Fréttablaðið - 18.12.2008, Side 37
Paratabs®
– Öflugur verkjabani!
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
-
9
0
2
5
-
A
c
ta
v
is
7
0
8
0
0
3
Notkunarsvið: Paratabs®-Parasetamól 500 mg er verkjastillandi og hitalækkandi lyf. Paratabs® er
m.a. notað við höfuðverk, tannverk og tíðaverk. Paratabs® er einnig notað við sótthita, t.d. af völdum
inflúensu og umgangspesta. Skömmtun: Fullorðnir og börn eldri en 12 ára (>40 kg) 1–2 töflur á 4–6
klst. fresti, mest 8 töflur á sólarhring eða 4000 mg. Börn, 7–12 ára (25–40 kg), ½–1 tafla á 4–6 klst.
fresti, mest 4 töflur á sólarhring eða 2000 mg. Börn, 3–7 ára (15–25 kg), ½ tafla á 4–6 klst. fresti, mest
4 sinnum á sólarhring eða 1000 mg. Varúðarreglur: Þeir sem hafa ofnæmi fyrir parasetamóli eða
einhverju hjálparefnanna eiga ekki að nota Paratabs®. Gæta skal varúðar hjá sjúklingum með skerta
lifrar- og nýrnastarfsemi. Einstaklingar með áfengisvandamál skulu ekki nota Paratabs® án samráðs
við lækni og alls ekki samhliða neyslu áfengis. Ef teknir eru stærri skammtar en ráðlagðir hámarks-
skammtar á sólarhring er hætt við alvarlegum lifrarskemmdum. Lyfið má ekki nota ef um
lifrarsjúkdóm er að ræða. Meðganga og brjóstagjöf: Engin þekkt áhætta er af notkun parasetamóls
á meðgöngu. Parasetamól skilst út í brjóstamjólk en hættan á áhrifum á barnið er ólíkleg við
ráðlagða skammta. Aukaverkanir: Parasetamól þolist almennt vel, aukaverkanir eru sjaldgæfar ef
ráðlögðum skömmtum er fylgt, helst er að nefna ofnæmi, útbrot og lifrarskemmdir. Lifrarskemmdir
við notkun parasetamóls hafa komið fram í tengslum við misnotkun áfengis, eins getur langvarandi
notkun parasetamóls valdið nýrnaskemmdum. Lesið vandlega leiðbeiningar sem fylgja lyfinu.
Geymið ávallt þar sem börn hvorki ná til né sjá. 15. júní 2007.