Tíminn - 30.07.1982, Qupperneq 3
FÖSTUDAGUR 30. JÚLÍ 1982
3
fréttir
iBlfMR ÚR VERKAMANNABÚ-
STðÐUM A AIMENNAN MARKAB?
Ellilífeyrir:
HÆKKAR
UM 4%
teluð
starfi
■ Ellert Sigurbjörnsson sem nú hefur
sjónvarpinu af HaUdóri HaUdórssyni.
dagskrárfuUtrúa hjá
Tímamynd: Róbert.
en tekjutrygging um tæp 9%
■ Teknar hafa verið
ákvarðanir um hækkun
elli- og örorkulífeyris frá 1.
júlí s.l. Almennur lífeyrir
hækkar úr kr. 1.992 í kr.
2.072 á mánuði eða um
VAKA Á VEGI Á NÓTTU SEM DEGI
Gerum til boð i að sœkja bila hvert á land sem er. Simi 33700, Reykjavik.
4%. Tekjutrygging hækk-
ar þó ívið meira eða um
8,8%, þ.e. úr kr. 2.121 á
mánuði í kr. 2.308 á
mánuði.
Þeir sem hafa elli- eða örorkulífeyri
auk tekjutryggingar höfðu í júní kr.
4.113 á mánuði, en hafa nú í júlí og ágúst
kr. 4.380 hvorn mánuðinn. Hækkunin
nemur 6.5%.
Þá hefur svonefnt frítekjumark verið
hækkað um 60% eða í kr. 17.280,- fyrir
einstaklinga og í kr. 24.190,- fyrir hjón.
Frítekjumarkið segir til um, hvaða
árstekjur viðkomandi má hafa án þess
að til skerðingar tekjutryggingar komi.
Á þessu ári hafa ofangreindar bætur
hækkað tvívegis auk þeirrar hækkunar
sem nú hefur verið ákveðin, en það var
1. mars um 7,51% og 1. júní um 10,33%.
Heildarútgjöld lífeyristrygginga fyrri
hluta þessa árs eru kr. 486.237.000 en
kr. 1.072.585.000 eru áætlaðar á fjárlög-
um yfirstandandi árs fyrir þennan
málaflokk.
Brádabirgðalög sett í gær sem afnema
kaupskyldu sveitarfélaga
■ Forseti íslands hefur gefið út
bráðabirgðalög er varða kaupskyldu
sveitarfélaga á verkamannabústöðum.
Með lögunum er kaupskylda afnumin og
forkaupsréttur ákveðinn í staðinn.
„Ég hygg að þessi lög hafi verið gefin
út vegna þess að nokkur lítil sveitarfélög
á landsbyggðinni, sem stundum eru
vanmáttug, hafa borið sig ákaflega illa
vegna þessarar kaupskyldu. Kaupskyld-
an getur leitt til þess að sveitarfélögin
verða á miðju ári, óvænt, að kaupa dýrar
eignir sem ekki er gert ráð fyrir á
fjárhagsáætlun. Þetta hefur sumstaðar
komið sér mjög illa,“ sagði Sigurður E.
Guðmundsson, framkvæmdastjóri hús-
næðismálastofnunar ríkisins í samtali
við Tímann í gær.
Kaupskyldan var sett með lögum árið
1980. Var hún sett í þeim tiigangi að
tryggja að íbúðirnar sem hér um ræðir
færu ekki út úr verkamannabústaðakerf-
inu, þannig að þær héldu áfram að þjóna
sínum upphaflega tilgangi, að vera
húsnæði fyrir láglaunafólk og almennt
launafólk.
Getur þetta leitt til þess að sveitar-
félög afsali sér forkaupsréttinum úr því
að skyldan er ekki lengur fyrir hendi?
„Það v'erður reynslan að leiða í ljós.
Ég sjálfur er tortrygginn. Þetta gæti leitt
til þess, að einhverjar íbúðir falli út
úr kerfinu. Skilningssljóvar sveitar-
stjórnir gætu sleppt þessum íbúðum út
á almennan rnarkað,11 sagði Sigurður.
í frétt frá félagsmálaráðuneytinu
segir:
„Með ákvæðum laganna um rétt
íbúðareiganda að verkamannabústað ,
sem hann vill selja, til aukinna verðbóta
eftir 10 ára og 20 ára eignarhald, var
leitast við að finna sanngjarna verðbóta-
reglu, sem átti allvel við þegar hún var
sett á sjöunda áratugnum. Með vaxandi
verðbólgu hefur þessi regla valdið
slíkum stökkbreytingum á verðlagning-
unni við umrædd tímamörk, að ekki
verður lengur við unað.
Fólk heldur að
sér höndum með sölu og bíður eftir því
að ná 10 ára eða 20 ára eignarhaldstíma.
Því markmiði, að veita sanngjarnar
verðbætur, er unnt að ná á annan hátt
með því að láta hinar sérstöku
verðbætur fara smátt og smátt vaxandi
(4% á ári) með auknum eignarhalds-
tíma, en forðast snöggar breytingar."
-Sjó
Sjónvarpid hefst að nýju á sunnu
dagskvöld eftir sumarfrí:
3 nýir mynda-
f lokkar hef ja
■ Sumarbústaðurinn Lynghóll við Vatnsendastíflu gereyðilagðist af eldi í gær.
Slökkviliðinu var tilkynnt um eldinn laust eftir klukkan 17. Þegar komið var á
vettvang var bústaðurinn alelda. Slökkvistarf gekk vel. Eldsupptök eru ókunn.
Tímamynd Róbert.
nú göngu sína
■ Nú á sunnudaginn hefst sjónvarp að
nýju og kennir ýmissa grasa á dagskrá
fyrstu vikunnar, sem gefa hugmynd um
það hvers vænta má á sjónvarpsskermin-
um í haust. Við ræddum við nýjan
dagskrárfulltrúa sjónvarpsins, EHert
Sigurbjörnsson um ýmsa helstu Uðina,
en hann tekur nú við starfi af HaUdóri
HaUdórssyni.
„Á sunnudaginn kl. 16 verður byrjað
með því að sýna hinn fræga leik úr HM
á milli Argentínu og Brasilíu, en honum
hafa margir beðið eftir. Að kvöldi sama
dags, kl. 18.10 hefst svo nýr framhalds-
myndaflokkur fyrir böm, sem heitir
Leyndarmálið í verksmiðjunni og ætti
að vera nokkuð spennandi þáttur. Síðar
um kvöldið er svo ný sjónvarpsmynd,
bresk, sem heitir „Saga tveggja borga“
(Tale of two cities) eftir sögu Charles
Dickens. Síðast á kvöldinu verður svo
sýnd enn ein mynd frá HM.
Á þriðjudag verður byrjað að sýna
nýjan lögregluframhaldsþátt, „Der-
rick,“ og hefur nú verið valinn þýskur
þáttur um samnefndan þýskan spæjara.
Nýr sænskur framhaldsmyndaþáttur
hefst svo á miðvikudaginn, en hann
nefnist „Babelshús" og gerist á sjúkra-
húsi í Stokkhólmi. Hann fjallar um
mann sem fær hjartaáfali og er lagður
inn.
Af föstum liðum mætti svo nefna
„Prúðu leikarana“ og „Löður", sem
verður á sínum stað.
Að lokum má svo geta þess fyrir
knattspyrnuáhugamenn að þann 8.
ágúst verður úrslitaleikurinn úr HM
endursýndur, ef einhverjir kynnu að
hafa misst af honum. Þennan sama dag
verður einnig sýnd mynd frá grænlenska
sjónvarpinu um Eirík rauða, sem gerð
er í tilefni af þúsund ára hátíðinni þar í
landi og nefnist “Hann kallaði landið
Grænland.“ Þá hefst þetta kvöld enn nýr
framhaldsmyndaflokkur franskur um
„Jóhann Kristófer," sem byggður er á
sögu Romain Rolland.“
Stjórnarskrár-
nefnd:
Fundar
íþrjá
Húsavík
■ Stjórnarskrámefnd kemur sam-
an til fundar á Hótel Húsavík 2.
ágúst næst komandi. Fundurinn mun
standa í þrjá daga og á honum verða
reifuð flcst mál sem ncfndinni er
ætlað að fjalla um, kjördæmamálið,
deildaskipan Alþingis og fleira.
Nefndin hefur komið saman viku-
lega um nokkurt skcið. En vegna
þess hve erfiðlega hcfur gengið að ná
mönnum saman, m.a. vegna sumar-
leyfa, var afráðið að efna til
fundarins á Húsavík. Stefnt er að því
að nefndin Ijúki störfum sínum áður
en Alþingi kemur saman 10. október
í haust. -Sjó
Radarmál
ið leyst
■ Samkomulag er orðið um að
flugumferðastjórar úr Reykjavík
setjist við radarskerminn fræga í
flugturni Keflavíkurflugvallar.
í tilkynningu Samgönguráðu-
ncytisins segir að ákveðið hafi verið
að kaupa „radarlink", eins og sagt
hefur vcrið frá í Tímanum, og síðan
scgir orðrétt:
„Þar sem kaup, uppsetning og
prófun slíks búnaðar tekur óhjá-
kvæmilega nokkurn tíma, allt að
tveim árum, hafa samgönguráðherra
og utanríkisráðherra orðið sammála
um aðgang starfsmanna úr Reykja-
vík að radartækjum Keflavíkurflug-
vallar vegna radaraðflugs að Reykja-
víkurflugvelli."
Ásgeir Einarsson, sem gegnir
störfum flugvallarstjóra á Keflavfk-
urflugvelli um þessar mundir sagði
Tímanum í gærkvöld að sér hefði
ekki borist tilkynning um samkomu-
lagið og því væri honum ókunnugt
um hvenær það tekur gildi og undir
hvers stjórn mennimir verða. -SV
Innbrot
í Jasmín
■ Innbrotsþjófur var á ferð í
versluninni Jasmín við Grcttisgötu í
Reykjavík í fyrrinótt. Komst þjófur-
inn inn um glugga á bakhlið hússins.
Tíndi hann saman varning fyrir Jm
23 þúsund krónur.
í miðjum klíðúm virðist þjófurinn
hafa styggst af einhverjum ástæðum.
Hélt iiann á brott úr versluninni með
aðeins hluta þess varnings sem hann
hafði tínt saman. Varningurinn sem
hann hafði á brott með sér er metinn
á um fjögur þúsund krónur. -Sjó
SÍMINN
HÆKKAR
UM 18%
■ Póst- og símamálastofnunin hef-
ur fengið heimild til 18% gjaldskrár-
hækkunar og tekur ný gjaldskrá fyrir
símaþjónustu gildi 1. ágúst 1982, en
fyrir póstþjónustu 1. september.
Helstu breytingar á símagjöldum
verða sem hér segir:
Stofngjald fyrirsíma hækkarúrkr. •
1.491,00 í kr. 1.759,00 og sfmnotandi
greiðir fyrir talfæri og uppsetningu
tækja eins og áður. Gjald fyrir
umframskref hækkar úr kr. 0,57 í kr.
0,67 og afnotagjald af heimilissfma á
ársfjórðungi hækkar úr kr. 241,40 í
kr. 285,00. Venjulegt flutningsgjald
milli húsa á sama gjaldsvæði hækkar
úr kr. 745,50 í kr. 879,50. Við gjöld
þessi bætist söluskattur.