Tíminn - 15.04.1982, Qupperneq 7
Fimmtudagur 15. april 1982
erlent yfirlit
■ Hernaðarsigrar Irana i styrj-
öldinni við Iraka hafa treyst mjög
klerkaveldið i Iran. Siðan i
byltingunni fyrir þrem árum
hefur þvi i raun aldrei verið veru-
lega ógnað, en andstaða gegn þvi
samt verið verulag og hermdar-
verk tið. Allri mótspyrnu innan-
lands hefur verið mætt af fyllstu
hörku og pólitiskar handtökur
verið mun tíðari og fleiri en opin-
berar tölur gefa til kynna. And-
legt frelsi er ekki til i landinu.
Staðfest dæmi eru um að menn og
konur hafa verið handtekin og
tekin af lifi fyrir það eitt að i fór-
um þeirra fundust bækur eftir
evrópska rithöfunda og verk
Karls Marx. Allir verða að hlita
vilja klerkanna og sýna i orði og
verki nákvæmlega sömu trú og
þeir. Frjáls hugsun er bannfærð
og frávik frá réttri trú kosta
menn lifið.
Byltingarverðir Khomeinis er
sú svipa sem dynur á hverjum
þeim sem verður á i messunni.
Upphaflega var þetta samsafn
alls kyns götustráka og ofbeldis-
seggja iðulega kallaðir „náms-
menn” í vestrænum fjölmiðlum,
en heima fyrir ganga þeir undir
heitinu Pastras. Þeir eru nú
agaður hópur ofstækismanna,
sem hlýðir vilja klerkanna i einu
og öllu.
Sigurganga írana i striðinu við
nágranna sina Iraka siðustu
vikurnar er ekki sist að þakka
byltingarvörðunum. Þeir berjast
nú við hlið hersins og ganga fram
af sliku hugrekki og ofstæki að
engu er likar en þeir gangi fagn-
andi beint i dauðann á móti
byssukjöftum andstæðinganna.
Mannfall i liði Irana hefur verið
mikið en nóg er af mannskapnum
og fyllt er i skörðin eftir þörfum.
Það er athyglisvert að tranir hafa
um 20 þúsund striðsfanga i haldi
en írakar ekki helming þess
fjölda á sinu valdi. líanir berjast
til að sigra, hvað sem það kostar.
Það vakti undrun á sinum fima,
þegar styrjöldin hófst hve vel
vopnum búinn og bardagahæfur
iranski herinn var. Þá var
byltingarstjórnin búin að hreinsa
verulega til i hernum og fjöldi
hershöfðingja og liðsforingja
teknir af lifi eða i fangelsum.
íran:
■ Khomeini erkiklerkur gerist nú aldraður og er farinn að heilsu.
Hann á ekkieftirað sitja á valdastóli lengi enn. Hvaðtekur þá við?
Klerkar og herinn
treysta völd sín
— vígtennurnar dregnar úr andstöðuhópum
Irakar álitu greinilega að landa-
mærahéruð Irans væri þeim
auðveld bráð. En annað kom á
daginn. Iranski herinn barðist af
þrótti og hefur haldið sinu allt frá
þvi að Irakar hertóku nokkur
landsvæði innan irönsku landa-
mæranna.
En nú er eins og iranski herinn
hafi fengið nýtt blóð og gagnsókn
er hafin á miðvigstöðvunum. Og
herinn hefur fengið nýtt blóð i
orðsins fyllstu merkingu.
Byltingarverðir berjast við hlið
hermannanna með fyrrgreindum
árangri. En herinn er samt sem
áöur ekkert sérlega hrifinn af
þessari liðveislu. Hans veldi er
ógnað. Byltingarverðirnir til-
heyra ekki fastahernum.þótt þeir
berjist með honum, og heima
fyrir er þeim þakkað hve
hernaðurinn gengur vel um þess-
ar mundir og að verið er að
hrekja óvinina út fyrir landa-
mærin. Þvi er herinn afbrýðisam-
ur og er ekki einn um sigurgöng-
una. 1 ræðu sem Khomeini flutti
nýverið gætti hann þess að gera
ekki upp á milli hersins og
byltingarvarðanna er hann fór
fögrum orðum um sigurvinning-
ana,þvi herinn er sterkt afl i land-
inu sem ekki er vert að hafa á
móti sér.
Khomeini gerist nú aldraður og
farinn að heilsu og menn velta
mjög fyrir sér hvað gerist i land-
inu eftir hans dag. Iranir þekkja
ekki lýðræði. Allur fjöldinn er
hlutlaus hvað stjórnmálum við-
kemur. Einræði keisarans og
siðan einræði klerkanna hefur
ekki orðið til þess að vekja
þjóðina til pólitiskrar vitundar.
Þaö er öllu stjórnað og íranir al-
mennt taka þvi sem að höndum
ber. Þeir þekkja ekki hugtakið
um valfrelsi einstaklingsins, sem
Vesturlandabúar telja sjálfsagt
og eðlilegt.
Þvi er ákaft haldiö að lands-
mönnum að þaó hafi eingöngu
verið shitarog klerkar þeirra sem
börðust gegn keisarastjórninni og
felldu hana. Hlutur vinstrisinna
alls konar er gerður litill sem
enginn.
Mujaheddin-hreyfingin var
öflugust andstæðinga klerka-
veldisins og höfðu hermdar-
verkamenn hennar sig mjög i
frammi og talið var að hún ætti
talsverð itök. tfebrúarmánuði s.l.
var gengið á milli bols og höfuös
á hreyfingunni með aðgerðum
sem virðast hafa lamað hana og
hafa Mujaheddin skæruliðar litið
látið á sér kræla siðan.
Marxistafylkingin Fedayeen er
klofin. Tudeh flokksbrotið sem er
hallt undir Moskvu hefur enn
nokkur völd og hefur starfað með
klerkastjórninni og ræður með
meiru nokkrum ráðuneytum, er
að missa áhrif sin og sýna
klerkarnir þessum bandamönn-
Oddur Ólafsson
skrifar
um sinum sifellt meiri tortryggni.
Haldi sigurganga hersins i
landamærahéruöum áfram og
geti hann rekið óvinina af hönd-
um sér, verður hann vafalitið
sterkasta afl landsins, að
Khomeini gengnum.
Herinn hefur löngum verið
valdamikill i Iran og er þess
skemmst að minnast að hann var
það afl sem stóð að baki keisara-
stjórninni. Það var ekki fyrr en
herinn brotnaði innan frá sem
unnt reyndist að fella keisarann
úr stóli.
Það var innrás Iraka sem sam-
einaði og styrkti herinn á nýjan
leik, og takist honum að vinna
sigur i striðinu verður hann af-
gerandi afl i landinu. Þvi er það
að þátttaka og framganga
byltingarvarðanna i bardögunum
núna draga úr ljóma hersins.
Margs konar getgátur eru á
lofti um hvers konar stjórnarfar
verður i Iran eftir lát Khomeinis.
Eins og mál standa nú hallast
flestir að þvi að klerkastjórn
verði áfram i landinu og að baki
hennar standi öflugur og valda-
mikill her. Ósköp svipað og á dög-
um keisarans.
erlendar fréttir
Thatcher
aðvarar
Argentínumenn
■ Margaret Thatcher, for-
sætisráðhérra Breta sagði i
ræðu i breska þinginu i gær að
Bretar héldu áfram að leita
friðsamlegrar lausnar á Falk-
landseyjadeilunni eftir dipló-
matiskum leiðum, en sagði að
ef það hrykki ekki til, muni
verða að láta vopnin skera úr.
Þetta var þriðji skyndiíundur-
inn i neðri málstofunni sem
efnt er til á hálíum mánuði
vegna deilunnar og sagði for-
sætisráðherrann að frumskil-
yrði væri að Argentinumenn
drægju liðsafla sinn frá eyjun-
um. Niðurstaða mála yrði svo
að ráðast fyrst og fremst af
vilja ibúanna sjálfra. Hún
lagði áherslu á að ei Argen-
tinumenn brytu 200 milna
bannsvæði þaö sem Bretar
hafa lýst i kring um eyjarnar,
þá yröi það skoðað sem svo að
enginn vilji væri lengur fyrir
hendi til þess að ná friðsam-
legri lausn. „Enginn skyldi
halda að Bretar hikuðu þá við
aðgripa til sinna ráða,” sagði
Thatcher.
Leiðtogi stjórnarandstöð-
unnar, Michael Foot, sagði að
hann styddi þá ákvörðun
stjórnarinnar að senda flotann
af stað til eyjanna, þar sem
með öðru móti hefði ekki verið
hægtað leita neinna samninga
við Argentinustjórn. Hann
lagði um leið áherslu á að öll-
um Bretum væri efst i huga að
deilan leystist friðsamlega.
áhyggjufullur
■ Reagan l'orseti hefur nú
fengiö skýrslu Haig um sátta-
tilraunir hans i Falklands-
eyjadeilunni og sagði hann á
blaðamannaíundi i gær að
deilan væri nú á aíar alvar-
legu stigi og mikilsvert að
báðir aðilar kosti kapps um að
láta ekki koma til átaka. Haig
er nú á leið til Buenos Aires til
frekari sáttaviðræðna.
Reagan var spurður að þvi
hvort bandariskir sérfræðing-
ar hefðu gefið Bretum upp-
lýsingar um flotamál á Suður
Atlantshafi að undaníörnu og
hvort Rússar hefðu veitt
Argentinumönnum samskon-
ar upplýsingar. Reagan vildi
sem minnst segja um banda-
riska aðstoð við Breta, en hins
vegar fullyrti hann að Rússar
hefðu veitt Argentinu ýmsar
upplýsingar og ráðlagði hann
þeim að hætta að skipta sér af
deilunni. Argentinski sendi-
herrann i Washington hefur
neitað þessum ummælum
Reagans.
32 borgarar
yfirgefa
Falklandseyjar
■ Varnarmálaráðuneytið i
London hefur nú tilkynnt aö
fleiri hraðfleygar flugvélar,
sem geta halið sig lil flugs af
flugmóðurskipum, verði nú
sendar ílotadeildinni sem
stefnir til Falklandseyja. Sex-
tán skip sem borið geta ílug-
vélar munu nú vera með flota-
deildinni og mun ætlunin að
auka fjölda þeirra um helm-
ing.
Fréttir hafa borist af þvi að
32 borgarar lrá Falklandseyj-
um séunúkomnirlil Uruguay.
Meðal þeirra er mr. Baker,
landritari, sem var æðsti mað-
ur á eyjunum, eitir að land-
stjórinn var hrakinn úr landi
við innrásina. Ekki er enn
kunnugt um hvort mönnunum
var visað úr landi, eða hvort
þeir fóru af írjálsum vilja.
Viðskiptabann
EBE á föstudag
■ Nánari ákvarðanir hafa nú
verið teknar af hinum tiu
aðildarlöndum Efnahags-
bandalagsins vegna viðskipta-
banns gegn Argentinu. Skal
bannið taka gildi á föstudag og
gilda í einn mánuð til að byrja
með, en ákvörðun um fram-
lengingu þess verður tekin eft-
ir þvi hvernig mál skipast i
deilunni. Ekki skal bannið þó
taka til viðskiptasamninga
sem þegar eru i gildi.
Rauða herdeild
in fyrir rétti
■ Réttarhöldhófust i gær yfir
63 fyrrverandi meðlimum
Rauðu herdeildarinnar á
Italiu fyrir morðið á Aldo
Moro fyrir fjórum árum og
fyrir ýmsar aðrar misgjörðir,
morð mannrán og hermdar-
verk. Eru þetta umfangs-
mestu réttarhöld yfir hryðju-
verkamönnum á Italiu til
þessa.