Fréttablaðið - 18.12.2008, Blaðsíða 72
48 18. desember 2008 FIMMTUDAGUR
KLUKKAN TIFAR.
ÞEGAR HÚN
STÖÐVAST
ER TÍMA OKKAR
Á JÖRÐINNI
LOKIÐ!
HEIMSFRUMSÝNING!
EKKERT GETUR UNDIRBÚIÐ
ÞIG FYRIR
NÝTT Í BÍÓ!
SÍMI 462 3500
SÍMI 564 0000
12
12
7
16
L
12
THE DAY THE EARTH... kl. 6 - 8 - 10
FOUR CHRISTMASES kl. 10
QUANTUM OF SOLACE kl. 6
12
7
12
THE DAY THE EARTH... D kl. 5.40 - 8 - 10.20
THE DAY THE EARTH... LÚXUS D kl. 5.40
FOUR CHRISTMASES kl. 4 - 6 - 8 - 10
ZACK & MIRI MAKE A PORNO kl. 5.45 - 8 - 10.15
IGOR kl.3.45
QUANTUM OF SOLACE kl. 5.30 - 8 - 10.30
5%
FÆRÐ 5% ENDURGREITT EF ÞÚ BORGAR
BÍÓMIÐANN MEÐ KREDITKORTI
50 KR. AFSLÁTTUR EF ÞÚ
KAUPIR BÍÓMIÐANN Á
12
7
16
12
14
THE DAY THE EARTH... kl. 5.40 - 8 - 10.20
FOUR CHRISTMASES kl. 6 - 8 - 10
APPALOOSA kl. 8 - 10.30
QUANTUM OF SOLACE kl. 5.30 - 8 -10.30
REYKJAVÍK-ROTTERDAM kl. 5.40
5%
5%
SÍMI 530 1919
SÍMI 551 9000
12
16
16
12
THE DAY THE EARTH... kl. 5.40 - 8 - 10.20
SAW 5 kl. 6 - 8 - 10
ZACK & MIRI MAKE A PORNO kl. 5.50 - 8 - 10.10
QUANTUM OF SOLACE kl. 5.30 - 8 - 10.20
500kr.
500 kr.
AÐEINS
EMPIRE
ÞÚ MUNT ALDREI TRÚA ÞVÍ
HVERNIG ÞETTA ENDAR!
★★★★
EMPIRE
FRÁBÆR ÆVINTÝRAMYND
KLUKKAN TIFAR OG ÞEGAR HÚN STÖÐVAST
ER TÍMA OKKAR Á JÖRÐINNI LOKIÐ!
jólamyndir SAMbíóanna verða FORSÝNDAR um helgina
SELFOSS
AKUREYRI
KEFLAVÍK
KRINGLUNNI
THE DAY THE EARTH STOOD kl. 6D - 8D - 10:20D 12
CITY OF EMBER kl. 5:50 - 8 - 10:10 7
TWILIGHT kl. 5:30 - 8 - 10:30 12
MADAGASCAR 2 m/ísl. tali kl. 6 L
MADAGASCAR 2 m/Ensku tali kl. 8 - 10:20 L
BODY OF LIES kl. 8 - 10:30 16
BODY OF LIES kl. 5:30 - 8 - 10:30 VIP
HIGH SCHOOL MUSICAL 3 kl. 5:50 síð sýn. L
TWILIGHT kl. 6 - 8 - 10:30 12
CITY OF EMBER kl. 6 - 8 - 10:30 7
MADAGASCAR 2 m/ísl. tali kl. 6 L
MADAGASCAR 2 m/Ensku tali kl. 8:30 L
W kl. 10:10 12
FERÐIN TIL TUNGLSINS 3D sýnd á lau. og sun. L
DIGITAL
DIGITAL
DIGITAL
DAY THE EARTH... kl. 8 - 10:10 12
NIGHTS IN RODANTHE kl. 8 L
NICK AND NORAH’S... kl. 10 L
CITY OF EMBER kl. 8 - 10:20 7
TWILIGHT kl. 8 - 10:20 12
MADAGASKAR 2 m/ísl. tali kl. 6 L
MADAGASKAR 2 m/Ensku tali kl. 6
TWILIGHT kl. 8 12
PRIDE AND GLORY kl. 10:20 16
TRAITOR kl. 8 12
BODY OF LIES kl. 10:20 16
ÁLFABAKKA
NÝTT Í BÍÓ - bara lúxus
Sími: 553 2075
SAW 5 kl. 8 og 10 16
FOUR CHRISTMASES kl. 6, 8 og 10 7
MADAGASCAR 2 kl. 6 L
ZACH AND MIRI MAKE A PORNO kl. 6 og 8 16
PRIDE AND GLORY kl. 10 16
S.V – MBL.
LEIKURINN
HELDUR
ÁFRAM...
Mosfellingurinn Ólafur Arnalds
heldur tónleika í Fríkirkjunni í
kvöld. Hann er nýkominn úr
hálfs árs tónleikaferðalagi um
heiminn þar sem hann fylgdi eftir
sinni fyrstu plötu, Eulogy for
Evolution. Platan, sem hefur feng-
ið mjög góða dóma, hefur selst í
yfir tíu þúsund eintökum og hefur
Ólafur fyllt tónleikahallir í yfir
tuttugu löndum, þar á meðal
Barbican Hall í London.
„Ég hlakka ótrúlega til enda
spila ég sjaldan á Íslandi,“ segir
hann um tónleikana í kvöld. „Við
erum búnir að selja vel af miðum
og höfum lagt mikið í undirbún-
ing. Ég held að þetta verði
gaman.“
Hann segir að tónleikaferðin
um heiminn hafi gengið ótrúlega
vel. „Ég er búinn að fara út um
allt. Þetta gekk ekkert áfallalaust
fyrir sig og ég bjóst kannski ekki
við því. En ég gat séð frá byrjun til
enda hvernig áhorfendahópurinn
stækkaði smám saman.“
Ólafur hefur áður leikið í kirkj-
um á ferðalögum sínum og segir
þær uppáhaldstónleikastaði sína
ásamt leikhúsum. „Hljómburður-
inn er yfirleitt fallegur og hann
gerir mikið fyrir stemninguna.
Þar er líka gott andrúmsloft ef
þetta eru flottir staðir. Svona tón-
list gengur mikið út á andrúms-
loftið í salnum,“ segir hann.
Fram undan hjá þessum 22 ára
tónlistarmanni eru upptökur á
næstu breiðskífu sem hefjast í
byrjun næsta árs. Að auki hefur
hann rift samningi við útgáfufyr-
irtæki sitt í Bretlandi og er í við-
ræðum við stærri útgáfufyrirtæki
um nýjan samning.
Tónleikarnir í kvöld hefjast
klukkan 20 og sérstakur gestur
verður Ólöf Arnalds, frænka
Ólafs. Miðaverð er 1.000 krónur.
- fb
Andrúmsloftið skiptir máli
ÓLAFUR ARNALDS Ólafur heldur
tónleika í Fríkirkjunni í kvöld. Sérstakur
gestur verður Ólöf Arnalds.
FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
Tónlistarmaðurinn Herbert
Guðmundsson hefur troð-
ið upp með sonum sínum
tveimur að undanförnu og
er afar ánægður með félags-
skapinn.
„Ég var farinn að örvænta og hélt
að börnin mín væru ekki með
tónlistargenið,“ segir Herbert
Guðmundsson um syni sína Svan
og Guðmund sem hafa spilað með
honum að undanförnu.
Herbert á sjö börn með tveim-
ur konum og segist vera ríkur
maður. Svanur og Guðmundur,
sem eru einnig í hljómsveitinni
Swive, eru hans yngstu börn og
þakkar Herbert æðri máttarvöld-
um fyrir tónlistaráhuga þeirra.
Hinn átján ára Svanur, spilar á
píanó á nýjustu plötu Herberts,
Spegill sálarinnar, og stendur sig
vel þrátt fyrir ungan aldur.
„Maður á náttúrulega ekki að
vera að segja svona en hann þykir
snillingur strákurinn,“ segir Her-
bert, sem er greinilega afar stolt-
ur faðir. Hinn sextán ára Guð-
mundur þykir einnig efnilegur
trommari og á væntanlega eftir
að láta mikið að sér kveða í fram-
tíðinni.
Spegill sálarinnar er tíunda
sólóplata Herberts og hefur að
geyma popp-rokk með gospel
ívafi, þar á meðal hið vinsæla lag
Day of Freedom. „Þetta er „back
to the basics“. Ég er að fara aftur
til uppruna míns,“ segir Herbert.
Hann hefur haft í nógu að snúast
við kynningu á plötunni sem hann
gefur út sjálfur og hefur selst í á
annað þúsund eintaka. Til að
mynda hefur hann spilað í fjölda
kirkna við góðar undirtektir.
„Prestar hafa hringt í mig og
boðið mér að koma. Það hefur
gengið æðislega vel og ég hef
verið að árita á staðnum.“
Tveir mánuðir eru síðan Her-
bert hætti að selja bækur fyrir
Örn og Örlyg og ákvað að ein-
beita sér að tónlistinni. Sér hann
ekki eftir því enda nóg að gera.
„Ég hef verið að syngja mikið í
afmælum og þá kem ég eins og
sprengja inn í partíið.“
Herbert spilar næst með sonum
sínum í Vetrargarðinum í Smára-
lind í kvöld og einnig verða þeir í
Jólaþorpinu í Hafnarfirði á Þor-
láksmessu.
freyr@frettabladid.is
Með tónlistargen föður síns
TÓNLISTARFEÐGAR Feðgarnir Herbert Guðmundsson, Svanur og Guðmundur hafa spilað saman að undanförnu við góðar undir-
tektir. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Oxford-búinn John J. Soul og
Ingvi Þór Kormáksson hafa skip-
að tónsmíðadúó í fimmtán ár og
skilar sú samvinna sér í tólf fínum
lögum á Bright Lights, fjórðu
breiðskífu JJ Soul band.
Erfitt er að setja tónlist sveit-
arinnar undir einn hatt. Líklega
fer nærri að kalla hana samhrær-
ing af djassi, blús og sálartónlist,
þótt á stundum sé fetað lauflétt
inn á fönkaðri slóðir (til að mynda
í hinu stórskemmtilega lagi Let
Love Find Us) og suðrænni (Jazz
and Tarantella). Þessi bræðingur
er afar vel heppnaður og hápunkt-
arnir á disknum, lög á borð við At
the Mall, I‘ve Been Had Again og
Bright Lights, leika sér á skemmti-
legan hátt að blúsforminu án þess
þó að detta ofan í hina ótalmörgu
klisjupotta sem fylgja geiranum.
Einnig bregður fyrir gullfalleg-
um og ljúfsárum textum og mel-
ódíum og er það sérlega áberandi
í Getting Colder By the Year (sem
minnir meira en lítið á Tom nokkr-
un Waits) og Washed Away.
Fagmennska einkennir hljóð-
blöndun og allan hljóðfæraleik,
sem er hreint og beint til fyrir-
myndar, enda þrautreyndir menn
í hverju rúmi. Svo alger er fag-
mennskan raunar að á stöku stað
væri örlítið meiri hráleiki vel þeg-
inn. Frábær rödd fantasöngvar-
ans JJ gerir slíkar umkvartanir
reyndar nánast óþarfar því hún er
djúp, töff og full af tilfinningu og
rífur þannig fágaðan undirleikinn
upp á æðra plan. Helvíti flott
plata.
Kjartan Guðmundsson
Vel heppnaður blúsbræðingur
TÓNLIST
Bright Lights
JJ Soul Band
★★★★
Fagmennskan í fyrirrúmi á flottri
plötu.