Fréttablaðið - 18.12.2008, Qupperneq 54
30 18. desember 2008 FIMMTUDAGUR
timamot@frettabladid.is
Hjartkær eiginmaður minn, faðir, tengda-
faðir og afi,
Svanur Geirdal
fyrrverandi yfirlögregluþjónn á Akranesi,
Fjarðargötu 19, Hafnarfirði,
lést föstudaginn 12. desember. Útförin fer fram frá
Akraneskirkju föstudaginn 19. desember kl. 14.00.
Una Guðmundsdóttir
Linda Björk Svansdóttir
Hrafnhildur Svansdóttir Guðmundur Rúnar Skúlason
Guðmundur Rafn Svansson Guðrún Adolfsdóttir
Arnar Svansson Jenný Þórkatla Magnúsdóttir
Halla Svansdóttir Jóhannes Þór Harðarson
og barnabörn.
Elskulegur sonur okkar, bróðir,
mágur og frændi,
Oddur Jónsson
Sunnuhlíð 19b, Akureyri,
sem lést á heimili sínu hinn 10. desember, verður jarð-
sunginn frá Akureyrarkirkju föstudaginn 19. desember
kl. 13.30. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir.
Ólöf Oddsdóttir Jón Laxdal Jónsson
Stefán M. Jónsson Halla Sif Svavarsdóttir
Elín J. Jónsdóttir Anton Helgason
Kolbrún Ósk Jónsdóttir
Jón Már Jónsson Anna Þóra Árnadóttir
Elma Berglind Stefánsdóttir, Lóa Júlía Antonsdóttir,
Daníel Örn Antonsson, Sigurður Vilmundur Jónsson
og Halldóra Auður Jónsdóttir.
Ástkær bróðir okkar,
Hallgrímur Kjartansson
Glúmsstöðum 2, Fljótsdal,
andaðist 12. desember. Hann verður jarðsunginn frá
Valþjófsstaðarkirkju laugardaginn 20. desember kl.
14.00.
Systkini hins látna.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Adolf Óskarsson
pípulagningameistari, Hrafnistu,
Hafnarfirði,
andaðist á gjörgæsludeild Landspítalans í Fossvogi
mánudaginn 15. desember. Útförin auglýst síðar.
Ásta Vigfúsdóttir
Hörður Adolfsson Nanna M. Guðmundsdóttir
Erla Adolfsdóttir Jóhann Pétur Andersen
Hilmar Adolfsson Ólöf S. Sigurðardóttir
Adolf Adolfsson Júlía Henningsdóttir
barnabörn og langafabörn.
Björg Ólafía
Aðalsteinsdóttir Savage
frá Hvallátrum á Breiðafirði,
búsett í Vancouver í Kanada,
lést föstudaginn 12. desember sl.
Systkini og aðrir aðstandendur hinnar látnu.
Elskuleg móðir mín,
tengdamóðir og amma,
Anna Tryggvadóttir
Hamraborg 32, Kópavogi,
lést á Hrafnistu, Vífilsstöðum mánudaginn
15. desember. Útförin fer fram frá Kópavogskirkju
mánudaginn 29. desember kl. 13.00.
Tryggvi M. Þórðarson Selma Þórðardóttir
Agnes Þöll Tryggvadóttir Hjalti Lýðsson
Þórður M. Tryggvason
Egill Andri Tryggvason
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi, langafi, sonur og bróðir,
Wolfgang Stross
andaðist mánudaginn 15. desember á hjartadeild
Landspítalans við Hringbraut. Hann verður jarðsung-
inn í sálumessu í Kristskirkju, Landakoti mánudag-
inn 22. desember kl. 13.00. Blóm og kransar afþakkað-
ir, en þeim sem vildu minnast hans er bent á líknarsjóð
Lionsklúbbsins Fjölnis (reikningur 0111-15-374193, kt.
570177 0529) eða aðrar líknarstofnanir.
Ásdís Stross Þorsteinsdóttir
Sigríður Roloff, Þorsteinn, Rósa og Stella,
Þórdís Stross, Þorsteinn Þorsteinsson, Úlfhildur og Þórður,
Karen Stross, Hafsteinn Ólafsson, Marteinn
Ásdís Hafsteinsdóttir, Stian Ringsröd og Elias
Bryndís Gauteplass, Richard Gauteplass
Ruth Brandi-Stross, Sigrid Stross, Helga Eshelby
og fjölskyldur.
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóð-
ir, amma og langamma,
Ásta Hansdóttir
frá Hömrum, Reykholtsdal,
lést á nýrnadeild Landspítalans aðfaranótt laug-
ardagsins 13. desember. Útför hennar fer fram frá
Reykholtskirkju laugardaginn 20. desember kl. 14.00.
Þorsteinn Pétursson
Pétur Þorsteinsson
Ágúst Þorsteinsson Anna Þ. Halldórsdóttir
Kári Þorsteinsson
Guðbjörg Þorsteinsdóttir
Jakob Þorsteinsson Íris Árnadóttir
Skúli Þorsteinsson Lilja Þrastardóttir
Sigrún A. Þorsteinsdóttir Helgi Þór Jóhannsson
barnabörn og barnabarnabarn.
„Ég er ekki í stuði fyrir stórveisluna
fyrr en ég hef lokið því verki sem ég hef
barist við að ljúka síðastliðin ár. Þá hefur
maður unnið sér inn fyrir veislu,“ segir
Erlendur Sveinsson, kvikmyndagerðar-
maður, sem er sextugur í dag. Verkið
sem um ræðir er kvikmynd sem heit-
ir Draumurinn um veginn og fjallar um
Thor Vilhjálmsson rithöfund.
„Þetta er yfirgripsmikil mynd um
Thor og draum hans um að ganga til hei-
lags Jakobs. Myndin lýsir göngu hans
á Jakobsveginum og inn í það flétt-
ast fortíðin með vissum hætti,“ útskýr-
ir Erlendur íbygginn. „Fólk gengur 800
kílómetra leið eftir endilöngum Norð-
ur-Spáni og Thor var rétt við áttræðis-
aldurinn þegar hann lét drauminn ræt-
ast, fjörutíu árum eftir að hann byrjaði
að hugsa um hann.“
Erlendur segir það magnað af Thor að
hrinda slíkum áformum í framkvæmd.
„Sýnir það okkur að aldrei er of seint að
gera ákveðna hluti þó svo mér finnist of
snemmt að halda stóra afmælisveislu,“
segir hann kíminn. „Hins vegar ætla ég
að njóta dagsins í nærsamfélaginu og
baka vöfflur fyrir félaga mína á Kvik-
myndasafninu. Svo vill nú svo skemmti-
lega til að við hjónin erum búin að taka
að okkur að passa barnabörnin þrjú þetta
kvöld og er það nú langsamlega besta af-
mælisgjöfin,“ segir Erlendur og nefn-
ir að þegar horft er á barnabörnin leiti
hugurinn aftur til hinnar horfnu parad-
ísar sem barnæskan er, þegar tilveran
var ekki svona flókin. „Við erum líkleg-
ast öll rekin úr paradís og svo sér maður
það í sérstöku ljósi þegar árin færast
yfir og þakkar fyrir góða heilsu.“
Erlendur segist þó lítið vilja hugsa um
árin þegar stór verklok liggja fyrir. „Þá
vill maður ekkert vita af svona tímamót-
um sem sett eru á mann heldur ná frekar
einhverjum markmiðum,“ segir Erlend-
ur en bætir við: „Afmæli eru samt ágæt-
is áminning um að halda sér við efnið.“
Kvikmyndagerð á Íslandi getur þó
verið hark og vinnur Erlendur fyrir
sér í Kvikmyndasafni Íslands en hann
var fyrsti forstöðumaður þess og hefur
unnið þar brautryðjendastarf. „Ég var
þar fyrstu sex árin og kom því af stað.
Svo kom ég aftur til safnsins þegar fór
að harðna á dalnum í kvikmyndagerð-
inni enda er margt sem mig langar að
gera fyrir safnið,“ segir Erlendur en
hann er líka með listasafn í takinu.
„Um þessar mundir eru tvær sýning-
ar Sveinssafns í gangi í Hafnarborg sem
lýkur 4. janúar og þá er nú kannski tilefni
til að kalla saman nánustu fjölskyldu-
meðlimi,“ segir Erlendur, sem er sonur
myndlistarmannsins Sveins Björnsson-
ar. Hann gerði leikna heimildarmynd um
föður sinn, Málarinn og sálmurinn hans
um litinn. Kynntust feðgarnir þar starfi
hvors annars.
Erlendur hefur gert margar heimild-
armyndir og segist vera sögumaður. „Ég
hef gaman af sögunni og hef nú þegar
gert útgerðar- og sjávarútvegssögunni
skil en hef áhuga á því formi sem liggur á
milli leikinna mynda og heimildamynda.
Mín bíður mynd í því formi um Matthí-
as Johannessen sem lokið var tökum á
árið 2001,“ segir Erlendur áhugasamur
og ljóst er að ýmis verkefni eru á dag-
skránni hjá afmælisbarninu.
hrefna@frettabladid.is
ERLENDUR SVEINSSON KVIKMYNDAGERÐARMAÐUR: ER SEXTUGUR Í DAG
Er mikill sögumaður í mér
Gos hófst í Grímsvötnum klukkan
9.20 á þessum degi fyrir tíu árum og
var það í fyrsta skipti sem vísinda-
menn gátu fylgst með eldgosi undir
stórum jökli.
Grímsvötn eru virk eldstöð undir
Vatnajökli austur af Grímsfjalli og eru
vötnin ein virkasta eldstöð landsins.
Líklegt er að gosið hafi oftar en
hundrað sinnum á sögulegum tíma
og þar af þrettán sinnum síðan 1902.
Eldstöðin er um hundrað kíló-
metra löng og fimmtán kílómetrar að
breidd.
Annað gos varð upp úr klukkan 22
hinn 1. nóvember árið 2004 en þá
greindust merki um eldgos upp úr
klukkan 20.
ÞETTA GERÐIST: 18. DESEMBER 1998
Gos hefst í GrímsvötnumKATIE HOLMES LEIKKONA ER ÞRÍTUG Í DAG.
„Ég er mjög óskipulögð
manneskja. Ég veit hvar allt
er en get bara ekki skipu-
lagt mig.“
Katie Holmes er þekkt fyrir
að vera leikkona og eigin-
kona Tom Cruise. Dóttir þeirra
Suri nýtur álíka heimsfrægð-
ar þrátt fyrir að vera einungis
á þriðja ári.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
VINNUR AÐ VERKLOKUM
Erlendur segir stóru afmælis-
veisluna verða að bíða betri
tíma eða þar til hann hefur
lokið mynd sinni um Thor
Vilhjálmsson.