Tíminn - 09.06.1982, Page 20
VARAHLUTIR
Sendum um land allt
Kaupum nýlega
bíla til niðurnfs
Simi (91) 7 - 75-51. (91 ) 7 - 80-30.
TTTT Skemmuvegi 20
tlrlr . Kópavogi
Mikiö úrval
Opió virka duga
9-19 • Laugar-
daga 10 16
HEDD HF.
Gagnkvæmt
tryggingafélag
labnel
HÖGGDEYFAR
QJvarahlutir
Armiila 24
Simi 36510
V ■ . l: •..«
ATBURDIR AFTAN ÚR MÓÐUHARÐ-
INDUNUM A SVIDI í GAMLA BÍ6
Litli leikklúbburinn sýnir ,,Ur aldaannáT’eftir Bödvar Guðmundsson
■ Nú fyrir helgina iitu þeir við á
ritstjórn Timans Trausti Hermannsson
og Hafsteinn Vilhjálmsson frá Litla
leikklúbbnum á ísafirði, en leikklúbbur-
inn var með sýningu i Reykjavík á leik
Böðvars Guðmundssonar, „Úr alda-
annál“ i gærkvöld í Gamlabiói. Við
notum tækifærið til þess að spyrja þá
fclaga um sýninguna og starf Litla
leikklúbbsins.
„Leikhópurinn er rétt i þessu að koma
frá Danmörku, þar sem hann sýndi þetta
verk á norrænni listahátið i Næstved",
segja þeir félagar. „Verk Böðvars var
hins vegar frumsýnt í félagsheimilinu i
Hnífsdal á annan dag páska í vetur og
við gerðum nokkru betur en það, því við
gáfum leikinn út i bókarformi. Það er
Mál og menning sem hefur séð um
dreifinguna á bókinni."
Hvað viljið þið segja okkur uni
leikritið?
„Efnið sækir Böðvar i atburð sem átti
sér stað austur á Fjörðum 1784-86 og
segir þar frá tilvikum hans ásamt því lífi
sem þjóðin lifði á þessum tíma, en þetta
er það tímabil sem Móðuharðindin
stóðu yfir. Að öðru leyti vil ég ekki rekja
efni leiksins, enda er það ekki svo
auðvelt."
Sýningin hefur þótt mjög áhugaverð
og henni hefur verið afar vel tekið. Það
hefur gert sitt til þess að setja svip á hana
að leikmyndin er mjög óvenjuleg og
fyrir vestan færðum við allt húsið i
leikbúning með þvi að tjalda og mála
salinn i stil við það andrúmsloft sem í
leiknum ríkir. Það var leikstjórinn
okkar, Kári Halldór sem hannaði
leikmyndina, en tónlist er eftir Jónas
Tómasson. Leikendur eru níu. Við
héldum niu sýningar fyrir vestan á „Úr
aldaannái“.
Þið fóruð með sýninguna úr landi?
„Já, eins og ég sagði, þá fórum við
með hana til Næstved og sýndum þar 2.
júní og 4. júni. Við höfum ekki heyrt
frá þeim i dag, en vitum að þegar
leikararnir okkar komu út var tekið á
móti þeim eins og höfðingjum og
sýningin þann 2. júní gekk mjög vel.“
Hve lengi er Litli leikklúbburinn
búinn að starfa?
„Hann hefur nú starfað í 17 ár. Þetta
er þvi 18. leikárið og leikrit Böðvars
Guðmundssonar er okkar 36. verkefni.
Við höfum yfirleitt verið með aðkomna
atvinnuleikstjóra við okkar sýningar,
þótt við höfum einnig sett upp leikrit
sjálf. Skráðir félagar í klúbbnum eru nú
um 60, enda hefur krafturinn í starfinu
verið óvenju mikill allt síðasta leikár,
t.d. í kring um sýninguna „Þið munið
hann Jónas,“ sem var samantekt á ýmsu
úr verkum Jónasar Árnasonar og einnig
vegna barnaskemmtana okkar o. fl. svo
ekki sé minnst á þessa bókaútgáfu.
Salan á bókinni hefur gengið mjög vel
vestra og vonum að hún og leikurinn fái
einnig góðar viðtökur á Listahátíð nú,
svo kostnaður okkar sleppi fyrir horn.“
- AM
MIÐVIKUDAGUR 9. JUNI 1982
■ Trausti Hermannsson og Hafsteinn Vilhjálmsson.
fréttir
Ætlar Meistarasam-
bandið að semja
hærra en aðrir?
■ „Vandinn er sá að
erfiðleikarnir snúa að
atriði sem hvorugur aðil-
inn ræður við, þ.e. hvorki
ASÍ né VSÍ. Við getum
ekki skyldað neitt félag til
að vera í samfloti með
okkur, og eins hitt að sum
okkar félög hafa aðra
viðsemjendur en VSÍ, eins
og t.d. Meistarasamband
byggingarmanna", sagði
launþegaforingi í röðum
ASÍ í samtali við Tímann
i gær.
„Ekki bætti það úr skák
þegar upp á borðið komu
hugmyndapunktar tiltek-
ins forystumanns í
Meistarasambandi bygg-
ingarmanna um það hvað
hann héldi að þyrfti að
koma til svo samningar
leystust við byggingar-
sveina. Þessir punktar
voru á miklu hærri nótum,
en aðrir hafa haft í huga.
Náttúrlega veikja þessar
hugmyndir ekki sveina um
að sækja á, þegar þeir sjá
hvert mat viðsemjenda
þeirra er á því hvað gera
þurfi.“
- Kás
Akureyri:
Eldur við
Einishúsið.
■ Slökkvilið Akureyr-
ar var kvatt að Einishús-
inu, við Hafnarstræti 81
á átjánda tímanum i
gær. Þegar komið var á
vettvang logaði eldur í
drasli í bakgarði hússins
og var hann í þann
mund að festa sig i
veggnum sem snýr að
bakgarðinum. Mikinn
reyk lagði frá eldinum.
Að sögn lögreglunnar á
Akureyri leikur grunur
á að um íkveikju hafi
verið að ræða.
—Sjó.
dropar
Að þakka
fyrir
sig
■ Úr fundargerð útgerðar-
ráðs Reykjavikurborgar:
„Þar sem þetta var siðasti
fundur útgerðarráðs á kjör-
timabilinu þakkaði formaður
útgerðarráðsmönnum og
starfsfólki BÚR samstarfið
þann tima, sem hann hefur
starfað i útgerðarráðinu og
óskaði mönnum farsældar i
framtiðinni.
Einar Thoroddsen fyrir
hönd minnihlutans þakkaði
samstarfsmönnum í útgerðar-
ráði ánægjulegt samstarf á
liðnu kjörtímabili.
Ennfremur þökkuðu Björg-
vin Guðmundsson og Einar
Sveinsson samstarfið á liðnum
árum og KrLstvin Kristinsson
þakkaði Marteini Jónassyni
sérstaklega langt og heilla-
drjúgt starf.
Ragnar Júliusson þakkaði
Vigfúsi Aðalsteinssyni og
starfsfólki hans vel uppfærða
reikninga og góða og fljóta
gagnaöflun á undanförnum
árum.“
Og við þökkum fyrir okkur.
Arnarflug
græðir
■ Elugfélög viða um heim
hafa borið sig illa að undan-
fömu, - kvartaö yfir versnandi
rekstrargrundvelli og raunar
hafa sum þeirra sofnað svefnin-
um langa. Allir kannast Uka
við hvað gengið hefur á hjá
Flugleiðum.
Það kom okkur þvi óneitan-
leg heilmikið á óvart þegar við
heyrðum að hagnaður Arnar-
flugs á siðasta ári hafi numið
um sjö milljónum króna. Þessi
tala verður að visu ekki gerð
opinber fyrr en á aöalfundi
félagsins næsta þriðjudag, en
við höfum hana eftir traustum
heimildum.
Þetta ætti að sýna að hægt
er að reka flugfélög án taps, og
kannski ekki að undra þótt
ýmsir líti hlutabréfin hým
auga...
Davíð fiskar
í tæru vatni
■ Á morgun rennur upp sú
stund sem Davíð Oddsson
hefur ábyggilega hlakkað til
lengi. Þá fær hann að renna
fýrir fyrsta laxinn í EUiðaán-
um.Honum til fulltingis munu
verða þeir Gunnlaugur Péturs-
son, borgarritari, og Aðal-
steinn Guðjohnsen, rafmagns-
veitustjóri.
Það vekur hins vegar athygU
að forseti borgarstjómar fær
hvergi að koma nærri, eins og
tiðkast hefur undanfarin ár.
Krummi...
er nú þeirrar skoðunar að
Davíð hefði getað ieyft Albert
að háfa hjá sér fyrsta laxinn...
o