Tíminn - 01.04.1982, Side 4
4
Fimmtudagur 1. april 1982
Auglýsing
um aðalskoðun
bifreiða í
lögsagnarumdæmi
Reykjavíkur í
aprflmánuði 1982
Fimmtudagur 1. april R-16501 til R-17000
Föstudagur 2. aprfl R-17001 til R-17500
Mánudagur 5. april R-17501 til R-18000
Þriöjudagur 6. aprii R-18001 til R-18500
Miðvikudagur 7. april R-18501 til R-19000
Þriðjudagur 13. april R-19001 til R-19500
Miövikudagur 14. april R-19501 til R-20000
Fimmtudagur 15. april R-20001 til R-20500
Föstudagur 16. april R-20501 til R-21000
Mánudagur 19. april R-21001 tii R-21500
Þriðjudagur 20. april R-21501 til R-22000
Miðvikudagur 21. april R-22001 til R-22500
Föstudagur 23. april R-22501 til R-23000
Mánudagur 26. april R-23001 til R-23500
Þriðjudagur 27. april R-23501 til R-24000
Miðvikudagur 28. april R-24001 til R-24500
Fimmtudagur 29. april R-24501 til R-25000
Föstudagur 30. april R-25001 til R-25500
Bifreiðaeigendum ber að koma með bif-
reiðar sinar til Bifreiðaeftirlits rikisins,
Bildshöfða 8 og verður skoðun fram-
kvæmd þar alla virka daga kl. 08:00 til
16:00.
Festivagnar, tengivagnar og farþega-
byrgi skulu fylgja bifreiðum til skoðunar.
Við skoðun skulu ökumenn bifreiðanna
leggja fram fullgild ökuskirteini. Sýna ber
skilriki fyrir þvi að bifreiðaskattur sé
greiddur og vátrygging fyrir hverja bif-
reið sé i gildi.
Athygli skal vakin á þvi að skráningar-
númer skulu vera vel læsileg.
Samkvæmt gildandi reglum skal vera
gjaldmælir i leigubifreiðum sem sýnir rétt
ökugjald á hverjum tima. Á leigubif-
reiðum til mannflutninga, allt að 8 far-
þegum, skal vera sérstakt merki með bók-
stafnum L.
Vanræki einhver að koma bifreið sinni til
skoðunar á auglýstum tima verður hann
látinn sæta sektum samkvæmt umferðar-
lögum og bifreiðin tekin úr umferð hvar
sem til hennar næst.
Bifreiðaeftirlitið er lokað á laugardögum.
í skráningarskirteini skal vera áritun um
það að aðalljós bifreiðarinnar hafi verið
stillt eftir 31. júli 1981.
Lögreglustjórinn i Reykjavik,
29. mars 1982
Auglýsing
frá Póst- og
símamálastofnuninni
Ný götu- og númeraskrá fyrir Reykjavik,
Bessastaðahrepp, Garðabæ, Hafnarfjörð,
Kópavog, Seltjarnarnes og Varmá er
komin út og er til sölu i afgreiðslum pósts
og sima i Reykjavik, Kópavogi, Garðabæ,
Hafnarfirði, Seltjarnarnesi og Varmá.
Verð skrárinnar er kr. 170, með söluskatti.
Póst- og simamálastofnunin.
^ Staða forstjóra
Innkaupastofnunar Reykjavikurborgar er
laus til umsóknar.
Launakjör eru skv. kjarasamningi við
Starfsmannafélag Reykjavikurborgar.
Staðan verður veitt frá 1. júli 1982 að telja.
Umsóknum skal skilað til skrifstofu
minnar fyrir 20. april n.k.
Borgarstjórinn i Reykjavik
Egill Skúli Ingibergsson.
Fá Sunnlendingar sykurverksmiðju í sárabætur?
„MIKLU HAGKVÆM-
ARIEN STEINULUN”
— segir Garðar Hannesson í Hveragerði
■ „t þessari steinullarumfjöllun
hefur talsvert verið um það að
skít hafi verið kastað i okkur
sykurmenn,” sagði Garðar
Hannesson, einn stjómarmanna i
Ahugafélagi um sykuriönað h.f., i
viðtali viö Timann i gær, þegar
hann var spurður álits á ummæl-
um Öfeigs Hjaltested, þess efnis
að allir viti að sykurverksmiðja
verði aldrei reist.
„Sannleikurinn er sá,” sagöi
Garðar, „að við höfum haldið að
okkur höndunum til að spilla ekki
fyrir málum hjá steinullarmönn-
unum, þvi við geröum ekki ráð
fyrir þvi að hvort tveggja kæmi i
einu. Allar niöurstöðutölur sýna,
að sykurinn er miklu hagkvæm-
ari valkostur en steinullin. Hann
veitir miklu fleiri mönnum vinnu
og gefur meiri arö, þvi sam-
kvæmt nýjustu Utreikningum, þá
gefur sykurverksmiðja 29.5% I
rekstrararð, á móti 11% aröi
steinullarverksmiðju. Sykur-
verksmiðjan veitir 68 manns
vinnu, á móti 40 i steinullarverk-
smiðju.
Auk þessa kæmi þessi verk-
smiöja hér i Hverageröi á þurran
stað, þvi hér vantar alveg at-
vinnugrundvöll, ef svo má aö orði
komast,” sagði Garðar.
Garöar sagði aö sjónarmið
mjög margra á Suðurlandi væri
það að staðsetja bæri steinullar-
verksmiöjuna á þeim stað, þar
sem undirbúningsvinnan heföi
veriö unnin, þ.e. að ef stór verk-
smiðja yrði fyrir valinu, þá bæri
að velja Þorlákshöfn, en ef litil
verksmiöja yrði valin, þá bæri að
velja Sauöárkrdk.
Garðar var að þvi spuröur
hvort sykurverksmiðja i Hvera-
geröi yröi samkeppnishæf i veröi
við innfluttan sykur og sagði hann
þá: „Já, þaö er ekki rétt sem
komið hefur fram, aö kilóverð
okkar veröiumS krónur. bað yrði
um 5 krónur, ef verksmiðjan ætti
aö skila fullri arðsemi strax, en
við dreifum þvi á 10 ár, og náum
þannig sem meðalverði á kilóið á
þessu timabili 2 krónum og 60
aurum, þannig að arðsemin á
þessu timabili verður 15%, en þar
eftir 29.5%.”
—AB
■ Lúðrasveit Verkalýösins. Sveitin er stofnuð 1953 og er þvi 30 ára á næsta ári. Um þessar mundir eru
félagar 30 talsins.
Lúdrasveit Verkalýdsins
með tónleika í Gamla Bíói
■ Árlegir tónleikar LUÖrasveitar
Verkalýösins verða laugardaginn
3. april kl. 14.00 I Gamla bioi.
Efnisskráin veröur aö vanda
mjög fjölbreytt, bæði innlend og
erlend lög. Hluti efnisskrárinnar
verður fluttur á tónleikum
sveitarinnar i Pori, Finnlandi, en
þangað heldur hún i lok jUní-
mánaöar, ásamt Samkór Tré-
smiðaféiags Reykjavikur og kór
Starfsmannafélags Alafoss, til
þátttöku i 8. samnorræna alþýðu-
tónlistarmótinu.
Aðgangur aö tónleikum Lúðra-
sveitar Verkalýðsins i Gamla Biói
er ókeypis.
Stjórnandi er Ellert Karlsson
Kynnir verður Jön MUli Arna-
son.
Ályktun Starfsmannafélags ríkisstofnana
af niðurstöðu Kjararannsóknarnefndar:
„Atvinnurekendur tilbun-
ir að greiða hærra kaup^
■ „Samkvæmt skýrslu Kjara-
rannsóknarnefndar er mikið um
yfirborganir á hinum almenna
vinnumarkaöi. Þetta sýnir betur
en margt annað, að litið mark er
takandi á sifelldum barlómi at-
vinnurekenda og fullyrðingum
þeirra um aðtaxtakaupséof hátt.
Atvinnurekendur á almennum
vinnumarkaöi hafa sýnt i verki að
þeir eru tilbúnir að greiða hærra
kaup, en samið hefur verið um I
almennum kjarasamningum”,
segir i samþykkt aðalfundar
Starfsmannafélags rikisstofnana
er haldinn var fyrir helgina.
Aðalfundurinn telur aö ekki sé
lengur hægt að una við að skerö-
ing kaupmáttar launafólks vaxi
ár frá ári og skorar á félagsmenn
sina aö standa einhuga að undir-
búningi þeirrar kjarabaráttu sem
framundan er. SU krafa er gerð til
rikisvaldsins, sem stærsta at-
vinnurekenda landsins, að lág-
markslaun fullnægi framfærslu-
þörf heimilanna.
Bent er á þá miklu óánægju
sem nú er meöal láglaunahópa i
landinu með kaup og kjör, og vak-
in athygli á þeirri staöreynd aö
stórir hópar láglaunafólks hafi
neyöst til að gripa til uppsagna
eða annarra aðgerða til að knýja
á um leiðréttingu launa sinna.
Jafnframt er fullri ábyrgö lýst á
hendur rikinu komi til neyöar-
ástands t.d. á sjUkrahúsunum.
Stjórn SFR er falið aö vera vel
á verði gagnvart hugsanlegum
breytingum á útreikningi fram-
færsluvisitölu og lögð sérstök
áhersla á stuðning viö kröfu
BSRB um óskertar visitölubætur
á laun.
Þá kraföist aðalfundurinn þess
aö ákvæði i stjórnarskrá Islands
um félagafrelsi sé virt og þaö fari
ekki eftir geðþótta ráöamanna i
hvaða samtök launamanna
starfsmenn raðast. —HEI