Tíminn - 04.07.1982, Síða 20

Tíminn - 04.07.1982, Síða 20
SPASSKÍJ — Mistækur ! sóknarsnillingur Seinni hluti M|^J| ■ í fyrri viku var fylgst meö ferli Bóris Spasskijs frá upphafi og þar til hann náöi loks heimsmeistaratitlinum af Tigran Petrósjan árið 1969. Allt frá því að Spasskij náði sér upp úr lægðinni sem hann hafði verið i um og eftir 1960 hafði hann teflt snilldarvel og flestir töldu hann hafa alla burði til að vera heimsmeistari mjög lengi. Sjálfur var Spasskíj ekki viss, og kom þar við sögu sá óhóflegi sjálfsefi sem hann hefur löngum verið haldinn. Árið 1966 - er hann hafði tapað fyrir Petrósjan í fyrra heimsmeistaraeinvígi þcirra - sagðist hann vonast til að verða i betra formi eftir þrjú ár. En svo bætti hann við: „Eftir það fcr mér liklega að hnigna og það mun einhver skjóta mér ref fyrir rass.“ Þcssi hugsunarháttur kann auðvit- að ekki góðri lukku að stýra og sérstaklega ekki ef þegar er kominn fram á sjónarsviðið maöur sem hefur fullan hug á að verða þessi „einhver", Robert James Fischer. Spasskij var reyndar nxstum hinn eini af sovésku stórmeisturunum sem Fischer hafði nokkurt álit á, og að sínu leyti var Spasskíj mjög hrifinn af Fischcr og taflmcnnsku hans. Margir hafa leitt að þvi rök að sú hrifning hafi orðið þess valdandi að Spasskij hafi siðar ekki getað einbeitt sér nægilega vel fyrir einvigið hér í Reykjavik: hreinlega vegna þess að Spasskíj hafi undir niðri viljað að Fischer yrði heimsmeistari því hann ætti það skilið. Altént er það ljóst að þó Fischer hafi án nokkurs vafa verið töluvert sterkari en Spasskij árið 1972 þá var Spasskij aö ýmsu leyti ekki nema skugginn af sjálfum sér. En hvað um það. Þvert ofan i það sem flestir höfðu búist við, þá var frammi- staða Spasskíjs á toppnum ekkert til að hrópa húrra fyrir. Fyrsta mótið sem hann keppti á sem heimsmeistari var Mallorcka 1969 en þar lenti hann aðeins i fimmta sæti, vann ekki nema þrjár skákir en gerði 14 aðgerðalítil jafntefli. 1970 vann hann fjögurra manna mót i Leiden i Hollandi þar sem tefld var fjórföld umferð, hinir keppendurnir voru að visu stcrkir (Larsen, Bótvinnik og Donner) en til sigurs nægði Spasskij að vinna aðeins tvær skákir en gera tiu jafntefli. Síðar sama ár varð hann i 1.-2. sæti á IBM i Hollandi, stóð sig ekki nema sæmilega i keppninni „Sovétrikin gegn heimsliðinu" (hann vann Larsen einu sinni, tapaði einu sinni, gerði eitt jafntefli og tók sér fri fjórða daginn) en á ólympiumótinu i Siegen stóð hann sig að visu mjög vel. Hann vann þar sjö skákir, gerði fimm jafntefli en tapaði aldrei og vann Fischei m.a. í frægri skák. Á endanum var Spasskij cfstur fyrsta borðs manna með 79.2% vinningshlut- fall en næstur kom Fischer með 76.9%. Þessi ágæti árangur stappaði stálinu i aðdáendur Spasskijs og þeir vonuðu að hann myndi nú taka á sig rögg en það fór á annan veg. Hann tefldi ekki i niu mánuði eftir ólympíumótið og frammi- staða hans árið 1971 var vægast sagt heldur léleg. Hann varð þriðji i Gautaborg (Hort vann), tefldi að visu vel i sveitakeppni Sovétrikjanna en fór siðan i slæma ferð til Kanada þar sem hann tefldi á tveimur opnum mótum. Fyrst tókst honum með naumindum að verða jafn Hans Ree, alþjóðameistara frá Hollandi, i Vancouver og siðan lenti hann i 3.-4. sæti i Toronto. Seint á árinu tefldi hann svo á hinu ægisterka Alekhine-minningarmóti í Moskvu þar sem segja mátti að allir sterkustu skákmenn heims væru samankomnir, að undanskildum þeim Fischer og Larsen. Það var þarna sem Anatólí Karpov vakti fyrst á sér heimsathygli en hann sigraði á mótinu ásamt Leonid heitnum Stein.' Smyslov varð þriðji, Túkmakov og. Petrósjan i 4.-5. sæti en Spasskij varð að láta sér nægja 5.-6. sæti, fjóra sigra og tvö töp. Eftir þetta tefldi Spasskij ekki fyrr en hann mætti Fischer hér í Reykjavík. Spasskíj sagði oft að það væri „kalt á toppnum" og nokkrum árum áður en hann mætti Fischer sagði hann: „Skák- inni fylgir mjög óeðlilegt lif og til að halda sér á toppnum þarf gífurlegan sjálfsaga. Bótvinnik var til dæmis búinn þessum sjálfsaga, en hann verður að vera meðfæddur. Égerekki fæddurmeð hann, þvert á móti. Ég er mjög ópraktiskur og algerlega óskipulagður." Eftir að hafa náð hcimsmeistaratitlinum átti Spasskij mjög erfitt með að aga sjálfan sig, enda hafði hann þá ekki lengur að greinilegu marki að stcfna. Hann er kúltiveraður maður og hefur fjölda áhugamála fyrir utan skák, nefnum bara að uppáhaldsrithöfundur hans er Fjodor Dostoévskíj, en slikt þykir í meira lagi óhentugt af heims- meistara. Aðdáendur Spasskijs, og hann sjálfur, vonuðu aftur á móti að sú mikla ógnun sem honum stafaði af Fischer á framabraut myndi verða til þess að hann tæki sjálfum sér tak. Hann reyndi en það nægði ekki. Heimsmeist- araeinvígið i Reykjavík er flestum vafalítið i fersku minni svo það verður ekki rakið sérstaklega en Spasskij beið ósigur á öllum vigstöðvum, bæði yfir skákborðinu og i hinu sálfræðilega striði sem Fischer háði gegn honum og Sovétmönnum i heild. Kannski var Spasskij þrátt fyrir allt of mikill séntilmaður til að standa í þvilíku stappi og fylgdi einviginu hér. Eftir einvígið var Spasskíj harðlega gagnrýndur austur i Sovétrikjunum, eins og við mátti búast. Sovétmönnum sveið sárt að tapa heimsmeistaratitlinum - tala ekki um i hendur Bandarikja- manns! - og Spasskíj var sakaður um ónógan undirbúning og sigurvissu sem hefði leitt til hruns þegar fór að halla undan fæti. Allar þessar ásakanir áttu við nokkur rök að styðjast, og einnig sú að Spasskij hefði teflt alltof sjaldan meðan hann var heimsmeistari. Hann hóf þvi árið 1973 með miklum látum og tefldi á fjórum allsterkum skákmótum en virtist enn miður sín eftir tapið gegn Fischer og stóð sig aðeins miðlungi vel á þeim. í árslok virtist verða breyting á. Þá fór fram 41. skákþing Sovétríkjanna og i örvæntingu sinni vegna taps heimsmeistaratitilsins lögðu yfirvöldin nú ofurkapp á að fá alla sterkustu menn sína til leiks. Af leiddi eitt sterkasta Sovétmeistaramót allra tima og Spasskíj gerði sér lítið fyrir og vann, var heilum vinningi á undan fimm skákmönnum sem deildu öðru sætinu: Karpov, Korchnoi, Petrósjan, Pólúgaévskíj og Kúsjmín. Taflmennska hans þarna virtist einnig öruggari og kraftmeiri en áður. Nú fór einnig að líða að þvi að hæfist næsti hringur heimsmeistara- keppninnar og Spasskíj hafði fullan hug á að freista þess að endurheimta titilinn af Fischer. 1974 átti Spasskíj ekki í neinum erfiðleikum með að vinna Robert Byrne 1 8-manna einvígjum um áskorendarétt- inn en siðan mætti hann nýju stjörnunni Karpov sem unnið hafði Pólúgaévskíj. Spasskij vann fyrstu skákina snilldarlega en síðan hrifsaði Karpov frumkvæðið i einvíginu til sín og vann fjórar skákir það sem eftir var einvigisins, leyfði fjögur jafntefli en tapaði ekki aftur. Þetta var mikið reiðarslag fyrir Spasskij, verið getur ð hann hafi vanmetið Karpov og einkum eftir að hafa unnið fyrstu skákina svo léttilega, en hann mætti einnig óvæntri mótspymu: sovésk skák- yfirvöld höfðu sem sé ákveðið að Karpov væri mun sigurvænlegri gegn Fischer heldur en nokkur úr „gamla lífverðinum" og þá síst Spasskíj sem var nýbúinn að tapa mjög illa fýrir honum. Karpov var vissulega mjög efnilegur skákmaður en yfirvöldin beittu einnig ýmsum óprúttnum ráðum til að stöðva keppinauta hans. Byrjanasérfræðingur- inn Géller sem hafði unnið mikið með Spasskíj og var aðstoðarmaður hans hér i Reykjavík var t.a.m. lokkaður yfir i herbúðir Karpovs og í heild má segja að Karpov hafi fengið alla þá aðstoð sem hann þurfti en Spasskíj var á ýmsan hátt gert erfitt fyrir. Þetta sama rak Korchnoi sig á ári siðar sem frægt er. Og þegar Ijóst var að Spasskíj var úr leik i keppninni um áskoranda Fischers leið ekki á löngu þar til farið var að minna hann á gamlar syndir. Yfirvöldin gátu ekki fyrirgefið honum fyrir tapið í Reykjavik en ofan á það bættist að hann hafði að ýmsu leyti reynst yfirvöldunum óþægur Ijár i þúfu bæði áður en hann varð heimsmeistari og þau þrjú ár sem hann var á toppnum. Hann var ekki andófsmaður en hann var ósmeykur við að láta í ljós álit sitt á ýmsu þvi sem honum þótti fara miður i sovésku samfélagi. í ævisögu sinni nefnir Korch: noi frægt dæmi: er Spasskíj hélt eitt sinn fyrirlestur í Sovétrikjunum var hann spurður um ástæðu þess að Paul Kéres hefði aldrei tekist að verða heimsmeist- ari. „Kéres var aldrei heppinn maður,“ svaraði Spasskij, „fremur en ættjörð hans.“ Ættjörð sú er Eistland sem hefur verið fótum troðið af Sovétríkjunum i 42 ár. Þetta kann að virðast saklaust en eystra var litið öðruvísi á. Fleira var tínt til og Spasskij féll í algera ónáð. Um tima var hann farinn að óttast um lif sitt, segir Korchnoi sem að sönnu er ekki áreiðanlegasta heimild sem völ er á. En honum var altént ekki leyft að tefla um langt skeið og komin var upp sú undarlega staða að tveir þeirra sovésku stórmeistara sem lengst höfðu náð i áskorendakeppninni sáust varla á skák- mótum, Spasskij og Korchnoi. Um þetta leyti kynntist Spasskij henni Marinu, franskri stúlku sem vann í sendiráði Frakklands i Moskvu og tókust með þeim ástir en Bóris var þá skilinn við Larissu. Hann vildi fá leyfi til að giftast henni og flytjast úr landi en það var torfengið. M.a. vegna þrýstings frá Vesturlöndum fékkst það þó að lokum og síðan hefur Spasskij búið í Frakklandi. Upphaflega fékk hann aðeins leyfi til að dveljast erlendis í eitt ár en nú hefur hann gerst franskur ríkisborgari þó hann tefli áfram fyrir Sovétrikin. Hann hefur aðeins einu sinni skroppið i heimsókn austur, 1978. Eftir að báðir voru komnir til Vesturlanda hefur Korchnoi oft gagn- rýnt Spasskij harkalega fyrir samkomu- lag sitt við sovésk yfirvöld en sú gagnrýni þykir flestum afar óréttlát. Spasskíj gafst kostur á að búa á Vesturlöndum án þess að slíta öll tengsl við heimaland sitt og því skyldi hann ekki hafa tekið þann kost? Korchnoi hefur einnig sakað Spasskíj um að sniðganga mót þar sem Hhnn er keppandi skv. fyrirmælum Sovétmanna en þær ásakanir eru ekki lengur gildar þar sem þeir félagar mættust á opnu móti i Sviss nú í vor, eins og hinn góðkunni skákfréttaritari Helgar-Tímans, Bent Larsen, hefur sagt frá. En nóg um þessi deilumál, snúum okkur að taflmennsku Spasskíjs undan- farið. Hann hafði ekki teflt i heilt ár þegar hann tók þátt i millisvæðamótinu á Manila 1976 og i ljósi þess og þeirra erfiðleika sem hann hafði átt við að striða er varla undarlegt að hann skyldi aðeins ná 10.-13. sæti. Hann komst þó inn i áskorendakeppnina vegna þess að Fischer nýtti ekki rétt sinn til að taka sæti í henni og eftir ósannfærandi sigur yfir Hort hér í Reykjavik vann Spasskíj Lajos Portisch frá Ungverjalandi i 4-manna einvigjunum. Sá sigur var mun öruggari en sigurinn yfir Hort og Spasskíj tefldi mun betur. { úrslitunum virtist Spasskíj i fyrstu ekki eiga séns gegn Korchnoi og fylgdi mikið sálfræði- stríð einvígi þessara gömlu vina. Spasskíj tók sig þó á, vann fjórar skákir i röð og hafði nærri jafnað metin en missti svo þráðinn og tapaði með þriggja vinninga mun. Hann mátti þó kallast góður að hafa náð svona langt eftir mörg erfið ár. 1978 hófst nýr kafli á skákferli Spasskíjs. Hann var þá búinn að koma sér fyrir á Vesturlöndum og sanna að hann var enn í fremstu röð. Snemma ársins vann hann, ásamt Karpov, hið geysisterka mót i júgóslavneska bænum Bugojno og sýndi þar þróttmikla taflmennsku. Litum á sigur hans yfir Vlastimil Hort, Spasskíj hefur hvítt: 1. e4 - c5 2. Rc3 - Rc6 3. g3 - g6 4. HRAÐSKÁKMÓT OG FLEIRA • •• ■ Nxstkomandi mánudag verður haldið hraðskákmót á Lxkjartorgi á vegum Skáksambands íslands. Kepp- endur verða 30, nxr aliir sterkustu skálunenn þjóðarinnar, og er teflt á vegum fyrirtækja og stofnana. Er mót þetta með mjög svipuðu formi og Lxkjartorgsmót þau sem skákfclagið Mjölnir stóð fyrir en það hefur nú lagt upp laupana og Skáksambandið tekið upp þráðinn. Hefst mót þetta klukkan hálf fjögur á mánudaginn og verða tefldar sjö umferðir eftir Monrad- kerfi. Umhugsunartimi er sjö mínútur á hvorn keppanda. Þess má geta að Ttminn, fylgirit Helgar-Tímans, hefúr gefið farandbikar sem veittur verðnr sigurvegaranum. Báðir stórmeistarar okkar verða meðal þátttakenda og allir alþjóða- meistaramir nema Margeir Pétursson sem er erlendis. Hann gerði garðinn frxgan i Júgóslaviu i siðustu vikn en þá sigraði hann, ásamt öðrum, á all- sterku opnu skákmóti, þar sem kepptu m.a. nokkrir stórmeistarar. Tveir aðrir íslenskir þáttakendur vom á mótinu, þeir Þór Om Jónsson og Sxvar Bjaraason en hann stóð sig einnig mjög vel og náði öðmm áfanga að alþjóðameistaratitli. 10. og 11. júli nxstkomandi verður islenska landsliðið i skák á Englandi þar sem teflt verður við landslið þarlenskra og er þetta liður i sveitakeppni Evrópu. íslendingar verða að sigra tfl að komast áfram og þó lið okkar sé án efa hið sterkasta sem keppt hefur fyrir okkar hönd er Ijóst að við ramman verður reip að draga þar sem Englendingar eiga fjölda stórmeistara. Liðið cr þannig skipað: 1. Friðrik Ólafsson, 2. Guð- mundur Sigurjónvson, 3. Margeir Pétursson, 4. Jón L. Árnason, 5. Helgi Ólafsson, 6. Haukur Angantýsson, 7. Ingi R. Jóhannsson, 8. Jóhann Hjartarson og varamaður er Sxvar Bjaroason. -Ö-

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.