Fréttablaðið - 16.12.2008, Qupperneq 52
28 16. desember 2008 ÞRIÐJUDAGUR
menning@frettabladid.is
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Þriðjudagur 16. desember
➜ Uppákomur
12.34 Lifandi jóladagatal í Norræna
húsinu við Sturlugötu. Í dag verður
sextándi glugginn opnaður. Í gær var
Ófeigur Sigurðsson ljóðskáld í gluggan-
um. Hver skyldi vera þar í dag?
Kassa- og ferilspakkagerð hefur
verið í miklum blóma á Íslandi síð-
ustu misserin, ekki síst vegna mik-
ils metnaðar hjá útgáfufyrirtækj-
um. Þeir hjá Senu eru duglegir,
sem er mikilvægt því fyrirtækið
hefur yfir að ráða nærri öllum
„bakk-katalók“ íslenskrar popp-
sögu. Hvert á eftir öðru fá stærstu
böndin og söngvararnir viðeigandi
meðferð í glæsilegum og vönduð-
um viðhafnarútgáfum.
Tímabær lúxusmeðferð
Á Algjörum sjúkheitum fær Pétur
Kristjánsson löngu tímabæra
lúxusmeðferð. Þetta er stútfullur
pakki, tveir diskar, nokkuð þykkur
bæklingur, fullt af skemmtilegum
rokkmyndum og góður texti eftir
Steinar Berg. Ef það er eitthvað
sem vantar upp á er það ef til vill
meiri og dýpri texti, góð úttekt á
ferli Péturs, hvað hann hlustaði á,
hvaðan hann sótti áhrif og þess
háttar.
Þessi aðfinnsla er þó algjört
smámál því lögin 42 tala sínu máli.
Frægustu lögin sem Pétur söng
eru hér í bland við minna þekkt
lög og heil átta sem ekki hafa
heyrst opinberlega fyrr. Lögunum
er raðað eftir tímabilum, þó ekki í
réttri tímaröð. Frægustu og bestu
lögin með P-böndunum, Pelican og
Paradís, koma fyrst, en síðan fjög-
ur lög eftir Einar Vilberg. Þau lög,
sem voru það fyrsta sem Pétur
söng inn á plötu, áttu upphaflega
að koma út á tveimur smáskífum,
en á sínum tíma (árið 1970) komu
bara tvö þeirra út. Mikill fengur
er að fá loksins að heyra hin tvö. Á
seinni disknum má heyra safaríka
blöndu laga, meðal annars lög með
þungarokksveitunum Svanfríði og
Start, lög af Kim Larsen-plötunni
og lög úr samstarfinu með Bjart-
mari. Frábær pakki!
Umvafinn rokki
Söngvar um lífið 1966-2008 varð
síðasta útgáfan sem Rúnar Júlíus-
son setti saman. Þetta er fjarska-
lega vel heppnaður ferilspakki og
mjög flott heimild um Hr. Rokk.
Rúnar og synir hans sáu um
lagavalið og 72 lög varða leiðina.
Diskarnir þrír eru í tímaröð.
Fyrsti diskurinn tekur á gullöld-
inni, stakri snilld sem Rúnar flutti
með Hljómum og Trúbrot, og
alveg fram til ársins 1983. Næsti
diskur byrjar 1991, þegar Bubbi
hafði rifið Rúnar úr slappleika
níunda áratugarins og sett á sinn
réttmæta stall. Þriðji diskurinn
hefst árið 2000 og býður upp á
bestu lög Rúnars fram á síðustu
stund.
Rúnar var afkastamikill og
gerði sólóplötur árlega frá 1995
ásamt því að vinna með öðrum.
Þessi pakki hefði auðveldlega
getað verið fimmfaldur en feðg-
arnir skera lipurlega við trog svo
pakkinn er mátulega sneisafullur
af frábærum lögum. Þetta er tón-
listin sem mun halda merki Rún-
ars á lofti langt inn í eilífðina.
Mjög vel er í lagt og umbúðir
flottar. Jónatan Garðarsson skrif-
ar upplýsandi ferilsskrá og sér-
stakur fengur er af ljósmyndum
Þorfinns Sigurgeirssonar í brak-
andi ferskum svart-hvítum tónum.
Þær eru teknar í upptökuheimili
Rúnars, Geimsteini í Kefla-
vík, og sýna manninn sem
lifði og dó í eilífu rokki á
heimavelli, bókstaflega
umvafinn ástríðu sinni. „Það
er nú ekki mikið rokk og ról
í þessu,“ sagði ég við Rúnar í
síðasta skipti sem ég hitti
hann og benti á mynd af inni-
skóm Rúnars, sem prýða eina
blaðsíðuna. „Jú, þetta ER rokk
og ról,“ sagði hann þá og glotti.
Auðvitað!
Ómur tímans
Með blik í auga er stærsta og
yfirgripsmesta safn af lögum
Hauks Morthens sem út hefur
komið. Þar er safnað saman
á þremur diskum 66 lögum
sem Haukur söng. Þarna
eru vitanlega öll fræg-
ustu lögin hans og
ógrynni af öðrum, sem Haukur
gerir að sínum með sinni þýðu og
kumpánalegu söngrödd. Það er
eitthvað við þessa tónlist sem fær
mann til að vera stoltur af þjóð-
erni sínu og nánast klökkur. Til-
finning sem ekki er annars mikið
af þessa dagana. Ómur tímans,
gleði og sorgir kynslóðarinnar í
erfiða litla landinu, náttúran og
eilífðin: allt endurspeglast þetta í
þessari tónlist – eða þannig er að
minnsta kosti mín upplifun af
henni.
Gullaldartímabil Hauks var 6.
og 7. áratugurinn og hér er lang-
mest frá þeim tíma. Ferðin endar
á nokkrum lögum sem Haukur
gerði með meðlimum Mezzoforte
árið 1980. Tónvinnslan er til fyrir-
myndar. Stundum fundust ekki
upprunalegu teipin og þá þótti rétt
að finna minnst rispuðu plöturnar
og taka lögin af þeim. Sum lögin
eru þess vegna aðeins „rispuð“, en
það er allt í lagi – eykur bara á for-
tíðarupplifunina.
Þótt tónlistin sé fullkomlega
ómótstæðileg finnst mér að útlit
pakkans hefði getað orðið enn
betra. Bæklingurinn er óþarflega
rýr og aðeins er boðið upp á stutt-
an og áður birtan texta um Hauk
eftir Trausta Jónsson. Eitthvað er
af ljósmyndum, en þær hefðu að
ósekju mátt vera miklu fleiri og
einnig hefði mátt sýna gömul
plötuumslög og kynningarefni frá
gullöldinni. En þetta eru líklega
smáatriði í hugum annarra en
poppfræðinörda, tónlistin talar og
segir allt sem segja þarf.
Stundum er sagt að plötur séu
„skyldueign á hverju tónlistar-
heimili“. Sjaldan hefur sú lýsing
átt eins vel við og þegar litið er til
þessara þriggja vönduðu útgáfna.
Þær eru svo sannarlega skyldu-
eign á hverju tónlistarheimili!
Dr. Gunni
ÓMISSANDI GLÆSIKASSAR
TÓNLIST
Algjör sjúkheit
Pétur Kristjánsson
★★★★★
Söngvar um lífið 1966-2008
Rúnar Júlíusson
★★★★★
Með blik í auga
Haukur Morthens
★★★★★
➜ Sýningar
Hin árlega jólasýning hefur verið
opnuð í Þjóðarbókhlöðunni í Þjóðdeild-
inni. Þar er einnig sýning um Harald
Níelsson guðfræðiprofessor,háskólarekt-
or og áhugamann um sálarrannsóknir.
Opið virka daga kl. 8.15-22, lau. 10-17
og sun. 11-17. Aðgangur er ókeypis og
allir velkomnir. Landsbókasafn Íslands
við Arngrímsgötu.
Í Gerðarsafni hefur verið opnuð sýning
á verkum úr safneign. Meðal verka eru
nýleg aðföng, vatnslitamyndir og vegg-
myndir úr vinnustofu Kjarvals. Opið
Hljómsveitin Pjetur og Úlfarn-
ir hefur gefið út plötuna Pjetur
og Úlfarnir 1978-1982. Hún
hefur að geyma lög af tveimur
fjögurra laga plötum sem
sveitin gaf út á sínum tíma.
Þar á meðal er lagið Stjáni
saxófónn sem naut mikilla vin-
sælda.
Hljómsveitin var stofnuð
árið 1977 af fjórum nemendum
í Menntaskólanum í Hamra-
hlíð, þeim Eggerti Pálssyni,
Kjartani Ólafssyni, Kristjáni
Sigmundarsyni og Pétri Jónas-
syni. Nokkru síðar bættist
Haraldur Baldursson í hópinn.
„Það eru þrjátíu ár síðan
fyrri platan kom út. Við vorum
að velta því fyrir okkur að það
væri gaman að bjarga þessu á
varanlegra form,“ segir Pétur.
„Hún er alveg ófáanleg sú
fyrri og það er líka erfitt að
vita hvar hin er niðurkomin.“
Pjetur og Úlfarnir er enn
starfandi þrátt fyrir að hún
hafi ekki gefið út nýtt efni í háa
herrans tíð. Inni á milli æfinga
spilar Eggert með Sinfóníu-
hljómsveit Íslands, Haraldur
er flugstjóri, Kjartan er tón-
skáld, Kristján er forstöðumað-
ur og Pétur er klassískur gítar-
leikari, búsettur á Spáni. „Við
erum alltaf að spila annað slag-
ið. Ef það er farið mjög vel að
okkur þá spilum við stundum
og þá finnst okkur alveg rosa-
lega gaman,“ segir Pétur. - fb
Gefa út Stjána saxófón
11.00 Jólasveinarnir koma
við á Þjóðminjasafninu við
Suðurgötu, alla daga fram
að jólum. Í gær var það
Þvörusleikir sem kom til
byggða en í dag er röðin
komin að bróður hans
Pottaskefli. Aðgangur
ókeypis.
PJETUR OG ÚLFARNIR Hljómsveitin Pjetur og Úlfarnir hefur gefið út átta
laga plötu.
alla daga kl. 11-17 nema mánudaga.
Aðgangur ókeypis. Gerðarsafn, Hamra-
borg 4, Kópavogi.
➜ Markaðir
Jólamarkaður hefur verið opnaður í
gamla Byko-húsinu við Hringbraut þar
sem boðið er upp á margs konar varn-
ing frá ýmsum verslunum og einstakl-
ingum. Markaðurinn er opinn alla daga
frá kl. 12-19.
➜ Myndlist
Tolli sýnir í Reykjavík Art Gallerý á
Skúlagötu 30. Opið alla daga nema
mánudaga kl. 14-17.
Karl Jóhann Jónsson hefur opnað sýn-
ingu í sýningasalnum Hurðir, Virtus á
Laugavegi 170, 3. hæð. Sýningin er opin
alla daga frá 09-17.
Guðmundur R. Lúðvíksson hefur sett
upp sýningu á teikningum sem birst
hafa í Víkurfréttum ásamt áður óbirtu
efni. Sýningin er opin alla daga frá kl.
13 - 17. Gallerí Kötturinn Kósý í Svarta
Pakkhúsinu Keflavík.
Freyja Dana hefur opnað sýningu í
Listhúsi Ófeigs, Skólavörðustíg 5. Opið á
almennum verslunartíma í miðbænum.
Upplýsingar um viðburði sendist á
hvar@frettabladid.is
kokka.is
Opið mán.- föstud. 10-18 og lau. 10-16 www.kokka.is kokka@kokka.is