Tíminn - 24.07.1982, Qupperneq 20
VARAHLUTIR
Sendum um land allt
Kaupum nýlega
bíla til niðurrifs
Sími <!»1 ) 7 - r:> - 51,
HEDD HF.
<<)i) ?-so-:io.
Skemmuvegi 20
Knpavogi
Mikið úrval
Opið virka daga
919- Laugar
daga 10 16
HEDD HF.
Gagnkvæmt
tryggingaféJag
HÖGGDEYFAR
GJvarahlutir
■ Nú á sunnudagskvöldið munu þau
leikararnir Aðalsteinn Bergdal og Lilja
Guðrún Þorvaldsdóttir koma fram í
nýju og all nýstárlegu lcikriti í Sjálf-
stæðishúsinu á Akureyri. Leikritið er
eftir þann gamalkunna skemmtikraft,
Baldur Georgs, sem í 30 ár var þekktur
um allt iiind sem „Baldur og Konni.“
Við hringdum til Baldurs, sem er
skrifstofustjóri hjá Kópanesi á Patreks-
firði og spurðum hann um verkið.
Ég setti leikinn saman fyrir Aðalstein,
sem var viðriðinn fyrra leikrit mitt,
„Galdraland," sem Garðaleikhúsið
sýndi í vetur. Sem gamall töframaður
hef ég safnað ýmsum brellum, bæði
töfrabrögðum og stærðfræðiþrautum,
því þótt ég sé hættur í „skemmtana-
bransanum" hætta menn aldrei í honum
alveg. Þetta er orðið mikið safn, sem ég
á, því ég hef skráð allt þetta hjá mér í
gegn um árin og nú laust þeirri hugmynd
niður í höfuðið á mér að láta prófessor
nokkurn, sem alltaf hafði langað til þess
að vera fjöllistamaður, koma þessu á
framfæri. Hann segir sögur og sannar
þær stærðfræðilega á töflu og um leið
sjáum við viðskipti hans við heimilis-
hjálpina og afskipti hans af eiginkonu og
dóttur. Þær eru lciknar af Lilju
Guðrúnu. Já, mig vantar íslenskt orð, -
þetta er svona „adaption" eða samsetn-
ingur, margt eldgamlar töfrabrellur.
Því miður er ófærðin búin að vera slík
héma að ég hef ekki komist til að vera
við æfingar né býst ég við að geta verið
við frumsýninguna, en verð þar auðvitað
í andanum. Alli hefur fengið hjá mér
aðalrammann og ég hef bætt inn í þetta
símlciðis og bréflega og úr þcssu hefur
fengist það mikið efni að hann hefur
eiginlega efni í tvö leikrit, - eða það má
skipta leiknum í tvennt. Því geta menn
komið tvisvar í Sjallann til þess að sjá
verkið, þótt þeir geti líka séö allt það á
sama kvöldinu.
Jú, blessaður vertu. Ég fæ nýjar
hugmyndir á hverjum degi og sjálfsagt
væri ekki vandi að taka saman cfni í nýtt
leikrit, ef þetta gengur vel.“
- AM
Aðalsteinn Bergdal í hlutverki stærðfræðiprófessorsins. Innfellda myndin er af Baldri Georgs.
„MENN HÆTTA ALDREII
SKEMMTANABRANSANUM
— segir Baldur Georgs, en nýtt leikrit eftir hann „Töfrabrellur
stærðfræðiprófessorsins” verður sýnt í Sjálfstæðishúsinu
á Akureyri um helgina
LAUGARDAGUR 24. JÚLÍ
fréttir
Eyðilagðist í árekstri
■ Hörkuárekstur tveggja
bíla varð á Lækjargötunni,
gegnt Amtmannsstíg á
sextánda tímanum í gær.
Þar skullu saman Range
Rover og Daihatsu. Dai-
hatsuinn er talinn geró-
nýtur eftir áreksturinn en
Range Roverinn er mikið
skemmdur.
Ökumaður Daihatsu-
bílsins slasaðist lítillega í
andliti og var hann fluttur
á slysadeild. —Sjó.
Fæstar fóstureyð-
ingar hérlendis miðað
við hin Norðurlöndin
■ Af hverjum 100 kon-
um sem urðu barnshafandi
í Danmörku áríð 1980
lætur nærri að 29 hafi látið
eyða fóstri, eða alls 23.334
konur. Þó hefur fóstureyð-
ingum þar í landi hlutfalls-
lega fækkað ár frá ári frá
árinu 1976, þegar fóstur-
eyðingar voru alls 26.842 á
skýrslur færðar í Dan-
mörku, að því er fram
kemur í skýrslu um saman-
burð á sviði ýmissa þátta
heilbrigðismála á Norður-
löndunum fimm. Lifandi
fædd börn í Danmörku
árið 1980 voru 57.293.
Varðandi fóstureyðing-
ar á Norðurlöndunum
eru Danir efstir á blaði,
en Svíar fylgja þeim fast á
eftir.
Hjá Norðmönnum hef-
ur fóstureyðingum einnig
fækkað töluvert undanfar-
in ár og um verulega
fækkun er að ræða hjá
Finnum, eða um nær fjórð-
ung á þessu fimm ára bili.
Fóstureyðingar hér á
landi eru enn miklu færri
en á hinum Norðurlöndun-
um, þrátt fyrir töluverða
árlega fjölgun á árunum
1976 til 1979, en aftur varð
nokkur fækkun árið 1980.
Það ár voru framkvæmdar
hér 513 fóstureyðingar,
sem sámsvarar því að
um 10 af hverjum 100
bamshafandi konum hafi
fengið framkvæmda fóstur-
-HEI
eyðingu.
dropar
Af gródur-
húsaraunum
■ Það er ekki heyglum hent
að byggja gróðurhús í Voga-
hverfi í Reykjavík, ef marka
má þá þrautargöngu sem Bessi
Bjamason hefur mátt upplifa
á síðustu mánuðum, en tala
þeirra fyllir bráðum árið.
I september á sl. ári þóknað-
ist byggingarnefnd Reykjavík-
ur að veita honum leyfi til
byggingar gróðurhúss úr áli og
gleri á lóð sinni. Það leyfi var
samþykkt af borgarstjórn
stuttu síðar, cn í nóvember
sama ár var það hins vegar
afturkallað vcgna mótmæla
frá eiganda næsta húss, þrátt
fyrir að borgarlögmaður tcldi
að byggingarnefnd brysti heim-
ild til afturköllunar hyggingar-
leyfisins. Var Bessa skipað að
fjarlægja gróðurhúsið góða
hið fyrsta.
En rcttlætið hcfur sinn
gang, þótt hægt fari. Afturköll-
un byggingarleyfisins var kærð
til félagsmálaráðuneytisins, og
nú er úrskurður þess kominn.
Segir ráðuneytið að grannan-
um komi ekkert við hvort
gróðurhúsið fái að standa eða
ekki, og úrskurðar afturköllun
leyfisins ógilda.
Að vísu eru ellefu mánuðir
síðan baráttan hófst, en hvað
er smá bið á við sætan sigur,
þó lítill sé, á sjálfu „kerfinu.“
Kork-
trekkjarar,
þingmenn
og fyllibyttur
■ Maður heitir Sveinn Berg-
sveinsson, doktor í ofanálag ,
og hefur undanfarin tuttugu ár
verið yfirmaður norrænudeild-
arinnar við háskólann í Aust-
ur-Berlín. Sveinn hefur dund-
að sér við það í gegnum árin
að búa til vísur, sem hann
hefur nú gefið út á bók:
„Stuttljóð - raunsæ lífspcki".
Segir höfundur þetta smáljóð,
„heimspekileg og húmor, sem
ekki ætti að bana neinum við
lesturinn, þau eiga heldur að
upplífga menn.“
I trausti þessa birtum við hér
tvö Ijóð úr bókinni:
Fyrra heitir Korktrekkjar-
inn:
„Hvað er líkt með
korktrekkjara
og kjörnum manni á þing?
Að komast alltaf lengra og
lengra
um leið og snýst í hring.“
Hið síðara heitir Ég er fullur:
Það er einkennilegt
að koma heim um nótt
og vera farinn úr frakkanum.
Hátta sig og heyra ekkert í
- krakkanum.
Finna ekki buxnalindann
í náttfötunum
og uppgötva
að maður er alltaf
að leita í
- jakkanum.“
Krummi ...
....vill benda Mogganum á að
Björn Jónsson og Ingólfur á
Hellu hafa líka verið sam-
gönguráðherrar ef það gæti
hjálpað til að komast til botns
í Flugleiðamálinu....