Fréttablaðið - 18.12.2008, Page 31
FIMMTUDAGUR 18. desember 2008 3
Óhætt er að fullyrða að jólaversl-
unin í tískuhúsunum í París í ár sé
ekki alveg eins og venjulega, frek-
ar en verslunin almennt síðan fjár-
málakreppan hóf að ríða húsum.
Ekki eiga þó allir við lausafjár-
vanda að stríða og þeir láta sig
ekki muna um að skreppa til París-
ar og kaupa kjóla fyrir nokkrar
milljónir króna. Til dæmis hef ég
til sölu kjóla um þessar mundir á
þrjú til níu þúsund evrur sem er
álíka mikið og ódýrir bílar kosta
hér. En það er af sem áður var.
Sífellt fleiri velta vöngum yfir
verðinu áður en út í slík kjólaævin-
týri er farið og nú spyrja svart-
klæddu konurnar frá Austurlönd-
um hvort þær geti fengið afslátt
og taka fram vasatölvur. Rússarn-
ir eru sömuleiðis heldur færri en
oft áður þó suma dagana bjargi
þeir búðunum frá hinu skammar-
lega núlli, þegar ekkert selst heil-
an dag og andleg heilsa starfs-
fólksins er í hættu.
Frakkar eru frekar daufir í
bragði um þessar mundir. Helst
mun almenningur gleðja þá yngstu
um þessi jól, meðal annars með því
að sleppa þeim fullorðnu. Aðrir
leita í ódýrari merki sem oft geta
verið þægileg leið til að gleðja þá
nánustu án þess að tæma algjör-
lega peningaveskið.
Á þessum árstíma er það sigl-
ingarlínan svokallaða (croisière)
sem í tískuhúsum boðar vorið líkt
og sumartísku um hávetur. Í upp-
hafi var hún ætluð þeim sem fóru í
skemmtisiglingar yfir veturinn.
Viðskiptavinirnir eru hins vegar
uppteknari af einkaútsölum sem
standa yfir og eru reyndar kol-
ólöglegar. Þá bjóða tískuhúsin við-
skiptavinum sínum að versla á
útsöluverði á undan öðrum en
útsölur hefjast snemma í janúar.
Þessar einkaútsölur hafa aldrei
byrjað eins snemma því fjármála-
kreppan barði allharkalega að
dyrum þegar vetrartískan átti að
seljast sem best. Þess vegna sefur
hún værum svefni baksviðs í tísku-
húsunum og í geymslum stórversl-
ana og bíður útsöluveislunnar sem
þó verður kannski engin veisla
þetta árið, svo lítill er áhugi við-
skiptavina.
Til að kóróna allt í þessari viku
fannst sprengjuefni í einu af stóru
magasínunum í París, Printemps
Haussmann (á hæðinni þar sem ég
vinn). Það varð uppspretta ótta við
hryðjuverk í miðri jólaversluninni
og var stórversluninni lokað í
nokkra tíma á þriðjudag.
Jólin 2008 verða því ekki kölluð
kaupmannajól hér í París frekar
en víða annars staðar. Sérfræðing-
ar spá líka samdrætti í lúxusgeir-
anum á nýju ári í fyrsta skipti í
áraraðir.
Ég óska lesendum og lands-
mönnum öllum gleði og friðar á
jólum.
Jólaverslun í skugga fjármálakreppu,
dýrtíðar og sprengjuhótana
ÚR HÁBORG TÍSKUNNAR
Bergþór Bjarnason skrifar frá París
Hátíðlegt og afgerandi
RAUÐUR KJÓLL EÐA RAUÐIR FYLGIHLUTIR KLIKKA SEINT Á JÓLUM.
Flestar konur eignast einhvern tímann á lífsleiðinni rauðan
jólakjól og hjá sumum kemur ekki annað til greina en að
klæðast rauðu yfir hátíðarnar.
Hvort sem konur skarta fagurrauðum kjól eða tína til
litla rauða fylgihluti eins og skó, veski og skart þá er víst
að útkoman verður í senn klassísk og hátíðleg.
Þessi sígildi jólalitur klikkar seint og kemur alltaf vel
út á móti svörtu, en líka gylltu, silfruðu og hvítu. Rauður
alklæðnaður er fyrir þær sem þora en hárauð taska getur
gert gæfumuninn og breytt hefðbundnum sparifötum í
galadress. -ve
Á jakkafötum er nokkur grund-
vallarmunur sem getur verið
gott að glöggva sig á.
Ítölsk jakkaföt eru breið yfir herð-
arnar, svolítið köntuð og yfirleitt
án klaufar í bakið. Bresk eru með
tveimur klaufum sinni hvorum
megin að aftan. Tilgangur þeirra
var upphaflega sá að fötin færu
vel þegar herrar sátu hest. Amer-
ísk föt eru með miðklauf í bakið,
stílhrein með mjóum boðungum.
Hvernig sem jakkafötin eru er
mikilvægt að hneppa þeim rétt. Á
þriggja hnappa jakka skal alltaf
hneppa miðjuhnappinum, stund-
um efsta en aldrei neðsta og ekki
þykir smart að hneppa öllum. Á
tveggja hnappa jakka skal einung-
is hneppa efri hnappinum. - ve
Ólík
í grunninn Laugavegi 80, 101 Reykjavíksími 561 1330
www.sigurboginn.is
TÖSKUHANKINN!!
Hvaða kona kannast ekki við að sitja á veitingastað,
kaffi húsi eða bar og geta hvergi lagt töskuna sína frá
sér?? Eina lausnin er oft á tíðum að leggja hana á
óhrein gólf staðarins. Þetta er auðvitað frekar
óásættanlegur kostur.!! En hvað er í stöðunni??
Sigurboginn, Laugavegi 80, hefur lausn á þessu
vandamáli. Þar geturðu nálgast frábæran töskuhanka,
með burðarþol allt að 5 kg. Töskuhankinn er hágæða
vara. Glæsilega hannaður, leðurklæddur metal-
hringur. 3 litir. Svartur, rauður og brúnn. Afskaplega
einfaldur í notkun. Fer lítið fyrir í töskunni eða sem
viðhengi. Þú hengir hann einfaldlega á borðbrúnina
eða stólinn. Taskan er alltaf í sjónmáli þannig að engin
áhætta er á töskuþjófnaði.
Þetta er frábær gjöf, sem allar konur þurfa að eiga.
Verð kr. 2.980.-
Nánari upplýsingar eru á síðu www.hang-bag.com