Tíminn - 09.06.1982, Side 1

Tíminn - 09.06.1982, Side 1
íslendingaþættir fylgja bladinu í dag TRAUST OG FJÖLBREYTT FRÉTT ABLAD! Miðvikudagur 9. júní 1982 128. tölublað-66. árg. SAMIÐ VW ALLA AÐILA NEMA BYGGINGARMENN? — deilt um hvernig tryggja megi að þeir semji ekki um meira ■ Langir og strangir samninga- fundir stóðu með aðilum vinnu- markaðarins i allan gærdag, og stóðu þeir enn þegar blaðið fór í prentun um miðnætti í gærkveldi. Á samningafundum i gær var m.a. rætt um möguleika á því að vinnuveitend- ur og Alþýðusamband íslands að Sambandi byggingarmanna undan- skildu semdu sin á milli innan þess ramma sem ræddur hefur verið undanfama daga. V.andamálið sem efst var á baugi snéri hins vegar að þvi hvemig tryggja mætti að byggingarmenn semdu ekki um hærri kauphækkanir enaðrireftirá. Var uppi hugmynd um að setja inn fyrirvara i samninga um að ef aðrar stéttir fengju meiri launahækkanir en verkalýðsfélög innan ASÍ, þá yrði þeim gert kleift að bæta hag sinn. Menn voru hins vegar ekki á eitt sáttir um með hvaða hietti fyrirvarinn ætti að vera. Launþegaforingjar lögðu áherslu á að sinir umbjóðend- ur fengju sjálfkrafa kauphækkun ef aðrir semdu betur, eða gerðadómi yrði falið að fjalla um málið, en vinnuveitendur lögðu hins vegar áherslu á að einungis yrði uppsagnar- ákvæði í samningnum til að dreifa vegna þessa. Meistarasamband byggingar- manna er nú utan VSÍ og þvi engin trygging um að þeir muni ekki semja hærra en aðrir við Samband byggingarmanna. Sérstaklega í ljósi þess að forystumenn meistara- sambandsins, a.m.k. sumir hverjir, telja að samningar náist ekki við sveina nema á mun hærri nótum en rætt er i sambandi við aðra. - Kás Sjá nánar af samningamálum á baksiðu fuvii Sólí Sunnuhlíð - bls. 10 Sýslumað> ur kvaddur — bls. 4 Langur föstu- dagur - bls. 23 Meiðsli í fætl binda enda á íþróttaferil Hreins Halldórssonar: ,ÆTIA AD HÆTTA FYRIR FULLT OG AiiT’ ■ „Ég ætla mér að hætta fyrir fullt og allt að stunda þetta sem keppnisiþrótt" sagði Hreinn Halldórsson kúluvarpari i samtali við Tímann en hann liggur nú á bæklunardeild Landsspítalans eftir að hafa gengist undir uppskurð vegna brjóskloss í fæti. Meiðsli hans hafa smátt og smátt verið að versna en hann varð þeirra fyrst var skömmu áður en hann hélt til Alabama í vetur þar sem hann æfði hjá Alabamaháskóla. Meiðslin ágerðust stöðugt og vegna þeirra gat hann ekki sinnt æfingum sem skyldi. „Andlega liður með vel, og ég hafði stefnt að því að hætta keppni i ár, en þá miðaði ég við að hætta eftir Evrópu- meistarakeppnina i Grikklandi, en ekki á sjúkrahúsi" sagði Hreinn. - FRI Sjá nánar á bls. 5 ■ Hreinn Halldórsson rúmliggjandi á bæklunardeild Landsspitalans. Við rúm- gaflinn stendur Jóhanna Þorsteinsdótt- ir, kona Hreins, en Lovísa dóttir þeirra hefur það náðugt til fóta. Timamynd: Kóbert

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.