Tíminn - 11.08.1982, Síða 5
Upp kemst um stórfellt smygl í ms. Eddu:
TVEIR SKIPVERJflR GANGAST
VIS ÖLUIM SMYGLVARNINGNUM
■ Tveir skipveijar á MS Eddu hafa
gengist við að vera eigendur að
smyglvamingi sem fannst í skipinu
síðdegis á föstudaginn. Hér er um að
ræða sex hundmð fjörtíu og átta h'tra af
áfengi og eitt hundmð lítra af hreinum
vínanda. Verðmæti vamingsins á svört-
um markaði er talið hátt á fjórða
hundrað þúsund króna. Mun þetta vera
með stærri smyglmálum sem upp hafa
komið um árabil.
Skipið kom til landsins frá Bilbao á
Spáni s.l. miðvikudag. Að venju fóru
tollverðir um borð meðan skipið lá á ytri
höfninni. Leit var árangurslaus, þar til
síðdegis á föstudag, en þá var leitað í
svokölluðu þurrarúmi, undir lest tvö í
skipinu.
Að sögn Hermanns Guðmundssonar,
lögfræðings hjá tollgæslustjóra, var hér
aðeins um venjulega tollleit að ræða.
Sagði hann að ekki hefði verið nein
sérstök ástæða til að ætla að smyglvam-
ingur væri í skipinu.
Smyglvamingurinn sem fannst saman-
stendur af 600 flöskum af spönsku
Vodka, 24 flöskum af amerísku Vodka,
12 flöskum af Baccardi rommi og 12
flöskum af Gini.
- Sjó.
■ „Alveg hörkuskíðafæri“ segir Valdimar Ömólfsson í Keriingarfjöllum, þar sem þessi mynd er tekin.—Timamynd: Kás.
Snjóaði nýlega í Kerlingarf jöllum:
„Hörku skíðafæri”
— segir Valdimar Örnólfsson
„Skuld”
fagnar
friðun
hvalsins
■ „Hvalurinn er eign heims-
ins. Altént lítur heimurinn sjálf-
ur svo á. Enginn hlustar á þrugl
íslenskra forráðamanna um ein-
hverja sérstaka „íslenska“
stofna.“ Svo segir meðal annars
í yfirlýsingu frá „SKULD“ félagi
áhugamanna um hvalavemd,
undirritaðri af Eddu Bjamadótt-
ur, Skúla Magnússyni, Dagbarti
Stígssyni og Hrafnhildi Ágústs-
dóttur.
{ yfirlýsingunni er fagnað samþykkt
Alþjóða hvalveiðiráðsins um að alfriða
hvalinn. Þar segir einnig að tvívegis hafi
íslendingar misst af strætisvagninum í
sambandi við hvalinn, í fyrra sinnið
1974, þegar þverskallast var við að
framfylgja eigin samþykkt um friðun
hvalsins og fyrir tveim árum þegar til
boða stóð aðstoð við að koma á fót
nýjum atvinnuvegi í stað hvalvinnsl-
unnar.
Þá er látin í Ijós von um að ráðuneytið
(ótilgreint hvaða ráðuneyti) hætti nú að
berja höfðinu við steininn, hætti að
spilla öllum orðstír íslendinga og ætli
sér ekki að eyðileggja allan erlendan
markað fyrir íslenskar afurðir
Bent er á að íslendingar hafi
blóðmjólkað snemmbæruna: uppurið
hvern fiskistofninn af öðrum og stjórn-
völd hafi gert hvert áhlaupið á fætur
öðru gegn fornum orðstír íslendinga og
er í því sambandi vísað til aðferða við
útrýmingu sel^. Talið er að haldi fram
sem horfir í því efni, muni aðfarimar
brennimerkja íslendinga í augum heims-
ins, sem hina mestu ribbalda. SV
■ „Það snjóaði hjá okkur héma í
Kerlingarfjöllum um daginn og síðan
hefur verið alveg hörkuskíðafæri. Eins
og það verður best um þetta leyti árs,“
sagði Valdimar Ömólfsson, í Skíða-
skólanum í Kerlingarfjöllum, þegar
Tíminn ræddi við hann um talstöð í gær.
„Sumarið hefur verið alveg sérstak-
lega ánægjulegt," sagði Valdimar.
„Hingað hafa komið milli 1500 og 2000
gestir og það hefur verið fullbókað á öll
námskeið hingað til.“
Skíðaskólinn verður rekinn að
minnsta kosti út ágústmánuð. Valdimar
sagði að enn væri ekki uppselt á þrjú
unglinganámskeið sem verða 15., 20. og
25. þessa mánaðar. Valdimar sagðist
búast við að fljótlega yrði uppselt, því
skíðafærið væri gott og eftirspurnin
mikil.
Atvinnu-
leysi í
algeru
lágmarki
■ Atvinnuleysi virðist,
enn a.m.k., vera í algeru
lágmarki hjá okkur íslend-
ingum. Samkvæmt yfirliti
júlímánaðar reyndist það
jafngilda að 0,3% af áætl-
uðum mannafla hafí ekki
haft vinnu, eða að 330
manns hafi verið atvinnu-
lausir allan mánuðinn. Þar
af voru 225 konur, eða
68%.
Atvinnuleysi í mánuðinum virðist
bundið við einstaka staði. Þannig
jafngilti það 17 manns í Kópavogi (þar
af 14 konur), 20 í Hafnarfirði (11) og 13
(9) á Akranesi. Á Vestfjörðum er
atvinnuleysi óþekkt ennþá. Af 59
atvinulausum á Norðurlandi-vestra voru
48 (46) á Siglufirði. Atvinnuleysi á
Norðurland-eystra einskorðaðist nær
við Akureyri alls 44 (26), en var nær
ekkert á öllu Austurlandi. Á Suðurlandi
voru 16 (14) af 23 á Selfossi, í
Vestmannaeyjum aðeins 5 og á Reykja-
nesi voru 15 (10) af alls 20 í Keflavík.
Atvinnuleysi í Reykjavík jafngilti 95
(43) atvinnulausum allan mánuðinn.
Tölur innan sviga gilda allsstaðar um
atvinnulausar konur af heildarfjölda.
- HEI.
■ Húsgagnaverslunin Nýform, Reykjavíkurvegi 66. - Tímamynd: Ari.
Nýform í Hafnarfirði:
Ný þjónusta við kaup-
endur á landsbyggðinni
■ Húsgangaverslunin Nýform í Hafn- ingamiðstöðvar og verslunin tekur
arfirði hefur tekið upp nýja þjónustu við ekkert fyrir pökkun og keyrslu á
kaupendur úti á landsbyggðinni. vöruflutningamiðstöðina.
Þessi þjónusta er ný hjá fyrirtækinu,
Verslunin ekur sjálf húsgögnum 0g þvf ekki mikið reynd, en að sögn
norður að Borgamesi, og austur að Sigurðar Guðjónssonar framkvæmda-
Hvolsvelli, en á aðra staði á landinu em stjóra Nýforms hefur hún verið mikið
húsgögnin síðan send með vöruflutning- notuð frá því að byrjað var að veita hana.
um. Þá em vömmar fluttar á vömflutn- - SVJ.
Alþýðubandalagið endurskoðar afstöðu
sína til meirihlutasamstarfs á Akranesi:
,,Tek ekkert mark á
þessari yfirlýsingu”
— segir bæjarfulltrúi Alþýðuflokksins
■ „Ég tek ekkert mark á
þessari yfirlýsingu, hún kemur
frá einhverju bæjarmálaráði og
ég veit ekkert hvaða fyrirbrigði
það er,“ sagði Guðmundur
Vésteinsson fuiltrúi Alþýðu-
flokksins í bæjarstjórn Akra-
ness, í viðtali við Tímann.
Yfirlýsingin sem hann metur á
þennan hátt er frá bæjarmála-
ráðí Alþýðublaðsins á Akranesi
og fjallar um meirihlutasamstarf
í bæjarstjóminni.
Meirihlutann mynda S'jálfstæúis-
flokkur, sem á fjóra fulltrúa í bæjar-
stjórninni, Alþýðuflokkur með einn
fulltrúa og Alþýðubandalag sömuleiðis
með einn fulltrúa. Minnihlutann skipa
þrír fulltrúar Framsóknarflokksins.
Fleygurinn, sem nú er kominn í
samstarfið varðar ráðningu bæjarstjóra.
Bæjarmálaráð Alþýðubandalagsins seg-
ir í yfirlýsingunni að hæfasta um-
sækjandanum hafi verið hafnað vegna
skoðana hans, en hann er að þess sögn
sósíalisti. Því er einnig haldið fram að
allar umsóknir hafi verið hunsaðar og
ráðinn maður, sem ekki sótti um starfið.
„Þessi vinnubrögð eru þess eðlis, að
Alþýðubandalagið hlýtur að endur-
skoða aðild sína að meirihluta sam-
starfinu," segir í yfirlýsingunni og því
bætt við að næstu vikur verði notaðar til
endurskoðunarinnar og ákvörðun verði
síðan tekin á almennum félagsfundi.
Guðmundur Vésteinsson sagði það
alrangt að sá sem ráðinn var hefði ekki
sótt um, hann hefði talað við bæjar-
stjórnarfulltrúana og svo sótt um,
reyndar eftir að umsóknarfrestur var
útrunninn.
Tíminn ræddi einnig við Guðjón
Guðmundsson, annan mann á lista
Sjálfstæðisflokksins. Hann sagði að þeir
sjálfstæðismenn í bæjarstjóm hefðu enn
ekki fjallað um yfirlýsinguna og fyrr en
það hefði verið gert vildi hann ekíci láta
í ljós neitt álit á málinu. SV