Fréttablaðið - 18.12.2008, Side 42

Fréttablaðið - 18.12.2008, Side 42
 18. DESEMBER 2008 FIMMTUDAGUR8 ● fréttablaðið ● veljum íslenskt Eiturgedda, skoffín, urðarköttur, hafgúa, skötumóðir og öfuguggi eru aðeins fáar af þeim furðuskepnum sem Ísland hefur að geyma. Frá þeim er sagt í myndum og texta í bókinni Íslenskar kynjaskepnur eftir Jón Baldur Hlíðberg og Sigurð Ægisson. „Þessi hugmynd fæddist hjá mér fyrir mörgum árum, þegar ég starfaði sem leið- sögumaður,“ segir Jón Baldur Hlíðberg sem teiknaði furðuskepnurnar í bókinni Ís- lenkar kynjaskepnur. „Ég áttaði mig allt í einu á því að þjóðsögurnar voru allt að því ónothæfar óbreyttar og slysaðist til að segja sögurnar í nútíð,“ segir Jón Baldur og frásagnarmátinn vakti mikla lukku. „Mér datt í hug að prófa nýja nálgun á þjóðsög- urnar til að reyna að láta þær lifna við aftur því fólk á mínum aldri er hætt að þekkja nokkurn skapaðan hlut af þessum fyrirbær- um og þær voru að deyja drottni sínum.“ Jón Baldur fékk síðan Sigurð Ægisson þjóðfræðing til liðs við sig. „Hann er mjög vel að sér í þessum efnum og var hans að- koma mjög mikilvæg enda stór hluti af því að gera óljósa hugmynd að veruleika.“ Sigurður safnaði heimildum víða og komst í mikið af merkilegu óbirtu efni á Þjóðskjalasafninu. Voru það segulbands- upptökur sem voru teknar á elliheimilum og víðar fyrir mörgum árum þar sem fólk, sem nú er gengið, sagði sínar útgáfur af þjóðsögunum. „Þessu moðuðum við saman og svo valdi ég alla þá kafla sem höfðu eitthvað með lýsingu dýrsins að gera. Ég setti það í eitt skjal sem ég las yfir nokkrum sinn- um og teiknaði síðan þá mynd sem birtist mér,“ segir Jón Baldur sem tók þann pól- inn í hæðina að gera dýrin lífvænleg, ekki yfirnáttúruleg. „Mig langaði að hafa þetta nokkurn veginn eins og platnáttúrufræði og dýrið varð því að geta verið hluti í lifandi náttúru,“ segir Jón Baldur og bætir við að Sigurði hafi því verið nokkur vandi á hönd- um sem þjóðfræðingur sem verður að um- gangast sína fræðigrein af virðingu. „Við ákváðum því að vera með hálfgerða tví- skiptingu. Textinn hans stendur styrkum fótum í þjóðfræðinni en ég gaf sjálfum mér skáldaleyfi í myndum og myndatextum.“ En trúir hann á kynjaskepnur? „Við þurf- um ekkert á trúa á þetta til að hafa gaman af þessu,“ segir Jón Baldur en telur að á bak við margar af sögunum séu rökrænar skýringar. Til dæmis sé hægt að ímynda sér að stór sæ- skjaldbaka eða reiður blöðru- selur geti í augum lítt siglds og ólesins bónda orðið að furðulegri ófreskju. Inntur eftir uppáhaldsdýri segir Jón Baldur mörg þeirra vera skemmtileg. Hins vegar hafi hann þurft að búa til sum þeirra alveg frá grunni. „Til dæmis skötumóð- ur og mér finnst hún skemmti- legust, svo er ég líka hrif- inn af skuggabaldri, en það er kannski af því ég heiti Jón Baldur,“ segir teiknarinn og hlær. „Þetta er skemmtilegur partur af menn- ingunni og því gamla Íslandi sem ég vona að við förum að endurheimta,“ segir Jón Baldur. - sg Skuggabaldur skundar hjá Öfuguggi er baneitraður. Fullorðinn hængur er með afbrigðum kjaftljótur. Samstæðu uggarnir eru framsveigðir og notar fiskurinn þá til að kasta sér örsnöggt að bráðinni úr fylgsni sínu og til að bakka aftur inn í þéttan vatnagróðurinn. Skuggabaldur er þreklegur og dökkur yfirlitum. Hann býr yfir lipurð og flærð kattarins og harðfylgi og slægð tófunnar. Jón Baldur Hlíðberg og Sigurður Ægis- son við myndir af öfugugga. Nokkrar af myndum Jóns Baldurs eru til sýnis í Þjóðmenningar- húsinu. M Y N D /Ú R E IN K A S A F N I Selamóðir er búin til ferðalaga í sjó, vötnum og landi. Á milli stríða grefur hún sig með öflugum hreifunum í leir eða annan mjúkan botn og liggur í dvala. Skötumóðir var í eina tíð lang- þekktasta og ógnvænleg- asta fyrirbærið í sínum geira. Hugmyndin að tarotspilunum sem Inga Rósa Loftsdóttir hannaði og gaf út á síðasta ári vaknaði fyrir rúmum tuttugu árum. „Ég byrjaði að teikna myndirnar á spilin þegar ég var í námi í Hollandi á níunda áratugnum,“ útskýrir Inga Rósa Loftsdóttir listamaður sem hefur ávallt haft mikinn áhuga á tarotspilum og þekkir vel út á hvað þau ganga. Inga Rósa var í myndlistarnámi í Hollandi og lærði einhverja grafík líka. „Þetta var fyrir tíma tölvunn- ar þannig að ég bjó til myndirnar í þeirri stærð sem þær áttu að vera,“ segir hún. Þrátt fyrir að Inga Rósa hafi klárað myndirnar um 1990 leið tals- verður tími áður en spilin voru gefin út. Einhvern tíma ákvað hún að skanna myndirnar sjálf inn í tölvu og skar hvert spil sjálf. Þrátt fyrir að hún seldi nokkra stokka var það því varla fyrir kostnaði. Í fyrra ákvað hún svo að gefa spilin út fyrir al- vöru. „Hjá mér er það nefni- lega þannig að ef ég næ ekki að koma hugmyndunum frá mér liggja þær á mér eins og uppsöfnuð orka.“ Spilin gaf hún síðan út bæði á ís- lensku og ensku. „Það sem er gott við þessi spil, þó ég sjálf segi frá, er að þau eru lík- lega þau einu í heiminum þar sem sama manneskjan myndskreytir og býr til spilin,“ útskýrir Inga Rósa og segir að bæði spákonur og fólk sem hafi aldrei lagt áður telji spilin sín mjög sterk. Á tarotspilunum eru stikkorð sem segja hvað hvert spil þýðir. Þetta auðveldar lestur þeirra þó Inga Rósa taki fram að til að öðlast dýpri skilning sé betra að vera með bók til hliðsjónar. Inga Rósa segir spilin sín seljast ágætlega en áhugann á taroti hjá Íslendingum telur hún ganga í bylgjum. „Núna hlýtur að koma aftur bylgja enda vilja allir vita um framtíð- ina þegar óöryggi ríkir,“ segir hún. Spilin má nálgast í helstu nýaldar- búðum eins og Betra lífi og Gjöfum jarðar, einnig í flestum verslunum Eymundssonar og í nokkrum túr- istabúðum. - sg Inga Rósa spáir í tarotspil og gárinn Villi fylgist með. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Skyggnst inn í framtíðina SKRUDDA Eyjarslóð 9 - 101 Reykjavík s. 552 8866 - skrudda@skrudda.is www.skrudda.is NÝJAR BÆ KUR GAMALT V ERÐ! SÖGUR ÍSLENSKRA KVENNA Opinskáar og einlægar frásagnir átján kvenna þar sem þær segja frá örlagaríkum atburðum úr lífi sínu. Áleitin og áhrifamikil bók þar sem dregnar eru upp sterkar og oft átakanlegar myndir úr lífi íslenskra kvenna. Ógleymanleg bók. EINSTÖK ÆVISAGA SKÁLDS Berorð og krassandi ævisaga Dags Sigurðarsonar, eins umdeildasta listamanns Íslendinga á 20. öld. Dagur var lengstum utan garðs. Kjaftfor, drykkfelldur alþýðusinni og bóhem. Mögnuð ævisaga um mann sem svo sannarlega batt bagga sína öðrum hnútum en flestir aðrir.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.