Tíminn - 04.07.1982, Blaðsíða 27

Tíminn - 04.07.1982, Blaðsíða 27
SUNNUDAGUR 4. JÚLÍ 1982 27 ■ Fjalakötturinn heldur nokkurs konar fran'ska kvikmyndahátíð þessa dagana og fara sýningar að venju fram i Tjarnarbíói. Það eru fímm myndir sem á dagskrá eru: Le Train eftir Pierre Granier-Deferre, Le dernier MiIIardaire eftir René Clair, L'AdoIescente eftir Jeanne Moreau, Guerre des Poliqes eftir Robin Davis, og loks Le Crabe-Tambour eftb- Pierre Schoendoerffer. Sýningar á þessum myndum hefjast í dag, laugardaginn 3. júli, og standa til sunnudagsins 11. júli og vakin skal athygli á þvi að eingöngu er hægt að kaupa sig inn á alla dagskrána en ekki inn á einstakar myndir. Verði er þó mjög í hóf stillt, 50 krónur fyrir félaga en 70 krónur fyrir aðra. Hér að neðan verður sagt frá myndunum fimm. Fjalakötturinn er í Tjarnarbíói: FIMM FRANSKAR KVIKMYNDIR Le Train - Lestin Leikstjóri: Pierre Granier- Deferre Handrit: Pierre Granier- Deferre og Pascal Jardin eftir skáldsögu Georges Simenon. Leikendur: Romy Schneider - Anna Jean-Louis Trintignan Julien. Frakkland 1973. Litir. 110 mín. Enskur texti. Þjóðverjar réðust inní Frakkland i mai 1940. Julien, sem er útvarpsvirki í friðsælu þorpi nálægt landamærum Belgíu, bregður á það ráð að flýja suður á bóginn ásamt konu sinni og dóttur. Þau komast upp i járnbrautarlest en verða viðskila á leiðinni. Lestarvagn- arnir eru troðnir af fólki á flótta undan vígvélum Þjóðverja. í óttablöndnu andrúmslofti undanhaldsins kynnist Juli- en Önnu, þýskum gyðingi, og greinir myndin frá vonlausu ástarsambandi þeirra. Le dernier Millardaire - Síðasti Milljónamæringurinn. Leikstjóri: René Clair Frakkland 1934. S/h. 96 mín. Enskur texti. René Clair byrjaði feril sinn á þriðja áratugnum með gerð gamanmyndar- innar Paris qui dort (1923). Hann hafði áður unnið sem danshöfundur og notfærði sér reynslu sina á því sviði i næstu mynd sinni, hinnar dadaisku Entr acte, sem er áhorfendum Fjalakattarins að góðu kunn. Árið 1927 gerði hann ítalska stráhattinn, sem er ein af meistaraverkum franskrar kvikmynda- gerðar á þessu timabili, en frægð og viðurkenningu náði hann ekki fyrr en með gerð Sous les Toits de Paris árið 1930. Þá voru hljóðmyndir nýkomnar til sögunnar, og flestir meistarar þöglu myndanna áttu í erfiðleikum með að laga sig að hinni nýju tækni, en Clair sýndi meistaraleg tök á hinum hljóðræna þætti myndarinnar, strax í byrjun. Árið eftir gerði hann Le Million og Anous la Liberté. í þessum myndum sýndi hann mikla næmni fyrir persónusköpun og samræminu milli músikkur myndarinnar og músikkur hljóðsins. í öllum myndum hans er fjallað um persónurnar í mikrókosmosin- um, þannig að við kynnumst hverri einustu persónu eins vel og hægt er. Clair nýtir þó hvert tækifæri sem gefst til að gefa sér lausan tauminn og nýta hugmyndaauðgina út í ystu æsar. Le dernier Milliandaire er ein af seinustu myndum Clairs á gullaldar- skeiði hans, gerð 1934. Hún þykir léttari en fyrri myndir hans, því þó að Clair væri fyrst og fremst gamanmyndahöf- undur, beitti hann sinu létta háði sem hárbeittu vopni að flestum þáttum umhverfis síns. Myndin fjallar um fomt smáriki í Evrópu, Casinario. Fjárhagur þess er fallvaltur og er ríkiskassinn er orðinn galtómur er gripið til þess ráðs að biðla til burtfluttra Casinaringa um aðstoð, og undir rós er gjaforði prinsessu landsins heitið sem launum. Aðeins einn maður er fær um að veita þessa aðstoð, og prinsessan, sem leynilega er i ástarsam- bandi við hljómsveitarstjóra hallarinn- ar, er síður en svo reiðubúin til hjónabands við hinn brottflutta milljónamæring. Á ýmsu gengur áður en þessi hnútur leysist, og meðhöndlar Clair þetta gamalkunna efni á sinn einstaka hátt og beitir háðinu óspart. Hann leikur sjálfur hlutverk hljómsveitarstjórans. „L'Adolescente“ Unglingurinn - enskur texti Leikstjóri: Leanne Moreau Leikendur: Simone Signoret, Laetitia Chauveau, Edith clever, Jacques Weber. Frakkland 1978. Litir. 90 mín. Fyrir milljónir Evrópubúa var sum- arið 1939 síðasta tímabil hamingju og friðar, fyrir hinar miklu hörmungar heimsstyrjaldarinnar. Styrjöldin ólgar við landamærin og striðsfréttir glymja i útvarpinu. Hin 12 ára gamla Marie fer þetta sumar ásamt foreldrum sínum i sumar- leyfi til ömmu sinnar sem býr i litlu og friðsælu þorpi i miðju Frakklands. Þar uppgötvar Marie að hún er að breytast úr bami i unga stúlku. Hún tekur fyrstu skref sín inn í kaldranalegan heim hinna fullorðnu, verður ástfangin af ungum lækni, en verður siðan ljóst að læknirinn á i ástarsambandi við móður hennar. Áður heyrði hún í ástaratlotum foreldra sinna án þess að skilja en nú hlustar hún. Á milli Marie og ömmu hennar (Simone Signoret) er náið trúnaðarsamband sem hjálpar Marie að aðlaga sig þessum miklu tímamótum, jafnt innra með henni sjálfri sem í umheiminum. Leikstjórinn Jeanne Moreau fæddist í Paris, 1928. Áður en hún gerðist leikstjóri lék hún i fjöldamörgum kvikmyndum, þar á meðal myndum eftir leikstjórana Francois Truffaut, Louis Bunuel, Orson Welles og Paul Mazurky. „Ládolescente er önnur mynd hennar ensú fyrri var „Lumiére" gerð árið 1975. Guerre des Polices Leikstjóri: Robin Davis Aðalhlutverk: Claude Brasseur, Mariétne Jobert og Claud Rich. Frakkíand 1979. Litur, 111 mín. Enskur texti. Vart hefur það verið ætlun R.D. að skapa meistaraverk með gerð L. G. d.P. enda mun hún seint verða flokkuð þar. Myndin er augljóslega framleidd með hámarks innkomu sjónarmið i huga og mennirnir sem við skrifborðin sitja, hvort heldur er í Frakklandi, U.S.A. eða á íslandi, þeir vita hvað það er sem „fólkið“ vili, spennu, byssurog fáklædd- ar stelpur (o.fl. þ.h) L.G.d.P. er blanda af þessu þrennu og litið meira. Myndin greinir frá átökum tveggja hópa innan Parísar lögreglunnar eða öllu heldur yfirmanna þeirra. Inní og með er svo fléttað léttu ástarsambandi annars yfir- mannsins og konu i óvinahópnum ásamt bófahasar við glæponana sem þeir hvor um sig reyna að ná á undan hinum. Átök innan lögreglu eiga sér stað víst er það og ástarsambönd lika en ekki svona, ekki í raunveruleikanum. Þar er kominn kjarni málsins þ.e.a.s. innkomu- sjónarmiðin verða raunveruleikanum yfirsterkari jafnvel þótt leikarar og tæknimenn margir hverjir séu færir um sitt. Le Crabe - Tambour Leikstjóri: Pierre Sehoendoerff- er Kvikmyndun: Raoul coutard Aðalhlutverk: Jean rochefort, Claude Rich, Jacques Perrin. Frakkland 1977. Litir. 119 mín. Enskur texti. Á leið til Nýfundnalands um borð i eftirlitsskipi franska flotans með djúp- sjávarveiðum, rifjar skipstjórinn (Jean Rochefort), sem haldinn er ólæknandi krabbameini, ásamt skipslækninum (Claude Rich) upp sögu þjóðsagnar- persónunnar, sem gengur undir nafninu „Crabe-Tambour" (Krabbinn). Þeir þekktu vel áður fyrr krabba þennan, sem var sjóliðsforinginn i Indó-Kína- striðinu, fangi Vietcong, ævintýramaður og einfari og sjálfboðaliði í Alsírstrið- inu. Skipstjórinn og læknirinn héldu áfram i hernum að loknum nýlendustriðum Frakka. En Krabbinn er orðinn skip- stjóri á togara frá Bretagne. Hann siglir nú um höfin í norðri og einmitt af þeirri ástæðu vonast þeir félagar til að sjá hann á nýjan leik. Það hefst raunveruleg leit bæði i tima og rúmi í æskuminn- 1 | 1 n 1 1 1 Getum boðið International 630 beltagröfu á hagstæðu verði Þyngd Hestöfl Skóflustærð Verð kr.: 15000 kg. 101 8001. 1.198.000,- Sýningarvél á staðnum. Kynnið ykkur verð og skilmála VÉIADEILD SAMBANDSINS Á rmúla 3 Reykjavfk S. 38 900 ■torwtHiiimiiMtk yl

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.