Fréttablaðið - 18.12.2008, Qupperneq 40
18. DESEMBER 2008 FIMMTUDAGUR6 ● fréttablaðið ● veljum íslenskt
Léttir, mjúkir og hlýir eru lýsingarorð sem koma
upp í hugann þegar þessir inniskór eru annars
vegar. Þeir eru gerðir af Klöru Sæland, bónda og
húsfreyju í Þjóðólfshaga III í Rangárvallasýslu.
Hún er með hesta og kindur en milli búverka sinn-
ir hún handverki af áhuga og býr meðal annars
til þessa inniskó. „Skórnir eru úr ullargarni og ég
prjóna þá nokkuð stóra því svo set ég þá í þvotta-
vél og þar þófna þeir í eðlilega stærð,“ segir hún.
Eftir það kveðst hún skreyta þá með útsaum og
perlum.
Spurð um endinguna á skónum svarar Klara því
til að á parketi dugi þeir von úr viti en á steinflísum
slitni þeir meira.
Skórnir fást í handverkshúsinu Heklu á Hellu
þar sem þessi mynd var tekin. Einnig í Vegamót-
um, versluninni sem stendur við Landvegamót, og
heima hjá Klöru í Þjóðólfshaga sem er skammt frá
þeim sömu vegamótum. Verðið er 3.500 krónur. - gun
Á Skólavörðustíg opnaði í
sumar glæsileg verslun sem
ber nafnið Últíma. Þar má
finna íslenska hönnun í bland
við listmuni frá fjarlægum
löndum.
„Ég er hönnuður og sel eigin hönn-
un auk þess sem ég flyt inn listmuni
frá öðrum löndum. Ég vinn að því
að stækka íslenska þáttinn en legg
um leið áherslu á að vinna með og
selja dýrgripi frá þeim löndum þar
sem menning og handverk stendur
á gömlum merg eins og í Tyrklandi
og löndunum þar í kring,“ segir
Ásrún Kristjánsdóttir, eigandi Últ-
ímu á Skólavörðustíg 21 A.
„Um leið og ég vil vinna að því
að byggja upp íslenska gæðahönn-
un og framleiðslu, þá vil ég bjóða
upp á það fínasta sem hægt er að fá
í textíl. Ég er einnig með einstaka
skartgripi sem ég hef valið en það
gildir um allt í Últímu að það er
valið eða hannað af hönnuðum Últ-
ímu. Einungis er til eitt eintak af
hverju,“ segir Ásrún ákveðin, en
skartgripirnir eru úr eðalmálmum
og sumir með fínum steinum.
„Nýjasta framleiðslan er tösk-
ur sem við höfum hannað úr efnum
frá Anatólíu í Mið-Tyrklandi. Ég er í
sambandi við aðila sem safnar göml-
um textílum frá Anatólíu og fékk að
velja úr safni hans efni til að sníða
töskur úr. Þessi efni eru merkileg
fyrir margra hluta sakir. Þetta eru
svokölluð hrein efni sem þýðir að
skepnurnar sem ullin er af fengu
aldrei nein eiturefni í sig, akrarn-
ir sem þær bitu á fengu ekki áburð
og dýrin fengu aldrei pensillín eða
stera. Efnin eru auk þess jurtalit-
uð og ofin í heimahúsum,“ útskýrir
Ásrún og bætir við: „Hér á landi er
ekki hægt að fá eldgamla gæðatext-
íla til að vinna með, þeir eru allir
á minjasöfnum eins og eðlilegt er.
Þessi efni eru svo falleg að ég hugsa
mér að þegar menn eru ekki að nota
töskurnar þá hangi þær uppi á vegg
eins og hvert annað listaverk.“
Ásrún bendir á að mynsturheim-
ur norrænna manna komi víða að og
þá ekki síst frá Konstantín ópel. „Þar
var menningin á háu stigi og þang-
að sigldu víkingar á þeim tímum
er Ísland byggðist,“ segir hún og
nefnir að í Últímu sé hún til dæmis
með eins konar aska frá Afganistan
sem minna um margt á þá íslensku.
„Þessi tréílát voru notuð undir
ýmiss konar þurrmat og eru unnin í
hnotu, útskorin og máluð.“
Ásrúnu er mikið í mun
að þegar rætt er um ís-
lenska hönnun megi ekki
lokast inni í þröngu hólfi.
„Íslensk hönnun er ekki
bara hrútspungar og lopa-
peysur. Í raun hefur hún
ekki náð neinum hæðum enn
sem komið er og höfum við því allt
að vinna. Æ stærri hópur velur að
mennta sig á þessu sviði og erum
við smám saman farin að sjá gæða-
hönnun sem stenst samanburð við
það besta í heiminum en það er hið
eina sanna viðmið. Ef við viljum ná
árangri þá verðum við að hugsa út
fyrir kassann og jafnvel gleyma því
sem er dæmigert íslenskt og horfa
frá öðru sjónarhorni,“ segir hún
og nefnir að mikilvægt sé að velta
fyrir sér hvað umheimurinn vill.
- hs
Náttúrulegt og einstakt
Hálsmenin eru að sögn Ásrúnar úr 300
ára gömlum glerperlum frá Afganistan
og voru þær notaðar sem mynt áður en
byrjað var að slá peninga.
Í Últímu eru
listmunir frá
fjarlægum löndum
og íslensk hönnun.
Nýjasta framleiðsl-
an eru töskur úr
efnum frá Anatólíu.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Nælan er með mánasteini og er þetta íslenskur
bókahnútur. Einnig eru til gullnælur með stjörnu-
safír. Hér gefur einnig að líta handofinn silkiklút.
Armbandið er úr 56 hreyfanlegum
kubbum og er það hönnun Ásrúnar.
Léttur og hlýr fótabúnaður
Þæfðir ullarskór með útsaumi og perlum. FRÉTTABLAÐIÐ/GUN
Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra (SLF)
nýtur í ár liðsinnis þeirra Katrínar
Ólínu Pétursdóttur vöruhönnuðar og
Hallgríms Helgasonar rithöfundar
við hönnun jólaóróans Grýlu.
Þetta er þriðji jólaóróinn sem
SLF lætur hanna og selur til að-
stoðar starfi sínu.
Katrín Ólína hannar stálið en
Hallgrímur sér um orðin. Hann
samdi kvæði um Grýlu í fjórtán
erindum. Gáfu þau bæði vinnu sína.
Markmiðið með gerð og sölu Grýlu
er að auðga líf fatlaðra barna og ungmenna. Allur
ágóði rennur til Æfingastöðvar Styrktarfélags lam-
aðra og fatlaðra en á hverju ári koma um 1.200 ein-
staklingar til þjálfunar eða æfinga í Æfingastöð SLF
að Háaleitisbraut. Í Hafnarfirði sækja að jafnaði 25
börn þjálfun og í Reykjadal koma um 200 börn ár-
lega til dvalar.
Jólaóróinn Grýla fæst í Casa og Epal og rennur
allur ágóði til Styrktarfélagsins. Óróinn er seldur á
tímabilinu 5. til 19. desember. - hs.
Grýla kætir krakkana
Katrín Ólína Pétursdóttir og Hallgrímur Helgason ljá Styrktarfélagi lamaðra
og fatlaðra krafta sín við gerð jólaóróans Grýlu þetta árið.
Hér sést
vanga-
svipur
Grýlu en
einnig má
sjá sjálfan
himininn
með
tungli og
stjörnum.
MYND/SLF