Tíminn - 04.07.1982, Side 24
SUNNUDAGUR 4. JÚLÍ 1982'
24
nútlminn
Umsjón Fridrik Indriðason
og Viðar Karlsson i
■ Erlendis hefur það lengi tíðkast að
hljómplötuverslanir sérhæfi sig i ein-
hverri ákveðinni tónlistarstefnu. Hér á
landi hefur þetta einnig verið reynt en
aldrei enst i langan tíma. Nú hefur hins
vegar orðið breyting á því, nýlega
opnaði ný hljómplötuverslun að Lauga-
vegi 20. Verslun þessi heitir Stuð og
aðstandendur eru þeir Sævar (Talandi
höfuð/brosandi höfuð) Sverrisson og
Jens Kr. Guðmundsson. Verslunin
sérhæfir sig í öllu rokki en leggur
aðaláherslu á nýbylgjurokk. En Stuð á
ekki eingöngu að vera hljómplötuversl-
un því i framtíðinni er fyrirhugað að hún
þjóni einnig sem gallerý fyrir unga
listamenn sem vantar veggpláss fyrir
sýningar sínar. Einnig er fyrirhugað að
verslunin selji bækur um rokk og eins
bækur ungra skálda og rithöfunda. í
versluninni er einnig auglýsingatafla þar
sem fólk getur hengt upp auglýsingar
því að kosnaðarlausu.
Jafnframt þessu gefa aðstandendur
verslunarinnar út blað, Stuðblaðið sem
hver viðskiptavinur fær ókeypis. Fyrsta
tölublað kom út i maí en annað er á
leiðinni. Fyrir utan auglýsingar eru i
blaðinu fréttamolar úr rokkinu og fleira.
í fyrsta tölublaði var einnig skoðana-
könnun um fylgi flokkanna fyrir borgar-
stjórnarkosningamar i Reykjavík. Hún
var all athyglisverð þó niðurstaða
kosninganna væri því miður á annan
veg. Sem C ef einhvern vantar stuð þá
skal hann snúa sér til Sævars á Laugavegi
20.
vika
Blondie: The Hunter
Chrysalis/Steinar hf.
■ The Hunter er sjötta breiðskífa
hljómsveitarinnar Blondie sem strax
með fyrstu breiðskifu sinni „Blondie“
sem út kom 1976 varð mjög vinsæl
vestanhafs. Hljómsveitin var stofnuð
1973 i New York af Deborah Harry og
Chris Stein. önnur breiðskífa þeirra
Plastic Letters sem út kom 1977 jók enn
hróður þeirra vestanhafs og vakti áhuga
fólks í Englandi og annars staðar í
heiminum t.d. hér á landi. f>að var
aðallega lagið Denis sem þar gerði
útslagið. Pað var þó ekki fyrr en með
þriðju breiðskifu þeirra Parallel Lines
sem þau slógu verulega í gegn. Sú skífa
náði ótrúlegum vinsældum í Evrópu og
seldist í milljónum eintaka. Ég held að
ein sex lög af skífunni hafi komið út á
smáskífum en lagið Heart of Glass varð
þeirra langvinsælast.
Fyrstu dagana cftii útkomu þess i
Englandi var salan svo mikil að plötu-
pressumar höfðu ekki undan að fram-
leiða plöturnar og varð að flytja þær inn
frá meginlandinu. Næsta breiðskifa
þeirra Eat To The Beat kom út 1979.
Hún náði ekki að fylgja vinsældum
Parallel Lines eftir en náði þó verulegum
vinsældum. Árið 1980 gáfu þau út
breiðskifuna Autoamerican sem er
þeirra versta plata til þessa. Þar kvað
nokkuð við nýjan tón og þá aðallega tón
New York diskósins. Platan var einnig
samhengislaus og hljóp úr einu i annað
jazz, disco, rokk og ég veit ekki hvað.
Á þessari nýju breiðskifu Blondie er allt
annað uppi á teningnum, hér hverfa þau
aftur til rokksins sem þau spiluðu fýrir
diskóöldina. Platan verður þvi i heildina
sterk og grípandi og hefur einnig gamla
góða Blondie-sjarmann sem svo mjög
einkenndi þau fyrr á ámm. Sem sagt
besta Blondie-platan síðan 1978.
Bestu lög: For Your Eyes Only,
Danceway og Island og Lost Souls.vika.
Á hverju
kvöldl
■ Björgvin Halldórsson hefur sent frá
sér nýja sólóplötu. Ber hún nafnið Á
hverju kvöldi. Björgvin hefur verið
mjög afkastamikill tónlistarmaður og
komið nálægt gerð yfir þrjátíu breið-
skifa. Þessi þriðja sólóplata Björgvins
var að öllu leyti tekin upp i London af
Geoff Calver sem núorðið er vel þekktur
hérlendis fyrir störf með t.d. dúóinu Þú
og ég og fleirum. Hljóðfæraleikarar em
allir enskir. Lögin em flest ný samin af
ýmsum íslenskum lagahöfundum s.s.
Gunnari Þórðarsyni, Jóhanni G. Jó-
hannssyni og Jóhanni Helgasyni. Einnig
em nokkur erlend lög með íslenskum
textum. Björgvin mun leggja land undir
fót í sumar og leika á öllum helstu
stöðum á landinu. Með í för verður
Úllen dúllen doff hópurinn. Þar sem
Björgvin ásamt Magnúsi Kjartanssyni
hefur sagt skilið við hljómsveitina
Brimkló hafa þeir stofnað nýja hljóm-
sveit fyrir þessa ferð. Meðlimir ásamt
þeim Björgvini og Magnúsi em þeir
Björn Thoroddsen (gítar) Hjörtur
Howser (hljómborð) Hans Rolin
(trommur) og Mikael Berglund (bassi).
í september í haust er fyrirhugað að
Björgvin og félagar fari i hljómleikaferð
til Sovétríkjanna og haldi þar 25-30
tónleika í 15 borgum. Án efa verður
þeim vel tekið þvi eins og flestir vita em
sovefmenn nokkuð á eftir tímanum
hvað tónlist viðkemur og sjaldgæft að
vestrænar hljómsveitir sæki þá heim.
vika
■ „Hvað viljiði heyra“
öskrar söngvarinn fram i
áheyrandaskarann... „O,
Reykjavik, Ó, Reykjavík“
er svarað úr salnum.
Söngvarinn snýr baki í á-
heyrendur og öskrar svo
aftur... „Hvað viljiði
heyra“... aftur er svarað
„O, Reykjavík, Ó,
Reykjavík“ ... Hljóm-
sveitin verður við óskum
áheyrenda.
■ Vonbrigði.
, Reykjavík”
Ofangreint gerðist á tónleikum
hljómsveitarinnar Vonbrigði en þeir
komu meðal annarra fram á Jónsmessu-
vökunni í Félagsstofnun Stúdenta í
síðustu viku.
Vonbrigði hafa á skömmum tíma
skipað sér sess sem ein af efnilegustu
nýju hljómsveitum okkar um þessar
mundir á sviði nýbylgjurokksins og var
innskot þeirra á Jónsmessuvökunni
glöggt dæmi um það.
Einhverjir erfiðleikar voru i hljóð-
blönduninni hjá strákunum og skyggði
það aðeins á flutning þeirra sem að öðru
leyti var „þrumugóður“ svo maður noti
orð sem klint hefur verið á mann.
Hrátt og nokkuð hratt nýbylgjurokk
er tónlist þeirra í Vonbrigðum eins og
þekktasta lag þeirra Ó, Reykjavik ber
vitni um en í prógrammi þeirra má finna
aðrar perlur eins og t.d. lagið Sexý.
Næstu tónleikar sem ég veit um hjá
þeim í Vonbrigðum verða er þeir koma
fram með Comsat Angels um næstu
helgi og er ekki að efa að það verði gott
»g»g“-
-FRI
■ Roscoe Mitchell er hann lék hér á Broadway með Art Ensemble.
NYJUNGAR HJA
JAZZVAKNINGU
Leo Smith ásamt New Dalta Ahkri og Roscoe
Mitchell kom hingað í júlí
■ Jazzvakning mun standa fyrir því að
hingað koma tveir þekktir jazz-leikarar,
Leo Smith og Roscoe Mitchell i
júlímánuði en með Smith kemur
hljómsveit hans The New Dalta AHKri.
Leo Smith telst til framsækinna
jazz-tónlistarmanna og leikur hann og
hljómsveit hans tónlist sem er á mörkum
jazzins og nútímatónlistar. Hljómsveit
hans verður skipuð þeim Bobby Naugh-
ton, vibrófón, og Dwight Andrews,
blásturshljóðfæri.
Leo Smith er gamall i hettunni og
hefur leikið með ýmsum þekktum
jazzleikurum eins og til dæmis Anthony
Braxton og Marion Brown en hljómsveit
sína NDA stofnaði hann árið 1970 og
hafa ýmsir þekktir frammúrstefnumenn
leikið með honum i henni en af
kunnugum þykir tónlist hans falleg og
áheyrileg.
Hann hefur sitt eigið útgáfufyrirtæki
sem gefur út plötur hans og bækur, og
er meðlimur í AACM en það eru samtök
til eflingar skapandi tónlist. Tónleikar
hans verða þann 15. júli í Félagsstofnun
Stúdenta.
Roscoe Mitchell kannast margir við
en hann kom hingað með Art Ensemble
er sú sveit hélt hér tónleika í Broadway
á sínum tíma. Tónleikar hans verða á
sama stað þann 28. júlí og verður nánar
greint frá kappanum þegar þar að
kemur.
-FRI
ICELANDIC PHe-
NoMeNAL MUSIC!
■ Loksins er platan Northem Lights
Playhouse komin út hér á landi. Þetta er
safnplata sem breska hljómplötufyrir-
tækið Rough Trade gaf út í Englandi
siðasta haust. Hún átti upphaflega að
koma út hér á sama tima og i Englandi
en vegna ófyrirsjáanlegra örðugleika
kemur hún ekki út fyrr en nú. Á þessari
plötu era hljómsveitimar: Þeyr, Utan-
garðsmenn, Taugadeildin, Purrkur PiU-
nikk, Fræbbblarair og Megas. Þetta er
því ekki alveg glænýtt efni lyrir okkur
Islendinga en er ágætt sýnishom af þvi
sem hér var að gerast á fyrstu áram nit.
vika.