Tíminn - 09.06.1982, Blaðsíða 2
MIÐVIKUDAGUR 9. JÚNÍ 1982
r spegli tímans
umsjón: B.St. og K.L.
HUNDAÓHEPPNI
2) Brunalidsmadur er ad komast tíl hundsins.
■ Þetta var meiri
ólánsdagurinn hjá
aumingja Neró.
Hann hafði álpast út
um glugga á íbúð-
arblokk, þar sem
hann átti heima í
Washington D.C. í
Bandaríkjunum, og
fór svo eftir syllu
■ 3) „Svona, kallinn mmn, komdu rólegur með méru.
Björgunarmennimir hjálpast að við að hjálpa seppa úr klipunni.
utan á húsinu, en
komst ekki til baka
sömu leið. Þama sat
hann svo fastur á
syllunni og var
ósköp sorgmæddur
á svipinn. Vegfar-
endur sáu vandræði
hundsins og tilköll-
uðu brunaliðsmenn.
■ 1) Neró var svo óheppinn að lokast úti á gluggasyllunni. Hann
horfir hræddur niður á götuna.
Það var erfitt að
komast að hundin-
um án þess að
hræða hann. Björg-
unarmaður Nerós
lagði sig í töluverða
hættu við að ná
honum, en allt fór
vel að lokum.
Jacqueline Bisset:
„Hef snúið við
blaðinu, — ekki
fleiri Bondstúlku-
(hlutverk fyrir mig
í framtíðinni:
■ Jacqueline Bisset hefur um
þessar mundir gert alvarlega
úttekt á leikferli sinum.
Margar af þeim kvikmyndum
sem hún hefur leikið í, hafa
meira lagt áherslu á kynþokka
hennar og fagran likama en
leikhæfileika hennar, og hún
segist vera hrædd um að hún
lendi í hálfgerðri sjálfheldu
sem „sexbomba“ og fái aldrei
meir alvarlegt eða viðamikið
hlutverk. Jacqueline er bresk,
orðin 35 ára og hefur verið
vinsæl leikkona i kvikmyndum
í mörg ár. Hún segist nú sjá,
að hún hafi ekki verið nógu
vandfýsin með hlutverk. T.d.
þegar hún tók að sér að leika
hina fagurlimuðu Giovönnu
Goodthighs í James Bond-
myndinni Casino Royale. Það
hlutverk hefur fylgt mér
endalaust siðan, en önnur sem
hafa reynt meira á leikhæfi-
leika hafa fallið i gleymsku,
segir leikkonan og tilnefnir þá
„Day For Night“ 1973 og
Morðið i Austurlandahrað-
lestinni 1974 (þar lék hún
| greifynjuna).
„Nú vil ég losna úr þessum
| hlutverkum, þar sem ég leik
I stúlku í blautri blússu og
brjóstahaldaralaus, - þar sem
ég geri lítið annað en að sýna
á mér kroppinn, og leika
| alvarleg hlutverk, þar sem
reynir á skapgerð og leikhæfi-
leika“, segir leikkonan nýlega
| i viðtali við breskt blað.
Hún hefur þegar byrjað á að
| framkvæma þessa áætlun sina.
i Hún hefur leikið nýlega í
) kvikmynd, sem heitir „Rík og
fræg“ og er það ný útgáfa af
samnefndri kvikmynd, sem
Bette Davis, leikkonan fræga,
lék aðalhlutverk í fyrir
mörgum árum. Jacqueline
Bisset hefur sýnt að henni er
alvara með það“...að snúa við
blaði“.
■ Jacqueline vill ekki festast
í kynbombuhlutverkum, en
engu að siður..
■ Bragi Ásgeirsson listmálari og K.B. Andersen fyrrum utanríkisráðherra Dana við afhendingu Bjartsýnisverðlauna
Bröstes 1982.
Bjartsýnisverðlaun Bröstes 1982
■ „Bjartsýnisverðlaun
Bröstes“ eru veitt íslenskum
listamanni einu sinni á ári. Þau
voru veitt í fyrsta sinn í fyrra,
og þá hlaut þau Garðar Cortes
óperusöngvari, en verðlaunin
1982 voru veitt Braga Ásgeirs-
syni listmálara. Verðlaunin,
sem voru 25.000 danskar
krónur, voru afhent við
hátíðlega athöfn 2. júni í
BRÖSTES GARD.
Peter Bröste forstjóri bauð
gesti velkomna, en þama vom
saman komnir gestir frá stjóm
Kunstakademiets og málara-
skóla þess. Þar vom einnig
nokkrir vinir Braga og
kollegar í listinni og Einar
Ágústsson ambassador var
þama mættur og fleiri íslend-
ingar.
K.B. Andersen, fyrrv.
utanríkisráðherra, var aðal-
ræðumaður, en hann hefur
ávallt staðið framarlega i
norrænni samvinnu og var
einn aðalstuðningsmaður ís-
lendinga þcgar rætt var um
islensku fomhandritin i Dan-
Peter Bröste forstjóri ásamt BragaAsgeirssyni og Kolbrúnu konu hans.
mörku og afliendingu þeirra til
íslands. Hann talaði við þetta
tækifæri um islenska menningu
i fortið og nútið, og varðveislu
fomra bókmennta á íslandi.
Þá vom lesin simskeyti frá
Islandi, heillaskeyti frá forseta
hhbhhhhhbhbb
íslands, Vigdisi Finnbogadótt-
ur, og skeyti frá islensku
valnefndinni með forsendum
vals þeirra á verðlaunahafa i
ár. Þvi næst las Erik
Sönderholm lektor, fyrmrn
framkvæmdastjóri Norræna
hússins í Reykjavík og góður
vinur Braga Ásgeirssonar,
þakkarávarp frá honum.
Þetta þótti bjartur og fagur
danskur/islenskur hátiðisdagur
i Bröstes garði við Christians-
höfn.