Tíminn - 11.08.1982, Page 3
MIÐVIKUDAGUR U. ÁGÚST 1982
3
fréttir
Fá opinberir starfsmenn borgaðar fullar verðbætur?
„EG HEF OFT BOÐIÐ BSRB 2.9%
UPPIVÆNTANLEGAN SAMNING”
— segir Ragnar Arnalds, f jármálaráðherra
■ „Ég hef boðið BSRB oftar en einu sinni að ef
samningar hafa ekki tekist fyrir 1. sept. og þessi
bráðabirgðalög verða sett, þá fái þeir þessi 2,9% engu
að síður borguð út upp í væntanlegan kjarasamning eða
sem hluta af honum“, sagði Ragnar Arnalds fjármálaráð-
herra í samtali við Tímann er við spurðum hann um
viðbrögðin við ályktun þeirri sem BSRB samþykkti á
fundi í fyrrakvöld, þar sem m.a. var boðað til verkfalls
vegna væntanlegrar setningar bráðabirgðalaga um
vísitölumál.
„Ég taldi rétt að gera forystu-
mönnum BSRB grein fyrir því
að umræður um verðbótamál
innán stjórnarliðsins hefðu fallið
á þennan veg. Ég sagði þeim og
stend áfram við það að ég tel að
þetta breyti í sjálfu sér engu um
kjarasamninga BSRB og þess-
vegna finnst mér viðbrögð
þeirra við þessu einkenniieg.“
Ragnar tók það fram að engin
ákvörðun hefði enn verið tekin
um þetta verðbótamál, en sem
kunnugt er var hugmyndin að sú
2,9% skerðing sem ASÍ og fleiri
aðilar hafa samið um gengi jafnt
á alla línuna.
„í fyrsta lagi er ljóst að báðir
aðilar, ríki og BSRB, hefðu
tekið fullt tillit til þess hvort þessi
2,9% hefðu komið til útborgunar
eða ekki við gerð væntanlegs
kjarasamnings“, sagði Ragnar.
„Það hefði því heldur ekki átt að
■ Ragnar ■ Kristján
breyta neinu um launagreiðslur
sem kæmu til útborgunar 1.
sept.“
Ragnar Arnalds sagði enn-
fremur að almennt séð væri þetta
mál ekki tilkomið vegna BSRB
og skipti þar ákaflega litlu máli.
„Þetta er frekar tilkomið
vegna hinna mörgu aðila á
vinnumarkaði sem í mörgum
tilvikum er hálaunafólk, eða
með allgóðar tekjur, en myndu
sem sagt ekki fá greidda sömu
vísitölu og láglaunafólkið heldur
3% hærri verðbætur og þetta er
því fyrst og fremst samræmingar-
aðferð,“ sagði Ragnar. - FRI.
„HEFUR EKKI
BOÐIÐ ÞETTA”
— segir Kristján Thorlacius
■ „Það er ekki rétt að ráðherra háfi
boðið þetta. Hann ympraði á því að
hann hefði vcrið búinn að gefa út
yfiriýsingu um að einhver slík greiðsla
kæmi á móti, en við munum vega og
meta grunnkaupshækkun og ákvæði
um verðbætur saman og það fer eftir
samningum í heild hvemig litið verður
á verðbótaþáttinn,“ sagði Kristján
Thoriacius formaður BSRB í samtali
við Tímann, og lét þess jafnframt getið
að þeir mótmæltu því afdráttarlaust að
samningamál þeirra væru ákveðin
með lögum.
Á sameiginlegum fundi stjórnar og
samninganefndar BSRB í fyrrakvöld
var samin ályktun sem felur í sér að
mótmælt er harðlega fyrirætlunum
ríkisstjórnarinnar um að lögbinda
vísitöluskerðingu á laun opinberra
starfsmanna með bráðabirgðaiögum.
Ef slík lög verða sett þá kalli það á
skjótar og áhrifaríkar aðgerðir sam-
takanna og lagði fundurinn áherslu á
að félögin undirbyggju samsiillta
baráttu og þar með boðun verkfalls.
Fundur var í dag hjá sáttasemjara
og sagði Kristján að á honum hefði
BSRB lagt kapp á samningaviðræður
við félögin um sérkjarasaníninga.
„Við lögðum áherslu á að sérkjara-
samningar hæfust við öH félög ríkis-
starfsmanna og var lofáð ,að koma
þcim í gang þannig að fundir um það
verða fram að helgi“, sagði Kristján.
„Þá var því einnig beint til
ríkissáttasemjara að þegar hæfust á
næstunni svipaðar samningæiðiræður
við bæjarstarfsmenn.
- FRl.
■ Skilnaður eftir Kjartan Ragnarsson verður frumsýndur í september. Á myndinni
er Guðrún Ásmundsdóttir í átakaatriði í leikritinu, en á bak við eru Aðalsteinn
Bergdal og Valgerður Dan.
Blómlegt starf
Leikfélags Reykjavíkur:
Salka Valka
trekkti mest
■ Áhorfendur á sýningum Leikfélags
Rcykjavíkur á síðasta leikári voru fleiri
en á nokkru leikári fyrr. Alls voru sýnd
tíu leikrit á árinu, þar af voru fimm
íslensk, og áhorfendur urðu alls 75.590.
Leikritið Jói, eftir Kjartan Ragnars-
son var oftast sýnt allra verka sem LR
sýndi, sýningar urðu 92 og áhorfendur
21.201. Salka-Valka eftir Halldór Lax-
ness var næst með 39 sýningar, fyrir fullu
húsi, samtals 9.585 áhorfendur. Tvö
leikrit, Ofvitinn og Rommí voru sýnd
þriðja leikárið í röð. Sýningar á
Ofvitanum eru orðnar 193 aUs og
áhorfendur eru komnir yfir 42 þúsund.
Á Rommí hefur verið 151 sýning fyrir
rúmlega 30 þúsund áhorfendur. íslenska
sjónvarpið vinnur nú að upptöku á
sýningu félagsins á Ofvitanum.
Síðastliðinn vetur störfuðu um 30
leikarar hjá félaginu, þar af var um
helmingur fastráðinn. Leikstjórar voru
fimm, leikmyndateiknarar voru einnig
fimm og þýðendur erlendra verká
sömuleiðis fimm. Og fjórði starfsmanna-
hópurinn, sem taldi fimm menn var
tónlistarmenn, sem sömdu og/eða fluttu
tónlist í sýningum.
Meðal sætanýting í leikhúsinu var
94% en best sætanýting var á sýningum
Sölku Völku, þar var 98% nýting.
Á næsta leikári verða eftirtalin verk
tekin aftur til sýninga: Jói, Hassið
hennar mömmu, Salka Valka og líklega
Rommí. Fyrsta frumsýningin í haust
verður á nýju leikriti eftir Kjartan
Ragnarsson sem ber heitið Skilnaður.
Leikhússtjórar LR eru Stefán Bald-
ursson og Þorsteinn Gunnarsson, en
formaður félagsins er Jón Hjartarson
leikari. Framkvæmdastióri er Tómas
Zoéga. SV
„Hafo svona vandaöir raóstópar
nokkum tíma venð seldir á jafn
hagstæöu veröi ?“
Okkur hefur tekist að halda verðinu því sem næst óbreyttu
í heilt ár. 8% staðgreiðsluafsláttur eða 25% útborgun.
■ álk ■ Brúnleit eða wengelituð eik,
Bm |fp flLg I m B ■ gjjL J| fléttaður tágavefur í rammahurðum.
B fifil fifiLjós fylgir í neðriljósakappa. íslensk
I v H H H H H hönnun - íslensk framleiðsla.
KRISTJfifl
SIGGEIRSSOn HF.
LAUGAVEG113.
SMIOJUSTIG 6, SIMI 25870
rig óska eftir að fá sent MEDINA litmyndablaðlð
| Nafn:_______________________________________________________
| Heimili:____________________________________________________
. Staður:_____________________________________________________
| Sendist til: Kristján Siggeirsson h.f.Laugavegi 13.101 Reykjavík