Fréttablaðið - 18.12.2008, Page 47
FIMMTUDAGUR 18. desember 2008 7
„Það er árviss viðburður hjá okkur
að 8. bekkur skólans taki að sér að
setja upp helgileikinn,“ segir
Dagný Annasdóttir, skólastjóri
Öskjuhlíðarskóla. Tvær sýningar
verða á Helgileiknum, í dag og á
morgun klukkan 11.30. Hópurinn
hóf æfingar strax í nóvember og
segir Dagný mikið lagt upp úr því
að hver nemandi fái hlutverk í
sýningunni.
„Öskjuhlíðarskóli er skóli fyrir
fötluð börn og allir fá hlutverk við
sitt hæfi, einn vitringanna verður
til dæmis í hjólastól sem er nú
ekki algengt að sjá í uppsetningu
jólaguðspjallsins.“ Í leikritinu eru
samþættar þær námsgreinar sem
kenndar eru innan skólans svo
sem tjáning, lestur og samskipta-
leg færni eins og að vinna saman í
hópi. Dagný segir æfingar hafa
gengið vel en mikið fyrirtæki sé
að setja upp leikrit.
„Þetta er ekki eitthvað sem við
hristum fram úr erminni og við
sjáum í þessu verki hvað maðurinn
getur ef hann ætlar sér það. Það er
heilmikið mál að setja upp helgi-
leikinn með eðlilega greindum ein-
staklingum en að setja upp helgi-
leikinn þar sem eru eingöngu fötluð
börn segir okkur og sannar, sér-
staklega á erfiðum tímum eins og í
dag, að allt er hægt ef viljinn og
áræðnin er fyrir hendi.“
Dagný segir mikla vinnu hvíla á
starfsfólkinu ekki síður en nem-
endunum en svona verkefni reyni
bæði á samvinnu nemenda og þol.
Uppskera erfiðisins sé því alltaf
ánægjuleg.
„Það er dásamlegt að sjá hvernig
þeim fer fram með hverjum degin-
um og hvað það gefur þeim mikið
að sjá það að þarna getur orðið úr
fallegt verk.“
heida@frettabladid.is
Uppskera erfiðisins ljúf
Áttundi bekkur Öskjuhlíðarskóla setur upp helgileik í dag og á morgun. Nemendur hafa unnið hörðum
höndum undanfarnar vikur við æfingar og bjóða foreldrum að sjá afrakstur erfiðisins í dag.
Æfingar hófust í nóvember hjá áttunda bekk Öskjuhlíðarskóla en hefð hefur skapast fyrir því að áttundi bekkur setji upp helgi-
leikinn á aðventunni. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM