Tíminn - 23.06.1982, Blaðsíða 1
íslendingaþættir fylgja blaðinu í dag
TRAUST OG
FJÖLBREYTT
FRÉTTABLAÐ!
Miðvikudagur 23. júní 1982
139. tölublað-66. árg.
FalklandS"
eyjar:
Enn er
deilt
— bls. 7
Skilnað-
armyndir
- bls. 23
Mæðra
dagur
- bls. 2
bls 10
Ólafur Haraldsson mætti til starfa í gær:
FLUGUMFERÐARSTJÓR-
ARNIR GENGll EKKI ÖT
— eins og þeir höfðu haft í hótunum að gera
■ Ólafur Haraldsson, flugumfcrðar-
stjóri, sem vikið var úr Félagi islenskra
flugumferðarstjóra i siðustu viku að
undangenginni allsherjaratkvæða-
greiðslu i félaginu mætti til vinnu
sinnar á Keflavíkurflugvclli í gærdag
eins og ekkert hefði í skorist.
Samstarfsmenn hans, flugumferðar-
stjórar á Keflavikurflugvelli, höfðu
hótað þvi fyrir helgina að þeir myndu
leggja niður vinnu og ganga út ef af
þvi yrði, en þeir létu ekki verða af
þeim hótunum sinum í gær.
Eins og kunnugt er segir fyrir um
það í félagslögum FÍF að félagsmönn-
um sé óheimilt að starfa með þeim sem
vikið hefur verið úr því. Töldu
flugumferðarstjórar að öll störf Ólafs
féllu undir flugumferðarstjórn i viðri
merkingu þess orðs, og því giltu
ákvæði félagslaga um þau. Að vísu
mun Ólafi hafa verið fengin ný störf
að hluta, til að kljást við í starfi sínu,
en að stærstum hluta til sinnir hann
sínum eldri verkefnum.
Samkvæmt heimildum Timans þá
mun afráðið að Ólafur fari sér hægt i
starfi sinu til að byrja með til að
styggja flugumferðarstjóra ekki um of.
Yfirmenn hans eru hins vegar ekki í
nokkrum vafa uni ólögmæti frávikn-
ingar hans úr félaginu og þá mann-
réttindaskerðingu sem í þvi felst að
ætla að útiloka einn mann úr starfi, án
þess að vinnuveitandi hans, í þessu
tilfelli ríkið, komi þar nærri. Hræðslan
við það ógnarástand sem skapaðist ef
flugumferðarstjórar gengju út er aftur
á móti yfirsterkari.
Flugumferðarstjórar hafa í hendi
sér alla flugumferð til og frá landinu,
og gangi þeir út eru engir til staðar til
að gegna þeirra störfum. Slikt ástand
gæti haft óbætanleg áhrif á ferða-
mannastraum hingað til lands. t>að eru
þvi praktisk atriði sem eru ofarlega i
huga yfirstjórnar flugmála á Keflavik-
urflugvelli, en princip-sjónarmiðum
hefur verið ýtt til hliðar, a.m.k. i bili.
Hins vegar er flugumferðarstjórum
hugsuð þegjandi þörfin, samkvæmt
heimildum Timans. _ Kás
HORKUAREKST
VESTURLANDSI
■ Hjón og ungt bam þeirra voru flutt
á slysadeild eftir hörkuárckstur milli
Cortinu og vöruflutningabfls með
tengivagni, sem varð á Vesturlands-
veginum, nálægt Álafossi, á sextánda
timanum i gær.
Að sögn lögreglunnar i Hafnarfirði
varð slysið með þeim hætti, að
vöruflutningabíllinn, sem var á leið til
Reykjavikur, tók framúr kyrrstæðum
bíl sem var úti i vegarkantinum.
Cortinan var á leið i Mosfellssveitina
og lenti hún beint framan á vöruflutn-
ingabílnum. Áreksturinn var mjög
harður og mun Cortinan vera gjörónýt.
Það var konan sem ók Cortinunni
og þegar sjúkrabill kom á vettvang var
hún meðvitundarlaus og mjög skorin i
andliti og á handlegg. Maðurinn og
barnið sluppu betur.
Lögreglan í Hafnarfirði sagði, að
miðað við aðkomuna á slysstað væri
mesta mildi að ekki hefði farið enn
verr. —Sjó.
■ Lögreglan í
Hafnarfiröi, sagði
þaö niesta mildi, að
ekki hefði farið mik-
ið verr í árekstrinum,
sem varð á Vestur-
landsveginuin í gær.
Eins og sjá niá er
Cortínan illa leikin
eftir áreksturinn við
vöruflutningabílinn.
Ljósmynd
Sverrir Vilhelmsson.