Theroux. isaac Bashevis Stnger. JoHh Gardner. íJaUdór 1. John Ctieevkr. ATOHSTÖBIN f VORBÓKAFLÓÐI I AMERÍKUNNI FER SVONEFNT VORBÓKA- FLÓÐ AF STAÐ í LOK JANOAR OG STENDUR FRAM AÐ SUMARSÓLSTÖDUM.A þessu timabili er gefinn út fjöldinn allur af nýjum bandariskum bókum, og þýðingum á erlendum verkum, yfirleitt I samræmi við ákvarðanir, sem stjórnendur bókaút- gáfanna hafa tekið allnokkrum árum áður. Samkvæmt greinum i bandariskum bókmennta- timaritum eru útgefendur þar tiltölulega bjartsýnir um framtiðina, þrátt fyrir efnahagslega erfiðleika undir Reagan-stjórninni. Þeir búast við svipaðri sölu og áður, og telja jafnvel sennilegt að þrenging- arnar verði til þess að auka sölu á tveimur tegund- um bóka: annars vegar alls konar gerðu-það-sjálf- ur-bókum, sem fólkthyggist nýta lil þess að læra að gera fleira sjálft en hingað til og þar af leiðandi þurfa að kaupa minna, og hins vegar afþreyingar- skáldsögum fyrir þá, sem vilja flýja erfiðleikana inn i draumalönd um stund. Og bjartsýnustu bóka- útgefendurnir hafa látiö i ljós þá trú, að einnig muni aukast áhugi á bókum um stjórnmál og hagfræði, þ.e. bókum sem fræði bandariskra borgara um, hvað hafi mistekist við stjórn efnahagsmálanna. JLVAeðal ÞEIRRA BÓKA, SEM koma OT 1 BANDARIKJUNUM I ÞESSA ARS VORBÓKA- FLÓÐI, ER EÍN ISLENSK BÓK AÐ MINNSTA KOSTI. Það er skáldsaga Halldórs Laxness „Atómstöðin”. Samkvæmt áðurnefndum heimild- um verður „Atómstöðin” gefin ut i júni á vegum fyrirtækis, sem nefnist „Second Chance Press”. Þetta mun i fyrsta sinn, sem skáldsagan kemur út þar vestra. Hún hefur hins vegar áður verið gefin út á ensku, þ.e. á vegum Methuen i Bretlandi. Halldór Laxness er i hópi sjö Nóbelsverðlauna- hafa, hverrra bækur eru i áðurnefndu og rang- nefndu vorbókaflóði vestra, en hinir hafa reyndar allir fengið verðlaunin allra siðustu árin. Þar skal fyrstan nefna bandariska rithöfundinn Saul Bellow,. Skáldsaga hans, „The Dean’s December” kom út fyrir nokkru og hlaut ágætar viðtökur. Sögu- svið bókarinnar er að mestu leyti Búkarest i Rúmeniu, en helsta sögupersónan er háskólaborg- ari frá Chicago. Aðrar bækur Nóbelsverðlaunahafa eru „The Safety Net” eftir þjóðverjann Heinrich Böll, sem þar fjallar m.a. um hryðjuverkastarfsemi i Vestur- Þýskalandi. Tvær bækur eftir Elias Canetti, sem hefur öðlast viðari lesendahóp eftir verð- launin i Stokkhólmi. önnur bókin, „The Torch in the Ear” segir frá æskuárum höfundarins, en hin — „Kafka’s Other Trial: The Letters to Felice” — fjallar um ást Frans Kafka og Felice Bauer. Fyrsta skáldsaga Czeslaw Milosz — „The Seizure of Power”, — sem gerist i Póllandi á síðari heims- styrjaldarárunum, kemur nú út i fyrsta sinn á ensku, og sömuleiðis safn ritgerða hans. Það ber nafnið „Visions From San Francisco Bay”. Endur- minningar ástralska Nóbelsverðlaunahafans Pat- rick White, „Flaws in the Glass” eru einnig komnar á markað i Bandarikjunum, og sömuleiðis safn sagna eftir Isaac Bashevis Singer. Rív verk eftir vmsa aðra þekkta HÖF- UNDA ERU EINNIG VÆNTANLEG. Þar má með- al annars nefna John Cheever, sem kemur meö skáldsöguna „Oh What a Paradise It Seems”, John Gardner og John Barth, sem báöir skrifa skáldsög- ur um prófessora, Jerzy Kosinski, sem fengið hefur eina bók gefna út eftir sig hér á landi, „Fram i sviðsljósið”, sem samnefnd kvikmynd er byggð á, Paul Theroux og Louis Auchincloss, svo nokkur nöfn séu nefnd. Það eru jafnvel nokkrir evrópskir höfundar, sem fá bækur sinar útgefnar vestra á þessu „vori”, þótt mun meira sé um útgáfu á bandariskum bókum i Evrópu en evrópskum fyrir vestan. 1 þessum hópi er Milan Kundera, landflótta Tékki, Doris Lessing, R.K. Narayan og sovésku bræðurnir Boris og Arkady Strugatsky, sem flestir hérlendis hafa sennilega aðeins heyrt nefnda, sem höfunda hand- rits kvikmyndarinnar „Stalker”, sem sýnd var á kvikmyndahátið fyrir skömmu. Þeir bræður skrifa eingöngu visindaskáldsögur, en út úr þeim má hins vegar lesa ýmislegt um afstöðu þeirra til samtima- mála i heimalandi þeirra. Það vekur óneitanlega nokkra athygli, hversu fátt er um evrópska höfunda i hinni viðamiklu bókaút- gáfu bandarisku fyrirtækjanna. Það virðist erfitt jafnvel fyrir nokkuð þekkta höfunda stærri þjóða Evrópu að komast inn á bandariska markaðinn. IlLi VISÖGUR VIRÐAST EIGA MIKLU FYLGI AÐ FAGNA í BANDARÍKJUNUM SEM REYNDAR ViÐA ANNARSSTADAR.Þar er ýmist um að ræða sjálfsævisögur og endurminningar eða þá úttekt á lifi þekktra manna eftir aðra höfunda en þá sjálfa. Og jafnvel nokkrar lykilskáldsögur. Sú ævisaga, sem vekur hvað mest umtal um þess- ar mundir, er annað bindið af endurminningum Henry A. Kissingers, fyrrum utanríkisráðherra Bandarikjanna. Það bindi nefnist „Years of Up- heaval” og fjallar m.a. um Watergate-málið og af- sögn Nixons forseta. Tvær aðrar bækur um banda- riskstjórnmál: Annars vegar „Haig: The General’s Progress” eftir Roger Morris, en Haig starfaði bæði fyrir Nixon og Kissinger á sinum tíma, og hins veg- ar „ThePast Has Another Pattern” eftir George W. Ball, fyrrum aöstoðarutanrikisráðherra i stjórnar- tið Johnsons. Ball var einn þeirra, sem baröist gegn rikjandi stefnu Johnson-stjórnarinnar i Vietnam- málinu á sínum tima, en fékk engu breytt. Og fyrst minnst er á Johnson þá er bók um hann að koma út: „The Politician: The Live and Times of Lyndon Johnson” eftir Ronnie Dugger. Og umdeild- ur fyrrverandi utanrikisráðherra kemst sömuleið- is I sviösljósið i bókinni „John Foster Dulles: The Road to Power” eftir Ronald W. Pruessen. Nokkrar ævisögur fjalla um þekkta bandaríska blökkumannaleiötoga, m.a. ein um Martin Luther King jr. og önnur um Roy Wilkins, sem um langt árabil var einn af áhrifamestu forystumönnum svo- nefndra hægfara blökkumanna. Liðnir evrópskir leiðtogar fá einnig sinn skammt, m.a. Mussolini, Churchill og de Gaulle. Ein bók, sem hlotið hefur misjafnar móttökur, er gagnrýniö verk um Kennedy-fjölskylduna eftir Garry Wills. Sú nefnist „The Kennedy Imprison- ment” og fjallar um þrjár kynslóðir Kennedyætt- arinnar og þá einkum gallana i fari Kennedy- manna. + A ÐAN VORU NEFNDAR BÆKUR EFTIR NÓBELSVERÐLAUNAHAFA. Þess vegna er kannski til gamans rétt að minna á eina bók, sem flýtur með bandariska vorbókaflóðinu að þessu sir.ni. Sú nefnist „Poets in Their Youth” og hefur að geyma endurminningar Eileen Simpson. Þar segir hún frá mörgum skáldum, sem hún komst i kynni við um dagana, en hún var gift þekktum bandarisk- um útgefanda, John Berryman. Simpson lýsir m.a. orðaskiptum eiginmanns síns við T.S. Eliot, er þau hjónin buðu honum heim til sini New York skömmu eftir að Eliot hafði fengið Nóbelsverðlaunin i bókmenntum. John Berryman óskaði Eliot til hamingju meö verðlaunin og sagði: „Það var timi til kominn”. „Segðu frekar alltof snemmt” svaraði Eliot. „Nóbelsverðlaunin eru aðgöngumiði að eigin útför. Það hefur enginn gert neitt eftir að hann hefur feng- ið þau”. —ESJ. Elías Snæland ÍS <4' W' Jónsson skrifar l||Éyg^3 . m v

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.