Tíminn - 21.08.1982, Page 2
LAUGARDAGUR 21. ÁGÚST 1982
2
í spegli tímans
Umsjón: B.St. og K.L.
DIANAROSS
ER SIUNG
■ Diana Ross var í heiminn
borin 26. mars 1944 og er því
' orðin 38 ára. Ekki verður
annað sagt en að hún beri
aldurinn vel og þrátt fyrir hann
og þrjár bameignir, er hún enn
líkust táningi. En Diana er
fædd snemma í hrútsmerkinu,
sem sagt er einkenna börn sín
með miklum metnaði og orku,
og segja stjörnuspártrúaðir
það mjög sennilega vera skýr-
inguna á ævintýralegum ferli
Diönu.
Diana ólst upp í svertingja-
fátækrahverfi í Detroit og
benti ekkert til þess að hún
ætti framgangsríka framtíð í
vændum. En snemma fór að
bera á því, að hún var
músíkölsk í meira lagi, og hún
var ekki nema 19 ára, þegar
hún stofnaði söngflokkinn
„The Supremes“, ásamt tveim
vinkonum sínum. Þessi söng-
flokkur náði óðara miklum
vinsældum og átti hvert lagið á
fætur öðru í fyrsta sæti vin-
sældalistanna. Með tímanum
breyttist nafnið á tríóinu í
Diana Ross & The Supremes
og sýnir það hver raunverulega
var höfuðpaurínn í hópnum.
Og þá var þess ekki langt að
bíða, að Diana færi eigin leiðir
og segði skilið við lagsmeyjar
sínar. Það gerðist árið 1969.
Ekki vantaði hrakspárnar,
þegar hún steig þetta stóra
spor. Var óspart vitnað til
vinsælda „The Supremes“ og
reynt að telja Diönu trú um,
að engar vonir væru til að hún
nyti slíkra vinsælda ein á báti.
Diana lét allar úrtölur sem
vind um eyru þjóta og strax
næsta ár átti hún tvær plötur á
vinsældalistunum. En hún lét
ekki staðar numið. Næst var
að leggja kvikmyndaheiminn
að fótum sér.
1973 lék hún söngkonuna
Billie Holíday í myndinni
„Lady Sings The Blues“ og
tókst svo vel upp, að hún var
tilnefnd til Óskarsverðlauna.
1975 birtist hún enn á hvíta
tjaldinu í glæsimyndinni „Ma-
hogany“, en titillagið við þá
mynd rauk upp í efsta sæti
títtnefndra vinsældalista. Eng-
inn annar, að undanskildum
sjálfum Elvis Presley og Bítl-
unum, hefur átt fleiri lög á
vinsældalistum í Bandaríkjun-
um.
Og enn er Diana að. Hún
hefur m.a.s. prófað fyrir sér á
enn nýjum vettvangi. Nú síð-
ustu árín hefur hún fengist við
lagasmíð og þykir takast dável.
Diana sjálf gerír sér vel grein
fyrir, að hún hefur núorðið
sérstöðu í plötuheiminum,
sem ekki verður frá henni
tekin.
- Hér áður fyrr var það
framleiðandinn, sem ákvað,
hvað ég skyldi syngja, hvernig
ég skyldi syngja og hvernig
hver plata skyldi framleidd.
Enginn hlustaði á, hvað ég
hafði að segja. En það gera
þeir núna, segir Diana Ross.
■ 38 ára gömul gefur Diana ungu stúlkunum ekkert eftir í
diskódansinum
■ Með vasa-diskó um hálsinn sker Diana sig ekkert úr
táningunum á rúlluskautabrautinni.
■ Söngkonan Natasha þykir
gera laginu Iko Iko betrí skil
■ Samkeppnin er hörð í
poppheiminum. Því varð uppi
fótur og fit, í Englandi, þegar
kvisaðist, að von væri á tveim
keimltkum útgáfum á laginu
Iko Iko um svipað leyti hjá
tveim hljómplötuútgefendum.
Annar þeirra, Stiff Records,
hafði hraðar hendur við að
koma sinni útgáfu með lítt
þekktri hljómsveit, Belle
Stars, á markaðinn í þeirri
von, að hann skyti keppinaut
sínum, sem er að koma
Belle Stars komu sinni plötu fyrr a markaðinn,
en það dugði ekki til
söngkonunni Natasha á fram-
færi, ref fyrir rass.
Stiff Records vann kapp-
hlaupið um tímann, en útgáfa
Natöshu hefur þó gengið með
sigur af hólmi, þar sem hún er
í nánd við 10 efstu sætin á
vinsældalistum, þar sem útgáfa
Belle Stars verður að láta sér
nægja, að vera í nánd við 50.
sætið!
Til að nudda salti í sárin,
sendi umboðsmaður Natöshu
Stiff Records skeyti, þegar
kvisast hafði hvaða lagaval
væri í upptökum hjá þeim, þar
sem hann tjáði þeim, að hans
menn væru með sömu lög í
bígerð og yrðu áreiðanlega á
undan Stiff Records á markað
með sína plötu. Stiff Records
greip til sama ráðs og fyrr, að
flýta upptökunum, og það með
ærnum tilkostnaði. Það var
ekki fyrr en seint og um síðir,
sem það upplýstist, að hér var
einungis um gabb að ræða!
■ Amcrísku snobbararnir,
sem mest hlógu, þegar útlit
virtist vera á þvi, að fyrrum
Herra alheimur og núverandi
leikarí, Amold Schwarzenegg-
er, tengdist inn í hina metnað-
arfullu Kennedy-ætt við það
að giftast Maria Kennedy
Shriver, mega nú fara að
endurmeta afstöðu sína. Það
hefur nefnilega komið í Ijós,
að Arnold stendur vel fyrir
sínu og getur hvaða fjölskylda
sem er verið fullsæmd af því
fá hann sem tengdason.
Arnold hefur nú leikið í
sinni fyrstu kvikmynd, Conan
The Barbarian, ogþykirstanda
sig með miklum ágætum,
enda hefur myndin veríð
mjög vel sótt í
Bandaríkjunum í sumar.
Auk leikhæflleika, hefur
komið í Ijós, að
Arnold er fleirí
■ Vöðvabúntiö Amold Schwarzenegger er nú orðinn eftirsóttur leikarí. Honum
þykir hafa tekist alveg afbragðs vel upp í hlutverki harðsnúins skylmingamanns
í myndinni Conan The Barbarían og hér sést hann ásamt meðleikkonu sinni í þeirri
mynd, Sandy Bergman.
Tengdasonur Kennedy-
anna kemur á óvart
kostum búinn. Hann hefur nú
lokið háskólanámi í viðskipta-
fræðum og hefur vit á að
Ijárfesta á réttan hátt. Nú
nýlega hefur hann t.d. fest
kaup á heljarstórri íbúðablokk
í Denver, sem sögð er metin á
100 milljónir króna. Þykir
Arnold Schwarzenegger ræki-
lega afsanna þá kenningu, að
mikil og góð vöðvabygging
komi í veg fyrir vit í kollinum!