Tíminn - 30.07.1982, Blaðsíða 7

Tíminn - 30.07.1982, Blaðsíða 7
FÓSTUDAGUR 30. JÚLÍ 1982 erlent yfirlit ■ BERSÝNILEGA hefur náðst sam- komulag um það milli páfastólsins og ríkisstjórnar Póllands, að Jóhannes páfi hætti við heimsókn sína til Póllands 26. ágúst, en þá hefjast í borginni Czestoc- howa mikil trúarleg hátíðahöld í tilefni af 600 ára afmæli helgigrips, sem talinn er hinn mikilvægasti í Póllandi. Jóhannes páfi hafði lagt verulega áherzlu á, að hann væri meðal landa sinna í upphafi hátíðahaldanna. Þá er talið, að Bandaríkjastjórn og fleiri vestrænar ríkisstjórir hafi hvatt hann til þess. Pólska stjórnin mun hins vegar hafa óttazt, að koma Jóhannesar páfa til Póllands um þessar mundir myndi verða notuð af andstæðingum hennar til að sýna ýms andúðarmerki, jafnvel í stórum stfl. Þá er talið, að stjórn Sovétríkjanna hafi lagzt eindregið gegn því, að páfinn kæmi til Póllands, eins og ástatt er. Bæði pólski utanríkisráðherrann og Józef Glemp erkibiskup ræddu við páfa áður en það var endanlega ákveðið, að hann hætti við Póllandsför sína í næsta mánuði. Páfinn hefur látið í ljós, að hann sé þó ekki hættur við að heimsækja ■ Brésnjef og Jaruzelski. HÆGT MIÐAR í PÓLLANDI Haldið áfram viðræðum við kirkjuna Pólland, heldur sé hér um frestun að ræða. Jaruzelski hershöfðingi, sem nú má heita einræðisherra Póllands, hefur tekið undir þetta og gefið til kynna, að páfinn muni koma til Póllands áður en umræddum hátíðahöldum lýkur, en þau eiga að standa í eitt ár. FLEIRA en samkomulagið um frest- un á Póllandsferð Jóhannesar páfa þykir benda til þess, að bak við tjöldin fari fram viðræður milli leiðtoga kirkjunnar og ríkisvaldsins um að færa stjórnarfarið í það horf, að hægt sé að aflétta herlögunum og leyfa að nýju starfsemi óháðra verkalýðsfélaga, en þó með öðrum hætti en áður. í sambandi við þjóðhátíðardag Pól- verja, 22. þ.m., voru tilkynntar ýmsar slakanir á herlögunum, t.d. leyfð að nýju símtöl við útlönd. Þá voru látnir lausir um 1200 af forustumönnum Samstöðu, sem hnepptir voru í varð- hald, þegar herlög voru sett í desember. Mönnum þessum var sleppt, án þess að mál væru höfðuð gegn þeim. Tilkynnt hefur verið, að um 600 forustumenn Samstöðu séu enn í haldi, en gefið í skyn, að þeim verði sleppt fljótlega. Meðal þessara manna er Lech Walesa, en hann hefur verið fyrir nokkru fluttur frá Varsjársvæðinu og mun vera í opinberum bústað skammt frá rússnesku landamærunum. Þessi bú- staður mun einkum ætlaður opinberum gestum, sem boðið er á dýraveiðar. Frétzt hefur, að fjölskylda Walesa hafi dvalið þar hjá honum undanfarnar vikur. í ræðu, sem Jaruzelski hélt nýlega í pólska þinginu, taldi hann ekki mögu- legt, að aflétta herlögunum að sinni, en stefnt yrði að því að gera það smátt og smátt og til fulls fyrir næstu áramót, ef ekkert kæmi fyrir, sem hindraði það. Þá hélt Rakowski varaforsætisráð- herra einnig ræðu, þar sem hann ræddi m.a. um endurreisn óháðra verkalýðs- samtaka, sem myndu þó verða með talsvert öðrum hætti en Samstaða. Viðræður fulltrúa stjórnarinnar og kirkjunnar eru taldar snúast um það m.a. hvernig slíkum verkalýðssamtök- um yrði háttað. Þeir leiðtogar Sam- stöðu, sem fara huldu höfði, eru taldir tvískiptir í afstöðunni til þessa máls. Sumir vilja taka upp samninga við stjórnarvöldin í samráði við kirkjuna, en aðrir vilja efna til harðrar mótspyrnu og helzt reyna að koma á allsherjarverkfalli áður en langur tími líður. Áður en þingið kom saman, þar sem Jaruzelski og Rakowski héldu ræður sínar, var haldinn fundur í miðstjórn Kommúnistaflokksins. Þar voru gerðar nokkrar breytingar á stjórn hans, sem þykja styrkja stöðu Jaruzelskis og Rakowskis, en sá síðarnefndi hefur verið talinn leiðtogi frjálslyndari aflanna í flokknum. Ein aðalbreytingin var sú, að Stefan Olszowski, sem hefur verið talinn leið- togi harðlínumanna í flokknum, var látinn hætta sem yfirstjórnandi áróðurs stjórnarvalda, en í staðinn skipaður utanríksiráðherra, en sú staða þykir áhrifaminni en sú, sem hann gegndi áður, því að hann réði þá mestu um málflutning blaða og annarra fjölmiðla. Olszowski var utanríkisráðherra á árun- um 1972-1976. ÞÆR breytingar, sem hér hafa verið raktar, þykja benda til þess, að Jaruzelski hafi fullan hug á að færa stjórnarhætti aftur í frjálsara horf og fella herlögin úr gildi. Þetta muni hins vegar reynast hægara sagt en gert. Sennilega er það rétt, sem ýmsir fréttaskýrendur halda fram, að Jaru- zelski sé ekkert hrifinn af því hlutverki, sem hann þarf nú að gegna. Hann hafi verið þvingaður til þess, af tveimur ólíkum öflum eða annars vegar Rússum, sem ógnuðu með innrás, og hins vegar róttækum Samstöðumönnum, sem raun- ar voru búnir að taka völdin af Walesa oghugðust knýjafram stjómarbyltingu. Það gerir Jaruzelski erfiðara fyrir, að illa gengur að endurreisa efnahagslífið. Efnahagsástandið hefur að sumu leyti versnað frá því, sem áður var. Refsiað- gerðir þær, sem vestræn ríki hafa gripið til, eiga sinn þátt í því. Margir vestrænir fréttaskýrendur telja refsiaðgerðirnar vera mjög hæpnar. Þær geri ekki aðeins Jaruzelski erfiðara fyrir að færa stjómarhættina í frjálslegra horf, heldur neyði þær hann til aukins samstarfs við Sovétríkin. Jafnframt sé hægt að kenna vesturveldunum um erfiðleikana, sem annars myndu skrifast meira og augljóslegar á reikning stjórn- arvaldanna. Þórarinn Þórarinsson, ritstjóri, skrifar SINDY Póstsendum. w W LEIKFANGAVERZLUNIN J0J0 AUSTURSTRÆTI 8 - SÍM113707 AH R heybindivélar HD-460 x Mikil afköst x Vökvalyft sópvinda breidd 1,80 m. verð aðeins 85.360.00 Greiðsluskilmálar. pÓR F ÁRMÚLA11 fo«wui> l4p^ brautir og! M Ármúla 32 Iww Sími 8660: VERSLUN - SAUMASTOFA - \TiRSLUN Einfaldar, Ivöfaldar og þrefaltlar gardínuhrautir. Mikið úrval af eldhúsgardínum og gardinuefni, ni.a.: Velúr, damask o.m.fl. Allar sniavörur fyrir gluggann. Gormar. hringir. hjól. skrúfiir o.m.fl. Tökuin mál, sctjiim upp og sauimim. Sendum um allt land. gajp go-jo sápan leysir upp alls kynsóhreinindi go-jo er fljótandi sápa í þægilegum skammtara go-jo inniheldur handáburð. BENSINSTOÐVAR SKELJUNGS

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.