Tíminn - 11.08.1982, Qupperneq 4
4
MIÐVIKUDAGUR U. ÁGÚST 1982
FUJIKA
STEINOLÍU-
OFNAR
AtflR HAGS17ETT VERÐ
Skeljungsbúðin
Síðumúla33
símar 81722 og 38125
ÆTLIÐ ÞÉR AÐ
KAUPA
IGNIS
CONCORD
KÆLISKÁP?
TILBOÐSVERÐ
nú: á 310 It. kæliskáp
7,950 ,
Sérstaklega sparneytinn
með polyurethane einangr-
un.
Hljóölátur, öruggur, stll-
hreinn.
Möguleiki á vinstri og
hægri opnun. Gott fernu-
pláss.
Hægt aó skipta um iit aó
framan.
Lítið á bls. 4 í síma-
skránni.
Algjörlega sjálfvirk af-
Þýðing.
Góðir greiðsluskilmálar.
RAFIÐJAN H.F.
Kirkjustræti 8 v/Austurvöll
S.19294 og 26660
ar leggja mesta áherslu á að útsýni frá
Amarhóli út yfir Sundin muni verða
byrgt með hinni væntanlegu byggingu og
telja að mótmæli Reykvíkinga gegn
slíkri skerðingu hafi verið því sem næst
að engu höfð.
„Ég óttast að málið sé komið í þann
farveg að ekki verði aftur snúið,“ sagði
Davíð Oddson borgarstjóri um málið og
bætti við: „En ég skil mæta vel afstöðu
þeirra sem hafa áhyggjur af miðborginni
og viðkvæmum reitum þar. Seðlabank-
inn hefur samning í höndunum og fram-
kvæmdir eru hafnar, svo að í raun getum
við ekkert gert,“ sagði Davíð. Hann
upplýsti að hann hefði sent Seðlabanka-
stjórninni afrit af mótmælunum og
beðið um skriflegt svar hennar.
„Okkar afstaða mun koma fram í
svari, sem við munum senda borgar-
stjóra,“ sagði Guðmundur Hjartarson
bankastjóri, þegar Tíminn spurði hann
hvort bankinn mundi ljá máls á því að
falla frá byggingaráformum sínum við
Arnarhól, en vildi ekki tjá sig frekar um
málið„
Meðal þeirra sem skrifa undir mót-
mælabréfið eru Þorsteinn Ö. Stephen-
sen, Halldór Laxness, Tómas Guð-
mundsson, Þorkell Sigurbjörnsson,
Sveinn Einarsson, Þórarinn Eldjárn,
Jón Baldvin Hannibalsson, Jón Þórar-
insson, Vilmundur Gylfason og Ólafur
Jóhann Sigurðsson, svo einhverjir séu
nefndir.
SV
■ „Það er eindregin krafa okkar að
borgarstjóm taki nú þegar upp samn-
inga við stjóm Seðlabankans um að hætt
verði við byggingu bankans á þessum
stað.“ Þetta stendur m.a. í bréfi 29
þjóðkunnra Isiendinga - sem flestir em
þekktir listamenn - til borgarstjórans í
Reykjavík, og Davíðs Oddsonar, og lagt
var fyrir fund borgarráðs í gær.
( bréfinu er rakin saga byggingará-
forma Seðlabankans við Arnarhól og
mótmæla sem þau hafa vakið. Bréfritar-
■ Margir hafa verið að bíða eftir Idofningi innan Alþingishússins, en hann varð þá utan dyra þess í stað!: Nærstaddir höfðu orð
á að líklega mundi haninn sá ama hcita Haukdal, þótt ekkert sé fullyrt um hvort það sé satt. En víst lætur hann dæluna ganga.
(Tímamynd: H. Gunn.)
29 þjóðkunnir Islendingar mótmæla Sedlabankabyggingunni:
„ÉG ÓTTAST AÐ EKKI
VERÐI AFTDR SNÚID”
— segir Davíð Oddsson, borgarstjóri f Reykjavík
Þorskaflinn í júlí f jórðungi minni
en á sama tíma í fyrra
■ Þorskaflinn í júlímánuði var um 1/5
minni en i sama mánuði í fyrra, eða
samtals 27.369 tonn á móti 33.826
tonnum í júlí 1981. Þorskafli bátanna
var nú 4.214 tonnum minni og togaranna
2.243 tonnum minni en í júlímánuði'
1981. Alls var botnfiskaflinn nú 57.809
tonn og hefur minnkað milli ára nánast
um það sem minnkun þorskaflans
nemur.
Botnfiskafli í heild hcfur minnkað
töluvert i öllum landshlutum nema á
Suðurlandi þar sem bátaafli er nú nær
tvöfalt meiri en í fyrra og á Vesturlandi
þar sem bæði bátar og togarar hafa nú
fengið töluvert meiri afla en í júlí í fyrra.
Þorskafli frá áramótum var í júlílok
aðeins rúm 268 þús. tonn á móti tæpum
351 þús. tonnum á sama tímabili í fyrra,
þ.e. nær fjorðungi minni í ár. Þorskafli
togaranna þessa fyrstu 7 mán. nemur
97.537 tonnum sem er um 31% minna
en í fyrra, en bátanna 170.788 tonnum
sem er 18% minna en á síðasta ári.
Heildar botnfiskafli báta og togara þessa
fyrstu 7 mánuði er nú rúm 459 þús. tonn
en var rösk 517 þús. tonn á sama tíma í
fyrra.
Þorskafli togaranna er í öllum
landshlutum frá fjórðungi til þriðjungi
minni en í fyrra og allt upp í 38% minni
í Reykjavík og Hafnarfirði. Heildarafli
báta og togara er nú einnig töluvert
minni í öllum landshlutum með þeirri
einu undantekningu að bátar á Suður-
landi hafa nú aflað beturen á síðasta ári.
Þá má geta þess að loðnuveiðin í ár
er aðeins 1/12 hluti af því sem hún var
í fyrra eða rúm 13 þús. tonn á móti 158
þús. tonnum á sama tíma 1981. Humar-
og rækjuafli hefur hins vegar verið
heldur betri nú'en í fyrra.
-HEl
pmymooiH
ÆVINTÝRAHEIMUR
BARNANNA
SENDUM í PÓSTKRÖFU.
LEIKFANGA VERSLUN
V HALL VEIGARSTÍG 1 SÍM/26010 J