Fréttablaðið - 18.12.2008, Blaðsíða 8
18. desember 2008 FIMMTUDAGUR
Verið velkomin í Nettó
Mjódd - Salavegi - Hverafold
Akureyri - Höfn - Grindavík
ww.netto.is
Bækur á betra verði!
TILBOÐIN GILDA 18. - 21. DESEMBER
w
w
w
.m
ar
kh
on
nu
n.
is
AUÐNIN
2.874 kr
4.790 kr
40%
afsláttur
MAGNEA
2.874 kr
4.790 kr
40%
afsláttur
KARLAR SEM HATA KONUR
2.688 kr
4.480 kr
40%
afsláttur
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
U
T
I
44
21
0
11
.2
00
8
HOLTAGÖRÐUM GLÆSIBÆ KRINGLUNNI SMÁRALIND SÍMI 545 1500
Brettapakkar
20% afsláttur
Brettadeildin er í Kringlunni
SKIPULAGSMÁL „Við erum að vega
og meta stöðuna, endurreikna og
sjá hvort dæmið gengur upp,“
segir Hanna G. Benediktsdóttir,
fjármálastjóri fasteignafélagsins
Festa ehf. sem á og rekur fast-
eignir á svonefndum Hljóma-
lindarreit í miðborg Reykjavíkur.
Skipulagsráð Reykjavíkur sam-
þykkti nýlega umsögn skipulags-
og byggingasviðs og beindi því til
hönnuða að gerðar verði breyting-
ar á deiliskipulagstillögu fyrir
reitinn.
Meðal þess sem borgin leggst
gegn er inndregin sjöunda hæð
hótelbyggingar við Hverfisgöt-
una. Einnig fer borgin fram á að
húsið við Laugaveg 19 verði end-
urbyggt en tillögur Festa gera ráð
fyrir að húsið verði rifið. Þá leggst
borgin gegn því að kjallari undir
reitnum nái undir húsin Laugaveg
17, 19 og 21 auk þess sem borgin
fellst ekki á að húsin þrjú verði
flutt af lóðunum á meðan á fram-
kvæmdum stendur.
Hanna og Benedikt T. Sigurðs-
son, stjórnarformaður Festa, segja
að með þessu
fari borgin fram
á breytingar
sem auka muni
verulega kostn-
að við fram-
kvæmdirnar.
Minna bygg-
ingamagn muni
skerða nýting-
armöguleika á
reitnum sem þá
í beinu fram-
haldi skerði tekjumöguleikana.
Þau segja umrædda sjöundu
hæð hótelsins vera um 560 fer-
metra auk þess sem kjallari undir
húsunum við Laugaveg sé um
1.500 fermetrar. Skerðing á bygg-
ingamagni sé því umtalsverð. Að
auki sé mun kostnaðarsamara að
endurgera húsin við Laugaveg á
staðnum í stað þess að þeim sé lyft
af grunni sínum, jarðvinnan unnin
og húsunum svo komið fyrir á
sínum stað.
Þau hjá Festum hafa unnið að
skipulagi á reitnum í eitt og hálft
ár. „Við erum búin að undirrita
viljayfirlýsingu við Icelandair
hotels um að þeir reki hótelið,“
segir Hanna. Hún segir að þar
með talið sé nýting á sjöundu hæð-
inni en að hótelreksturinn verði
ráðandi hluti af nýtingu húsnæðis
á reitnum. Annars sé gert ráð fyrir
verslunum og þjónustu.
„Við höfum fengið jákvæð við-
brögð frá fjármögnunaraðilum en
þeir vilja sjá að framkvæmdirnar
standi undir kostnaði,“ segir
Hanna. Benedikt segir arkitekta
og verkfræðinga bíða tilbúna eftir
að klára hönnunina. „Og bygginga-
fyrirtækin bíða eftir að hefja
framkvæmdir en okkur vantar
ákvörðunartöku hjá borginni,“
segir Benedikt.
Þau segja að fram undan séu því
frekari viðræður við borgina.
Haldi borgin sig hins vegar við
þessar forsendur telji þau Hanna
og Benedikt líklegt að þau þurfi að
gefa verkefnið upp á bátinn þar
sem forsendur fyrir uppbyggingu
á reitnum, í umræddri mynd, séu
ekki fyrir hendi.
olav@frettabladid.is
Segja borgina tefja
framkvæmdirnar
Stjórnarformaður og fjármálastjóri Festa ehf. segja skipulagsráð Reykjavíkur
fara fram á kostnaðarsamar breytingar á deiliskipulagstillögu fyrir Hljóma-
lindarreit. Samþykkt ráðsins setji framkvæmdir á reitnum í uppnám.
HLJÓMALINDARREITUR Borgin leggst meðal annars gegn byggingu sjöundu hæðar-
innar ofan á hótel við Hverfisgötu og að húsið við Laugaveg 19 verði rifið.
HANNA
BENEDIKTSDÓTTIR