Tíminn - 26.03.1982, Side 1
TRAUST OG
FJÖLBREYTT
FRÉTTABLAÐ!
Föstudagur 26. mars 1982
69. tölublaö — 66. árg.
■ Suðurlandið fórst norður af
Færeyjum laust eftir hádegið i
gær. Tiu af ellefu skipverjum var
bjargað en eins er saknað.
Suðurlandið sem er eitt af
skipum Nesskips fór frá Þórshöfn
snemma I gærmorgun, áleiðis til
fslands. Það flutti saltfarm til
landsins. Um hádegisbilið kom
slagsiða á skipið en þá var suð-
vestan stormur og mjög slæmur
sjór á þessum slóðum. Skipverjar
fóru i gúmmibjörgunarbát og var
bjargað fyrst tveimur um borð i
litla þyrlu frá varðskipinu Hvita-
birninum, og siðan átta i aðra
■ M/s Suðurland.
stærri þyrlu sem kom frá Skot-
landi.
Mikil leit var strax hafin að
manninum, sem er saknað og
tóku bæði skip og bátar þátt i leit-
inni. Hún hafði ekki borið
árangur, þegar flugvélar urðu að
hætta vegna myrkurs, en skipin
héldu áfram að leita.
Hvitabjörninn tilkynnti að
Suöurlandið hefði horfið af
radarnum um klukkan hálf fimm
og er talið að skipið hafi þá sokk-
ið. SV
Sjá nánar á bls. 3
Bækur á leiksviði - Jónas um Don Kíkóta — bls. 19
■ Eftir hádegið i gær fór sólin að skina i höfuðborginni um stund og það var næstum sumarbiær i loftinu. Og þá var ekki að sökum
aö spyrja, brosin fæddust á andliti barnanna og lif færðist i hverja taug...(Tfmamynd Róbert.
Orkustofnun og Almenna verkfræðistofan:
GAKIU SAMNINGURINN
TEKUR GILDI AFTUR!
■ ,,Já, það er rétt, gamli samn-
ingurinn var settur í gildi aftur.
Orkustofnun skrifaði okkur bréf i
gær, þar sem hún sagðist reiðu-
búin til að standa við gerðan
samning”, sagði Svavar Jóna-
tansson, forstjóri Almennu verk-
fræðistofunnar i samtali við Tim-
ann i gær. „Og okkar samnings-
aðili vestur i Bandarikjunum
samþykkti með leyfi sjóhersins
einhvern tima snemma i dag”,
hélt Svavar áfram.
Svavar sagðist vonast til að
hægt yrði að hefjast handa við
framkvæmdir i Helguvik i dag
með undirbúningsvinnu.
1 bréfi Orkustofnunar til Al-
mennu verkfræðistofunnar segir
m.a. „Orkustofnun er reiðubúin
til að hefja störf samkvæmt
samningnum frá 10. mars að þvi
tilskildu að Almenna verkfræöi-
stofan fallist á eftirfarandi: Að
samningsupphæðin reiknist yfir i
islenskar krónur og að fyrir verk-
ið verði greitt i islenskum krón-
um. Og að Almenna verkfræði-
stofan afli heimilda landeigenda
til að fara um landiö og að hún
geri bandariska verktakanum
grein fyrir greinargerð Orku-
stofnunar frá 18. mars.”
„Ja, viö getum hafist handa
strax þess vegna”, sagði Jakob
Björnsson, orkumálastjóri i sam-
tali viö Timann. „En að svo
stöddu get ég ekki sagt hvenær
byrjað verður. Jarðboranir byrja
á þviaðleggja slóðir og þess hátt-j;
ar einhvern tima á næstunni”.
— Verða fyrirvararnir virtir?f
„Já, það er alveg ljóst. Viöi
hlýðuih okkar yfirmönnum, enj
þess er að geta að fyrirvararnirj
eru bara innanlandsmál. M.a.
snúast þeir um það hver skiptir:
dollurunum og það er náttúrulega;
bara mál milli okkar og Almennu!
verkfræðistofunnar”, sagðif
Jakob.
—SjóJ
ff'
pakkinri”
— bls.
11-18
bls. 7
—
Heppnir
bls. 2
SUÐURLANDIÐ FORST
Heimilis
Tfminn:
NORÐUR AF FÆREYJUM
tíu skipverjum var bjargaö en eins er saknað