Tíminn - 30.07.1982, Blaðsíða 6

Tíminn - 30.07.1982, Blaðsíða 6
Ragnar Arnalds gerir rád fyrir að Flugleiðum verði veittur styrkur: „EKKI VÍST AÐ ÖLL UPPHÆÐ- IN FAlST SEM BEÐIÐ ER UM 77 ■ „Úr því að áformað er að halda þessu Atlants- hafsflugí áfram geri ég ráð fyrir að styrkur verði veittur með svipuðu sniði og í fyrra,“ sagði Ragnar Arnalds, fjármálaráð- herra, þegar Tíminn spurði hann hvort líklegt væri að Flugleiðir h/f fengju umbeðinn 24 mill- jóna króna styrk frá ríkinu á þessu ári. „Hins vegar er engan veginn víst að félagið fái alla þá upphæð sem beðið er um. Það þarf að fara ofan í saumana á þessari beiðni áður en endanleg upphæð verður ákveðin,“ sagði Ragnar. Ennfremur sagði hann, að hann byggist við því að eitthvað yrði togast á um upphæðina á Alþingi áður en til afgreiðslu kæmi, líkt og í fyrra. AÐSTOÐ OG ÞJONUSTA UMAUTLAND - Nú stóð rekstur Flugleiða nokkum veginn í járnum á s.l. ári. Er með hliðsjón af því ástæða til að veita þennan styrk? „Þetta verður í fjárlögunum og ég hef beðið fulltrúa minn í stjórn Flugleiða, Rúnar B. Jóhannsson, að kanna þessi mál gaumgæfilega. Ég reikna með, að þegar til kemur muni ég beita mér fyrir því að upphæðin verði lækkuð eins og mögulegt verður," sagði Ragnar Arn- alds. - Sjó. Tafarlaus leidrétting á atkvæðavægi ■ „Bæjarstjórn Seltjarnamess ítrekar fyrri ályktanir um tafarlausa leiðréttingu á þeim ákvæðum stjórnarskrárinnar er fjalla um atkvæðavægi landsmanna" segir í ályktun sem samþykkt var á fundi bæjarstjórnar Seltjarnarness um stjórn- arskrármál nýlega. Þar segir ennfremur: „Minnt er á loforð allra stjómmálaflokkanna um úrbætur á yfirstandandi kjörtímabili.“ -SVJ Spítalaskip RK fyrir sprengju ■ Spítalaskip á vegum Alþjóðarauða- krossins varð fyrir sprengju þar sem það lá í höfninni í Jounieh, borg skammt norðan við Beirút í Líbanon. Einn skipverji fórst og margir slösuðust. Atburður þessi átti sér stað skömmu eftir að spítalaskipið lagðist að bryggju í fyr'radag. Þá hafði verið skipað á land 83 lestum af lyfjum og hjúkmnarvömm. Einnig bráðabirgðaskýli sem ætlað var fórnarlömbum ófriðarins, slösuðum og heimilislausum óbreyttum borgumm. Vegna þessa alvarlega atburðar hefur Alþjóðarauðikrossinn beint þeim ein- dregnu tilmælum til stríðsaðila, að þeir virði merki Rauða krossins og jafnframt hefur Alþjóðaráðið látið í ljós harm sinn vegna þess að atvik sem þetta geti átt sér stað. Alþjóðanefnd Rauða Kross íslands tekur undir tilmæli Alþjóðaráðs- ins í Genf og hvetur stríðsaðila í Líbanon til þess að fara í einu og öllu eftir alþjóðasamþykktum varðandi vemd á merki Rauða Krossins. Jafn- framt ítrekar nefndin fyrri áskoranir sínar um að ríkisstjórnin beiti sér hið fyrsta fyrir því að Alþingi samþykki viðbótarsamkomulag við Genfarsátt- málanna sem tók gildi 1977 en hefur ekki enn hlotið staðfestingu íslenskra stjórn- valda. - Sjó. Starfsfólk á bensínafgreiðslum Skeljungs óskar ykkur góðrar og ánægjulegrar ferðar um Verslunarmannahelgina. Shellstöðvar um allt land afgreiða bensín, olíur og allar nauðsynlegar ferða- og bifreiðavörur fyrir þá, sem ætla að ferðast um helgina. Lítið við í leiðinni. ______________Góða ferð!______________ Olíufélagið Skeljungur h.f. Fjölmargt fleira en bensín Útkomu tölvubladsins seinkar ■ Útkoma fyrsta tölublaðs Tölvu- blaðsins, sem átti að koma út um síðustu mánaðamót hefur tafist, en blaðið er gefið út af Tölvuútgáfunni. Fyrsta blaðið mun komast í prentun 3. ágúst n.k., að sögn Helga Amar Viggóssonar, framkvæmdastjóra útgáf- unnar. Blaðinu er ætlað að fjalla vítt og breitt um tölvutæknina, og verður sérstök áhersla lögð á fræðslugreinar fyrir byrjendur á tölvusviðinu. Fyrirhugað er að kynna blaðið á sýningunni Heimilið og fjölskyldan ’82, sem hefst í Laugardalshöllinni 20. ágúst, en einnig er hægt að fá upplýsingar um það í síma Tölvuútgáfunnar h/f. -SVJ

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.