Fréttablaðið - 18.12.2008, Síða 74
50 18. desember 2008 FIMMTUDAGUR
sport@frettabladid.is
Ítalska úrvalsdeildarfélagið Reggina, þar sem landsliðsmaðurinn
Emil Hallfreðsson er á mála, tilkynnti í fyrradag að knatt-
spyrnustjórinn Nevio Orlandi hefði verið vikið úr starfi og
Giuseppe Pillon ráðinn í hans stað en Reggina er sem
stendur í næstneðsta sæti ítölsku úrvalsdeildarinnar.
Brottreksturinn sem slíkur þarf ef til vill ekki að koma
á óvart en staða Emils hjá Reggina er ansi sérstök
því Pillon er fjórði knattspyrnustjóri félagsins síðan
Hafnfirðingurinn gekk í raðir þess fyrir tæpu einu og
hálfu ári.
„Þetta er ekki lengur nýtt fyrir mér að fá nýjan
knattspyrnustjóra og það verður bara að koma
í ljós hvernig þetta verður í þetta skiptið. Það er
allavega ekkert sem kemur mér lengur á óvart í
þessu,“ segir Emil.
Emil hefur leikið sex leiki í deildinni með Regg-
ina á keppnistímabilinu, þar af þrjá leiki í byrjunarliðinu, en
segir ómögulegt að spá fyrir um hvort Pillon muni gefa
honum fleiri tækifæri en forveri hans, Orlandi, hafi gert í
vetur. „Ég hélt að Orlandi myndi fá aðeins meiri tíma með liðið
en það þýðir ekkert að vera að velta sér upp úr þessum málum.
Ég tek þessu bara á rólegum nótum og held bara áfram að
gera mitt besta og sé til hverju það skilar mér. Maður þarf
núna bara að reyna að heilla nýja stjórann, enn og aftur. Ég
mun ræða eitthvað við Pillon á ítölskunni því það þýðir lítið
að bregða enskunni fyrir sig hér,“ segir Emil á léttum nótum.
Reggina heimsækir Cagliari á sunnudaginn en félaginu hefur
gengið afleitlega á útivöllum í deildinni í vetur og aðeins unnið
einn af átta leikjum sínum og tapað hinum sjö með samanlagðri
markatölu 20-2. Eftir leikinn fá leikmennirnir gott jólafrí og Emil
kveðst hlakka til þess að komast heim á Klakann.
„Eftir leikinn gegn Cagliari mæti ég heim til Íslands í jóla-
matinn hjá mömmu. Ég fæ þarna átta daga í frí yfir jólin og
það verður frábært að koma heim og slappa af með vinum
og vandamönnum. Ég fer síðan aftur út til æfinga hjá Reggina í
byrjun janúar.“
EMIL HALLFREÐSSON: LEIKUR NÚ UNDIR STJÓRN FJÓRÐA KNATTSPYRNUSTJÓRANS HJÁ REGGINA Á EINU OG HÁLFU ÁRI
Ekkert sem kemur mér lengur á óvart í þessu
FÓTBOLTI Blackburn gekk í gær
frá ráðningu Sams Allardyce sem
knattspyrnustjóra félagsins en
Paul Ince var sem kunnugt er
rekinn frá Blackburn fyrr í
vikunni. Hinn 54 ára gamli
Allardyce skrifar undir þriggja
ára samning við Blackburn en
Stóri Sam hefur verið án starfs í
tæpt ár eða síðan hann var rekinn
frá Newcastle snemma árs. - óþ
Breytingar hjá Blackburn:
Stóri Sam nýr
stjóri félagsins
HANDBOLTI Eins og fram kom í
Fréttablaðinu í gær hefur Jesper
Nielsen, tilvonandi stjórnarfor-
maður Rhein-Neckar Löwen,
ákveðið að bjóða Ólafi Stefáns-
syni sama samning fyrir tvö ár
hjá Löwen sem hann hefði fengið
fyrir þrjú ár í Danmörku.
Það þýðir mikla launahækkun
hjá Ólafi á mánuði og sjálfur
sagði hann að samningurinn væri
það góður að það væri í raun
vanvirðing að taka honum ekki.
Danskir fjölmiðlar segjast hafa
heimildir fyrir því að Nielsen hafi
ætlað að greiða Ólafi 84 milljónir
króna fyrir þriggja ára samning
við AG handboltaliðið.
Það hefði gert rúmar 2,3
milljónir króna á mánuði.
Styttingin á samningnum hækkar
mánaðarlaun Ólafs heldur betur
eða í raun um 1,2 milljón króna á
mánuði.
Taki hann tilboðinu verður
hann því með 3,5 milljónir króna
á mánuði í stað 2,3 milljóna króna
standist tölur danskra fjölmiðla.
- hbg
Laun Ólafs Stefánssonar:
Hækka um
rúma milljón á
mánuði
ÓLAFUR STEFÁNSSON Frábær leikmaður
sem fær vel greitt fyrir vinnu sína.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
FÓTBOLTI Stabæk tilkynnti í gær að
félagið væri búið að ná samkomu-
lagi við Nancy um kaupverð á
Veigari Páli Gunnarssyni og
aðeins ætti eftir að ganga frá smá-
atriðum varðandi söluna. Fram-
herjinn á svo sjálfur eftir að semja
um kaup og kjör við franska félag-
ið auk þess að ganga í gegnum
læknisskoðun. Þetta var staðfest á
heimasíðu norska félagsins í gær-
dag.
„Búið er að ná samkomulagi við
Nancy um öll meginatriði varð-
andi söluna á Veigari Páli en leik-
maðurinn sjálfur á eftir að semja
við franska félagið og gangast
undir læknisskoðun. Búist er við
því að það taki allt saman fljótt af
og Veigar Páll ætti því að öllu
óbreyttu að vera orðinn löglegur
með Nancy frá og með janúar,“
segir Lars Bohinen, yfirmaður
knattspyrnumála hjá Stabæk, á
opinberri heimasíðu félagsins í
gær.
Veigar Páll hefur verið lykil-
maður hjá Stabæk undanfarin ár
og átti hvað stærstan þátt í sigri
félagsins í norsku úrvalsdeildinni
á nýafstöðnu keppnistímabili en
það var einmitt fyrsti deildartitill-
inn í sögu Stabæk. Veigar Páll
hefur leikið fimm tímabil með
Stabæk og skorað þar 80 mörk í
148 leikjum auk þess að eiga
ógrynni stoðsendinga að mörkum.
Bohinen viðurkennir að vissu-
lega sé sárt að sjá á eftir Veigari
Páli en færir rök fyrir því að
norska félagið hafi ákveðið að
selja framherjann.
„Þetta er vissulega gríðarlegur
missir fyrir Stabæk, það þarf eng-
inn að efast um það, en miðað við
efnahagsástandið í dag þá gátum
við ekki annað en samþykkt kaup-
tilboðið,“ segir Bohinen.
Samkvæmt heimildum norskra
dagblaða hafði Stabæk á dögunum
hafnað kauptilboði frá Nancy upp
á 15 milljónir norskra króna eða
um 258 milljónir íslenskra króna
og nýja kauptilboðið því eðlilega
sagt vera eitthvað hærra en það.
„Ég gæti alveg sagt ykkur
hversu hátt kauptilboðið frá
Nancy var, en ég kýs að gera það
ekki,“ segir Bohinen í viðtali við
Aftenposten. omar@frettabladid.is
Kauptilboð Nancy samþykkt
Stabæk hefur samþykkt nýtt kauptilboð Nancy í Veigar Pál Gunnarsson sem
heldur nú utan til samningaviðræðna og læknisskoðunar hjá franska félaginu.
TIL NANCY Fátt virðist nú geta komið í veg fyrir að Veigar Páll Gunnarsson gangi í
raðir Nancy í frönsku úrvalsdeildinni eftir að Stabæk samþykkti kauptilboð í fram-
herjann í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
> Aron kominn til Kiel
Hafnfirski handboltamaðurinn Aron Pálmarsson er kom-
inn til Kiel í Þýskalandi þar sem hann mun skrifa undir
fjögurra ára samning við Þýskalandsmeistara
Kiel. Aron sá leik Kiel og Göppingen í þýska
bikarnum í gær. Ef allt gengur að óskum mun
Aron skrifa undir samninginn við Kiel í dag eða
á morgun. Aron mun svo einnig fylgjast með
tilvonandi félögum sínum í hörkuslag á
laugardag er Kiel sækir Íslendingaliðið
Flensburg heim í Campushalle.
N1 deild karla
Stjarnan-Haukar 27-31 (11-17)
Mörk Stjörnunnar (skot): Björgvin Hólmgeirsson
6 (13), Kristján Svan Kristjánsson 5 (7), Fannar
Þorbjörnsson 4 (4), Hrafn Ingvarsson 4 (5),
Vilhjálmur Halldórsson 3/2 (9/2), Hermann
Björnsson 2 (7), Guðmundur Guðmundsson
1 (7/1), Jón Heiðar Gunnarsson 1 (1), Daníel
Einarsson 1 (2).
Varin skot: Svavar Ólafsson 15 (44/4) 34%.
Hraðaupphlaup: 7 (Hrafn 2, Björgvin 2, Kristján
2, Daníel). Utan vallar: 4 mín.
Fiskuð víti: 3 (Fannar 2, Hermann).
Mörk Hauka (skot): Einar Örn Jónsson 9/6 (9/6),
Arnar Jón Agnarsson 7 (12), Andri Stefan 6 (10),
Kári Kristjánsson 4 (5), Freyr Brynjarsson 2 (5),
Elías Már Halldórss. 2 (5), Gísli Jón Þóriss. 2 (4).
Varin skot: Birkir Ívar Guðmundsson 22/1 (44/3)
50%, Gísli Guðmundsson 1 (6) 20%.
Hraðaupphlaup: 6 (Elías 2, Arnar 2, Kári, Einar).
Fiskuð víti: 6 (Kári 4, Arnar, Pétur Páls.)
Utan vallar: 4 mín.
Dómarar: Anton Gylfi Pálsson og Jónas Elíasson,
sæmilegir.
Iceland Express kvenna
Haukar-KR 89-62 (46-29)
Stig Hauka: Kristrún Sigurjónsdóttir 29 (7 frák.,
7 stoðs.), Slavica Dimovska 15, (8 stoðs.), Guð
björg Sverrisdóttir 13 (11 frák., 5 stoðs.), Telma
Fjalarsdóttir 12, María Sigurðardóttir 6, Kristín
Reynisdóttir 5, Ragna Margrét Brynjarsdóttir 4,
Sara Pálmadóttir 3, Helena Hólm 2.
Stig KR: Hildur Sigurðardóttir 20, Sigrún Ámunda
dóttir 16 (15 frák., 5 stoðs.), Guðrún Ámunda
dóttir 10, Helga Einarsdóttir 8, Guðrún Gróa
Þorsteinsdóttir 3, Heiðrún Kristmundsdóttir 2,
Sigurbjörg Þorsteinsd. 2, Gréta Guðbrandsd. 1.
Keflavík-Fjölnir 99-50 (53-15)
Stigahæstar: Pálína Gunnlaugsdóttir 23 (10
frák.), Birna I Valgarðsdóttir 18 (5 stoðs.), Ingi
björg Elva Vilbergsdóttir 12 - Birna Eiríksdóttir 14,
Efemia Sigurbjörnsdóttir 9.
Snæfell-Valur 57-70 (24-34)
Stig Snæfells: Berglind Gunnarsdóttir 20 (8 frák.),
Gunnhildur Gunnarsdóttir 16, , Unnur Lára
Ásgeirsd. 11, Sara Sædal Andrésd. 4, Björg Einars
dóttir 3, Helga Björgvinsd. 2, María Björnsdóttir 1.
Stig Vals: Signý Hermannsdóttir 35 (12 frák., 8
stoðs, 8 varin), Þórunn Bjarnadóttir 10, Tinna
Björk Sigmundsdóttir 10, Kristjana Magnúsdóttir
5, Berglind Ingvarsd. 5, Guðrún Baldursdóttir 5.
Hamar-Grindavík 87-84 (33-40, 71-71, 78-78)
Stig Hamars: La Kiste Barkus 32 (6 stoðs.), Julia
Demirer 29 (25 frák.), Hafrún Hálfdánardóttir 16
(10 frák.), Jóhanna Björk Sveinsdóttir 4, Fanney
Lind Guðmundsdóttir 4, Íris Ásgeirsdóttir 2.
Stig Grindavíkur: Ingibjörg Jakobsdóttir 17, Íris
Sverrisdóttir 14, Berglind Anna Magnús
dóttir 12, Lilja Sigmarsd. 11, Jovana Stefánsd.11,
Petrúnella Skúladóttir 9, Helga Hallgrímsdóttir 8
(12 frák.), Theódóra Káradóttir 2.
UEFA-bikarinn í fótbolta
Portsmouth-Heerenveen 3-0
1-0 Peter Crouch (40.), 2-0 Peter Crouch(42.), 3-
0 Hermann Hreiðarsson (90.). Hermann lék allan
leikinn og Arnór Smárason kom inn á 30. mín
útu hjá Heerenveen.
Hamburger-Aston Villa 3-1
Olic 2 (30. , 57.), Petric (18.) - Delfouneso (83.)
Deportivo-Nancy 1-0
1-0 Bodipo (74.)
ÚRSLITIN Í GÆR
HANDBOLTI Haukar fara í jólafrí
með ágæta stöðu í deildinni þrátt
fyrir erfitt gengi framan af móti.
Stjarnan er aftur á móti í vondum
málum eftir enn eitt tapið og nú
gegn Haukum, 27-31.
„Ég ætla að skoða mín mál og er
ekki tilbúinn að svara þessari
spurningu núna,“ sagði brúna-
þungur þjálfari Stjörnunnar, Patr-
ekur Jóhannesson, þegar hann var
spurður hvort hann hefði áhuga á
að halda starfi sínu áfram.
Stjörnumenn mættu meðvit-
undarlausir til leiks og lentu strax
undir, 0-3. Þá kom Björgvin Hólm-
geirsson fljótlega af bekknum
með mikið líf. Stjarnan jafnaði 5-5
og svo aftur 11-11. Þá féll Stjörnu-
mönnum allur ketill í eld á ný,
Haukar skoruðu sex síðustu mörk
hálfleiksins og leiddu 11-17. Síðari
hálfleikurinn var í raun formsat-
riði fyrir Hauka. Stjarnan í þægi-
legri fjarlægð en tók dauðakipp
undir lokin, minnkaði muninn í
tvö mörk, 27-29, en sá dauðakipp-
ur kom allt of seint og dugði engan
veginn.
„Við höfum verið gagnrýnir á
sjálfa okkur í vetur og á köflum
ekki nógu sáttir með okkar spila-
mennsku. Þegar upp er staðið
erum við væntanlega samt aðeins
stigi á eftir toppliðinu fyrir jólin
og það er ágætt,“ sagði Einar Örn
Jónsson Haukamaður sem fór
mikinn á vítalínunni í gær. Einar
segir Haukana ætla sér sigur í
deildarbikarnum á milli jóla og
nýárs. „Það er titill, Evrópusæti
og peningar í húfi og við mætum
því grimmir. Við borðum vel um
jólin en verðum ekkert á neinu
húrrandi fylleríi og rugli svo við
komum nú ferskir í keppnina,“
sagði Einar á léttu nótunum.
Staða Stjörnunnar er veik.
Sjálfstraust liðsins er ekkert og
einfaldlega allt of margir veikir
hlekkir í liðinu til að það geti bar-
ist á meðal þeirra bestu. Það er
ekkert sem bendir til þess í dag að
liðið bjargi sér frá falli.
„Við gerum allt of marga tækni-
feila og það skrifast á lélegt sjálfs-
traust. Ég veit ekki hvort þetta
stafar af látunum í kringum samn-
ingana, hvort ég nái ekki til leik-
manna eða hvort þeir séu hrein-
lega ekki nógu góðir. Það verða
menn að skoða vel,“ sagði Patrek-
ur. - hbg
Íslandsmeistarar Hauka ekki í vandræðum með Stjörnuna í N1-deild karla:
Öll birta horfin úr Stjörnunni
KOMUST LÍTIÐ ÁLEIÐS Björgvin Hólmgeirsson og félagar í Stjörnunni eru í slæmri
stöðu á botnbaráttunni. RÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
FÓTBOLTI Hermann Hreiðarsson
nýtti tækifærið vel í
UEFA-bikarnum en
hann skoraði síðasta
mark Portsmouth í
3-0 sigri á
Heerenveen.
Markið skoraði
Hermann með
skalla á lokamín-
útu leiksins með
skalla eftir
fyrirgjöf Glen
Little. - óój
UEFA-bikarinn í gær:
Hermann inn-
siglaði sigurinn