Tíminn - 04.07.1982, Qupperneq 30
30
SUNNUDAGUR 4. JÚLÍ 1982
i síðustu viku
birtist hér i blaðinu
fyrri hluti greinar
eftir bandarískan
blaðamann um ó-
venjulegt morðmál
í smáþorpinu Skid-
more í Missouri.
Ken Rex McElroy
var skotinn til bana
á aðalgötu þorpsins
um hábjartan dag
og stór hluti íbú-
anna stóð aðgerðar-
laus hjá. Morðingj-
arnir hafa ekki
fundist enn. Er far-
ið var að rannsaka
málið k om ýmislegt
óvænt í Ijós. Þorps-
búar héldu þvi sem
sé fram að þeim
hefði stafað mikil
ógn af McEIroy sem
hefði verið hinn
versti fauti og hald-
ið þeim í heljar-
greipum óttans.
Yfirvöldin hefðu
hins vegar sýnt hon-
um ótrúlega linkind
og þvi litu þorps-
húar svo á að morð-
ingjamir hefðu i
rauninni aðeins ver-
ið að framfylgja
réttlætinu. Málið
reyndist þö ekki
aðeins vera spum-
ingum hvenær borg-
urunum er heimilt
að grípa til vopna
og verja sig. Fyrr-
nefndur blaðamað-
ur, Carl Navarre,
komst að því við
rannsókn á málinu
að maðkur var i
mysunni.
Þrír atburðir urðu einkum til þess að
vekja ótta þorpsbúa við McElroy. Árið
1976 fullyrti bóndi nokkur að McElroy
hefði skotið á sig algerlega að ástæðu-
lausu. McElroy þrætti fyrir það og var
að lyktum sýknaður fyrir dómi sökum
þess að engar sannanir lágu fyrir. 1980
varð það á hinn bóginn sannað að
McElroy skaut á Ernest Bowenkamp,
kaupmann i Skidmore en frásögnum
þeirra bar ekki saman um hvernig það
hefði viljað til. Bowenkamp sagði enga
ástæðu hafa verið fyrir verknaðinum
aðra en ofbeldishneigð McElroys, en
McElroy kvaðst hafa skotið í sjálfsvörn.
Seint og um síðir var hann dæmdur sekur
um skotárás og átti yfir höfði sér
nokkurra ára fangelsi. Snemma i júli
1981 segja þorpsbúar að hann hafi farið
um götur í Skidmore og ógnað
þorpsbúum með byssu, hótað að drepa
alla þá sem vitnuðu gegn honum en mál
hans var þá fyrir áfrýjunarrétti. Skotið
var á fundi i ráðhúsi þorpsins þann 10.
júlí og voru þar mættir flestir helstu
borgararnir. í miðjum umræðum um
hvað gera ætti við McElroy fréttist að
hann væri staddur á veitingahúsi hinum
megin götunnar og þustu fundarmenn
miklu. McElroy hætti i skóla áður en
hann lærði að lesa og skrifa en lagðist
i flakk og vann ýmis almenn verka-
mannastörf. 1953 sneri hann aftur til
Skidmore en það sama ár var Bobbie
Dick, bróðir hans, dæmdur i fangelsi
fyrir að stela komi af nágranna sinum.
Næstu 20 árin flakkaði McElroy um
héruðin i nánd við Skidmore og vann
fyrir börnum sínum af þremur hjóna-
böndum með því að versla með búfénað
og húsgögn. Loks settist hann um kyrrt
í Skidmore með Trenu og hóf ræktun
hlaupahunda.
Nú, rúmum átta árum síðar, er Trena
McElroy 24 ára gömul ljóska, hrokkin-
hærð og föl. Er hún var 14 ára og
samband þeirra McElroys hófst hlýtur
hún að hafa verið stórkostlega falleg.
íbúar Skidmore benda á að 1973 kærðu
foreldrar Trenu, fyrir hennar hönd,
McElroy fyrir nauðgun, misþyrmingar
og ikveikju og segja það gott dæmi um
ofsa hans og ruddaskap. Hún segir hins
vegar að hún hafi sagt saksóknara að
McElroy hefði nauðgað sér og brennt
hús foreldra hennar vegna þess að hún
hafi viljað neyða hann til að giftast sér.
fyrir nauðgun og misþyrmingu á bami
(þ.e.a.s. Trenu) brann hús McNeely
hjónanna til gmnna og brennuvargs-
ákæra var varpað á McElroy. Daginn
þar á eftir fullyrti frændi Trenu að
McElroy hefði hótað að skjóta hann og
þannig bættist sifellt á ákæralistann.
Þegar hér var komið sögu var þrek
Trenu fyrir bí, hún fékk taugaáfall og lá
nokkra mánuði á geðveikraspitala. í
millitiðinni skildi McElroy við konu sina
og er Trena hafði næst samband við
hann bað hann hana að giftast sér. Hún
samþykkti það og er saksóknari fékk
giftingarvottorðið i hendur lét hann allar
ákærur niður falla nema kærana um
vopnaburð og ógnanir en af þeirri kæra
var McElroy sýknaður, þó frændinn
bæri vitni móti honum. Hvað brunann
varðar segir Trena að bilun i
rafmagnsleiðslum hafi valdið honum.
„Þeir ofsóttu hann af því
þeir öfunduðu hann“
„Lögreglan var alltaf að ofsækja
manninn rninn," segirhún. „Þeirhötuðu
hann af þvi þeir voru alltaf að reyna að
klina einhverju á hann en tókst aldrei.
j«<Wi
þangað. Er McElroy sá liðssafnaðinn lét
hann undan síga, rólegur þó, og settist
uppi bíl fyrir utan veitingahúsið þar sem
kona hans beið hans. Bæjarbúar stóðu
og horfðu á þegar að minnsta kosti tveir
menn hófu skothrið með þungum
rifflum. McElroy lést samstundis en
konu hans, Trenu, var kippt inn i banka
staðarins þar sem konur þorpsins biðu
átekta. „Við áttum engra annarra kosta
völ,“ sagði ein þeirra við Trenu. í fullan
hálftíma stóð bill McElroys úti á götunni
og sundurskotið lík hans undir stýri en
enginn þorpsbúa hafði fyrir þvi að kalla
á lögregluna. Er hún kom loks á staðinn
kváðust þorpsbúar ekki hafa hugmynd
um hverjir skutu á McElroy enda þótt
Trena héldi því statt og stöðugt fram að
a.m.k. annar byssumannanna hefði
verið úr einni virtustu fjölskyldu
þorpsins.
Ólæs og óskrifandi farand-
verkamaður
Blaðamaðurir, n heyrði margar og
ljótar spgur í Skidmore um illmcnnsku
McElroys, ekki sist í garð konu sinnar
sem þó syrgði hann innilega. En hann
heyrði líka aðrar sögur. Um íbúa þessa
héraðs sem lengi hefðu dundað sér við
að taka menn af lifi án dóms og laga og
oft fyrir litlar eða engar sakir. Hann
einsetti sér að kanna ævi McElroys
nákvæmlega og tekur frásögn hans hér
við.
Ken Rex McElroy fæddist árið 1934,
einn 13 barna farandverkamanns sem
hafði sest að i Skidmore i Kreppunni
Óvenjuleg saga
eiginkonu McElroys
Samband þeirra hófst haustið 1972
þegar McElroy var 38 ára en hún 13.
McElroy var vinur stjúpföður hennar,
Ronnie McNeely, og hafði þekkt Trenu
frá því hún var smábarn. Er hún komst
á táningaaldur gerðist hún skotin i
McElroy og reyndi allt hvað af tók að
vekja athygli hans á sér, með þeim
afleiöingum að hann bauð henni dag
nokkurn að skreppa með sér til
nágrannabæjarins St. Joe. Eftir að hafa
verslað og skemmt sér við hitt og þetta
enduðu þau daginn á móteli sem skirt
var eftir Jesse James sem skotinn var í
bakið í St. Joe. Þetta haust fóru þau að
minnsta kosti sjö sinnum á fund Jesse
James ogum jólin varTrena með barni.
Trena átti enga ósk heitari en að
giftast McElroy, ekki aðeins til að
bamið eignaðist föður heldur og vegna
þess að hún elskaði hann - en hann var
þá giftur maður. Er barnið fæddist fyrir
tímann, í mai, lagðist hún í þunglyndi
enda vora framtíðarhorfumar ekki
bjartar. Hún var 14 ára, bláfátæk, ógift
(sem i „Bibliubeltinu" skipti ansi miklu
máli) og leitaði til félagsmálastofnunar.
Þar þurfti hún að tilgreina föður
bamsins og þar sem samfarir við
unglinga undir 16 ára voru þá ólöglegar
i Missouri leið ekki á löngu uns
saksóknari kom í heimsókn. Það tók
hann ekki langan tima að sannfæra hana
um að besta leiðin til að nappa McElroy
i hjónaband væri að vitna gegn honum.
Dagfnn eftir að McElroy var ákærður
Ken hafði þá að fíflum. Þá ögraðu þeir
honum og hann lét aldrei i minni
pokann. Annars töluðu allir illa um Ken
og út af þvi byrjuðu öll vandræðin. Fólk
tók mark á öllum sögunum sem það
heyrði þó það hefði ekkert séð sjálft.
Það trúði lýginni. Eins og daginn þegar
hann var drepinn, þá sagði fólk að hann
hefði verið með hlaðna byssu. Ken
snerti aldrei byssuna. Þetta var
forngripur sem hann hafði keypt og
einhver vildi fá að sjá byssuna hjá
honum. Hún var ekki einu sinni hlaðin
og Ken snerti hana aldrei.“
Er ég var í Skidmore tveimur
mánuðum eftir morðið var Trena enn
undir lögregluvemd og raunar bjó hún
ekki á staðnum heldur í nágrannabæ.
Eftir að hún fullyrti að Del Clement,
meðlimur í einni rikustu familiu
Skidmore, hefði verið annarbyssumann-
anna fengu margir ættingjar hennar
hringingu frá mönnum sem sögðu ekki
til nafns en ráðlögðu henni að breyta
sögu sinni og halda kjafti. Einnig var
sagt að þeir sem drápu mann hennar
myndu ná sér niðri á henni lika.
Yinum og ættingjum
McElroys hótað
Skömmu eftir morðið fékk einn besti
vinur McElroys, húskarlinn Lester
Doss, svohljóðandi bréf: „Þetta er eina
aðvöranin sem þú færð. Við eram búnir
að fá nóg af þinum líkum. Ken var sagt
að fara en tók ekki mark á þvi. Komdu
þér út úr héraðinu meðan þú getur. Þú
hefur fengið aðvöran. Við viljum enga
þjófa eða óróaseggi hér.“ Annar vinur
McElroys, sem sagður er hafa stundað
nautgripaþjófnað, var numinn á burt af
vopnuðum mönnum, farið með hann
upp í sveit og hann hengdur i næsta tré.
Hann var að visu leystur niður áður en
hann dó en er ennþá með branamerkið
eftir reipið um hálsinn. Honum var sagt
að ef hann væri ekki farinn á brott innan
viku yrði hann hengdur aftur - og þá
fyrir fullt og allt. Hann hafði ekki einu
sinni fyrir þvi að hafa samband við
lögregluna. Og viku eftir að McElroy
var drepinn var Alice Woods, fyrram
kona hans, á leið heim til St. Joe eftir
heimsókn til móður McElroys i Skid-
more. Á veginum milli bæjanna var bill
hennar stöðvaður af ókunnugum
mönnum.
„Veistu ekki að það er hættulegt að
keyra um upp i sveit i bíl McElroys?“
sagði einn þeirra. Woods hafði frétt af
fyrri hótununum í garð vina McElroys
og var með haglabyssu með sér i bílnum.
Hún ógnaði mönnunum með byssunni
og þeir höfðu sig möglandi á braut.
Nokkram vikum síðar nam svartur jeppi
staðar fyrir framan hús hennar og
óþekktir menn hófu skothríð yfir höfuð
barna hennar sem voru að leik i
Hvað
gerðist 10.
júlí 1981
þegar Ken
McElroy var
myrtur að
viðstöddum
flestum
bæjarbúum?
— Seinni
hluti
garðinum. Um sama leyti hófust
nafnlausar símhringingar, henni var
skipað að hætta að „gera vesin“. Hún
þraukar þó enn á sama stað.
„Það vora allir að pestera Ken,“
segir hún mér. „Þeir vora öfundsjúkir
út i hann og höfðu svo sem ástæðu tii
þess. Meðan þeir þurftu að vinna
hörðum höndum þá hafði hann lag á að
græða pening með hausnum á sér. Þeir
þoldu ekki að einhver gæti haft það gott
án þess að hann væri sifellt að strita eins
og þeir, og þá sögðu þeir að Ken stæli
nautgripunum þeirra. En það var aldrei
neitt sem benti til þess. Samt vora þeir
á eftir honum, þeir og lögreglan. Þeir
bara gátu ekki látið hann i friði.
Heldurðu að ef kona Del Clements hefði
sagt að McElroy hefði skotið hann að
þá hefðu þeir ekkert gert í málinu?"
Hún þagnar en heldur síðan áfram:
„Lögin segja að morð sé morð, hvað sem
það tautar og raular. Og Ken var myrtur
og 30 manns sáu það. Lester Doss fékk
hótanir, ég hef fengið hótanir en samt
hefur ekkert verið gert.“
„McElroy meiddi aldrei
nokkurn sem ekki var að
atast í honum“
En það era ekki aðeins vinir og
ættingjar McElroys sem lifa við ótta um
þessar mundir. íbúamir í Skidmore era
einnig hræddir - hver við annan. Allir
vita að hann er ofur viðkvæmur
lygavefurinn sem hingað til hefur komið
i veg fyrir ákæra í málinu og það þarf í
raun ekki nema eitt vitni til að málið