Fréttablaðið - 18.12.2008, Page 34
18. desember 2008 FIMMTUDAGUR6
Iceland Express fagnar jólum á
ýmsan máta í desember. Má þar
nefna jólamatseðil, -skreytingar
og óvænta jólatónleika valinna
íslenskra tónlistarmanna um
borð í vélunum.
„Áhafnirnar vildu útbúa hlýja og
notalega stemningu í vélunum,“
segir Hildur María Gunnarsdóttir,
rekstrarstjóri hjá Iceland Express,
þar sem jólastemning er við völd
út desember.
Matseðli vélanna hefur verið
breytt þannig að nú er hægt að fá
heitt kakó með rjóma og piparkök-
ur í eftirrétt og einnig er boðið
upp á flatkökur með hangikjöts-
áleggi, íslenskt jólaöl og jólabjór.
Flugliðar bera jólaskraut í barmi
og vélarnar eru einnig komnar í
jólabúning þar sem búið er að
festa fjölmargar myndir af
íslensku jólasveinunum utan á far-
angurshólfin í farþegarýminu.
Önnur nýjung hjá Iceland Express
í desember er að íslenskir tónlist-
armenn halda litla tónleika um
borð í vélunum. Meðal annars
Hera Björk Þórhallsdóttir og
hljómsveitin Buff. Þá hefur spá-
konan Sigríður Klingenberg af og
til mætt í flugin og spáð fyrir far-
þegum. - hs
Jól í háloftunum
Bæði áhöfn og farþegar Iceland Express skemmta sér vel yfir þeim nýjungum sem
boðið er upp á í desember. Sigríður Klingenberg hefur af og til mætt í flugin og spáð
fyrir farþegum. MYND/ÚR EINKASAFNI
Coupe de Noël eða jólasund-
keppni var haldin í 71. skipti við
Genfarvatn.
Yfir sex hundruð manns tóku þátt
í jólasundkeppninni Coupe de Noël
í Genfarvatni hinn 14. desember
síðastliðinn. Þetta var í 71. sinn
sem keppt var í sundinu en fyrsta
keppnin fór fram árið 1934. Kepp-
endur eru oft á tíðum skrautlega
til fara og á öllum aldri eða allt frá
þrettán til 82 ára.
Syntir eru 125 metrar í ísköldu
vatninu en meðalhiti þess á þess-
um tíma er í kringum fjórar til
fimm gráður og lofthitinn getur
verið allt frá tíu til mínus tíu gráð-
ur.
Keppnin er skipulögð af helsta
sundfélagi Sviss, Genève Natation
1885. Atburðurinn dregur að
ferðamenn sem heimamenn og
vekur athygli í fjölmiðlum um
allan heim.
Frostbitið
jólabað
Tveir kokhraustir jólasveinar áður en þeir
dýfðu sér ofan í ískalt vatnið.
NORDICPHOTOS/GETTY
Drífa ehf, Suðurhraun 12 C, 210 Garðabær, Sími 555 7400, Fax. 555 7401, icewear@icewear.is, www.icewear.is
REYKJAVÍK:
Islandia, Kringlan, Bankastræti 10
The Víking, Hafnarstræti 3
Handprjónasambandið, Skólavörðustíg 19,
Laugavegi 64
Ull og Gjafavörur, Hótel Sögu
Ísey, Laugavegi 20
Álafoss, Laugavegi 1
UTAN REYKJAVÍKUR:
Blue Lagoon, Svartengi
Geysir Shops, Haukadal
Gullfosskaffi, Gulfoss
Byggðasafnið Skógum
The Viking, Akureyri
Mývatn ehf, Skútustöðum, Mývatn
Tákn Sport og Útivist, Húsavík
El Grillo, Seyðisfjörður,
Álafoss Verksmiðjusala, Álafoss-
vegi 23, Mosfellsbæ
Nóatún, Selfossi
Sigrún
Tæknilegur Soft Shell jakki
Efni: Polar Action Ice-Softshell
444L, 3ja laga
Eiginleikar
auðveldar hreyfingu
brjóstvasar
I-Pod/MP3 spilara með gati
fyrir snúru.
auðvelda alla hreyfingu
Stærðir: XS-XL
Litir:
Verð: 19.400
... við allar aðstæður
hö
nn
un
:
w
w
w
.s
ki
ss
a
.n
e
t
ICEWEAR flíkur fást á eftirtöldum stöðum:
ICE
WEAR
ÍSLENSK HÖ
NN
UN