Fréttablaðið - 18.12.2008, Side 29
Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447
„Þennan kjól fékk ég frá Japan en
þetta er japönsk götutíska frá
merkinu VM. Kjóllinn er eins konar
blanda af viktoríönskum stíl og
poppi,“ segir Eva Sólveig Þrastar-
dóttir, hönnuður og verslunareig-
andi.
Að sögn Evu hefur henni alltaf
þótt japönsk götutíska skemmti-
leg. „Þetta er ferskur blær í tísk-
unni en mér hefur alltaf fundist
sami blærinn vera í tísku á Íslandi.
Það kemur einhver ein tíska og þá
eru allir klæddir í það sama en mig
langar að vera svolítið öðruvísi,“
segir hún og brosir.
Eva pantaði kjólinn frá Japan en
vinkona hennar hafði áður ferðast
þangað og bent henni á búðina sem
hann fékkst í. „Ég á safn af kjólum
sem eru innblásnir af Viktoríu-tím-
anum og götutísku en þessi er með
þeim sætari. Í búðinni minni Krakk
verður meira af fatnaði sem teng-
ist japanskri götutísku eftir jól en
okkur langar að brjóta aðeins upp
þær tískulínur sem hafa verið hér
á landi.“
Auk þess að vera mikil áhuga-
manneskja um tísku þá hannar Eva
eigin fatalínu. „Mín föt verða til
sölu í Krakk eftir jól undir nafninu
Angelic Kitten, en þegar ég var
yngri dundaði ég mér við að sauma
eigin föt og hef lengi verið undir
áhrifum Viktoríutímabilsins og
blandað því saman við nýstárlegri
tísku,“ segir hún og nefnir að smá-
atriðin heilli sig. Fatnaður Evu er
því nútímalegur undir gamaldags
áhrifum og nýtur hún þess að
klæða sig í lífstykki. „Ég nota eig-
inlega korselett við flest allt sem
ég klæðist og þá úr ýmsum efnum
og litum. Þau gera svo fallegar
línur og auðveldlega má breyta
hversdagslegum fötum með
þeim.“
Auk þess að hanna föt er Eva
yfirteiknari hjá Latabæ og hefur
meðal annars hannað BT-músina
og Office One fígúruna. „Ég hef
unnið við teiknimyndir, auglýsing-
ar og karakterhönnun frá því árið
2003 og geri líka skúlptúra, mál-
verk, skartgripi og leikföng,“ segir
Eva, sem er algjörlega sjálfmennt-
uð. „Ég er að vinna að minni eigin
teiknimyndasögu en vonandi
kemur hún út á næsta ári,“ segir
Eva og verður spennandi að fylgj-
ast með henni í framtíðinni.
hrefna@frettabladid.is
Sér listina allt í kring
Þegar Evu Sólveigu Þrastardóttur ber fyrir augu er deginum ljósara að hér er athyglisverð og skapandi
stúlka á ferð. Eva hannar fatnað, semur teiknimyndasögur og býr til teiknimyndir, skúlptúra og bangsa.
Eva segir þennan japanska
kjól vera einn af þeim sætari
sem hún á og valdi að sýna
hann þar sem jólin eru á
næsta leyti. Hún á líka svip-
aðan kjól með lífstykki, sem
er hins vegar biksvartur.
FR
ÉTTA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
t í ö
LÖGREGLUKÓR REYKJAVÍKUR heldur jóla-
tónleika í Grafarvogskirkju sunnudagskvöldið 21.
desember klukkan 20.30. Einsöngvarar eru Anna
Margrét Óskarsdóttir og Eiríkur Hreinn Helgason en
stjórnandi kórsins er Guðlaugur Viktorsson. Miðaverð
er 1.500 kr.
kristy.is