Tíminn - 30.07.1982, Side 4
Átta milljón króna framkvæmdum við Grundarfjarðarhöfn kastað á glæ:
„ALLT FER I HAFIÐ EF VIÐ
GETUM EKKI HALDIÐ AFRAM”
GLUGGAR
OG HURÐIR
Vönduð vinna á hagstœðu verði.
Leitið tilboða.
ÚTIHURÐIR
Dalshrauni 9. Hf.
S. 54595.
Starf húsvarðar
í Verbúðinni „Ásgarði“, Höfn, Hornafirði, er
laust til umsóknar
Heppilegt starf fyrir barnlaus hjón. Algjör
v reglusemi nauðsynleg.
Upplýsingar eru gefnar í síma 97-800.
Stjórn Verbúða hf.
Höfn Hornafírði.
— segir Guðni Hallgrfmsson, oddviti í Grundarfirði
■ „AUt sem við erum búnir að gera fer
í hafið ef við getum ekki haldið áfram,
fyrir utan að höfnin mundi lokast,“ sagði
Guðni HaUgrímsson oddviti í Grundar-
firði í viðtali við Tímann um vanda sem
þeir eiga við að glíma þar vestra.
Vandinn varðar hafnargerð. Verið er
að byggja hafskipabryggju á Grundar-
firði og var Grettir fenginn til að taka
efni úr innri höfninni til fyllingar í hinn
nýja garð, og dýpka höfnina jafnframt.
í upphafi var gerð áætlun hjá Hafnar-
málastofnun ríkisins um að Grettir
skyldi flytja 14 þúsund rúmmetra en J)ví
til viðbótar áttu að koma 20.000 m af
fyllingarefni úr landi. Síðan átti að koma
stálþil með tilheyrandi til að bryggjan
komist í gagnið. Kostnaðaráætlun var
gerð seint á síðasta ári og skyldi
heildarkostnaður verksins vera 4.906
milljónir. í framhaldi af því var á
fjárlögum veitt kr. 2.8 milljónir til
verksins, einhver fjárveiting var til frá
fyrra ári og það sem þá vantaði á skyldi
hreppssjóður leggja fram.
Verkið er sett á framkvæmdaáætlun
og Hafnamálastofnunin annast fram-
kvæmdir.
1. mars á þessu ári kemur ný
kostnaðaráætlun frá Hafnar-
málastofnuninni og hljóðar sú upp á 8
milljónir króna. Hreppsnefnd fer á
stúfana að slá sér út lán, til að mæta
þessari viðbót, m.a. með tryggingu í
voninni um nýtt ríkisframlag á næstu
fjárlögum. Það tókst og verkið hófst svo
í vor.
Nú hafa verið fluttir 40 þús. rúm-
metrar af efni úr innri höfninni, f stað
þeirra 14 þúsund, sem upphaflega
áætlunin gerði ráð fyrir og úr landi hafa
20 þúsund rúmmetrar verið fluttir, en
nýjar áætlanir gera ráð fyrir 9 þúsund
rúmmetrum í viðbót.
Svo gerist það á mánudaginn, að
oddvita á Grundarfirði berst enn ný
kostnaðaráætlun frá Hafnamálastofnun,
og gerir sú ráð fyrir að verkið kosti 12
milljónir króna. sú áætlun er dagsett 8.
júní.
Nú er sveitarstjómin illa á vegi stödd,
annað hvort er að útvega fjórar milljónir
í viðbót, til að verkið geti haldið áfram,
eða þá að horfa á eftir því sem þegar er
komið, berast inn f höfnina. Þá verður
höfnin ónothæf og 8 milljónum króna er
kastað á glæ.
„Við emm hissa á þessu,“ sagði
oddvitinn, „við héldum ekki að neitt
svona gæti komið fyrir, en við emm víst
varnarlitlir."
SV
Heyvagnar
-
Á tvöföldum 16“ hjólum.
Lengd 5-6 metrar.
Upplýsingar i sima 91-33700.
„Talan búin til í
fjárveitinganefnd”
— segir Bergsteinn Gizurarson hjá Hafnarmálastofnun
■ „Þessar 4,9 milljónir eru i' engu
sambandi við okkar áætlanir,“ sagði
Bergsteinn Gizurarson verkfræðingur
hjá Hafnarmálastofnun, þegar Tíminn
leitaði svara hjá honum um hvernig sú
stórkostlega aukning í efnisflutningum
og verkkostnaði við Grundarfjarðar-
höfn, sem oddvitinn í Grundarfirði segir
frá, hafi getað orðið.
„Þessi tala er búin til í fjárveitinga-
nefnd, þegar verið er að deila út því
takmarkaða fé, sem til hafnar-
framkvæmda er veitt. Þessi tala segir
aðeins hvaða fé er til, til að setja í
verkið."
Bergsteinn sagði síðan að fmmáætl-
un, sem hann gerði á síðasta ári um
kostnað á þessu verki hefði verið upp á
8,6 milljónir. Hún miðaðist við áætlað
verðlag í mars á þessu ári. Tölur um
pkMjmobll
ÆVINTYRAHEIMUR
BARNANNA
SENDUM í PÓSTKRÖFU.
LE/KFA NGA VERSL UN
V HALLVE/GARSTÍG 1 SÍM/ 26010
efnismagn sem flytja þurfti beri í þeirri
áætlun hans að mestu saman við nýjustu
áætlun.
Eftir að frumáætlun hans var gerð og
verkið komið á framkvæmdaáætlun,
tóku aðrir við hönnumþessog gerð nýrra
áætlana, sem voru birtar 1. mars. Þar
urðu mistök eða villur, sem urðu til þess
að áætlaðir efnisflutningar minnka og
kostnaðaráætlun jafnframt þannig að þá
er áætlað að verkið kosti 8 milljónir í
stað 8,6 einsog gert var ráð fyrir í
frumáætlun. Þá er ekki tekið tillit til
verðbólgu.
Ýmislegt hafi svo orðið því valdandi
að kostnaðurinn hækkar upp í 12
milljónir. Þar vegur mest að stál í þilið
hækkaði miklu meira en ráð var fyrir
gert, eða um 100% í stað 50% eins og
áætlað var. Annað er að verkið reyndist
meira en frumáætlun gerði ráð fyrir,
fyrir þá sök að efnið sem tekið var úr
höfninni reyndist fínna og því ódrýgra
en áætlað var og svo reyndist dýpið, þar
sem fyllingin er, meira en ráð var gert
fyrir, vegna þess að stefna garðsins
breyttist.
Bergsteinn var hinsvegar ekki á þeirri
skoðun að allt sem búið er að gera í
höfninni verði ónýtt ef ekki tekst að afla
fjár til að fullgera verkið, en viðlegu-
pláss í höfninni mundi minnka verulega
svo að vandræði hljótist af.
„Það er öfugsnúið ef ekki tekst að
útvega þetta fé þegar þess er gætt að
þarna eru tveir togarar, sem kosta tugi
milljóna,“ sagði Bergsteinn. „Það er
hægt að kaupa togara á hafnir, sem ekki
geta tekið á móti þeim, og þeir eru búnir
radartækjum, sem eru svo dýr að
flugmálastjórn getur ekki keypt þá og
vindmælum sem eru of dýrir fyrir
Veðurstofuna," sagði Bergsteinn Gizur-
arson verkfræðingur.
SV.