Tíminn - 30.07.1982, Side 12
20
FÖSTUDAGUR 30. JÚLÍ 1982
ERNIR P qímar„KQR
ISAFIROI og 3393
Bflaleíga
JEPPAR FÓLKSBÍLAR^^
Óska eftir
, að kaupa snemmbærar kvígur eða ungar
mjólkurkýr.
Upplýsingar í síma 93-2131, Akranesi í hádeginu
og eftir kl. 19.00
Bændur
Notuð hjólmúgavél 4-6 hjóla og heykvísl
óskast.
Upplýsingar í síma 91-19586
Auglýsing
samkvæmt l.mgr. 98. gr. laga nr. 75 14.
september 1981 um tekjuskatt og eignarskatt,
um að álagningu opinberra gjalda á árinu
1982 sé lokið á þá menn sem skattskyldir eru
hér á landi samkvæmt 1. gr. greindra laga, á
börn sem skattlögð eru samkvæmt 6. gr.
þeirra, svo og á lögaðila og aðra aðila sem
skattskyldir eru skv. 2. og 3. gr. þeirra.
Tilkynningar (álagningarseðlar) er sýna þau
opinberu gjöld sem skattstjóra ber að leggja á á
árinu 1982 á þessa skattaðila hafa verið
póstlagðar.
Kærur vegna allra opinberra gjalda, að sóknar-
gjöldum undanskildum, sem þessum skattaðilum
hefur verið tilkynnt um með álagningarseðli 1982,
þurfa að hafa borist skattstjóra eða umboðs-
manni hans innan 30 daga frá og með
dagsetningu þessarar auglýsingar.
Samkvæmt ákvæðum 1. mgr. 98. gr. áður
tilvitnaðra laga munu álagningarskrár fyrir hvert
sveitarfélag liggja frammi á skattstofu hvers
umdæmis og til sýnis í viðkomandi sveitarfélagi
hjá umboðsmanni skattstjóra sem hér segir:
f Reykjavík 3.-17. ágúst að báðum dögum meðtöldum
I Vesturlandsumdæmi, 13.-27. “ “ “ “ “
í Vestfjarðaumdæmi, 13.-27. “ “ “ “ “
f Norðurlandsumdæmi vestra, 3.-17. “ “ “ “
í Norðurlandsumdæmi eystra, 3.-17. “ “ “ “ “
I Austurlandsumdæmi, 13.-27. “ “ “ “ “
f Suðurlandsumdæmi, 3.-17. “ “ “ “ “
IVestmannaeyjum, 13.-17. “ “ “ “ “
f Reykjanesumdæmi, 3.-17. “ “ “ “ “
30. júlí 1982.
Skattstjórinn í Reykjavík,
Gestur Steinþórsson
Skattstjóri Vesturlandsumdæmis,
Jón Eiríksson,
Skattstjórinn í Vestfjarðaumdæmi,
Hreinn Sveinsson
Skattstjórinn í Norðurlandsumdæmi vestra, .
Bogi Sigurbjörnsson
Skattstjórinn í Norðurlandsumdæmi eystra,
Hallur Sigurbjörnsson.
Skattstjórinn í Austurlandsumdæmi,
Bjarni G. Björgvinsson.
Skattstjórinn í Suðurlandsumdæmi,
Hálfdán Guðmundsson.
Skattstjórinn í Vestmannaeyjum,
Ingi T. Björnsson.
Skattstjórinn í Reykjanesumdæmi,
Sveinn Þórðarson.
íþróttir
Leikur UBK og IBÍ í gærkvöldi:
IBI gefur
ekki eftir
Hið harðskeytta lið ÍBÍ er ekkert á
því að gefa eftir í hinni hörðu baráttu 1.
deildar. í gærkvöldi lögðu ísfirðingarnir
að velli Breiðablik í Kópavogi 2:0, úrslit
sem sannarlega koma á óvart.
Á 15. mín skoruðu vestanmenn sitt
fyrra mark. Jón Oddsson kastaði
boltanum í innkasti inn að marki
Blikanna. Knötturinn sveif yfir Guð-
mund, markvörð, í koll eins varnar-
manns og í markið, 1:0. Reyndar var
Staðan
Víkingur .........11 5 5 1 19:13 15
Vestmannaey......11 6 1 4 15:11 13
KR............... 12 3 7 2 8:9 13
KA............... 13 4 5 4 10:10 13
Breiðablik....... 13 5 2 6 14:17 12
ísafjörður ...... 13 4 4 5 18:19 12
Keflavík ........ 12 4 3 5 9:13 11
Fram............. 12 3 5 4 12:11 11
Akranes ......... 12 4 3 5 12:13 11
Valur ........... 13 4 3 8 11:12 11
ekki annað að sjá en Guðmundi væri
hrint, en ekkert var dæmt. Bæði lið áttu
nokkuð góð færi á næstu mínútum, þó
ekkert betra en Sigurður Grétarsson
komst einn inn fyrir vörn ÍBÍ, en lét
Hreiðar hirða knöttinn af tám sér.
Skömmu seinna átti Helgi Helgason
skot í þverslá marks ísfirðinganna.
Bylmingsskot. Á síðustu mín. fyrri
hálfleiks skoruðu ísfirðingarnir síðan
sitt annað mark. Jón Oddsson tók
hornspymu fasta og Örnólfur bróðir
hans stökk hæst allra og hamraði
boltann í netið, hörkumark, 2:0.
Blikarnir skiptu Jóhanni Grétarssyni
og Sigurjóni Kristjánssyni inn á fljótlega
í seinni hálfleik og eftir það sóttu þeir
linnulítið, en tókst ekki að koma
boltanum framhjá góðum markverði
ÍBÍ, Hreiðari. Tvö dýrmæt stig til
ísfirðinganna.
Gústaf Baldvinsson var yfirburða-
maður á vellinum að þessu sinni,
öruggur og harðskeyttur miðvörður.
-IngH
Breiðabliksmaðurinn Hákon Gunnarsson
Islandsmótið íhandbolta utanhúss:
KR meistari í
2. flokki kvenna
■ Stelpurnar í KR urðu íslandsmeist-
arar í 2. flokki á Útimótinu í handbolta
1982. Þær sigruðu alla andstæðinga sína
í úrslitakeppninni, Víking 4:3, FH 5:1
og loks Huginn frá Seyðisftrði 6:2.
Frammistaða stúlknanna frá Seyðisfirði
kom mjög á óvart, margar stórefnilegar
handboltastelpur í Huginsliðinu.
Á myndinni hér að ofan er íslands-
meistaralið KR:
Fremri röð frá vinstri: Elsa Ævars-
dóttir, Bryndís Harðardóttir, Snjólaug
Benjamínsdóttir, Nellý Pálsdóttir.
Aftari röð frá vinstri: Ragnheiður
Ásgrímsdóttir, Sigurbjörg Sigur-
þórsdóttir, Málfríður Sigurhansdóttir,
Dóra Ólafsdóttir, Aðalheiður Ásgríms-
dóttir, Þorvarður G. Höskuldsson
þjálfari.
Siglingamenn
gera víðreist
■ Islenskir siglingamenn gera víðreist
þessa dagana. Fjórir þeirra verða meðal
þátttakenda á Norðurlandamóti í sigl-
ingu Laser-báta er fram fer í Tunsberg
í Noregi, dagana 4. til 8. ágúst. Til
fararinnar hafa verið valdir:
Jóhanncs Örn Ævarsson, Ými,
Gunnlaugur Jónasson, Ými,
Rúnar Steinsen, Ými,
Aðalsteinn Loftsson, Brokey.
Þeir Jóhannes og Gunnlaugur eru
þegar farnir utan og hafa æft og keppt í
Hellerup-sejlklub í Danmörku síðastlið-
inn hálfan mánuð.
Einnig verða þrfr íslendingar meðal
þátttakenda á heimsmeistaramóti í
siglingu Topper-báta er fram fer í Devon
á Englandi 2. til 6. ágúst. Til þeirrar
farar hafa verið valdir:
Jón Gunnar Aðils, Vog,-
Guðmundur Guðmundsson, Vog,
Guðmundur Kjæmested, Vog.
Fararstjóri þeirra Toppermanna verð-
ur Daníel Friðriksson. Þess má geta að
heimsmeistaramót á Topper er nú
haldið í fyrsta sinn og hefur Siglinga-
samband fslands gefið einn verðlauna-
grip, sem keppt verður um árlega.