Tíminn - 30.07.1982, Síða 18

Tíminn - 30.07.1982, Síða 18
FÖSTUDAGUR 30. JÚLÍ 1982 mmnmg Kvikmyndir Jón Emil Olafsson hæstaréttarlögmaður Fæddur 27. febrúar 1893. Dáinn 24. júlí 1982. Jón Ólafsson hrl. og fyrrverandi framkvæmdastjóri Líftryggingaféiagsins Andvöku og Samvinnutrygginga andaö- ist á Borgarspítalanum laugardaginn 24. júlí s.l. á 90. aidursári. Útförhansverður gerð í dag 30. júlí frá Dómkirkjunni. Með Jóni Ólafssyni er genginn merkur maður er til hafði að bera marga mannkosti, sem greiddu honum göng- una á langri lífsleið. Jón var fæddur 27. febrúar 1893 að Brimnesgerði í Fáskrúðsfirði. Foreldr- ar hans voru hjónin Ólafur bóndi Finnbogason og Sigríður Ingibjörg Bjarnadóttir, bókbindara á Eskifirði. Þau Ólafur og Sigríður bjuggu að Brimnesgerði en fluttu síðar að Búðum í Fáskrúðsfirði. Þau hjónin í Brimnesgerði áttu 11 börn og af þeim komust 5 til fullorðins- ára og var Jón þeirra elstur. Hin voru: Ragnhildur gift Guðmundi Jónssyni, skólastjóra á Hvanneyri Anna gift Steini J. Árnasyni, byggingameistara, Elin- borg gift Sveinbirni Jónssyni og Ólöf Sigurrós gift Guðmundi í. Guðjónssyni, skólastjóra. Þá var einn hálfbróðir, Ágúst Ólafsson. Af þeim systkinum eru nú aðeins tvær systur á lífi, Elínborg og Sigurrós. Það hefur verið þungur róður hjá þeim Brimnesgerðishjónum að sjá þessari fjölmennu fjölskyldu farborða og börnin hafa snemma þurft að leggja foreldrunum lið með vinnu til sjós og lands. Þannig var með Jón Ólafsson, sem var elstur í stórum systkinahópi. Á árunum, þegar Jón var að alast upp var erfitt að brjótast áfram til mennta. Hugur Jóns stóð samt til náms og var hann einn í hópi þeirra vösku manna,' sem brutust áfram á menntabrautinni, en á þeim árum var íslenska þjóðin að byrja að rétta úr kútnum. Margir lögðu félausir á brattann til þess að afla sér menntunar, en ekki náðu nema tiltölu- lega fáir því marki að innritast í háskólann í Kaupmannahöfn. Þeim áfanga náði Jón Ólafsson frá Brimnes- gerði. Hann útskrifaðist sem stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík 1915. Hélt síðan til Kaupmannahafnar og lagði fyrst stund á verkfræði við háskólann þar, en hóf síðan nám í lögfræði og varð cand. juris við Kaupmannahafnarháskóla 24. maí 1923. Að loknu lögfræðinámi gerðist Jón starfsmaður borgarráðs Kaupmanna- hafnar sem ritari í „Magistraten". Því starfi gegndi hann til ársins 1926, en þá lá leiðin heim til íslands. Strax eftir heimkomuna hóf hann lögfræðistörf í Reykjavík, fyrst með Birni Kalman, en árið 1927 gerðist hann fulltrúi hjá hæstaréttarlögmönnunum Jóni Ás- björnssyni og Sveinbirni Jónssyni til ársins 1931. í millitíðinni, árið 1929, tók hann að sér að veita forstöðu íslands- deild norska Lífsábyrgðarfélagsins And- vake. Því starfi gegndi hann alfarið frá 1931 ásamt því að stunda sjálfur málafærslustörf næstu tvo áratugina, eða til ársins 1949, en þá verða kaflaskipti í starfssögu hans. Að lokinni seinni heimsstyrjöld árið 1946 verður mikil umbylting í starfsemi íslensku samvinnufélaganna. Samband- ið færir út kvíarnar með því að setja á stofn ýmsar nýjar starfsgreinar, þar á ' meðal vátryggingastarfsemi. Samvinnu- tryggingar taka til starfa haustið 1946. Ekki var þá talið ráðlegt að þær tækju að sér líftryggingastarfsemi, heldur var horfið að ráði Svía, sem veitt höfðu þýðingarmikla leiðsögn við stofnun Samvinnutrygginga að líftryggingafélag skyldi vera rekið í sérstöku félagi, vegna eðli þeirra trygginga. Það kom því fljótt upp sú staða, að eins hagstætt gæti verið að yfirtaka stofn erlends líftrygginga- félags, sem hér ræki starfsemi, fremur en að stofna nýtt líftryggingafélag. Því var það, að leitað var hófa um kaup á íslandsdeild Andvake. Um þetta gengu samningsumleitanir í nokkurn tíma sem lyktaði með því, að árið 1949 var íslandsdeild Andvake yfirtekin af nýju íslensku félagi: Líf- tryggingafélaginu Andvöku, sem var gagnkvæmt félag byggt upp eins og Samvinnutryggingar. Framkvæmda- stjóri hins nýja félags var ráðinn Jón Ólafsson. Kynni okkar Jóns Ólafssonar byrja fyrir alvöru, þegar hann tekur við stjórn nýju íslensku Andvöku. Við vorum sambýlismenn á þrioju hæðinni í nýrri álmu Sambandshússins. Margt varð sameiginlegt í starfsemi Samvinnutrygg- inga og Andvöku og því náið samstarf milli okkar Jóns. Mér fannst gott að vita af Jóni í nábýlinu. Hann var vel að sér í lögfræði, traustur með afbrigðum, einlægur og ráðhollur og hélt vel á sínum málum. Samstarf okkar var frá upphafi eins og best verður ákosið. Auk starfsins fyrir Andvöku rak Jón málafærslustörf í litlum mæli og hæstaréttarlögmaður varð hann 1953. Þegar ég tek við forstjórastarfi Sambandsins í byrjun árs 1955, sam- þykkti stjórn Samvinnutrygginga ein- róma að ráða Jón Ólafsson sem framkvæmdastjóra Samvinnutrygginga ásamt Andvöku. Þessu starfi gegndi Jón til hausts 1958, er hann baðst lausnar, sökum heilsubrests, þá að verða 65 ára. Jón gat litið með ánægju yfir störf sín í samvinnuhreyfingunni. Hann sagði sjálfur, að þessi ár hefðu veitt honum vissa lífsfyllingu. Hann kynntist mörg- um mönnum á þessum árum, bæði heima og erlendis og stofnaði til vináttubanda sem entust honum alla ævi. Jón Ólafsson var hamingjumaður í einkalífi. Hann kvæntist 14. júlí 1928, Margréti Jónsdóttur bónda í Skólabæ í Reykjavík, Valdimarssonar. Margrét var gull að manni, mikil kona og væn, framúrskarandi húsmóðir, ætíð með bros á vör, gædd óvenjulegri glaðværð og lífsþrótti, enda leið öllum vel í návist hennar. Hún bjó Jóni fallegt og listrænt heimili í húsi, sem þau byggðu að Suðurgötu 26 á föðurleifð Margrétar í hlaðvarpa Skólabæjar. Þau Margrét og Jón voru mjög samrýmd. Þau ferðuðust mikið saman, bæði á íslandi og erlendis. Oft lá leiðin til Noregs, vegna starfa Jóns fyrir Andvake. Þá var oft farið á fjöll þar í landi í hópi norskra vina. Berdal forstjóri Andvake og Jón Ólafsson voru traustir vinir enda samstarfsmenn um margra ára skeið. Þau Margrét og Jón voru barnlaus, en fósturdóttur ólu þau upp, Ólafíu Einarsdóttur, fornleifa- og sagnfræðing, sem gift er í Danmörku, Bent Fuglede, prófessor við Polyteknisk Læreanstalt í Kaupmannahöfn. Það var mikið áfall fyrir Jón þegar hann missti Margréti, en hún lést 28. janúar 1965 eftir langa og stranga sjúkdómslegu. Missirinn varð enn sárari fyrir það hversu samrýmd þau hjón höfðu verið og hve Margrét hafði verið framúrskarandi góð húsmóðir. Vinir Jón hugsuðu til hans á þessum erfiðu tímum og menn óttuðust, að hann ætti erfitt með að halda einn heimili í Suðurgötunni, enda þá kominn yfir sjötugt. En það sýnir best hinn mikla manndóm sem bjó í Jóni, að hjá honum var enginn uppgjafarhugur. Hann brást ótrúlega vel við hinum grimmu örlögum sem hann varð að þola. Hann hélt áfram einn heimili í Suðurgötunni allar götur til þess að kallið kom fyrir stuttu síðan og hann var lagður á sjúkrahús og þar að Ijúka sínu æviskeiði. Þótt systur Jóns búsettar hér í borg og fjölskyldur þeirra hafi reynst honum sérstaklega hjálpsam- ar í hvívetna, þá sýnir það óvenjulegan lífsþrótt og manndóm að búa einsamall svo mörg ár við svo háan aldur og vanheilsu oft á tíðum. Jón Ólafsson gat sér góðan orðstír í lifanda lífi. Hann vargóður íslendingur, hafði ákveðnar rökstuddar skoðanir á málum. Hann ritaði nokkuð í blöð og tímarit um lögfræðileg og söguleg efni, auk tryggingamálefna. Árið 1943 kom út eftir hann „fslenskur ríkisborgararétt- ur“, sem vakti athygli. Hann sýndi Háskóla íslands óvenjulega ræktarsemi með því að arfleiða hann að húseigninni í Suðurgötu. Trúlega hafa sterkar tilfinningar fyrir menntun og menningu, sem ungur piltur bar í brjósti er hann lagði félaus af stað í leit menntunar, austan af fjörðum á fyrsta tugi aldarinn- ar, látið til sín hevra. Mér er kunnugt um, að Háskóli Islands metur mikils þessa höfðinglegu gjöf. Nú þegar Jón Ólafsson er allur rifjast upp margarendurminningar. Við hjónin áttum vináttu hans og Margrétar og eigum nú margar góðar endurminningar frá vinafundum liðinna daga. Eftir að Jón varð einn kom hann oft á heimili okkar og þannig héldust vináttuböndin gegnum árin. Við hjónin þökkum honum samferð og vináttu og ég flyt honum þakkir í nafni samvinnuhreyfing- arinnar fyrir störfin sem hann innti af höndum á þei vettvangi. Handan götunnar við Suðurgötu 26, er gamli kirkjugarðurinn í Reykjavík. Þangað liggur síðasti spölurinn. Þar verður Jón Ólafsson lagður til hvíldar við hlið Margrétar konu sinnar. Ekki kemur mér á óvart, að þá verði miklir fagnaðarfundir, er þau Margrét og Jón hittast aftur í nýjum heimi. Ég votta aðstandendum innilega samúð. Erlendur Einarsson. Það er nú liðin góð hálf öld síðan við nokkrir skólafélagar úr Samvinnuskól- anum áttum tíðum leið meðfram norðurhlið gamla kirkjugarðsins í Reykjavík, af því að einn okkar átti heima vestur á Ásvallagötu. Athygli okkar vakti þá stórt og myndarlegt hús, trúlega nýbyggt á gatnamótum Suður- götu og Kirkjugarðsstígs, á fögrum stað með óheftu útsýni yfir tjörnina og umhverfi hennar. Litum við upp til þessa húss með ekki lítilli lotningu - líklega öllu meiri fyrir það, að sjálfir bjuggum við allir í kytrum - Gerðum við ráð fyrir því, að eigandinn hlyti að vera einn herjans „burgeis" en þetta milda og góðlátlega orð var mikið notað í kringum 1930 af vinstrisinnuðum mönn- um um þá, er betur máttu sín í þjóðfélaginu. Sumir róttækir tóku þó dýpra í árinni og töluðu um „auðvalds- púka“ og jafnvel verra. Þetta orðbragð átti nú kannski svolítinn rétt á sér þá og gat verið útrás fyrir heitan sefa ungra manna, sem blöskraði óréttlætið í heiminum og vildu frelsa hann - helst eins og skot! Ekki grunaði mig fyrir þessum mörgu áratugum, að eigandi og íbúandi þessa virðulega húss á fallega staðnum ætti eftir að verða góðkunningi minn og um stuttan tíma náinn samstarfsmaður - einhver sá hugljúfasti og elskulegasti, sem ég hefi kynnst um dagana, og óralangt fjarri því að búa yfir þeim eigindum, sem gjarna eru tileinkaður „vondum mönnum" í pólitísku og öðru tilliti: Jón sá Ólafsson, sem hér verður minnst fáum orðum á takmörkuðu sviði. Það mun hafa verið haustið 1949, heldur en 1950, að Vilhjálmur Þór fól mér sem erindreka SÍS að halda nokkra kynningarfundi í öllum landsfjórðung- um til frásagnar af yfirtöku og kaupum íslenskra samvinnumanna á starfsemi og tryggingastofni íslandsdeildar norska Lífsábyrgðarfélagsins ANDVAKE, og ræða við fundarmenn meininguna með þessu, og hvetja landsmenn til aukinnar þátttöku í líftryggingum. Strax frá upphafi varð Jón Ólafsson áfram forstjóri Líftryggingafélagsins AND- VÖKU, en forstöðu norsku deildarinn- ar hafði hann haft á hendi um 20 ára skeið - tók við af þeim merka manni Helga Valtýssyni ungmennafélagsfor- kólfi og rithöfundi. Skyldi nú Jón sjálfur koma með a.m.k. á suma þessa fundi til trausts og halds, og þiggja far með mér í mínum bíl. Satt að segja hálfkveið ég fyrir samneytinu við þennan háa herra, sem ég aldrei hafði hvorki heyrt né séð og þekkti ekkert, síst sem samvinnufrömuð, en það fannst mér nú, að slíkur maður - forstjóri Andvöku hinnar nýju - þyrfti helst að vera! Ég man enn í dag, þegar við Jón lögðum upp í fyrstu ferðina okkar. Þetta var seint að hausti og „veður öll válynd" og vegir og brýr ekki svo góðar sem nú. Fyrsti fundurinn var ákveðinn norðan- lands. Hrepptum við hið versta veður; hryssingsbyl, og glerhálka var og myrkur yfir alla Holtavörðuheiði, en ég glannað- ist keðjulaus, eins og svo oft á þeim árum, og vitanlega á sléttslitnum sumardekkjum, því þá þekkti maður aðeins þá gömlu, góður reglu: að nýta hlutinn til hins ýtrasta. Man ég að Jóni þótti meira en nóg um, sem vonlegt var, þegar bíllinn sikksakkaði milli vegar- brúnanna og engu mátti muna að illa færi. Athugasemdir hans um færið og aksturinn voru þó svo varfærnar og ljúfmannlegar, og frambornar á svo hæverskan hátt, að ég, sem annars var nú ekkert sérstaklega hneigður fyrir að geta tekið vel að aðfinnslum annarra - kannski síst í akstri gat ekki annað en virt og tekið nokkuð tillit til þess, sem Jón sagði. Já, mér er þessi fyrsta samvera okkar minnisstæð, og ég hygg ég megi segja, að Jón hafi haft varanlega áhrif á mig sem ökumann, því vitanlega hafði hann „lög“ að mæla. Og ekki nóg með það. Þessi fyrsta framkoma hans gagnvart mér, er mér minnisstætt tákn um raunar allan lífsferil þessa gjörhygla og grandvara manns, sem alla tíð bjó yfir mér liggur við að segja barnslegum hreinleik og sakleysi til orðs og æðis. Öll framkoma hans einkenndist af glaðværð og góðvild - eins og svo mörg hin síðari árin, þegar hann gekk hvergi nærri heill til skógar og þurfti að búa við þó nokkra einsemd. En heiðríkja hugans og fjölmörg áhugamál léttu honum lífið og húsinu sínu fallega ráðstafaði hann til Háskóla íslands - áreiðanlega í meintri almanna- þágu. Þótt samstarf okkar Jóns Ólafssonar væri hvorki langvinnt né náið - hann var farinn frá Samvinnutryggingum sem framkvæmdarstjóri, þegar ég kom þang- að - er hann mér samt minnisstæðari og kærari en flestir þeir aðrir, er ég hafði meira saman við að sælda. Hann sýndi mér æ frá fyrstu kynnum óvenjulega elskusemi og tryggð, sem ég nú að leiðarlokum þakka honum af alhug. Vammlausari maður en Jón var, mun vandfundinn, og í engu brást hann, sem honum var til trúað. Þess vegna er minningin um hann óvenju heið, og virðingin grómlaus. Blessuð sé minning góðs manns. Baldvin Þ. Kristjánsson. Sími 78900 Saiur 1 FRUMSÝNIR Hvellurinn (Blow out) John Travolta varð heimslrægur tyrir myndimar Saturday Night Fever og Grease. Núna aftur kemur Travolta fram á sjónar- sviðið í hinni heimsfrægu mynd DePalma BLOW OUT. Þeir sem stóiu að Blow out: Kvikmyndataka Vilmos Zsign- ond (Deer Hunter, Close Erv coiinters). Hönooður: Paul Sylbert (One Flew Over The Cuckoo's Nest, Kramervs. Kramer, Heaven Can Wait). Klipping: Paul Hirsch (Star Wars) Myndin er tekin i Dolby og sýnd f 4 rása starscope stereo. Hækkað miðaverð. Sýnd kl. 5 - 7.05 - 9.10 og 11.15. Salur 2 FRUMSÝNIR Óskarsverðlaunamyndina Amerískur varúlfur í London (An American Verewotf in London) Pað má með sanni segja að þetta er mynd i algjörum sérflokki, enda gerði John Landis þessa mynd, en hann gerði grínmyndimar Kentucky Fried, Delta klfkan, og Blue Brothers. Einnig lagði hann mikið við að skrifa handrit að James Bond myndinni The Spy Who Loved Me. Myndin fékk Óskarsverðlaun fyrir förðun í mars s.l. Aðalhlutverk: David Naughton, Jenny Agutter og Grlff in Dunne. Sýnd kl. 5,7,9 og 11. Saiur 3 Píkuskrækir (Pussy-talk) MISSEN DER SLADREDE / Pussy Talk er mjög djörf og]afn- framt fyndin mynd sem kemur öllum á óvart. Myndin sló öll aðsóknarmet i Frakklandi og Svíþjóð. Aðalhlutverk: Penelope Lamo- ur, Nlls Hortzs. Leikstjóri: Frederlc Lansac. Stranglega bönnuð börnum innan 16 ára. Sýnd kl. 5 - 7 - 9 og 11. Salur 4 Breaker Breaker Frábær mynd um tmkkakappastur og hressileg slagsmál. Aðalhlutverk: Cuck Norris, Terry O'Connor. Endursýnd kl. 5 - 7 og 11.20. Fram í sviðsljósið (Belng There) (4. mánuður) Grínmynd I algjörum sérflokki. Myndin er talin vera sú albesta sem Peter Sellers lék í, enda fékk hún tvenn Óskarsverðlaun og var útnefnd fyrir 6 Golden Globe Awards. Sellers fer á kostum. AðalhluNerk: Peter Sellers, Shlrley MacLane, Melvin Douglas og Jack Warden. Leikstjóri: Hal Ashby. íslenskur texti. Sýnd kl. 9.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.