Fréttablaðið - 18.12.2008, Síða 37

Fréttablaðið - 18.12.2008, Síða 37
Paratabs® – Öflugur verkjabani! H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA - 9 0 2 5 - A c ta v is 7 0 8 0 0 3 Notkunarsvið: Paratabs®-Parasetamól 500 mg er verkjastillandi og hitalækkandi lyf. Paratabs® er m.a. notað við höfuðverk, tannverk og tíðaverk. Paratabs® er einnig notað við sótthita, t.d. af völdum inflúensu og umgangspesta. Skömmtun: Fullorðnir og börn eldri en 12 ára (>40 kg) 1–2 töflur á 4–6 klst. fresti, mest 8 töflur á sólarhring eða 4000 mg. Börn, 7–12 ára (25–40 kg), ½–1 tafla á 4–6 klst. fresti, mest 4 töflur á sólarhring eða 2000 mg. Börn, 3–7 ára (15–25 kg), ½ tafla á 4–6 klst. fresti, mest 4 sinnum á sólarhring eða 1000 mg. Varúðarreglur: Þeir sem hafa ofnæmi fyrir parasetamóli eða einhverju hjálparefnanna eiga ekki að nota Paratabs®. Gæta skal varúðar hjá sjúklingum með skerta lifrar- og nýrnastarfsemi. Einstaklingar með áfengisvandamál skulu ekki nota Paratabs® án samráðs við lækni og alls ekki samhliða neyslu áfengis. Ef teknir eru stærri skammtar en ráðlagðir hámarks- skammtar á sólarhring er hætt við alvarlegum lifrarskemmdum. Lyfið má ekki nota ef um lifrarsjúkdóm er að ræða. Meðganga og brjóstagjöf: Engin þekkt áhætta er af notkun parasetamóls á meðgöngu. Parasetamól skilst út í brjóstamjólk en hættan á áhrifum á barnið er ólíkleg við ráðlagða skammta. Aukaverkanir: Parasetamól þolist almennt vel, aukaverkanir eru sjaldgæfar ef ráðlögðum skömmtum er fylgt, helst er að nefna ofnæmi, útbrot og lifrarskemmdir. Lifrarskemmdir við notkun parasetamóls hafa komið fram í tengslum við misnotkun áfengis, eins getur langvarandi notkun parasetamóls valdið nýrnaskemmdum. Lesið vandlega leiðbeiningar sem fylgja lyfinu. Geymið ávallt þar sem börn hvorki ná til né sjá. 15. júní 2007.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.