Fréttablaðið - 18.12.2008, Qupperneq 18
18. desember 2008 FIMMTUDAGUR
Landsbanki Íslands hf.
Auglýsing um kröfuhafafund.
Þann 5. desember 2008 veitti Héraðsdómur Reykjavíkur Landsbanka Íslands hf.,
kt. 540291-2259, Austurstræti 11, 155 Reykjavík, heimild til greiðslustöðvunar.
Kristni Bjarnasyni, hrl. var falið að gegna starfi aðstoðarmanns á greiðslustöðvunar-
tímabili.
Í samræmi við úrskurð héraðsdóms og með vísan til 13. gr. laga um gjaldþrotaskipti
o.fl. nr. 21/1991, sbr. 2. gr. laga nr. 129/2008 er boðað til fundar með lánardrottnum
bankans. Fundurinn verður haldinn föstudaginn 20. febrúar 2009 kl. 9.00 að
Hótel Hilton Nordica, Suðurlandsbraut 2, Reykjavík.
Hér með er ennfremur tilkynnt að þinghald Héraðsdóms Reykjavíkur um heimild
Landsbanka Íslands hf. til greiðslustöðvunar verður háð í dómhúsinu við Lækjartorg
fimmtudaginn 26. febrúar 2009 kl. 14.00 en samkvæmt úrskurði dómsins stendur
heimild bankans til greiðslustöðvunar til þess tíma.
Rétt til fundarsóknar eiga þeir sem eiga kröfu á Landsbanka Íslands hf. Óskað er eftir
því að kröfuhafar skrái kröfur sínar á vefsíðunni www.gamlilandsbanki.is. Athygli
kröfuhafa er vakin á því að í þessu ferli felst ekki formleg kröfulýsing á hendur
Landsbanka Íslands hf. Frekari upplýsingar er að finna á vefnum
www.gamlilandsbanki.is
Kristinn Bjarnason, hrl.
hagur heimilanna
56
3
66
5
47
9
47
9
47
9
2004 2005 2006 2007 2008
Útgjöldin
>Verð á nýju myndbandi eða DVD-diski á myndbanda-
leigu. Meðalverð á landinu öllu í nóvember ár hvert.
HEIMILD: HAGSTOFA ÍSLANDS
Tími kæstu skötunnar er
upprunninn, lyktnæmum
og matvöndum til lítillar
ánægju. Fisksalar segja
skötutíðina fara vel af stað.
Verð á stórskötu er nokk-
uð misjafnt, allt frá 1.090
krónum á kílóið upp í 1.590
krónur.
Einkennilega lykt leggur nú yfir
tiltekinn hluta Freyjugötu í
Reykjavík. Sumir vilja kalla þetta
fnyk, aðrir segja að að þetta sé
ilmurinn af jólunum. Hvort sem
lyktin er kemur hún frá fiskbúð
hjónanna Þóru Egilsdóttur og Ein-
ars Steindórssonar. Þau eru, eins
og aðrir fisksalar, farin að búa sig
undir komu jólanna með skötu-
sölu.
„Það er alltaf mikill áhugi á
skötunni fyrir jólin,“ segir Þóra.
Henni finnst ágætt að hafa sköt-
una í fiskborðinu og kippir sér
lítið upp við lyktina sem af henni
leggur. „Þetta er bara alveg yndis-
legt. Svo er heldur ekki hætt við
að við fáum kvef á meðan. En jú,
jú, það er sterk lykt af henni og
hún finnst langar leiðir.“
Þóra segir skötusöluna fara vel
af stað. Hún muni þó aukast til
muna fyrir helgina, enda margir
með skötuveislu þá, og ná svo
hámarki fyrir Þorláksmessu.
„Hingað koma stundum hópar
saman og kaupa skötu í miklu
magni,“ segir hún. „Einn úr hópn-
um tekur það svo að sér að elda
fyrir hina. Oft er saltfiskur tekinn
með, enda ekki allir sem borða
skötu.“
Jón Garðar Sigurvinsson, eig-
andi Litlu fiskbúðarinnar í Hafn-
arfirði, hefur háleit markmið um
skötusöluna. „Við erum með yfir
tvö tonn af skötu. Ég á von á að
það seljist allt saman hjá mér,“
segir hann.
Jón Garðar og samstarfsmenn
hans verka skötuna sjálfir. Þeir
sjá þó ekki um að kæsa hana, held-
ur fá annan í það verk.
Jón Garðar hefur sett sér það
markmið að vera ódýrasti fisksali
landsins. Samkvæmt óformlegri
könnun Fréttablaðsins nær hann
því. Kílóið af stórskötu kostar hjá
honum 1.090 krónur. „Ef einhver
fer niður fyrir mig þá lækka ég
verðið.“ holmfridur@frettabladid.is
Skötuát markar
upphaf jólanna
EIGENDUR FISKBÚÐARINNAR Á FREYJUGÖTU Hjónin Einar og Þóra reka Fiskbúðina á
Freyjugötu, þaðan sem jólaskatan er tekin að renna út.
Í LITLU FISKBÚÐINNI Jón Garðar Sigurvinsson, eigandi Litlu fiskbúðarinnar, ætlar að
selja tvö tonn af skötu fyrir jólin.
TÍU DÆMI UM VERÐ Á STÓRSKÖTU
Fiskbúð Krónur á kíló
Litla fiskbúðin 1.090
Tangi í Kolaportinu 1.199
Fylgifiskar 1.290
Fiskbúðin Hófgerði 1.390
Fiskbúð Einars 1.390
Fiskbúð Suðurlands 1.395
Fiskbúðin Freyjugötu 1.490
Gallerý Fiskur 1.498
Fiskbúðin Hafberg 1.580
Fiskisaga 1.590