Fréttablaðið - 16.12.2008, Síða 34
● fréttablaðið ● jólagjöfi n hennar 16. DESEMBER 2008 ÞRIÐJUDAGUR10
Yfirhafnir og peysur eru klassískar í jólapakka
ungra sem eldri kvenna.
„Við erum að taka upp jólasendingu frá DKNY og er
svarti liturinn mikil uppistaða í henni,“ segir Hólm-
fríður Óskarsdóttir, verslunarstjóri Evu, um jólafötin
í ár. „En nú er eitthvað að koma í silfri líka og auka-
hlutirnir eru svolítið með dýraprenti eins og til dæmis
snákatöskur og belti.“
Hólmfríður segir jólaverslunina ganga vel, hún sé
í raun svipuð og í fyrra. „Það er búið að vera mikið af
fólki um helgar hér á Laugaveginum og mikil stemn-
ing,“ segir hún og telur að jafnt sé verið að versla jóla-
fötin sem og í jólapakkana. En hvað eru vinsælustu
gjafirnar? „Yfirhafnir og peysur eru klassískar gjafir,“
segir Hólmfríður.
Í sama streng tekur Sigrún Kristinsdóttir hjá Jane
Norman í Smáralind. „Það er algengt að kærastar og
eiginmenn komi og kaupi kápur handa dömunum sínum
í jólapakkann,“ segir Sigrún en aðrar vinsælar gjafir
eru inniskór, náttföt og sloppar. „Í ár eru stelp-
urnar miklu meira að spá í hvað þær
geti haldið áfram að nota eftir jól
í skólann eða vinnuna og er því
mjög vinsælt hjá þeim að taka
svartar stuttbuxur eða upphá
pils, bol og peysu yfir,“ segir
hún en tekur fram að stór
hópur haldi þó tryggð við jóla-
kjólinn og þá séu vinsælastir
svartir kokkteil-kjólar. - sg
Yfirhafnir í jólapakkann
Jólaleg föt frá Jane Norman sem nota má við ýmis tækifæri. Silfraður og svartur
hlýrabolur á 6.990 krónur, hálfermapeysa 5.990, stuttbuxur á 6.490 krónur.
FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
Hjartalaga hálsmen frá Jane Norman á
2.490 krónur.
Vettlingar/grifflur frá
Jane Norman á 1.990
krónur. Röndótt húfa á
1.990 krónur.
Svartur klassískur kjóll frá DKNY úr 100
prósent silki. Sniðið hentar flestum
konum. Fæst í Evu á 56.900 krónur.
Skórnir með fylltum hæl frá DKNY á
24.900 krónur. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Sætir glitrandi eyrnalokkar frá Jane
Norman á 2.490 krónur.
Hlý og mjúk vetrarpeysa
á 45.900 krónur. Þessa
má bæði nota í vetur og
sem yfirhöfn á sumrin.
Eva Laugavegi.
Svart leðurveski frá
DKNY á 48.900 krón-
ur. Eva Laugavegi.
Perlufesti úr lituðum vatna-
perlum. Nákvæm eftirlík-
ing af festi sem Jackie
Kennedy átti. Kost-
ar 28.900 krónur.
Eva Laugavegi
Ögurhvarfi 2 • Kópavogi • 565 5151
Zermatt
Mikið úrval
af vönduðum
úlpum á
jólatilboði
Verð frá 9.950
ð i i hlíð kj ík
Marimekko
Original
Óvænta jólagjöfin í ár!
GOBELINS
Nýtt á Íslandi. Fæst í Fatboy