Tíminn - 30.07.1982, Blaðsíða 13

Tíminn - 30.07.1982, Blaðsíða 13
FÖSTUDAGUR 30. JÚLÍ 1982 21 m fþróttir Valsmenn lögðu ÍBK Ulfarnir undir hamarinní dag? ■ í dag verða ráðin örlög eins elsta og virtasla knattspyrnufélags á Bret- landseyjum, Wolverhampton Wand- erens félags sem árið 1888 var með í að stofna ensku deildakeppnina. Ástæð- an er sú, að félagið skuldar um 2.5 milljónir punda og verði ekki búið að inna a.m.k. 70% þeirrar upphæðar af hendi í dag lendir félagið undir hamrinum og sögu þess þar með lokið. Orsök alls þessa segir helsti fótbolta- spekulant á Englandi, David Miller hjá Daily Mail að sé „græðgi, vanhæfni, stolt og hrein og klár heimska “ stjómenda félagsins. ■ Valsmenn sigruðu Keflvíkinga í baráttuleik botnliðanna í fyrstu deild íslandsmótsins í knattspyrnu á Val- bjamarvöllum í Laugardag í gærkveldi. Valsarar skoraðu tvö mörk á móti einu marki KeflvQdnga. Leikurinn var fjörugur mest allan leiktímann og hart barist á báða bóga. Fyrsta mark leiksins, og þar með fyrra mark Valsmanna, kom um miðbik fyrri hálfleiks. Magni Pétursson var maður- inn á bak við það, lék frá miðju vallarins upp að vítateigslínu Keflvíkinga og sólaði á leiðinni 5-6 suðurnesjamenn, og gaf síðan á Val Valsson sem þakkaði kærlega fyrir sig með því að smeygja knettinum fram hjá Þorsteini markverði. Pegar stundarfjórðungur var liðinn af seinni hálfleik dæmdi dómari leiksins mjög umdeilda vítaspyrnu á Valsmenn. Brynjar Guðmundsson varði hana, en var talinn hreyfa sig áður en skotið reið af, og var hún því endurtekin. Aftur varði Brynjar, en nú missti hann knöttinn frá sér. Keflvíkingar áttu þá enn eitt skot að marki, en knötturinn fór í stöng og út af. Stuttu seinna bættu Valsmenn við öðru marki sínu, og var þar Ingi Björn Albertsson að verki eftir fallega sóknarleikfléttu Valsmanna. Keflvíkingar létu ekki deigan síga og svöruðu fyrir sig á sömu mínútunni með því að skora úr hraðaupphlaupi, var þar Óli Þór Magnússon að verki. Staðan 2:1. Bjössi „rúlladi uppM Vita, vini sínum ■ Björn Borg átti glæsilegt „come- back“ (númer tvö) um hclgina s ðustu er hann hreinlega „rúllaði upp“ vini sínum og æflngafélaga, Vitas Gerala- itis, á tennismóti í Los Angeles. Viti, sem er einn af bestu tcnnisleikuram heims, hafði ekki roð við Bjössa í leik þessum. ■ Óskar Jakobsson varð í þriðja sæti í kúluvarpi á „World Games" í Helsinki í gærdag. Hann varpaði kúlunni 20.12 m. Sigurvegari varð Bandaríkjamaður- inn Laud (20.45) og Finninn Stálberg varð annar (20.15 m). A mótinu var sett heimsmet í ^venna- ■iWll IngH stormar í átt að marki ísfirðinga. Gunnar Guðmundsson er til varnar. Mynd Ari Ping-open f Borgarnesi ■ Stórmót sumarsins hjá GoUklúbbi Borgarness, Ping-Open, verður haldið nú um helgina. Lciknar verða 18 holur, með og án forgjafar. Skráning er tU kl. 13 30.júlí. Sumarhapp- \ drætti FRÍ \j\ ■ Vinningar í ■’l Sumarhappdrætti vFrjálsíþróttasambandsins \ komu á eftir- \ talin númer. \ 1.5594 6.5501 \ 2. 2377 7. 2368 J 3. 1715 8.4914 jar 4. 3480 9. 5502 ÚÍfr 5.4991 10.1743 Nánatri upplýsingar í síma 83386. ■ FH-ingar eru Islandsmeistarar í karlaflokki í handknattleik utanhúss 1982. í gærkvöldi sigraðu Hafnfirðing- amir Valsmenn með 19 mörkum gegn 18 eftir jafnan og spennandi leik. Staðai.i í hálfleik var 11:9 fyrir FH. Mikið jafnræði var með liðunum allan leik- tímann og úrslit réðust ekki fyrr en á síðustu mínútunni. Markahæstur í liði FH var Kristján Arason, hann sendi boltann 10 sinnum í mark Vals. Þá sigraði KR Hauka í leiknum um 3. sætið 19:18. IngH Staðan f 2. deild ■ Staðan í 2. deild knattspyrnunnar er nú þessi: Þróltur R........ 11 7 4 0 17:5 18 Þór Ak........... 12 4 6 2 24:12 14 Reynir S......... 11 6 2 3 17:8 14 FH .............. 12 5 4 3 16:15 14 Fylkir...........11 1 9 1 10:11 11 Njarðvík......... 12 4 3 5 19:21 11 Völsungur........ 12 3 4 5 12:14 10 Einherji......... 12 4 2 6 17:21 10 Skallagrímur..... 12 2 3 7 10:22 7 Þróttur N........ 11 2 3 6 5:18 7 Tap hjá strákunum ■ íslenska drengjaliðið í knattspymu tapaði leik sínum í gær gegnDönum á Norðurlandamótinu, sem fram fer í Finnlandi. Danir sigruðu 2:1. Eina mark landans skoraði Theodór Jóhannsson. Ásta skoraði f jögur mörk ■ Ásta B. Gunnlaugsdóttir skoraði fjögur mörk þegar Breiðablik sigraði FH í 1. deild kvenna í knattspymu í gær- kvöldi, 7:1. Þá gerðu Víkingur og KR jafntefli (0:0) og sömuleiðis Valur og í A Umsjón: Ingólfur Hannesson ■ Kristján Arason var Valsmönnum oft erfiður í leiknum í gærkvöldi. Hann sést hér skora eitt 10 marka sinna. Ljósmynd: Ari Leikur Vals og IBK í gærkvöldi Stjörnum prýtt Manchester Utd leikur gegn Val og KA í næstu viku ■ ..Blessaður vertu. L'niled verður á toppnum næsta vetur og þ;i verður Ray Wilkins orðinn fyrirliði lands- liðsins." sagði Steini. nábúi minn og æstur United og Wilkins aðdáandi. við mig i fyrradag og er Itann víst ekki einn um spádóminn. Margir frægir fótboltaspekúlantar hafa látið orð falla i þessa átt undaníarið. I næstu viku gel'st Steina og öllum hinum Manchester United aðdá- endunum tækifæri til að sjá goðin i leik á Laugardalsvellinum og á Akureyri gegn ..MU-liðum íslands." Val og KA. Fyrri leikurinn verður gegn Val miðvikudaainn 4. ágúst og sá seínni gegn KA daginn eltir. Manehester United er félag sem ætið hefur verið mikiö t sviðsljósinu. elskað af aðdáendum. en hataö af andstæöingum. Slíkt er jafnan hlut- skipti stórliða. I liði United í dag eru ntargir frægir kappar. Fyrsta ber að telja ensku landsliðsmennina Brvan Rob- son (frá WBA) og Ray Wilkins (frá C'helsea). sem fleiri en Steini álíta að verði næsti fvrirliði landsliðsins. I sumar festi liðið kaup á Hollend- ingnum Arnold Múhren frá Ipswieh. einum af 4-5 hestu miðvallarleik- mónnum a Fnglandi oe fastamanni i hollenska landshöinu. Þa eru i L'nitedliðinu kappar eins og Steve C'oppell. Frank Stapleton. Ciarry Birtles. Marnn Buchan. Cíary Bailey. Lou Macari. John Ciídman og Gordon McOueen. allt leikmenn sem knattspyrnuahugamenn íslensk- Ir kannast mætavel við. IngH

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.