Tíminn - 04.07.1982, Qupperneq 6
6
£>s»I ijji yt ■;>- \ \yy:\v.
SUNNUDAGUR 4. JÚLÍ 1982
'1*1'V f ;’.'í (ÍSI)
■ Það er búið að semja. Engin verkföll.
„Það fer enginn í sumarfrí þess vegna,“
sagði leigubílstjóri einn við mig og hló
mikið. Virtist ekki hafa óhóflegt álit á
verkföllum og verkfallsmönnum. En
það er annars sumt dálitið kúnstugt við
þessa samninga. Þó það hafi verið
Vinnuveitendasamband íslands, VSÍ,
sem skrifaði undir samningana við ASÍ
aðfaranótt miðvikudagsins síðasta þá
var það f rauninni ekki VSÍ sem hafði
náð þessum samningum, heldur Vinnu-
málasamband samvinnufélaganna. Stolt
VSÍ-manna krafðist þess hins vegar að
þeir fengju að vera á undan að semja.
Og þegar skrifað var undir gengu
VSÍ-menn svo langt að heimta að enginn
Vinnumálasambandsmaður fengi að
vera í húsinu - og helst áttu þeir að vera
utan borgarmarkanna! Margt kúnstugt
við samningaviðræður. Skautum nú yfir
siðustu lotu samningaviðræðnanna.
Það hafði, sem kunnugt er, verið
boðað verkfall frá og með föstudeginum
18. júní. Allsherjarverkfall allra félags-
manna í ASÍ. Á samningafundi í hinu
svonefnda „Karphúsi" aðfaranótt 16.
júní virtist hins vegar kominn skriður á
málin, og ASÍ féllst á þeim fundi á að
fresta boðuðu verkfalli um ótilgreindan
tíma, „í Ijósi yfirlýsinga vinnuveitenda
um að þeir væru reiðubúnir til efnislegra
viðræðna við Alþýðusambandið og
sérsamböndin, um einstök mál þeirra,“
eins og sagði i fréttatilkynningu sem
ASÍ dreifði á blöðin af öðru tilefni
nokkrum dögum seinna. Þar sagði enn
fremur: „Var það þá skilningur viðræðu-
nefndar ASÍ, að stefnt væri að
samningum sem tryggðu kaupmátt
ársins 1981.“
Það sem þarna var farið að ræða um
var vísitöluskerðing, eða skerðing verð-
bóta, þann 1. september næstkomandi.
Þóttu það nokkur tíðindi að ASÍ skyldi
ljá máls á visitöluskerðingu en þó bar
nokkuð á milli. ASÍ bauð 2.5%
vísitöluskerðingu en VSÍ vildi 3.5%.
Altént varð þetta til þess að viðræður
gátu hafist fyrir alvöru, og í samtali
við útvarpið sagði Guðlaugur Þor-
valdsson, ríkissáttasemjari, að þó hann
vildi engu spá um hvort og hvenær
Karpað um fleira en krónur:
„VIÐVILJUM SEMJA FYRST!”
— sögðu VSI-menn, þó Vinnumálasambandið hefði i raun náð samningunum
Allt benti til þess að samningar næðust í nótt á mílli ASI,
Vinnumálasambands samvinnufélaganna og VSÍ:
SAMNINGSUPPKASTIÐ MET-
IÐ A TÆP NÍU PRÓSENT
— en gert rád fyrir um 3% vísitöluskerdingu 1. sept. nk.
■ Ailt bentí til þess í öðrum tímanum
I oótt að samningar txkjust, á mOIi
Alþýðusambands Isiands annars vegar
og Vinnumálasambands samvinnufélag-
anna og Vinnuveitendasambands Is-
lands hins vegar, siðar um nóttina um
nýjan kjarasamning þessara aðila sem
þá mun giida fram til 1. september á
nxsta ári.
Samkvæmt heimildum Timans þá
mun þad samningsuppkast sem tii
umræðu var milli aðila fcla I sér tæplcga
níu prósent launahækkun, en að vísu
mun ráð fyrir því gert að tæp þrjú
prósent verði tekin til baka á móti moð
vísitöluskerðingu 1. september n.k.
Jafnframt mun gengið út frá því að
visitaia svónefndra ólafslaga gildi
áfram, en hún gerir m.a. ráð fyrir að
tekið sé tillit til viðskiptakjara við
útreikning verðbóta.
Sjálf grunnkaupshækkunin sem (
samningsuppkastinu felst nemur fjór-
um prósentum, en auk þess er gert ráð
fyrir breytingum á starfsaldurshækkun-
um strax og fimmtung úr prósentu til
afgreiðslu á sérkröfum sérsamband-
anna. Síðar á samningstimabilinu er gert
ráð fyrir eins flokks launahækkun til
allra launþega og frekarí starfsaldurs-
hækkunum. Samtals er þetta metið á tæp
níu prósent.
í gærkveldi var framhaldið ófdrmleg-
um samningaviðræðum á milli ASÍ og
VSÍ án tilhlutan sáttasemjara, og fóru
þær fram i höfuðstöðvum VSÍ við
Garðastræti. Á þessum fundi voru
aðeins mættir forsvarsmenn þessara
samtaka. Að ganga hálf eitt í nótt lauk
þessum fundi, og hófust þá fundir
samninganefnda aðila ( húsakynnum
sáttasemjara (Borgartúni.
Á þeim fundum var samningsuppkast-
ið ( endalegrí mynd kynnt. Var þeim
ekki Iokið þegar blaðið fór í prentun, en
búist var við að hægt yrði að undirríta
samninga síðar um nóttina, nema
eitthvað alveg sérstakt kæmi upp á
yfirborðið. Voru áhöld uppi um það
hvort rafiðnaðarmenn ásamt jámiðnað-
armönnum yrðu með í þessum samningi,
en vangaveltur voru um það, aö e.t.v.
setti VSÍ það sem skilyrði að þeir yrðu
með svo af undirrítun samningsins gæti
orðið.
Vinnumálasamband samvinnufélag-
anna mun einnig undirríta samninginn
við ASÍ ef af undirrítun verður á annað
borð, enda má segja að hann sé að
stærstum hluta til afrakstur samninga-
viðræðna þess og ASÍ undanfarna daga,
samkvæmt heimildum Tímans. HEI/Kás
Bfla-
geymsla
inn í
Arnarhól?
— Möguleikar
á tengingu
T ryggvagötu
og Hverfisgötu
kanna$ir
■ Á fundi borgarráðs ( gær var
samþykkt tillaga um að úttekt verði gerð
á bifreiðastæðamálum I miðborg
Reykjavíkur, ( svonefndri Kvos. Hefur
borgarverkfræðingi og Borgarskipulagi
Reykjavíkur verið falið að gera úttekt á
fjölda bifrciðastæða, möguleikum á
fjölgun þeirra, og hvort það sé tæknilega
mögulegt og hvað það muni þá kosta.
Er mönnum þá efst ( huga bygging
bílageymsluhúss á svæðinu.
'
- f í-'t&Í
-■
{
Um hálf eitt leytið I nótt nuettn forevgrsmenn ASf og VSÍ á ný inn i Karphns, til nð gera samninganefndnm
má sjá fulitnia VSf þá Þoretein Pálsson, Kristján Ragnareson og Gunnar Friðriksson. En á hxgri myndinni neðast
Gnðmnndsson, nýkomnir inn nr dyrnnnm.
sinum grein fyrir samningsuppkasti aðila. Til vinsdi
þeir við Ásmnndnr Stefánsson og Gnðmundnr J.
samningar næðust á þeim grundvelli sem
þá var farið að ræða.um þá virtist honum
allt stefna i rétta átt. Og enn var karpað
um sinn.
Svo kom „sprengjan". Henni var
varpað á samningafundi að kvöldi
sunnudagsins 20. júní af Vinnuveitenda-
sambandinu. Það lagði fram tillögur sem
gerðu ekki aðeins ráð fyrir vísitöluskerð-
ingu hinn 1. september heldur og
verulegri skerðingu vegna aflabrests
sem spáð hefur verið. Þessu var lýst
svona í plaggi frá VSÍ:
„Byggði tilboðið á því, að haldið yrði
meðalkaupmætti ársins 1981 miðað við
svipaðar efnahagsforsendur. Hvað
þennan meginþátt i tilboði VSÍ varðar,
þá skilur aðeins 1% í kaupmætti á milli
tilboðsins og hugmynda ASÍ. Útreikn-
ingar sýna, að tilboð þetta hefði 1.
september n.k. leitt til 3% meiri
kaupmáttar en sem svarar meðaltali
ársins 1981, en i heild hefði kaupmáttur
ársins 1982 orðið svipaður. Á öllu
samningstímabilinu hefði kaupmáttur
orðið mjög í samræmi við það, sem var
árið 1981.
Eins og áður segir, byggði tilboð VSÍ
á þeirri forsendu að á samningstímanum
yrði haldið meðalkaupmætti ársins 1981
miðað við svipaðar efnahagslegar for-
sendur. í samræmi við þessa meginfor-
sendu, gerði VSÍ tillögu um, að komi til
samdráttar í framleiðslu sjávarafurða
þá hafi það áhrif á verðbætur á laun. Ef
til aukningar kæmi aftur, þá leiddi hún
að sama skapi til hækkunar."
Eins og vænta mátti orðaði ASÍ þetta
á allt annan hátt. í frétt frá Alþýðu-
sambandinu sagði:
„Þvert ofan i fyrri yfirlýsingar svaraði
VSÍ.. með tillögu um verulega kaup-
máttarskerðingu og gæti endanleg niður-
staða miðað við tillögu VSÍ orðið sýnu
verri en óbreyttir samningar þrátt fyrir
núverandi skerðingarákvæði vísitölunn-
ar. Vinnuveitendasambandið krefst al-
menns visitölufrádráttar auk sérstakrar
skerðingar vegna minnkandi fiskafla.“
Ef þessi skerðing vegna aflabrests er
undanskilin bar, að sögn, lítið á milli,
báðir aðilar voru komnir niður á
viðræðugrundvöll sem myndi tryggja,
nokkurn vcginn, kaupmátt launa en
„alla mun hætt að dreyma um raunveru-
legar kjarabætur," eins og sagði í
forsíðufrétt Timans um málið. Afla-
bresfsskerðingin þótti hins vegar
„sprengja“, sem fyrr sagði, og Alþýðu-
sambandið sleit samningaviðræðunum í
bili. í frétt Tímans þriðjudaginn 22. júní
var haft eftir ónefndum samningamanni
ASÍ:
„Það sprakk auðvitað á helv.. ósvífn-
inni i vinnuveitendum, þannig að við
ætluðum að ganga út. En sáttasemjari
bjargaði málinu siðan fyrir horn þannig
að viðræður halda áfram i fyrramálið.“
En það varð fátt um viðræður. Þeir
fjandvinirnir, Ásmundur Stefánsson og
Þorsteinn Pálsson, iétu hins vegar i sér
heyra í fjölmiðlum og voru ekki
sammála, frekar en fyrri daginn.
Þorsteinn kvað það ábyrgðarleysi af
ASÍ að neita að semja í samræmi við
aðstæður í þjóðfélaginu, og ef ASf
samþykkti ekki þessa skerðingu, þá
myndi ríkisstjórnin bara framkvæma
hana í staðinn, síðar meir. Ásmundur
sagði það aftur á móti út í hött að ASÍ
myndi semja um þessa skerðingu,
samkvæmt óvissum forsendum. Væri
samningsrétturinn lítils virði við slikar
kringumstæður.
Og það var allt stopp milli ASÍ og
VSÍ. Blikur á lofti, sumir héldu að
„samflotið“ innan ASÍ væri að fara út
um þúfur. Svo fór þó ekki og
samningaviðræður héldu áfram, en nú
aðeins milli ASÍ og Vinnumálasam-
bands samvinnufélaganna. Vinnumála-
sambandið hafði ekki átt hlut að tillögu
VSf um skerðingu vegna aflabrests og
bar þvi, eftir sem áður, ekki mikið á
milli þess og ASÍ. Þótti enda sýnt strax
um siðustu helgi, 26.-27. júni, að
samningar myndu nást.
Um síðustu helgi hófust einig óform-
legar viðræður milli forystu manna ASÍ
og VSÍ, þeirra Þorsteins og Ásmundar.
Fóru þær nokkuð leynt, að þvi er sagt
er, en VSf var boðið upp á að vera með
i samningum ASÍ og Vinnumálasam-
bandsins, enda lá nokkuð ljóst fyrir að
VSÍ hlyti að semja upp á eitthvað mjöp
svipað og Vinnumálasambandið. Á
mánudag og þriðjudag í vikunni sem er
að liða kom VSÍ þvi inn i myndina en
þær viðræður sem þá siðustu daga höfðu
farið fram voru að mestu án umsjár
ríkissáttasemjara.
Það þótti sumum skrýtið að eftir að
VSÍ fór að krukka i samningsgrundvöll
þann sem var að mestu tilbúinn milli
Vinnumálasambandsins og ASÍ þá urðu
þær litlu breytingar sem á honum voru
gerðar flestar ASÍ i hag, heldur en hitt.
Til dæmis hafði Vinnumálasambandið
lýst sig reiðubúið til að semja upp á
starfsaldurshækkanir og var þá miðað
við starfsaldur frá tveimur og upp i fimm
ár, en er VSÍ hafði komið við sögu hafði
þessi starfsaldur lækkað, var nú frá einu
og upp í fimm ár. í staðinn krafðist VSf
þess að vísitöluskerðingin 1. september
yrði hækkuð úr þeim 2.5% sem ASf
bauð, og mættust aðilar svo að segja á
miðri leið, á endanum var vísitöluskerð-
ingin ákveðin 2.9%.
Á þriðjudagskvöld var allt klappað og
klárt, að því er virtist. Viðræður fóru
það kvöldið fram i höfuðstöðvum VSÍ
við Garðastrætið, en þegar ljóst var að
litið sem ekkert stæði lengur í vegi fyrir
samningum fluttu deiluaðilar sig yfir i
margumtalað „Karphús" að Borgartúni
22, þar sem ríkissáttasemjari er til húsa.
Samningurinn gerði í stuttu máli ráð
fyrir tæplega niu prósent kauphækkun
en vegna visitöluskerðingar 1. septem-
ber er hækkunin i raun um það bil 6%.
Einnig mun gengið út frá að vísitala
svonefndra Ólafslaga gildi áfram, en
hún gerir ráð fyrir að tekið sé tillit til
viðskiptakjara við útreikning verðbóta.
Loks eru sem sagt ýmis ákvæði um
launastigahækkanir. Samkvæmt þessu
er ljóst að byggingarmenn, sem þóttust
góðir vegna þess að þeir sömdu á undan
öðrum og um meiri hækkanir en talið
var að aðrir myndu fá, lenda nú innan
þessa samnings i raun, vegna þess að í
honum er beinlinis gert ráð fyrir
visitöluskerðingu. Munu byggingar-
menn hafa álitið fráleitt að ASÍ mynd
semja upp á vísitöluskerðingu, en þeir
fylgja að sjálfsögðu sömu visitölunni.
En ekki var allt búið enn. Þessi
samningur var, eins og tekið hefur verið
fram, að mestu leyti tilbúinn af
Vinnumálasambandinu og ASf áður en
VSÍ kom til skjalanna. Engu að síður
heimtuðu VSÍ-menn nú að þeir fengju
að semja á undan Vinnumálasamband-
inu! Fundu menn enga aðra skýringu á
þessu en þá að VSÍ vildi fá heiðurinn af
þvi að hafa samið fyrst. Mun þetta
tiltölulega léttvæga atriði raunar hafa
verið gert að algeru skilyrði fyrir
undirritun af hálfu VSÍ siðastliðið
þriðjudagskvöld og aðfaranótt mið-
vikudags. Ef ekki myndi Vinnuveitenda
sambandið ekki skrifa undir neitt!.
Og það var úr, að VSÍ fékk að vera á
undan. En er loks átti að skrifa undir
samninga gerðu liðsmenn VSÍ mikið
veður út af því að nokkrir Vinnumála-
sambandsmenn væru í húsinu! Neituðu
þeir að skrifa undir fyrr en allir
Sambandsmenn væru farnir búrt úr
húsinu og helst - að þvi er heimildar-
maður einn sagði - átti Vinnumálasam-
bandið að halda sig „fyrir utan
borgarmörkin"! Og Sambandsmenn
fóru, tautandi eitthvað um „dekur-
börn“...
Svo gerðist það eldsnemma á miðviku-
dagsmorgni, rétt áður en samningar
skyldu undirritaðir, að Tíminn kom út.
Aðalfréttin var að sjálfsögðu um að
samningar væru að nást en í niðurlagi
fréttarinnar sagði svo:
„Vinnumálasamband samvinnufélag-
anna mun einnig undirrita samninginn
við ASf ef af undirritun verður á annað
borð, enda má segja að hann sé að
stærstum hluta afrakstur samningavið-
ræðna þess og ASÍ undanfarna daga,
samkvæmt heimildum Tímans."
Þetta þótti VSÍ-mönnum ekki nógu
gott. Var haft i flimtingum að blaðamað-
ur Timans sem skrifaði fréttina, Heiður
Helgadóttir, ætti að hypja sig brott
meðan skrifað væri undir - og helst
„austur fyrir Fúlalæk"...!
En það var að lokum skrifað undir og
höfð voru viðtöl við forystumenn ASf
og VSf i útvarpinu snemma þennan
sama morgun. Á þessi viðtöl hlustuðu
samninganefndir beggja að sjálfsögðu.
Þar var Þorsteinn Pálsson m.a. spurður
að því hvers vegna VSÍ hefði fallið frá
tillögum sinum, eða kröfum, um að
vísitöluskerðingu vegna aflabrests yrði
bætt inn í samninginn. Þorsteinn svaraði
eitthvað á þá leið að það hefði verið ASí
sem upphaflega vildi hafa vísitöluna inn
í þessum samningum. Er Alþýðusam-
bandið hefði siðan fallið frá þvi hefði
ekki verið sjálfsagt af hálfu VSÍ að fella
þetta burt. Þá hlógu samningamenn
ASf. Skellihlógu.
Það kom hins vegar að VSÍ-mönn-
um að brosa í kampinn, þegar samning-
urinn var loks undirritaður - strax ljóst
að enginn yrði feitur af þessum
samningi. Og Ásmundur reyndi varla að
bera i bætifláka fyrir hann...
-ij tók saman