Fréttablaðið - 18.12.2008, Blaðsíða 32
18. desember 2008 FIMMTUDAGUR4
GÓÐ RÁÐ
fyrir þig og umhverfið
Náttúran.is - vefur með umhverfisvitund
Barnaherbergið – Málning
Litir eru magnað fyrirbæri og
hafa gífurleg áhrif bæði á sál og
líkama:
Rauður = Heitur litur, æsir upp,
ekki ráðlegur litur fyrir órólegt
barn en góður í hófi fyrir rólegt
barn. Heilt herbergi í skærrauð-
um lit myndi þó vera allt of yfir-
gnæfandi. Það sama gildir um
bleikan lit en hann er í rauninni
hvítþynntur rauður litur.
Gulur = Heitur litur, lífgar,
gleður og eykur bjartsýni, góður
litur fyrir flesta. Skærgulur er þó
nokkuð sterkur og ágengur fyrir
heilt herbergi. Góður litur til að
tempra niður.
Grænn = Tempraður litur, róar
og jarðtengir. Grænn getur verið
svo fjölbreytilegur, gulgrænn,
blágrænn, ljósgrænn, mosagrænn
en samt virka þeir allir róandi.
Blár = Kaldur litur, býr yfir
ákveðnu jafnvægi og opnar
rými en er samt svolítið
kuldalegur einn og sér.
Betra að tempra hann
niður eða bæta
aðeins grænu í
hann.
Gott er að tempra liti niður með
því að þynna þá með hvítu eða
nota lagskipta málun (lasur). Hún
gefur ákveðna dýpt og herbergið
virkar ekki eins og lokaður kassi.
Nokkrar aðferðir eru til við að
mála lagskipt, t.d. með svampi og
venjulegum vatnslit (úr ljósekta
gæða-vatnslit) sem þynntur er út
í fötu af vatni. Svampinum er
síðan þrýst yfir hvítmálaðan
veggflötinn.
Meira um liti í barnaherberginu á:
http://www.natturan.is/husid/1328/
Handavinna og ýmiss konar
dund inni við tilheyrir gjarnan
aðventunni. Biðin eftir jólunum
verður styttri við að hafa eitt-
hvað fyrir stafni.
Margir búa til sitt eigið jólaskraut
og dunda við það löngum kvöldum
en fyrir þá sem treysta ekki eigin
sköpunargáfu er hægt að verða
sér úti um tilbúið skraut sem ein-
ungis þarf að setja saman.
Þrívítt púsluspil sem samanrað-
að verður að jólakúlu eða snjókarli
er tilvalin dægradvöl. Púsluspilin
er hægt að fá misjöfn að stærð og
erfiðleikastigi og fást til dæmis í
verslunum Office One. - rat
Púsluspil
á jólum
Falleg jólakúla til að hengja á tréð eða
í glugga. 60 stykkja púsluspil á 1.190
krónur í Office One.
LÝSING OG HÖNNUN er fyrirtæki sem býður upp á hönnun og
sérhæfða ráðgjöf í lýsingu og raflögnum. Það býður einnig upp á lampa,
innlagnaefni, ljósastýringar og hljóðkerfi fyrir einstaklinga og fyrirtæki.
Nánari upplýsingar á vefsíðunni www.lysingoghonnun.is.
Keramiklist eru engin takmörk
sett.
Ótrúlegt er hvað hægt er að gera
með keramik. Þetta veit hinn kín-
verski hönnuður Lei Xue, sem býr
og starfar í Þýskalandi. Hann
hannaði þessi skemmtilegu hand-
máluðu teáhöld úr keramik sem
mótuð eru eins og kramdar dósir.
www.detterer.de/xue.htm
Krumpuð
keramík
Krumpaðar dósir úr keramik.
Bók frá Kjalarútgáfunni,
sem hefur að geyma
knöpp skoðanaskipti
unglingspilts og eldri
manns, þar sem víða er
komið í 567 dæmum á
vettvangi daglegs lífs og
mannlegs eðlis. Bókina
prýða ljósmyndir
teknar af Birni Erlings-
syni, Kristjana F. Arndal
hefur gert kápumynd
sem skírskotar til ævi-
starfs höfundar
Þorgeirs Þorgeirssonar,
en eftir hann hafa áður
komið út ljóðabækurnar
Dagsformið 2005 og Endurfundir 1992.
Kjölur, útgáfa, Skólagerði 6, 200 Kópavogi.
Eitthvað að huxum
– tilboð
á völdum grillum
lustaðir: Járn og gler · Garðheimar
– mikið úrval af aukahlutum
X
E
IN
N
JG
08 11 004
– gildir til 31. desember 2008