Fréttablaðið - 18.12.2008, Side 71
FIMMTUDAGUR 18. desember 2008
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Fimmtudagur 18. desember 2008
➜ Uppákomur
11.00 Jólasveinarnir koma við á Þjóð-
minjasafninu við Suðurgötu, alla daga
fram að jólum. Í dag kemur Hurðaskell-
ir til byggða. Aðgangur ókeypis.
12.34 Lifandi jóladagatal í Norræna
húsinu við Sturlugötu. Í dag verður
átjandi glugginn opnaður. Í gær var Kira
Kira í glugganum. Hver skyldi vera þar
í dag?
➜ Tónleikar
20.00 Megas og Senuþjófarnir verða
með tónleika í Salnum, Hamraborg 6 í
Kópavogi.
20.00 Tónlistarmenn
tengdir Suðurnesjum
koma fram á jólatónleikum
í Lava Sal Blá Lónsins í
Grindavík. Tónleikarnir eru
til styrktar Velferðarsjóði
Suðurnesja. Fram koma
fjöldi listamanna, þ.á.m.
Elíza Geirsdóttir Newman, Jóhann
Helgason, Karlakór Keflavíkur og
Védís Hervör.
20.00 Bang Gang verða með tónleika
á Nasa við Austurvöll. Húsið opnar kl.
20.
21.00 Bloodgroup verða með tónleika
á Kaffibarnum við Bergstaðastræti.
21.00 Grunge hljómsveitin Bad Car-
buretor spilar á Bar 11, Laugavegi 22.
Húsið opnar kl. 20.
22.00 Bít Box á Glaumbar við Tryggva-
götu. Hljómsveitin Jólakettir spila jólalög
í djass- og funkútsetningum.
23.00 Á Dillon Rokkbar við
Laugaveg spila hljómsveit-
irnar Hor, Orion, The Penn,
Slugs og Kid Twist.
00.00 Á Dillon
Sportbar við
Trönuhraun í
Hafnarfirði
spilar hljóm-
sveitin Esja.
Húsið opnar
kl. 23.
➜ Sýningar
Gallery Turpentine hefur flutt starf-
semi sína að Skólavörðustíg 14, 2. hæð
(gegnt SPRON). Þar hefur árleg jólasýn-
ing gallerísins verið opnuð. Opnunartími
fram að jólum kl. 10-22, á Þorláksmessu
kl. 10-23 og á aðfangadag 10-12.
Í tilefni af 10 ára afmæli Stofnunar
Vilhjálms Stefánssonar hefur verið
sett upp sýning á myndum úr ferðum
Vilhjálms á norðurslóðir Kananda auk
brota úr dagbókarfærslum hans og
fleira. Opið virka daga frá kl. 07.30-17.15.
Stofnun Vilhjálms Stefánssonar, Borgum
við Norðurslóð, Akureyri.
➜ Myndlist
Kolbrá Braga hefur opnað sýningu í
Listasal Iðu við Lækjargötu, 2. hæð. Sýn-
ingin er opin alla daga frá kl. 10-22.
Jóna Bergdal Jakobsdóttir hefur opnað
sýningu í Café Karólínu við Kaupvangs-
stræti á Akureyri. Sýningin er opin alla
daga frá kl. 14-01.
Þorsteinn Davíðsson sýnir teikningar og
myndir á striga á Mokka við Skólavörðu-
stíg. Opið alla daga kl. 9-18.30.
➜ Tónlist
12.15 Sólveig Samúelsdóttir, mezzo-
sópran, Sigurbjörn Bernharðsson fiðlu-
leikari, Svava Bernharðsdóttir víólu-
leikari og Nína Margrét Grímsdóttir
píanóleikari flytja tónlist eftir Johannes
Brahms. Menningarmiðstöðin Gerðu-
berg, Gerðubergi 3-5.
20.00 Fjórir tenórar í
Íslensku óperunni við
Ingólfsstræti. Snorri
Wium, Jóhann Friðgeir
Valdimarsson, Garðar
Thór Cortes og Gissur
Páll Gissurarson flytja
nokkrar af vinsælustu
tenóraríum óperu-
bókmenntanna, söng-
leikjatónlist og hátíðleg
jólalög.
20.00 Anna Jónsdóttir sópran og
Sophie Schoonjans hörpuleikari verða
með aðventu- og jólatónleika í Bessa-
staðakirkju á Álftanesi.
➜ Markaðir
Nytjamarkaður til styrktar ABC barna-
hjálp er í Faxafeni 8. Opið virka daga frá
kl. 11-18 og laugardaga frá kl. 11-16.
➜ Síðustu forvöð
Á sunnudag lýkur sýningu hollensku
myndlistarkonunnar Mathilde ter Heijne
í sýningarrýminu 101 Projects, Hvefis-
götu 18a.
17. 30 Kimi Records og fatabúðin
Vintage standa fyrir tónleikum í versl-
uninni að Laugavegi 25 alla daga fram
að jólum.
Upplýsingar um viðburði sendist á
hvar@frettabladid.is
Breska blaðið Daily Telegraph
greindi frá því í gær að breski
leikstjórinn Guy Ritchie hefði
þrýst á Madonnu að draga tilbaka
yfirlýsingu sína um fjárhagslega
skilmála skilnaðar þeirra. Mun
Guy hafa verið ósáttur við þær
fjárhæðir sem þar voru nefndar
en honum fannst þær of háar auk
þess sem yfirlýsingin væri
villandi.
Madonna sendi frá sér yfirlýs-
ingu í kjölfar þess að fyrrum
hjónakornin náðu samkomulagi
um skilnaðinn. Þar kom fram að
Guy hefði fengið allt að 92
milljónir dollara eða ellefu
milljarða íslenskra króna við
skilnaðinn. Þetta var ekki á
rökum reist að mati Guy og fór
hann því fram á að þetta yrði
dregið til baka á þeim forsendum
að upplýsingarnar gæfu ranga
mynd af skilnaðinum. Jafnframt
hélt Guy því fram að aðstoðar-
menn söngkonunnar hefðu brotið
trúnað við sig og var því heldur
súr yfir þeim vinnubrögðum.
Guy og Madonna sendu síðan
frá sér sameiginlega yfirlýsingu
þar sem fyrri yfirlýsingin var
hörmuð. Þar kom jafnframt fram
að þær upphæðir sem þar voru
nefndar væru rangar.
Guy þrýsti
á Madonnu
FÉKK EKKI SVONA MIKIÐ Guy Ritchie
vísar því á bug að hann hafi fengið
ellefu milljarða frá Madonnu, upphæðin
sé mun lægri.
3
0
6
3
_
T
A
K
T
IK
/
1
2
.1
2
.0
8
P
IP
A
R
•
S
ÍA
•
8
2
7
1
0