Tíminn - 16.07.1982, Qupperneq 5
FÖSTUDAGUR 16. JÚLÍ 1982
5
stuttar fréttir
Ólafsfjörður.
Video-væðiragin
til Ólafsfjarðar
Ólafsljörður: í nýlegri fundargerð
bæjarráðs Ólafsfjarðar kemur fram
að þar hefur Skúli Pálsson farið fram
á leyfi til að leggja „Video“ kapla um
flæðahverfi. Þess má vænta að íbúar
þar geti áður en langt um líður farið
að skemmta sér við skjáinn, þar sem
bæjarráð mælti með þvi að bæjar-
stjóm amist ekki við þessum fram-
kvæmdum Skúla svo fremi að hann
skemmi ekki götur bæjarins eða
önnur mannvirki. Bæjarráð vill þó
hafa vaðið fyrir neðan sig að þessu
leyti, því tekið er skýrt fram að Skúli
geri þetta alveg á eigin ábyrgð og
bæjarsjóður komi ekki til með að
greiða neinar skaðabætur þótt starfs-
menn hans eða tæki valdi skemmd-
um á þessum lögnum. Þetta mun
vera fyrsta videovæðingin á Ólafs-
firði, þ.e. um kaplakerfi, en eitthvað
mun um að menn séu búnir að fá sér
tæki til eigin nota.
- HEI
225 tonn af
fiski unnin á
Borgarfirði
frá áramótum
Borgarfjörður-eystri: Fyrri helming
ársins var tekið á móti 255 tonnum
af físki til vinnslu síðan um áramót.
Þar af voru 85 tonn togarafiskur, sem
ekið var frá Reyðarfirði til vinnslu á
Borgarfirði, og 170 tonn línufiskur.
En tveir bátar hafa róið þaðan með
línu og afli sagður allgóður þegar
gefið hefur á sjó.
í frystihúsinu höfðu verið frystir
3.379 kassar af fiski um miðjan júní,
7 tonn hafa farið í skreiðarverkun og
unnin 23 tonn af saltfiski. í
frystihúsinu eru nú framleidd óroð-
flett flök fyrir Evrópumarkað. En
þannig vinnsla er sögð koma betur
út miðað við vinnslugetu hússins.
Bflaflutningar
KEA aukast
norður
AKUREYRI:
■ Á síðasta ári fluttu langflutninga-
bílar KEA samtals 3.848 tonn af
vörum til verslana og iðnfyrirtækja
KEA á Akureyri og 2.983 tonn af
iðnaðarvörum frá verksmiðjum
KEA til Reykjavikur. Flutningarnir
suður voru um 12,7% eða 434
tonnum minni en árið 1980, en aftur
á móti jukust flutningarnir norður
um 151 tonn, eða rúm 4%.
Bifreiðadeild KEA sér um rekstur
á samtals 19 bifreiðum sem eingöngu
aka fyrir deildir og fyrirtæki kaup-
félagsins. Skiptast þær í 7 lang-
flutningabifreiðar, 7 mjólkur-
flutningabifreiðar og 5 vöru - og
sendibifreiðar, að mestu til innan-
bæjaraksturs. Fastráðnir starfsmenn
Bifreiðadeildarinnar eru 21 auk
tveggja lausráðinna.
Saga Isafjarð-
ar í smíðum
en myndir
vantar
ísaljörður: Nýlega afhentu hjónin
Ásta Guðmundsdóttir Thoroddsen
og Eðvarð Malmquist ísafjarðar-
kirkju gamla mynd af Isafjarðarbæ,
sem tekin var árið 1907. En myndin
var þá gefin af Isfirðingum til Skúla
Thoroddsen alþingismanns. Voru
þeim hjónum færðar þakkir fyrir
þennan hlýhug.
Nú er unnið að ritun sögu
ísafjarðar, eða hins forna Eyrar-
hrepps. Hún er samin af Jóni Þ. Þór,
sagnfræðingi. í bókina vantar sem
mest af gömlum myndum og væri
æskilegt ef brottfluttir ísfirðingar
athuguðu hjá sér hvort ekki gætu
leynst í fórum þeirra einhverjar
gamlar myndir og lánuðu þær þá eða
gæfu til bókarinnar. Slíkt væri
sannarlega vel þegið.
- G. Sveinsson.
Hætta á verð-
lækkun lax-
veiðiánna
vegna
lélegrar veiði
Suður-Þingeyjarsýsla: „Þá helst
hvað laxveiðin er léleg. Maður er því
orðinn hálf hrelldur, svaraði Stefán
Skaptason i Staumnesi i Aðaldal er
Tíminn spurði um fleiri almennar
fréttir en slæmar heyskaparhorfur,
sem áður hefur verið sagt frá i
Timanum.
Hann sagði veiðina lítið hafa
glæðst enn. Aðspurðúr kvað hann
vafa á því að tvö slæm laxveiðiár í
röð fari að hafa áhrif á verð og
endursölumöguleika ánna og lax-
veiðileyfanna, sem eðlilegt sé. En
veiðina sagði hann mjög lélega i
öllum þeim ám á svæðinu sem hann
hefði haft spumir af. - HEI
Ný saltfisks-
og skreiðar-
skemma
byggð á
Reyðarfirði
Reyðarfjörður: Fiskvinnsla Kaup-1
félags Héraðsbúa á Reyðarfirði
hefur tekið við 1.141 tonni á
tímabilinu frá áramótum til 20. júni
s.l. og var það eingöngu afli af
togurunum Snæfugli Hólmanesi og
Hólmatindi. Vinnslan skiptist þann-
ig, að 58 tonn hafa verið söltuð, 25
tonn hengd upp til skreiðarverkunar
og 9.862 kassar af frystum fiski unnir [
f frystihúsinu.
Að sögn kaupfélagsstjóra vantar |
tilfinnalega betri aðstöðu til saltfisks j
og skreiðarverkunar á Reyðarfirði.
Hefur stjóm KHB heimilað bygg- ]
ingu á skemmu í því skyni að bæta
þar úr.
- HEI
Reykjavík — Sprengi-
sandur — Mývatn
Brottför frá BSÍ laugar-
daga kl. 08.00. Ekiö um
Þjórsárdal — Sprengi-
sand — Báröardal aö
Skútustööum og Reykja-
hlíö.
Mývatn — Sprengi-
sandur — Reykjavík
Brottför frá Hótel Reyni-
hlíð sunnudaga kl. 08.30
og Skútustöðum kl. 08.50
Fargjald ásamt nestispakka í há-
degi kr. 600.-, báðar leiðir kr.
1.100.-.
Upplýsingar BSÍ sími 22300.
Ferðaskrifstofa
GUÐMUNDAR JÓNASSONAR H/F.,
Borgartúní 34 — Sími: 83222.
SPENNUM
BELTIN
sjálfra okkar
vegna!
Það kostar aðeins 3.146,- krónur
fyrir 5 manna fjölskyldu*að fljúga
frá Reykjavíktil ísafjarðarogtil baka
Aukinn afsláttur og rýmkaðar reglur um fjölskyldufargjöld Flugleiða gera það
að verkum að nú er síst dýrara fyrir fjölskyldur að ferðast innanlands
með flugi en í rútu eða einkabíl. Forsvarsmaður fjölskyldunnar greiðir alltaf
fullt gjald, maki og börn 12-20 ára 50% og börn 11 ára og yngri 25%.
Afslátturinn er óháður því hve margir ferðast saman.
Hver kýs ekki frekar þægilegt flug en þreytandi vegi.
Leitið nánari upplýsinga hjá næsta umboðsmanni.
*Hjón, tvö börn á aldrinum 12-20 ára, og eitt barn yngra en 12 ára,
flugvallarskattur er innifalinn.
Verð með rútu 4.140. - krónur.
FLUGLEIDIR
Gott fólk hjá traustu félagi