Tíminn - 30.07.1982, Blaðsíða 18
FÖSTUDAGUR 30. JÚLÍ 1982
mmnmg
Kvikmyndir
Jón Emil Olafsson
hæstaréttarlögmaður
Fæddur 27. febrúar 1893.
Dáinn 24. júlí 1982.
Jón Ólafsson hrl. og fyrrverandi
framkvæmdastjóri Líftryggingaféiagsins
Andvöku og Samvinnutrygginga andaö-
ist á Borgarspítalanum laugardaginn 24.
júlí s.l. á 90. aidursári. Útförhansverður
gerð í dag 30. júlí frá Dómkirkjunni.
Með Jóni Ólafssyni er genginn
merkur maður er til hafði að bera marga
mannkosti, sem greiddu honum göng-
una á langri lífsleið.
Jón var fæddur 27. febrúar 1893 að
Brimnesgerði í Fáskrúðsfirði. Foreldr-
ar hans voru hjónin Ólafur bóndi
Finnbogason og Sigríður Ingibjörg
Bjarnadóttir, bókbindara á Eskifirði.
Þau Ólafur og Sigríður bjuggu að
Brimnesgerði en fluttu síðar að Búðum í
Fáskrúðsfirði.
Þau hjónin í Brimnesgerði áttu 11
börn og af þeim komust 5 til fullorðins-
ára og var Jón þeirra elstur. Hin voru:
Ragnhildur gift Guðmundi Jónssyni,
skólastjóra á Hvanneyri Anna gift Steini
J. Árnasyni, byggingameistara, Elin-
borg gift Sveinbirni Jónssyni og Ólöf
Sigurrós gift Guðmundi í. Guðjónssyni,
skólastjóra. Þá var einn hálfbróðir,
Ágúst Ólafsson. Af þeim systkinum eru
nú aðeins tvær systur á lífi, Elínborg og
Sigurrós.
Það hefur verið þungur róður hjá
þeim Brimnesgerðishjónum að sjá
þessari fjölmennu fjölskyldu farborða og
börnin hafa snemma þurft að leggja
foreldrunum lið með vinnu til sjós og
lands. Þannig var með Jón Ólafsson,
sem var elstur í stórum systkinahópi.
Á árunum, þegar Jón var að alast upp
var erfitt að brjótast áfram til mennta.
Hugur Jóns stóð samt til náms og var
hann einn í hópi þeirra vösku manna,'
sem brutust áfram á menntabrautinni,
en á þeim árum var íslenska þjóðin að
byrja að rétta úr kútnum. Margir lögðu
félausir á brattann til þess að afla sér
menntunar, en ekki náðu nema tiltölu-
lega fáir því marki að innritast í
háskólann í Kaupmannahöfn. Þeim
áfanga náði Jón Ólafsson frá Brimnes-
gerði. Hann útskrifaðist sem stúdent frá
Menntaskólanum í Reykjavík 1915.
Hélt síðan til Kaupmannahafnar og
lagði fyrst stund á verkfræði við
háskólann þar, en hóf síðan nám í
lögfræði og varð cand. juris við
Kaupmannahafnarháskóla 24. maí 1923.
Að loknu lögfræðinámi gerðist Jón
starfsmaður borgarráðs Kaupmanna-
hafnar sem ritari í „Magistraten". Því
starfi gegndi hann til ársins 1926, en þá
lá leiðin heim til íslands. Strax eftir
heimkomuna hóf hann lögfræðistörf í
Reykjavík, fyrst með Birni Kalman, en
árið 1927 gerðist hann fulltrúi hjá
hæstaréttarlögmönnunum Jóni Ás-
björnssyni og Sveinbirni Jónssyni til
ársins 1931. í millitíðinni, árið 1929, tók
hann að sér að veita forstöðu íslands-
deild norska Lífsábyrgðarfélagsins And-
vake. Því starfi gegndi hann alfarið frá
1931 ásamt því að stunda sjálfur
málafærslustörf næstu tvo áratugina,
eða til ársins 1949, en þá verða
kaflaskipti í starfssögu hans.
Að lokinni seinni heimsstyrjöld árið
1946 verður mikil umbylting í starfsemi
íslensku samvinnufélaganna. Samband-
ið færir út kvíarnar með því að setja á
stofn ýmsar nýjar starfsgreinar, þar á '
meðal vátryggingastarfsemi. Samvinnu-
tryggingar taka til starfa haustið 1946.
Ekki var þá talið ráðlegt að þær tækju
að sér líftryggingastarfsemi, heldur var
horfið að ráði Svía, sem veitt höfðu
þýðingarmikla leiðsögn við stofnun
Samvinnutrygginga að líftryggingafélag
skyldi vera rekið í sérstöku félagi, vegna
eðli þeirra trygginga. Það kom því fljótt
upp sú staða, að eins hagstætt gæti verið
að yfirtaka stofn erlends líftrygginga-
félags, sem hér ræki starfsemi, fremur
en að stofna nýtt líftryggingafélag. Því
var það, að leitað var hófa um kaup á
íslandsdeild Andvake.
Um þetta gengu samningsumleitanir í
nokkurn tíma sem lyktaði með því, að
árið 1949 var íslandsdeild Andvake
yfirtekin af nýju íslensku félagi: Líf-
tryggingafélaginu Andvöku, sem var
gagnkvæmt félag byggt upp eins og
Samvinnutryggingar. Framkvæmda-
stjóri hins nýja félags var ráðinn Jón
Ólafsson.
Kynni okkar Jóns Ólafssonar byrja
fyrir alvöru, þegar hann tekur við stjórn
nýju íslensku Andvöku. Við vorum
sambýlismenn á þrioju hæðinni í nýrri
álmu Sambandshússins. Margt varð
sameiginlegt í starfsemi Samvinnutrygg-
inga og Andvöku og því náið samstarf
milli okkar Jóns. Mér fannst gott að vita
af Jóni í nábýlinu. Hann var vel að sér
í lögfræði, traustur með afbrigðum,
einlægur og ráðhollur og hélt vel á sínum
málum. Samstarf okkar var frá upphafi
eins og best verður ákosið. Auk starfsins
fyrir Andvöku rak Jón málafærslustörf í
litlum mæli og hæstaréttarlögmaður
varð hann 1953.
Þegar ég tek við forstjórastarfi
Sambandsins í byrjun árs 1955, sam-
þykkti stjórn Samvinnutrygginga ein-
róma að ráða Jón Ólafsson sem
framkvæmdastjóra Samvinnutrygginga
ásamt Andvöku. Þessu starfi gegndi Jón
til hausts 1958, er hann baðst lausnar,
sökum heilsubrests, þá að verða 65 ára.
Jón gat litið með ánægju yfir störf sín
í samvinnuhreyfingunni. Hann sagði
sjálfur, að þessi ár hefðu veitt honum
vissa lífsfyllingu. Hann kynntist mörg-
um mönnum á þessum árum, bæði
heima og erlendis og stofnaði til
vináttubanda sem entust honum alla ævi.
Jón Ólafsson var hamingjumaður í
einkalífi. Hann kvæntist 14. júlí 1928,
Margréti Jónsdóttur bónda í Skólabæ í
Reykjavík, Valdimarssonar. Margrét
var gull að manni, mikil kona og væn,
framúrskarandi húsmóðir, ætíð með
bros á vör, gædd óvenjulegri glaðværð
og lífsþrótti, enda leið öllum vel í návist
hennar. Hún bjó Jóni fallegt og listrænt
heimili í húsi, sem þau byggðu að
Suðurgötu 26 á föðurleifð Margrétar í
hlaðvarpa Skólabæjar.
Þau Margrét og Jón voru mjög
samrýmd. Þau ferðuðust mikið saman,
bæði á íslandi og erlendis. Oft lá leiðin
til Noregs, vegna starfa Jóns fyrir
Andvake. Þá var oft farið á fjöll þar í
landi í hópi norskra vina. Berdal
forstjóri Andvake og Jón Ólafsson voru
traustir vinir enda samstarfsmenn um
margra ára skeið.
Þau Margrét og Jón voru barnlaus, en
fósturdóttur ólu þau upp, Ólafíu
Einarsdóttur, fornleifa- og sagnfræðing,
sem gift er í Danmörku, Bent Fuglede,
prófessor við Polyteknisk Læreanstalt í
Kaupmannahöfn.
Það var mikið áfall fyrir Jón þegar
hann missti Margréti, en hún lést 28.
janúar 1965 eftir langa og stranga
sjúkdómslegu. Missirinn varð enn sárari
fyrir það hversu samrýmd þau hjón
höfðu verið og hve Margrét hafði verið
framúrskarandi góð húsmóðir. Vinir
Jón hugsuðu til hans á þessum erfiðu
tímum og menn óttuðust, að hann ætti
erfitt með að halda einn heimili í
Suðurgötunni, enda þá kominn yfir
sjötugt.
En það sýnir best hinn mikla
manndóm sem bjó í Jóni, að hjá honum
var enginn uppgjafarhugur. Hann brást
ótrúlega vel við hinum grimmu örlögum
sem hann varð að þola. Hann hélt áfram
einn heimili í Suðurgötunni allar götur
til þess að kallið kom fyrir stuttu síðan
og hann var lagður á sjúkrahús og þar
að Ijúka sínu æviskeiði. Þótt systur Jóns
búsettar hér í borg og fjölskyldur þeirra
hafi reynst honum sérstaklega hjálpsam-
ar í hvívetna, þá sýnir það óvenjulegan
lífsþrótt og manndóm að búa einsamall
svo mörg ár við svo háan aldur og
vanheilsu oft á tíðum.
Jón Ólafsson gat sér góðan orðstír í
lifanda lífi. Hann vargóður íslendingur,
hafði ákveðnar rökstuddar skoðanir á
málum. Hann ritaði nokkuð í blöð og
tímarit um lögfræðileg og söguleg efni,
auk tryggingamálefna. Árið 1943 kom
út eftir hann „fslenskur ríkisborgararétt-
ur“, sem vakti athygli. Hann sýndi
Háskóla íslands óvenjulega ræktarsemi
með því að arfleiða hann að húseigninni
í Suðurgötu. Trúlega hafa sterkar
tilfinningar fyrir menntun og menningu,
sem ungur piltur bar í brjósti er hann
lagði félaus af stað í leit menntunar,
austan af fjörðum á fyrsta tugi aldarinn-
ar, látið til sín hevra. Mér er kunnugt
um, að Háskóli Islands metur mikils
þessa höfðinglegu gjöf.
Nú þegar Jón Ólafsson er allur rifjast
upp margarendurminningar. Við hjónin
áttum vináttu hans og Margrétar og
eigum nú margar góðar endurminningar
frá vinafundum liðinna daga. Eftir að
Jón varð einn kom hann oft á heimili
okkar og þannig héldust vináttuböndin
gegnum árin. Við hjónin þökkum
honum samferð og vináttu og ég flyt
honum þakkir í nafni samvinnuhreyfing-
arinnar fyrir störfin sem hann innti af
höndum á þei vettvangi.
Handan götunnar við Suðurgötu 26,
er gamli kirkjugarðurinn í Reykjavík.
Þangað liggur síðasti spölurinn. Þar
verður Jón Ólafsson lagður til hvíldar
við hlið Margrétar konu sinnar. Ekki
kemur mér á óvart, að þá verði miklir
fagnaðarfundir, er þau Margrét og Jón
hittast aftur í nýjum heimi. Ég votta
aðstandendum innilega samúð.
Erlendur Einarsson.
Það er nú liðin góð hálf öld síðan við
nokkrir skólafélagar úr Samvinnuskól-
anum áttum tíðum leið meðfram
norðurhlið gamla kirkjugarðsins í
Reykjavík, af því að einn okkar átti
heima vestur á Ásvallagötu. Athygli
okkar vakti þá stórt og myndarlegt hús,
trúlega nýbyggt á gatnamótum Suður-
götu og Kirkjugarðsstígs, á fögrum stað
með óheftu útsýni yfir tjörnina og
umhverfi hennar. Litum við upp til þessa
húss með ekki lítilli lotningu - líklega
öllu meiri fyrir það, að sjálfir bjuggum
við allir í kytrum - Gerðum við ráð fyrir
því, að eigandinn hlyti að vera einn
herjans „burgeis" en þetta milda og
góðlátlega orð var mikið notað í
kringum 1930 af vinstrisinnuðum mönn-
um um þá, er betur máttu sín í
þjóðfélaginu. Sumir róttækir tóku þó
dýpra í árinni og töluðu um „auðvalds-
púka“ og jafnvel verra. Þetta orðbragð
átti nú kannski svolítinn rétt á sér þá og
gat verið útrás fyrir heitan sefa ungra
manna, sem blöskraði óréttlætið í
heiminum og vildu frelsa hann - helst
eins og skot!
Ekki grunaði mig fyrir þessum mörgu
áratugum, að eigandi og íbúandi þessa
virðulega húss á fallega staðnum ætti
eftir að verða góðkunningi minn og um
stuttan tíma náinn samstarfsmaður -
einhver sá hugljúfasti og elskulegasti,
sem ég hefi kynnst um dagana, og
óralangt fjarri því að búa yfir þeim
eigindum, sem gjarna eru tileinkaður
„vondum mönnum" í pólitísku og öðru
tilliti: Jón sá Ólafsson, sem hér verður
minnst fáum orðum á takmörkuðu sviði.
Það mun hafa verið haustið 1949,
heldur en 1950, að Vilhjálmur Þór fól
mér sem erindreka SÍS að halda nokkra
kynningarfundi í öllum landsfjórðung-
um til frásagnar af yfirtöku og kaupum
íslenskra samvinnumanna á starfsemi og
tryggingastofni íslandsdeildar norska
Lífsábyrgðarfélagsins ANDVAKE, og
ræða við fundarmenn meininguna með
þessu, og hvetja landsmenn til aukinnar
þátttöku í líftryggingum. Strax frá
upphafi varð Jón Ólafsson áfram
forstjóri Líftryggingafélagsins AND-
VÖKU, en forstöðu norsku deildarinn-
ar hafði hann haft á hendi um 20 ára
skeið - tók við af þeim merka manni
Helga Valtýssyni ungmennafélagsfor-
kólfi og rithöfundi. Skyldi nú Jón
sjálfur koma með a.m.k. á suma þessa
fundi til trausts og halds, og þiggja far
með mér í mínum bíl. Satt að segja
hálfkveið ég fyrir samneytinu við
þennan háa herra, sem ég aldrei hafði
hvorki heyrt né séð og þekkti ekkert,
síst sem samvinnufrömuð, en það fannst
mér nú, að slíkur maður - forstjóri
Andvöku hinnar nýju - þyrfti helst að
vera!
Ég man enn í dag, þegar við Jón
lögðum upp í fyrstu ferðina okkar. Þetta
var seint að hausti og „veður öll válynd"
og vegir og brýr ekki svo góðar sem nú.
Fyrsti fundurinn var ákveðinn norðan-
lands. Hrepptum við hið versta veður;
hryssingsbyl, og glerhálka var og myrkur
yfir alla Holtavörðuheiði, en ég glannað-
ist keðjulaus, eins og svo oft á þeim
árum, og vitanlega á sléttslitnum
sumardekkjum, því þá þekkti maður
aðeins þá gömlu, góður reglu: að nýta
hlutinn til hins ýtrasta. Man ég að Jóni
þótti meira en nóg um, sem vonlegt var,
þegar bíllinn sikksakkaði milli vegar-
brúnanna og engu mátti muna að illa
færi. Athugasemdir hans um færið og
aksturinn voru þó svo varfærnar og
ljúfmannlegar, og frambornar á svo
hæverskan hátt, að ég, sem annars var
nú ekkert sérstaklega hneigður fyrir að
geta tekið vel að aðfinnslum annarra -
kannski síst í akstri gat ekki annað en
virt og tekið nokkuð tillit til þess, sem
Jón sagði. Já, mér er þessi fyrsta
samvera okkar minnisstæð, og ég hygg
ég megi segja, að Jón hafi haft varanlega
áhrif á mig sem ökumann, því vitanlega
hafði hann „lög“ að mæla.
Og ekki nóg með það. Þessi fyrsta
framkoma hans gagnvart mér, er mér
minnisstætt tákn um raunar allan lífsferil
þessa gjörhygla og grandvara manns,
sem alla tíð bjó yfir mér liggur við að
segja barnslegum hreinleik og sakleysi
til orðs og æðis. Öll framkoma hans
einkenndist af glaðværð og góðvild -
eins og svo mörg hin síðari árin, þegar
hann gekk hvergi nærri heill til skógar
og þurfti að búa við þó nokkra einsemd.
En heiðríkja hugans og fjölmörg
áhugamál léttu honum lífið og húsinu
sínu fallega ráðstafaði hann til Háskóla
íslands - áreiðanlega í meintri almanna-
þágu.
Þótt samstarf okkar Jóns Ólafssonar
væri hvorki langvinnt né náið - hann var
farinn frá Samvinnutryggingum sem
framkvæmdarstjóri, þegar ég kom þang-
að - er hann mér samt minnisstæðari og
kærari en flestir þeir aðrir, er ég hafði
meira saman við að sælda. Hann sýndi
mér æ frá fyrstu kynnum óvenjulega
elskusemi og tryggð, sem ég nú að
leiðarlokum þakka honum af alhug.
Vammlausari maður en Jón var, mun
vandfundinn, og í engu brást hann, sem
honum var til trúað. Þess vegna er
minningin um hann óvenju heið, og
virðingin grómlaus.
Blessuð sé minning góðs manns.
Baldvin Þ. Kristjánsson.
Sími 78900
Saiur 1
FRUMSÝNIR
Hvellurinn
(Blow out)
John Travolta varð heimslrægur
tyrir myndimar Saturday Night
Fever og Grease. Núna aftur
kemur Travolta fram á sjónar-
sviðið í hinni heimsfrægu mynd
DePalma BLOW OUT.
Þeir sem stóiu að Blow out:
Kvikmyndataka Vilmos Zsign-
ond (Deer Hunter, Close Erv
coiinters).
Hönooður: Paul Sylbert (One
Flew Over The Cuckoo's Nest,
Kramervs. Kramer, Heaven Can
Wait).
Klipping: Paul Hirsch (Star Wars)
Myndin er tekin i Dolby og sýnd
f 4 rása starscope stereo.
Hækkað miðaverð.
Sýnd kl. 5 - 7.05 - 9.10 og 11.15.
Salur 2
FRUMSÝNIR
Óskarsverðlaunamyndina
Amerískur varúlfur
í London
(An American
Verewotf in London)
Pað má með sanni segja að þetta
er mynd i algjörum sérflokki, enda
gerði John Landis þessa mynd,
en hann gerði grínmyndimar
Kentucky Fried, Delta klfkan, og
Blue Brothers. Einnig lagði hann
mikið við að skrifa handrit að
James Bond myndinni The Spy
Who Loved Me. Myndin fékk
Óskarsverðlaun fyrir förðun í mars
s.l.
Aðalhlutverk: David Naughton,
Jenny Agutter og Grlff in Dunne.
Sýnd kl. 5,7,9 og 11.
Saiur 3
Píkuskrækir
(Pussy-talk)
MISSEN
DER SLADREDE
/
Pussy Talk er mjög djörf og]afn-
framt fyndin mynd sem kemur
öllum á óvart. Myndin sló öll
aðsóknarmet i Frakklandi og
Svíþjóð.
Aðalhlutverk: Penelope Lamo-
ur, Nlls Hortzs.
Leikstjóri: Frederlc Lansac.
Stranglega bönnuð börnum
innan 16 ára.
Sýnd kl. 5 - 7 - 9 og 11.
Salur 4
Breaker Breaker
Frábær mynd um tmkkakappastur
og hressileg slagsmál.
Aðalhlutverk: Cuck Norris, Terry
O'Connor.
Endursýnd kl. 5 - 7 og 11.20.
Fram í sviðsljósið
(Belng There)
(4. mánuður)
Grínmynd I algjörum sérflokki.
Myndin er talin vera sú albesta
sem Peter Sellers lék í, enda fékk
hún tvenn Óskarsverðlaun og var
útnefnd fyrir 6 Golden Globe
Awards. Sellers fer á kostum.
AðalhluNerk: Peter Sellers,
Shlrley MacLane, Melvin
Douglas og Jack Warden.
Leikstjóri: Hal Ashby.
íslenskur texti.
Sýnd kl. 9.